Vísir - 23.11.1970, Blaðsíða 16
hafði minnkað
á 9 mánuðum
ÍÍÍÉ'ífi
ISIP
Humarinn
flúinn
Smjörsalan
um 17,8%
— smjörlikissalan jókst um 50—60°/o
Mikið hefur dregið úr humar-
veiðinni héi1 við SV-laridið síðustu
daga, en humarveiðin hefur verið
einna arðsamasti veiðiskapur
smærri báta í sumar. — Það komu
þeir dagar seinnipartinn I sumar
að bátar komu inn með 2 tonn af
hessum dýra krabba eftir veiði-
férðina. — Nú virðist hann hins
vegar hafa hlaupið í felur. Og bát
amir fá ekki nema svo sem 200
kg í hverri veiðiferð.
Humarinn mun vera kominn að
bvt að hrygna og halda menn að
hann sé kominn upp á harðari
botn, þar sem bátarnir ná ekki til
hans. - JH
SALA á smjöri hefur aulcizt
eitthvað eftir að útsöluverð
þess var lækkað, en þar sem
svo skammt er um Iiðið síðan
lækkunin kom til fram-
kvæmda treysta hvorki Kaup
mannasamtökin, né Fram-
leiðsluráð sér til þess að
segja til um aukninguna. Sam
kvæmt upplýsingum smjör-
líkisframleiðanda hefur lítil-
lega dregið úr smjörlíkissölu
á sama tíma.
Hjá Kaupmannasamtökunum
fékk blaðið þær upplýsingar að
kaupmenn hefðu eitthvað orðið
varir við aukningu á smjörsölu,
en iítið væri að marka það enn
þá. Sala á smjöri hefði einnig
fallið niður nokkra daga fyrir
lækkun.
Sveinn Tryggvason fram-
kvæmdstjóri Framleiðsluráðs
sagði að enn væri of skammur
tími um liðinn síðan lækkunin
kom til framkvæmda, til að
dæma fyllilega um aukningu á
sölu. Um aukningu á sölu á
rjóma og mjólk sagði Sveinn, að
e'ftir lækkun hefði orðið 15%
aukning á rjómasölu og 2 — 3%
í mjólkursölu. En einnig væri
of skammur tími liðinn frá lækk
un til að dæma um aukningu.
Þá sagði Sveinn, að á fyrstu 9
mánuöum þessa árs hefði smjör
neyzlan nánast minnkaö um
17,8% miöað við sama tíma í
fyrra en undanfarin 2 ár hafi
smjörneyzla dregizt verulega
saman. Rjómasala minnkaöi
sömuleiöis, eða um 15% sl. tvö
ár, á fyrstu níu mánuöum árs
ins um 7,8% miðað við sama
tíma í fyrra. Mjólkursala hafi
einnig dregizt saman um 4%
sl. tvö ár. Hins vegar hafi sala
á osti aukizt. Sala á osti hafi
aukizt um 11% en sú sölu-
aukning hafi öll orðið á 30%
osti. Viröist því osturinn þola
hækkunina, sem varð á honum
og taldi Sveinn að þar sem ann
að álegg væri yfirleitt dýrara
mótaðist sala hans sjálfsagt við
það að hann væri ódýrari *r»
aörar sambærilegar vörur á
markaðnum.
„Það hefur eitthvað lítillega
dregiö úr sölu á jurtasmjörlíki,
en við reiknum meö verulegri
minnkun, það er alltaf bezt að
búast við hinu versta en vera
ekki of bjartsýnn", sagði Davíð
Scheving Thorsteinsson, þegar
blaðið hafði samband við hann
um sölu á smjörlíki eftir útsölu-
lækkun á smjörinu.
Jurtasmjörlíkið kostar nú 107
krónur kílóið en smjörið 130
krónur út úr verzlun.
Þá sagði Davíð að salan hefði
veriö mjög góð á þessu ári 50—
60% meiri í ár heldur en í
fyrra. — SB
Dreifa hassi
Stöðugt berast fréttir af ung-
um, íslenzkum stúlkum, sem
lenda á hálum ís í heimsborg-
unum. Maður einn tjáði blað-
inu í gær að hann hefði kom-
izt í sendibréf til stúlkna nú
fyrir nokkru. Bréf þetta barst
þeim frá vinkonum sfnum
kornungum.
Kváðust þær hafa það að
starfa að fara með fíknilyf, og
/ hjáverkum
þá aðallega hass, til viðtakenda.
Væru þær þannig einn hlekkur-
inn í sölukeðju á fíkntlyfjum.
Fyrir þetta lítilræði, kváðust
stúlkurnar, sem annars unnu á
hóteli einu, fá 12 þús. krónur
íslenzkar á mánuði.
! bréfi sínu sögðu þær og að
margar íslenzkar stúlkur stund-
uðu þennan starfa í hjáverk-
um. — JBP
vex
i ostaáti
Þessi harði árekstur varð inni á Langholtsvegi um kl. 2.30 í gær, þar sem jeppabíllinn rakst á
Volkswagninn og utan í leigubíl og hafnaði svo á girðingunni. Nokkrar skemmdir urðu á bílun-
um, ökumenn sluppu ómeiddir, en farþegi í fólksbílnum hlaut minni háttar skrámu. Jepp-
inn rann til á hálku, þegar ökumaður hans vildi sveigja fram hjá leigubíi, og lenti jeppinn þá á
Voikswagninum, sem kom á móti.
OSTANEYZLA fer mjög vaxandi
hér á landi, og hefur reyndar gert
undanfarin ár. 1969 borðuðu íslend
ingar 3,9 kg af ostum hver, en sú
tala er ekki sérlega há ef miða á
við ostaneyzlu nágrannaþjóðanna.
Gegir í skýrslu frá Osta og smjör-
silunni, að þjóðir Ástraliu og N-
Ameriku og Evrópu borði allra
manna mest af östum, enda búi
l aer þjóðir og við bezta efnahags
afkomu.
Frakkar eru mestu ostætur sem
um getur í heiminum. Þeir borða
rúmléga 13 kg hver. Næstir koma
rvi»;slendingar með liðlega 10 kg
og þar á eftir Danir, sem boröa
0,3.kg.
Auðsjáanlega verðum við Islend
hgar að herða okkur við ostaátið
ef við ætlum að ná Dönum áður
en lýkur, og er reyndar ekki von
Iaust um að það takist. Reiknað er
með að ostaneyzla hérlendis auk-
ist um 10—12% á þessu ári, en
áhugi almennings fyrir ostum og
ostaréttum er vaxandi og fjöl-
breytni í framleiðslu hefur vaxið
upp á síðkastið.
Það er Osta- og smjörsalan sem
annast alla heildsöluverzlun með
smjör og osta, aðra en þá, áem
framleiðendur sjálfir annast.
Húsnæði Osta- og smjörsölunn
ar er að Snorrabraut 54 og þar
eru annað slagið haldnar kynning
ar á ostum og ostaréttum. Hafa
þær kynningar notið vinsælda og
er sú næsta fyrirhuguð i des-
ember. — GG
Slippstöðinni tryggð smíði
tveggja skuttogara
Verða um 30 milljón kr. dýrari en spænskir
skuttogarar. Bæjarstjórnin ábyrgist, að UA burfi
aðeins að bera 7,5 millj. kr. aukakostnað
• Hagur Slippstöðvarinnár hef-
ur nú heldur betur vænkazt,
þar sem bæjarstjórn Akureyrar
Yandræðabörn,
eða
vandræðaf or el dr ar ?
„Vart sé hægt að tala um
eiginlegt unglingavandamál í
heild, heldur sé hér um við-
fangsefni að ræða, sem alltaf
hefði verið fyrir hendi og
mundi verða". Þetta kom m.
a. fram í umræðum hópfund-
ar um málefni barna og ung-
menna, en sem bamavemd-
arnefnd Kópavogs boðaðl til
I síðustu viku.
Funidurinn taldi augíjóst að
í dilka eftir aldri hin sfðustu
ár. Nánast mætti segja að hér
á landi byggju tvenns konar
þjóðfélög, þjóðfélag ungmen.na
annars vegar og þjóðfélag fuill-
orðinna hins vegar. Vegna þessa
sköpuðust því miður oft margs
konar vandamál sem væru ekki
síður fuUorðna fólkinu að kenna.
Þvl ætti hugtakið „vandræða-
foreldrar" jafn njikinn rétt á
sér og hugtakið „vandræða-
böm“.
Til fundar þessa voi u boðaðir
) fólk ihieföi verið dregið 'um öf um 50 aðdar, bæjar-, lög-^ o. s.
reglu- og fræðsluyfirvöld
feæjarins og rætt vítt og breitt
um æskulýðsmálastarfið. Taldi
fundurinn nauðsyn á aukinni
kynferðisfræðslu í skólunum,
þar færi saman líffræðileg og
siðferðisleg kennsla.
Þá taldi fundurinn að nauö-
syn bæri til að gafa út bæklinga
fyrir börn og foreldra þar sem
varað væri við ýmsum hættum,
s. s. kynferðisafbrotamönnum,
neyzlu tóbaks áfengis og eit -
urlyfja, hættnm í umferðinni
o. s. frv. — JBP
hefur ákveðið að ábyrgjast Út-
gerðarfélagi Akureyrar, að það
þurfi ekki að bera meiri kostn-
aðarauka en 5% vegna kaupa
á skuttogara frá Slippstöðinni
miðað við sambærilega skuttog-
ara frá Spáni.
Vandi bæjarstjórnar Akureyrar
er nú að koma rúmlega 20 milljón
króna aukakostnaði fyrir kattarnef
og er Bjarni Einarsson, bæjarstjóri
kojninn til Reykjavíkur til að semja
við rikisstjórnina um þessa fjár-
upphæð.
Otgeröarfélag Akureyrar lýsti
sig reiðubúið til að kaupa skuttog-
ara frá Slippstöðinni í stað þess
að kaupn hann frá Spáni með því
.skilyrði, að hann kostaði félagið
ekki meira en 5% meira, en
snönsku skuttogararnir, sem eiga
að kosta um 150 miUjón kr Ljóst
er hins vegar, að Slippstöðin getur
ekki smíðað skuttogarana fyrir
minna en 180 milljónir og tók bæj-
arstjóm Akureyrar því á sig á
aukafundi á laugardaginn að ábyrgj
ast mismuninn, ca. 23 milljónir kr.
Rfkisstjórnin hafði áöur heimilað,
’að Útgerðarfélagiö semdi viö
Slippstöðina um kaup á tveimur
skuttogurum, þar sem Útgerðarfé-
lagið hefði forkaupsrétt á seinni tog
aranum. —• í viðtali við Vísi i
morgun, sagði Bjami Einarsson,
bæjarstjóri, að hann teldi eðlilegt,
að ríkisstjómin bæri einhvem auka
kostnað vegna þessara skuttogara,
þar sem smíði þeirra irmanlands
væri augljóst þjóðhagslega mjög
hagkværn.
Reiknaö er með, að fyrri skuttog
arinn geti verið ful'lgerður um 18
mánuðum eftir að samningar verða
undirritaðir eða um mitt ár 1972,
en sá seinni um 8 mánuðum seinna,
en hver skuttogari verður um 1000
tonn og gerður eftir teiknilýsingu
skuttogaranefndar í höfuödrátt-
um. — VJ
HéttcsrhöEd yfir ísl.
stúEkunni í ísruel
30. nóvember
■ Réttarhöld í máli íslenzku
stúlkunnar, sem handtekin var
fyrir mánuði á flugvelli í ísrael
með 24l/2 kg. af hassi í farangri
sínum, munu hefjast 30. nóv. næst-
komandi, samkvæmt fréttum, sem
nú hafa borizt frá Tel Aviv.
Q Undanfarinn mánuð hefur rann
sókn staðið yfir í máli stúlk-
unnar, sem á meöan hefur verið
í haldi í kvennafangelsinu f Nave
Tirza, sem er um 30 km. frá Tel
Aviv. Ákæra var gefin út á hendur
stúlkunni 8. nóv. — GP