Vísir - 12.01.1971, Blaðsíða 13

Vísir - 12.01.1971, Blaðsíða 13
V IR . Þriðjudagur 12. janúar 1971. 13 Þórunn Sigurðardóttir skrifar frá Svíþjóð: Er nauösynlegt oð kona, sem óskar fóstureyðingar, reki ævisögu sína fyrir óteljandi óviðkomandi aðilum? Mikið deilt um fóstureyðingar i Sviþjóð, þar sem lög leyfa jbær, ef „sérstakar ástæður" eru fyrir hendi 'C'óstureyðingar eru mjög um- deildar hér í Svfþjóð, eins og víðar, og undanfarnar vikur hefur vart verið hægt að opna blöð, útvarp eða sjónvarp án þess að heyra á þær minnzt. Fjöldamargar konur hafa skrif- að fjölmiðlum og skýrt frá eigin reynslu í sambandi við fóstur- eyðingar og eitt slíkt bréf var fyrir skömmu flutt í leikformi f sjónvarpinu. í kosningabar- áttunni í haust varð þetta að pólitísku máli, Kristilegir demo- kratar hengdu upp slagorð eins og „Við höfum öll rétt á að lifa“. Hafa þeir barizt hart gegn lögleiðingu fóstureyðinga og vilja að endurskoðuð sé lög- gjöf sú, sem nú er í gildi í Svíþjóð um fóstureyðingar. Sú löggjöf er raunar mun rýmri en í flestum Evrópulöndum og á síðasta ári fengu yfir 90% allra sænskra kvenna, sem óskuðu eftir fóstureyðingu hana á lög- legan hátt. Skriffinnskan niður- lægjandi og óþörf Raunar hefur framkvæmd þessarar löggjafar einnig oröið mjög umdeild og álita margir að öll sú skriffinnska sem þvi fylgir að fá löglega fóstureyð- ingu, sé niðurlægjandi og óþörf, bæði fyrir þjóðfélagið og kon- una. Telja margir algjörlega ó- þarft, að konan reki ævisögu sína fyrir óteljandi ókunnugu fólki, læknum sálfræðingum, félagsráðgjöfum og fleiri. — Sál fræðingur nokkur, sem hefur undanfarin ár haft þá atvinnu aö ræða við konur, sem óska fóstureyðingar, hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að langflestar kvennanna skrökvi svo og svo miklu um aðstæður sínar, til þess að vera þess fullvissar að fá samþykki fyrir fóstureyðing unni. Telur sálfræðingurinn að þetta sé mjög niðurlægjandi fyrir konuna, sem finni sig þvingaða til þess að grípa til ósanninda, og þetta fylli kon- una sektarkennd. sem stundum brjótist fram eftir að aðgerðin hefur verið framkvæmd, sem eftirsjá og samvizkubit. „Stað- reyndin er sú, að fjölmargar konur bíða tjón á sál sinni við fóstureyðingu, eins og hún er framkvæmd hér í landi skrif- finnskunnar", segir sálfræðing- urinn og ennfremur: „Sérstakar ástæður, eins og lögin telja nauðsynlegar til þess að fóstur- eyðing sé framkvæmd, er hvort eð er svo víðtækt hugtak, og í rauninni óskar engin kona fóst- ureyðingar, nema „sérstakar ástæður" séu fynr hendi“. Þessi skriffinnska tekur svo auðvitað langan tíma, konan verður að bíða vikum saman milli vonar og ótta og þegar aðgerðin er loksins framkvæmd, er stundum svo langt liðið á meðgöngutrmann, að nauðsyn- legt er að framkalla fæðingu. Sérstakar deildir eru yfirleitt ekki til á sjúkrahúsum fyrir konur, sem gangast undir fóst- ureyðingu, þær verða að liggja innan um verðandi og nýorðnar mæður og eykur það enn á sekti arkennd þeirra. V Konan sjálf verði látin taka ákvörðunina Bn hvernig á þá að fram- kvæma þessa löggjöf? Þeir sem fylgja algjörlega frjálsum fóstur eyðingum vilja fyrst og fremst afnema alla þessa skriffinnsku í sambandi við fóstureyðingar. Þeir vilja að konan sé sjálf látin taka þessa ákvörðun, þar sem hún ein geti dæmt um það hvort hún vilji og geti átt barnið. Óski hún eftir að ræða við sál- fræðing eða lækni, þá fái hún það kostnaðarlaust. Auk þess krefjast fylgismenn frjálsra fóstureyðinga þess, að ríkið neyði konur ekki til þess að gangast undir fóstureyðingu af fjárhagsástæðum. En rann- sóknir hafa sýnt, að mjög stór hluti þeirra kvenna, sem óska fóstureyðinga, gera það vegna þess að þær hafa ekki fjárhags lega möguleika á að ala upp bam. Þó verður ekki annað sagt en sænsk stjórnvöld geri mikið til þess að létta undir með mæðrum, mjög ríflegir fæð ingarstyrkir, barnalífeyrir, sjúkrapeningar, ókeypis Jæknis þjónusta og sjúkrahús- eða fæð ingardeildarvist, svo til ókeypis tannviðgerðir fyrir verðandi og nýorðnar mæður, auk 6 mánaða frís á launum fyrir allar vinn- andi konur, — allt þetta leggur rfkið fram til þess að bamsburð- ur þurfi ekki að vera fjárhags- „Fjöldamargar konur bíða tjón á sál sinni við fóstureyðingu, eins hún er framkvæmd hér í landi skriffinnskunnar,“ segir sænskur sálfræ ðingur, sem hefur þá atvinnu að ræða við kon- ur, sem óska fóstureyðingar. leg byrði fyrir konuna. Auk I þess má nefna ýmsa opinbera | aðstoð við eftirlit á börnum, dag heimili og „dagmömmur", sem koma á heimilin og gæta barn- anna. Allir strætisvagnar og neð | ^apjarðarlestir eru sérstaklega út búin, svo ha:gt sé að koma .. baynayðgm^n fyrir, svo að kon- \ ur méð böfn geti farið ,’rerða sinna þó þær eigi ekki bíl. Öll börn verði látin lifa Þeir sem berjast gegn fóstur- eyðingum, telja hins vegar að öll böm eigi að fá að lifa, þ.e. líf þeirra hefst strax á augna- bliki frjövgunarinnar. Margir telja að fóstureyðing sé ekki af- sakanleg, jafnvel þótt líf móður innar sé í hættu, sömuleiðis er kona, sem verður vanfær eftir nauögun, neydd til þess að eiga sitt barn, þar sem það hefur jú ekkert til sakar unnið. Og ein- mitt þessi atriði hafa vakiö hvað mestar deilur. Allt fram til ársins 1938 var þetta al- mennt.álit á fóstureyðingum, og það er ekki fyrr en þá að sænsk lög leyfa fóstureyðingar, ef á- stæða er til að ætla að heilsa konunnar sé í hættu eða ef henni hefur verið nauðgað. Það er því lítil von til þess að þeir sem harðast hafa barizt með eða móti fóstureyðingum, geti komið sér saman um ein- hverja lausn á þessu vandamáli, þar sem svo gífurlega mikiö skil ur á milli. Eina vonin er sú að unnt verði að finna upp svo ör- uggar getnaðarvarnir að fóstur- eyðingar, löglegar og ólöglegar hverfi úr sögunni fyrir fullt og allt. - ÞS ^ölskyldan ogljeimilid ÚTBOÐ Tilboð óskast í smíði og uppsetningu harð- viðarinnréttinga í fundarsali ög fleira á 2. hæð Hótel Esju Reykjavík. Innréttingar þessar eru þiljur, hurðir, bar- borð, rimlaveggir o. fl.. ' Útboðsgögn eru afhent á Teiknistofunni s.f. Ármúla 6, gegn 1000.00 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu byggingar- stjórans í Hótel Esju, 3. hæð 1. febrúar 1971 kl. 11 f.h. Sinfóníuhljómsveit fslands. Tónleikar í Háskólabíói fimmtudaginn 14. janúar kl. 21.00. Stjórnandi Bohdan Wodiczko. Ein- leikari Peter Frank. Flutt verður: Passacaglía eftir Bach, sinfónía nr. 3 eftir Honegger og píanókonsert nr. 1 eftir Brahms. Aðgöngumiðar í bókabúð Lárusar Blöndal og bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. Dagblaðið Vísir óskar að ráða sendisvein 12—13 ára frá M. 1—3 Þarf að hafa hjól afgreiðsluna. Hafið samband við SÍMI11660

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.