Vísir - 21.01.1971, Page 2

Vísir - 21.01.1971, Page 2
Sex stafa tala „Mynd af ungri stúlku" veldur nú næstum því erjum milli Italiu og Bandarikjanna. Listasafnlð í Boston „Museum of Fine Arts“, hengdi einn góðan veðurdag mynd þessa upp á vegg hjá sér og sagðist hafa keypt hana fyrir verð, sem ekki gæfist upp, en tal- an væri sex -stafa. Myndina sögðu safnverðir vera keypta á Italíu og væri tiún eftir RafaeL — Italska stijjámin vefengdi í engu hver höf undurinn væri, en vefengdi hins vegar rétt Boston-safnsins til aö stæca sig af verkinu JVIálið var fengið í hendur dómsmálaráðu- neytmu bandaríska og er í at- hugun — al-lt bendir -til að safn- ið í Boston hafi látið smygla því tíl USA frá Italíu. Meðan sá grun ur-er á kreiki, þykir ekki til-hlýði iegt að láta málverkið hanga uppi í safninu — því var þess vegna komiö tii geymslu í kjallara dóms máteráöuneytisins. DDDO Taugapillur handa öílum ELTON JOHN VOICES OF EAST HARLEM VINSÆLDALISTINN 1. ( 1) MY SWEET.LORD . George Harrison 2. ( 2) I THINK I LOVE YOU .. Partrige Family 3. (10) NO, NO, NO .... Voices of East Harlem 4. ( 3) IRONMAN ..... Black Sabbath 5. ( 5) I FOUND OUT.... John Lennon’s Plastic Ono Band 6. (—) WAH-WAH ........ Qeorge Harrison 7. ( 8) PARANOID ...... Black Sabbath 8. ( 6) BLACK MAGIC WOMAN Santana 9. ( 4) WHAT IS LIFE? . George Harrison 10. ( 7) TAKE OF YOUR CLOTHES Peter Sartred Fimm mest leiknu LP-plöturnar segja plötusnúð- amir vera: 1. (1) ALL THINGS MUST PASS....... G. Harris. 2. (-) TUNBLEVEED CONNECTION ...... Elton John 3. (2) PARANOID ................... B. Sabbath 4. (5) JOHN LENNON’S PLASTIC ONO BAND John o. fl. 5. (3) LED ZEPPELIN................ L. Zeppel. þá er hér kominn öðru sinni vinsældaiisti Glaumbæjar- diskóteksins. Talsverðar tilfærsl- ur hafa oröið á honum frá þvi í siðustu viku, þó að aðeins eitt nýtt iag hafi komizt á blað að þessu sinni, þetta nýja lag „Wah- wah“ er á einni af þrem breið- plötum, sem George Harrison sendi frá sér um daginn í einu og sama albúminu. Svo sem sjá má af listanum yfir markverðustu LP-plötumar er það al-búm i mikl um metutn hjá plötusnúðum Glaumbæjar þessa dagana. Það viðurkenna þeir líka fúslega, og höfðu meira að segja orð á því, að fleiri lög en þau þrjú, sem á vinsældalistanum eru af þeim plötum 'hefðu fyllilega átt ski-lið að komast á blað. Þetta frábæra albúm Georges „All things must pass“ er ekki enn komið í hljómplötuverzlanir hérlendis, eina eintakið sem til er hér, er það sem gerir svo mikla lukku í Glaumbæjar-diskó- tekinu. Afgreiðslufólk hljómplötu deildar -Fálkans, sem hefur um- boð fyrir Apple — útgáfufyrir- tæki afbúm'slns — gaf okkur í gær þær upplýsingar, að platn- anna væri vart að vænta hingað fyrr en um mánaðamótin næstu og Plastic-plötu Lennons svo nokkru síðar. Sérstaka athygli vildu plötu- > GEORGE HARRISON snúöamir í Glaumbæ vekja á lag inu „No, no, no“, sem í fyrri viku var í tíunda sæti vinsaaldalist- ans, en er nú komið í það þriðja. Telja þeir ekki ólíklegt að það lag eigi jafnvel eftir að ná öðru eða fyrsta sæti á næstu vikum. Voices of East Harlem, sem á heið urinn af þessu lagi er hljómsveit eða öllu heldur kór, sem hefur á að skipa söngröddum, sem 1 mörg um tilfellum minni á Edwin Hawkins singens, sem sxmgu með al annars lagið „Oh, happy day“, Sú líking á þó ekki við hvað varðar „No, no, no“. Þá má loks rísa úr sætum fyrir hinni vönduðu og um leið skemmtilegu LP-plötu söngvarans Elton Johns, sem hann nefnir ekki óverulegra nafni en„Tunble* veed Connection“. • Engin íslenzk hljómplata hef- ur komizt á lísta plötusnúð- anna, enda engin þeirra gefið til efni til þess, að þeirra sögn. „Fólk er forvitiö að heyra plötumar rétt fyrstu dagana, en láta þaer svo eiga sig eftir það“, segja snúðarnir og gefa þá skýringu helzta að þær plötur íslenzkar, sem út hafa komið að undan- förnu, séu betur til þess fallnar dansa eftir. -WM Langflestir þeir er þessa jörö byggja, munu innan 20 ára neyta afslöppunarlyfja — eöa ekki er annað sýnt, fari svo fram sem horfir, segja framleiðendur tauga lyfja I Hollandi. Segja framleið- endurnir, að neyzlan hafi vaxið stórum upp á síðkastið i öllum heimshomum, og eftir 20 ár muni offjölgun fólks í flestum löndum, jafnframt aukinn; streitu, hafa skapað þaö ástand, að flest ir muni borða taugapillur. Hvort framieiðendur lyfjanna skýra frá þessari skoöun sinni sem gleði- fregn, fylgir ekki sögunni. DDDD Dagblað með einn lesanda Það dagblað i heiminum, sem sennilega' er rekiö með hvað mestu tapi, hefur einn ritstjóra og fimm starfsmenn á ritstjórn — upplag blaðsins er eitt eintak á dag. Kaupandi forseti Banda- rfkjanna. Nixon forseti fær blaðið á hverjum morgni kl. 8. Blað ’þetta heitir: „The Presi- dent‘s Daily News Summary" — (Daglegt fréttayfirlit forsetans) og eintakið er merkt: „Kemur aö- eins fyrir sjónir forsetans". — í blaði þessu er yfirlit yfir helztu heimsfréttir dagsins, og er þaö yfirlit soöiö upp úr 54 dagblöð um, tímaritum, útvarpsfréttum og s jónvarpsfréttum. Sérstæður dómur: Dómari lét stúlku bera fána — en óður hafði hún brennf bandariska fánann opinberlega 17 ára skólastúlka var látin koma fyrir rétt í haust i heima bæ sínum, Arlington, Massa- chusetts, USA, og var hún dæmd fyrir að brenna bandaríska fán- ann opinberlega meðan stóö yfir fjölmenn mótmælaganga í Arling ton. Voru mótmælendur að lýsa yfir fordæmingu sinni á stríðs- rekstri lands síns í Víetnam. Dómarinn sem dæmdi stúlkuna, sem heitir Martha Meyer, kvaö upp dóminn 16. nóv. sl. Áður en dómarinn, sem heitir Frank Tom- asello, fékk málið til meöferðar, haföi veriö kveðinn dómur yfir stúlkunni í lægri rétti — og þar hafði hún veriö dæmd í 6 mán- aða fangelsi óg 50 dollara sekt. Tomasello sá ekki ástæðu til aö læsa 17 ára stúlku bak viö himinháa múra — né heldur vildi hann rýja hana inn að skyrt- unni. En hann spurði hana: Er þaö rétt hjá mér, aö þú sjáir eftir því sem þú geröir? „Já, yöar ágæti“, svaraöi Martha. „Ertu huguð stúlka?“, spuröi þá dómarinn. ,Já“. Benti hann þá á bandaríska fán ann, þar sem hann var á stöng í homi réttarsalarins, og spurði: „Myndir þú taka þennan fána og ganga með hann aö Harvard- torgi?“ Og það segist ungfrú Meyer mundu gera. Síðan gekk stúlkan undir lög- regluvernd meö fánann niður að Harvard-torgi — ekki sérlega langa leið, en einmitt þá leið sem mótmælagöngur í Arlington eru oftast gengnar. Stúlkan er há vextj og sterk, og hún bar fán- ann hátt uppi og Iéttilega aö Harvgrd-torgi og aftur að dóm- húsinu. Þar fóru lögreglumennirn ir síðan inn og gáfu skýrslu um að dóminum heföi verið fullnægt. Var Martha Meyer með þessu leyst undan frekari refsingum. Kennslustund í þjóðarmetnaöi — Maríha Meyer. gengur undir lögregluvernd með bandaríska fánann, en það var refsing henn- ar fyrir að brenna hann opinberlega.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.