Vísir - 12.01.1971, Blaðsíða 8

Vísir - 12.01.1971, Blaðsíða 8
VÍSIR . Þriðjudagur 12. janúar 1971. Otgefandi: Reykjaprent nt. Framkvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Bröttugötu 3t> Símar 15610 11660 Afgreiösl^ • Bröttugötu 3b Sími 11660 Ritstjóra: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur) Askriftargjald kr. 195.00 á mánuöi innanlands f iausasöíu kr. 12.00 eintakið Prentsmiðja Vtsis — Edd8 hl. Stöndum auðþjóðum á sporði !§vo virðist sem þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur á hvern íslending hafi að meðaltali aukizt um 3— 3,5% á ári síðustu átta árin. Þetta eru mjög sóma- samlegar framfarir í samanburði við nágrannaþjóð- irnar. Þessar tölur benda til, að við getum vænzt svip- aðra framfara hér og spáð er, að verði í mestu vel- megunarlöndum heims. Ástæða er til að ætla, að i náinni framtíð verði framfarirnar í efnahagsmálum umheimsins jafnörar og jafnvel enn örari en þær hafa verið á undanförn- um árum. Fyrir því eru ýmis rök. í fyrsta lagi hugsa þjóðir heimsins æ meira um hagvöxt sinn og herða samkeppni sína á því sviði. í öðru lagi er á næstu árum búizt við enn hraðari þróun vísinda og tækni, og hefur það að sjálfsögðu jákvæð áhrif á hagvöxt- inn. Síðast en ekki sízt hefur þekking stjórnvalda á efnahagsaðgerðunvbatnað og þar með hefur minnk- að hættan á kreppum eða annars konar afturkipp í efnahagsmálum. o •• Þessar staðreýndir valda því,' að það er ekki talin óeðlileg bjartsýni að ætla, að aukning þjóðarfram- leiðslu og þjóðartekna á mann í Evrópu verði um eða upp undir 4% á ári næstu áratugina. Ef þessi spá er rétt, verðum við að herða enn hagvöxtinn hjá okk- ur til að halda í við nágrannaþjóðimar. Af tölum um hagvöxt á hvem íslending á und- anfömum árum getum við séð, hvað þarf til að þetta takist. Af þeim tölum má sjá, að eðlileg árleg aukn- ing þjóðarframleiðslu og þjóðartekna á mann hefur verið 6—8%. Það eru mögm árin tvö, 1967 og 1968, sem hafa dregið meðaltalið niður í 3—3,5%. Ef við getum losnað við slíka afturkippi í framtíðinni, eig- um við því með sama áframhaldi auðveldlega að geta haft um eða yfir 4% hagvöxt á mann á ári. Við þurfum því annars vegar að halda áfram þeirri frjálsræðisstefnu í hagmálum, sem hefur fært okkur 6—8% hagvöxt á mann á ári, og hafna hugmyndum um haftastefnu og óhóflegan ríkisbúskap. Jafnframt þurfum við hins vegar að auka fjölbreytni atvinnu- veganna, svo að tímabundin en mikil áföll í einni grein, eins og urðu í sjávarútvegi árin 1967 og 1968, valdi ekki samdrætti í atvinnulífinu í heild. Eitt veigamesta verkefnið á því sviði er að auka fjölbreytni iðnaðarins í lándinu, bæði smáiðnaðar og störiðju. Einnig er mikilvægt að efla nýjar þjón- ustugreinar. Ef okkur tekst þannig að auka fjöl- breytnina nógu mikið til að hindra kreppur, ætti frjálsræðisstefnan að geta fært okkur um og yfir 6% hagvöxt á mann á ári, eins og oftast hefur verið m>danfarinn áratug. Raunverulega þurfum við ekki nema um 4% aukn- ingu á ári til að bæta stöðu okkar í hópi auðþjóða heimsins og sigla á fleygiferð inn í allsnægtaþjóð- félag framtíðarinnar. Jarðarför brezka samveldisins? Vopnasala til Suður-Afriku varpar skugga á ráðstefnu samveldisins, sem hefst á fimmtudag — Mörg riki hóta að ganga úr samveldinu Hugsanleg vopnasala Breta til Suður-Afríku hefur skapað ólgu innan brezka samveldisins, allt frá því að Edward Heath varð forsætisráð- herra. Þessi vopnasala varpar skugga á undir- búninginn undir ráð- stefnu brezka samveld- isins, sem hefst í Singa- pore á fimmtudaginn. Búizt er við, að þessi níu daga ráðstefna muni einkennast af „upp- gjöri“ manna á milli vegna þessara vopna. Ætlað að styrkja vestræn ríki. Sum Afríkuríkin hafa hótað að .segja sig úi^samveldinu, ef Bret- land ákveöur að selja Suður- Afriku seld vopn, muni þau kappsmál svörtu Afrfkuríkj- anna, Suður-Afríka er 'iand „að- skilnaöarstefnunnar" í málum kynþátta. Þar stjómar minni- hluti hvitra manna yfir meiri- hlutanum, sem er svartur. Marg ir Afríkumenn óttast, að brezku vopnin kynnu að veröa notuð gegn þeldökkum Suður-Afrfku- búum, beint eða óbeint. Brezka stjómin segir, að verði Suður- Afríku seld vopn, mundi þau aðeins verða notuð til að styrkja vamarkerfi vestrænna ríkja gegn auknu veldi Sovétríkjanna á hafinu sunnan Afríku. Forseti ráðstefnunnar verður hinn nýi forseti Singapore, Lee Kuan Yew. Hann vonar, að hann fái ekki það ömiurlega h'lut skipti að halda lfkræðuna yfir brezka samveldinu. Hann skor- aði nýlega i viðtali á aðildar- ríkin að leggja ágreiningsmálin á hifluna og starfa saman á þeim sviðum, þar sem áhugamál þeirra fara saman. Samveldið mikilvægt. Framkvæmdastjóri samveld- isins Amold Smith hefur lýst svipaðri skoðun. í skýrslu sinni fyrir síðustu tvö ár segir hann: „Þar sem flest heimsvandamái- næstu árin munu varöa sam- skipti kynþátta, iönaðarríkja og þróunarríkja, og skipti fóiks frá ým®um álfum og landshlutum, þá mun aukast gildi samveldis þjóða, sem er víðsýnt. í fram- tíðinni mun samveldið bezt geta þjónað aöilum sínum með því að sinna þeim tveimur verkefn- um, sem það hefur bezt skilyrði til að þjóna: Skapa grundvöll fyrir raunhæft samstarf og auka sameiginlega umræðu um vanda málin. Á ráðstefnunni verða stjóm- mádaumræður fyrstu tvo dagana og þá er unnt að brydda á Suð- ur-Afrfku og Rhódesíumálunum. Síðan er í ráði, aö tekin verði fyrir efnahagsmál og aðstoð við vanþróuðu ríkin. Hins vegar óttast Bretar, að Suður-Afríkumálið muni koma á dagskrá strax við setningu ráðstefnunnar og gnæfa yfir alla ráðstefnuna úr því. Edward Verður Heath að velja milli vopnasölunnar og samveldis- ins? IIIIIIIIBHB im mm ■■■■■■■■■■■■ Umsjón: Haulcur Heigason: Frú Bandaranaike óttast kalda strföið. Indira Gandhi. — Hvað yrði samveldið án Indlands? Heath forsætisráöherra hefur þegar lýst þvf yfir, að menn skuli ekki vænta neinnar endan- legrar yfirlýsingar frá honum um vopnasöluna á þessari ráð- stefnu. Með því vil'l Heath reyna að draga úr áhrifum máls ins og hindra að ráðstefnan beri svip af deilum um það. Áfall, ef Indland fer. Heath er í talsverðum vanda. Brezka stjómin virðist telja það nærri óhjákvæmilegt að sporna gegn auknu sjóveldi Sovétríkj- anna meö því að styrkja flota Suöur-Afríku. Heath gerir sér grein fyrir, að þetta kann að krefjast fóma. Hann hefur lýst því yfir, að það tákni ekki enda- lok samveldisins þótt einhver Afríkuríkin kunni að ganga úr því. Hins vegar hefur indverska stjómin til þessa haft svipaða afstöðu til vopnasölunnar og svörtu Afríkurfkin. Það yrði samveldinu mikið áfal'l, ef ekki banabiti, ef Indland gengi úr því. I samveldinu er nú 31 ríki. Heath kemur við í Indlandi á leiö sinni til Singapore. Eng- inn efi er talinn, að vopnasal- an mun verða efst á baugi f viðræðum hans og indverskra leiðtoga. Spurningin verður því, hver á'hrif Indlandsförin muni hafa á Heath. Yfirvofandi hætta í annað sinn. Þetta er í annað skipti á fimm árum, að framtfð brezka sam- veldisins er f yfirvofandi hættu. Fyrra skiptið var það vegna Rhódesfu, og það mál er enn á dagskrá. Stjórn Rhódesfu hef- ur svipaða afstöðu og Suður- Afrfkustjóm til svertingja, sem eru einnig miki'1'1 meirihluti af fbúum Rhódesíu. í báðum tilvikum er um að ræða afkomendur hvftra manna, sem settust að í Afríku, sem þá var að miklu leyti eign Bret- lands. Sfðan hafa rfkin fengið sjálfstæði hvert af öðm, og fara svertingjar með stjóm þeirra alilra nema þessara tveggja, enda eru hvítir menn fjölmenn- astir í Suður-Afríku og Rhódes- íu og hafa búiö bezt um sig. Fyrstu forsætisráðherrarnir, sem koma munu til Singapore, eru frú Bandaranaike frá Ceyl- on og Kamisse Mara lávarður frá Fijieyjum. Frú Bandaranaike hefur sérstaka kvörtun frarn að færa á ráðstefnunni. Hún ber sig illa undan ráöagerö Breta og Bandarfkjamanna að stofna bækistöð á eyjunni Diego Garcia í Indfandshafi. Óttast frú Bandaranaike, að þetta muni færa kalda stríðið inn á Ind- landshaf. Aukin sovézk áhrif. Sovétríkin hafa, eins og áður segir, stóraukið áhrif sín á Indlandshafi. Heimiidir í Singa- pore herma, að Rússar hafi nú einn kafbát, landgönguskfp, eitt olíuskip, tvö eöa þrjú hsrsteip og marga togara á hafinu. Marg- ir telja að Sovétríkin ögri vest- rænum ríkjum á þessu svæði fremur í stjðrnmálalegu tilliti en hemaðarlegu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.