Vísir


Vísir - 23.11.1970, Qupperneq 3

Vísir - 23.11.1970, Qupperneq 3
V 1 S I R . Mánudagur 23. nóvember 1970. í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Innrás málaliða / Gíneu Umsjón: Haukur Helgason. Um 300 portúga/ar og afr'iskir málaliðar sagðir hafa gengið jbar á land — Sameinuðu þjóðirnar senda rannsóknarnefnd Sameinuðu samþykkti Oryggisráð þjóðanna snemma í morgun að senda nefnd til Afríkuríkisins Gíneu til að rannsaka þær ásakanir Gíneustjórnar, að portúgalskir hermenn hafi gert innrás í landið. Nefnd- in verður skipuð seinna í dag. Sekou Touré forseti Glneu haföi I gær sent boð til U Thant fram- * » * 55 * It * ■ *■ v'< % ■<* Síié jS!. ;> I * :?í:íí;í| fc, f ?''* V .**> • -:í Sá.- » r. * .♦ *í » **4 ; **■!?'*# #sí,í;í*;!íí*:1*55Í*; »*|«4@Í5*** *«*;* í v*íí.*,:s: 4 f <<<< 0* «&**s*rs;:« |*i*:s#:#.S!íí*!Í, * ♦**»:* *** í#* «* 'y- * , * t . -*« * ' ;......... ,! ,.;v ,(■ i kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna, þar sem Portúgalar voru sak- aðir um að standa á bak við inn- rásina. Segja Gíneumenn, að inn- rásarherinn hafi farið frá portú- gölsku Gíneu, sem er nýlenda Portúgala, hinn 20. nóvember kl. sjö að morgni til að ráðast inn í lýðveldið Gíneu. Hafi herinn feng- ið fyrirmaBli herforingja nokkurs ^og síðan gengið á ‘land nálægt höf- uðborginni Gonakry. Conakryút- varpið segir, að 1 mélaliða þessara sem Gíneuher hafi tekið til fanga, segi. að innrásarmenn hafi verið 190. Bæði portúgalskir hermenn og mélaliðar. Haft er eftir einum fanganum, Mamadou af nafni, að hann hafi gerzt málaliði árið 1965. Hafi hann verið í portúgalskri herdeild á eyjunni Touga undir stjóm portú- galska herforingjans Diaz Almeid- as. Innrásin var gerð í gærmorgun. Margt fór i handaskolum hjá inn- rásarmönnum. Til dæmis áttu þrír Gíneumenn að fylgja 35 portú- gölskum hermönnum til flugvallar, en einn þeirra neitaði að hlýða og flýði, og hinir tveir fóru aftur um borð í skip sitt. Annar hópur fékk skipanir um að loka veginum milli tveggja herbúða, svo aö fallhlífar- hermenn gætu lent þar. Einn „svikari“ I röðum Gíneu- manna, að sögn útvarpsins í Con- akry, segir, að 350 hermenn hafi tekið þátt í innrásinni, og voru 50 þeirra Gíneumenn, sem áttu að vísa Portúgölum veg. Fimm Gíneu- menn fengu það verkefni að hand- taka hermálaráðherra Gíneu. Touré Gineuforseti sagði í gær, að „mörg hundruð" mélaliðar væru Þetta er bréfið frá Krustjev. Kona Stalíns bjargaði lífi mínu — segtr / ,endurminningum Krustjevs' Tímaritið Life kom í kom út í' gær með fyrsta kaflann úr „endur minningum Nildta Krostjevs“. Þar segir, að Stalín hafi verið brjálað ur einræðisherra, og ,diafi aðeins vinátta mín og eiginkonu Stalins bjargað mér frá lifláti." Sovézka fréttastofan TASS hef- ur það eftir Krustjev, að hann hafi alls ekki ritaö þessar endur minningar, og birtir fréttastofan bréf frá Krustjev um það. í bréf inu segir, aö blöð i auðvaldsríkj- um eigni Nikita S. Krustjev svo- kallaðar endurminningar, sem eigi að fara að birta. „Þetta er upp- spuni og mér gremst það. Ég hef aldrei látið neitt slíkt frá mér fara. Þetta er lýgi auðvaldspress- unnar“. Svo segir Krustjev sam- kvæmt fréttum TASS. Sumum dettur nú í hug, að leyni þjónusta Sovétríkjanna hafi komið þessu plaggi í hendur Time-Life út- gáfunhar, en ekki er vitað hvers vegna það ætti að vera. i grennd við höfuðborgina og i henni, og erlend herskip væru inn- an landhelgi Gíneu. Skoraði hann á landsmenn að brjóta innrásina á bak aftur. Touré sagði, að „aftur- haldsmönnum skjátlaðist, ef þeir héldu, að Gínea mundi að nýju falla i hendur nýlendukúgara". Hann sagði, að þetta væri tilraun erlendra afla til að kollvarpa bylt- ingarstjóminni i Gineu. Síðan bað hann um aðstoð Sameinuðu þjóð- anna og gæzMið. Portúgalar söigðu 1 gær, að á- kærur Sekou Tourés væru „merki um veikleika hans“. „Ríkisstjórnir nota slík rök, þegar þær standa höllum fæti“, sögðu formælendur Portúgalsstjómar. Lögðu þeir á- herzlu á, að Portúgal væri friðelsk- andi land. Hvers konar stuöningur við innrásarmenn væri í andstöðu við stefnu Portúgals um friðsam- lega sambúð við allar þjóðir. 1 Portúgal hafði ritskoðunin fellt burt úr dagblþðunum fréttir um sakargiftir Sekou Tourés. Otvarp Gíneu sagði í gærkvöldi, að herþotur hefðu gert árás á höf- uðborgina. Sagt var, að hermenn hefðu gengið á Iand úr fjómm her- skipum. Barizt var I höfuðbopginni. Skothvellir heyrðust víða. í élyktun Öryggisráðsins í morg- un er þess krafizt, að bardögum verði samstundis hætt og erlendir hermenn og málaliöar kallaðir burt. Þetta er í fjórða sinn á einu ári sem Portúgalar hafa verið sakaðir um hernaðar- Sekou Touré forseti. afskipti af afrisku riki. Gínea hefur áður borið fram sínar ásakanir, ae það hafa Afrfkuríkin Senegal og Zambia einnig gert. Sekou Touré forseti Gíneu er einn vinstri sinnaðasti leiðtogi Afríku- rfkja. Gínea var eitt sinn frönsk nýlenda, en fékk sjálfstæði í stjórn artíð de Gaulles. Úrslitin í Bayern sigur fyrir Scheel Frjálsir demókratar virðast munu vinna þingsæti f fylkiskosningun- um f Bayem í V-Þýzkalandi. Þeir höfðu f morgun 12,2% atkvæða, en fyrir fjórum árum höfðu þeir engan þingmann fengið. Frjálsir demókrat ar eru f stjómarsamstarfi með jafn- aðarmönnum í Bonn, og er litið á bessi úrslit sem sigur fyrir Walter Scheel utanríkisráðherra og vinstri arm frjálsa demókrataflokksins. Nýnazistaflokkurinn hafði hins vegar tapað miklu, og fylgi hans rýrnað úr 12,2% í 5,2%. Með þvi missti þjóðernissinnaflokkurinn, sem kenndur er við nýnazista, alla 15 þingmenn sína á fylkisþinginu. Kristilegir demókratar juku fylg' sitt úr 48,1% í 56,0%. en fylgi jafnaðarmanna minnkaði úr 35,8% í 33,8% Sólarfri i sS?a í fyrsta sinn bjóðast íslendingum ódýr- ar oriofsíerðir með þotuflugi til suð- rænna ianda í svartasta skammdeginu. Flugfélagið hefur valið Kanaríeyjar, sem vetrardvalarstað fyrir þá, sem njóta vilja sólskins, hvíldar og skemmt- unar, þegar veturinn herjar hér heima. 15 daga ferðir — brottfarardagar 31. desember, 14. janúar, 28. janúar, 11. febrúar, 25. febrúar, 1. apríl, 15. apríl og 29. apríl. 22 daga ferð — brottfarardagur 11. marz. Verð með flugfari, gistingu og fæði að nokkru eða öllu leyti í 15 daga frá kr. 15.900.— eftir dvalarstöðum. Kanaríeyjar eru sá staður, sem Ev- rópubúar hafa valið til vetrardvalar, þegar kólna tekur við Miðjarðarhaf. Flugfélagið veitir 50% afsiáit af far- gjöldum innanlands í sambandi við ferðirnar. Upplýsingar og farmiðasala hjá iATA ferðaskrifstofum og öðrum umboðsmönnum Flugfélagsins. FLUCFELAG ISLAND& þotuflug er ferðamáti nútímans.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.