Vísir - 27.01.1971, Page 16
— dómsins hefur verið beðið i 14 vetur
Löngumýrarskjóna, eitt fræg-
ista merhross á íslandi var enn
gagn og gæði, en hún er hin
sprækasta og átti folald í fyrra.
Lögfræðingur Björns Pálsson-
ar í þessu máli er Sigurður Óla-
nú er fyrir Hæstarétti er eignar-
réttarmál og skal nú endanlega
Nýmælin við grunnskólann
kcsta 170 milljónir króna
— kostnaðurinn dreifist á 10 ár
í frumvarpi ríkisstjórnar-
innar um grunnskóla er dreg
inn saman kostnaður sá, sem
talið er, að mundi leiða af ný-
mælum frumvarpsins, og er
hann áætlaður 170 milljónir
króna.
í frumvarpinu er ekki gert ráö
fyrir að þessi kostnaöur komi
allur fram þegar í staö heldur
muni hann dreifast aö nokkru
á þau um það bil 10 ár, sem
talið er að þurtfi til að koma á-
kvæðum frumvarpsins í fram-
kvæmd. Eigi það einkum við
um ráðgjafar- og sálfræðiþjón-
ustu og launa- og rekstrarkostn-
að skólanna.
Sundurliðaður er kostnaðar-
aukinn þannig: Kennslulaun 100
millj., greidd úr rikissjóði, ann-
ar rekstrarkostnaður skóla
greiddur af sveitarstj. 15 millj.
kr., endurmenntun kennara 5
millj. kr., skólarannsóknir 9
millj. kr., námsstjóm 6 millj. kr„.
ráðgjafar og sálfræðiþjónusta
24 millj. kr., fræðslustjórar og
fræðsluskrifstofur, og er þá
miðað viö 8 fræðsluskrifstofur,
12 rnillj. kr.
1 frumvarpinu stendur enn-
fremur að á móti hinum aukna
kostnaði á þessu skólastigi komi
mikil aukning kennslumagns,
stórbætt aðstaða til að auka
gæði skólastarfsins á markviss-
an hátt, ásamt fjölþættari þjón-
ustu við nemendur. Það sé skoð-
un nefndarinnar, að auk hins
ótvíræða gildis, sem þessi at-
riði hafa fyrir nemendur, gefi
þau möguleika til þess að fækka
námsárum nemenda eftir aö
grunnskóla ljúki frá því sem nú
sé, án þess að skerða nám
þeirra. Sé svo, muni kostnaður
sá, er af frumvarpinu leiði,
verða að nokkru jafnaöur með
lægri kostnaði en ella á síðari
skólastigum, bættri nýtingu hús-
næðis og minni byggingaþörf.
Þar við bætist sá akkur, sem
þjóðinni sé í því að fá ungmenni
sín fyrr og betur búin ti'I þátt-
töku í atvinnu- og þjóðlífi. - SB
Reykvíkinga
snjóaði á bólakaf
Snjókoman olli nokkruin erfið-
Ieikum i umferðinni á götum
Reykjavíkur í gær, þótt hins vegar
vagnstjórum strætisvagna tækist
að halda almenningsvögnunum
nokkurn veginn á' áætlun.
Byrjaði að snjóa um kl. 8.30 í
gærmorgun og varð fljótlega þykkt
snjólag á götunum, en umferðin
gekk þó óhappalítið fram til há-
degis. Enda hafa ökumenn almennt
flestir ekið á naglreknum hjólbörð-
um i vetur, og á þann veg undir-
búnir fyrir hálkufærð.
En um hádegisbiliö hófst mikil
skriða af árekstrum og urðu alls
um 20 árekstrar í umferöinni í
gær. En slys urðu lítiil sem engin
á mönnum.
Harðasti áreksturinn varð reynd-
ar utan snjósvæðisins í gær, suður
á Reykjanesbraut milli Kúageröis
og Afstapahrauns. Þar lentu saman
tveir bílar og skemmdust svo illa,
að kranabil þurfti til þess að draga
þá á brott. í öðrum bílnum slös-
uðust tveir menn, sem fluttir voru
á Borgarspítalann, en enginn
meiddist í hinum bílnum. — GP
Tveir góðir borgarar, sem voru
komnir út í gærdag til að moka
snjóinn frá dyrum sínum.
\ 250 býli í
j landinu eru
lán rafmagns
,Þið hefðuð gott
af næðinu"
— ekkert skáld komið að Hrafnseyri enn
'» Á þessu ári mun verða lokið
®að tengja samveitum öll býli,
þar sem meðalfjarlægð milli
• o
'i bæja er 1,5 kílómetri eða minna.J
^250 voru tengd samveitum ij
■ fyrra og um 80 verða tengd á
þessu ári.
4»
» Alls er nú á landinu 1081 býli,
sem ekki er tengt samveitum.
. Þar af hafa 604 dísilstöðvar og
• 227 vatnsaflsstöövar, en 250
‘eru alveg án rafmagns.
* Gert er ráö fyrir að gerð
»heildaráætlunar um rafvæðingu
J í dreifbýlinu veröi lokið í vetur.
»
» Þetta kom fram í svari Jó-
J hanns Hafstein iðnaðarmálaráð-
•herra við fyrirspum Vilhjálms
s Hjálmarssonar (F) á þingi I gær.
2 — HH
„Nei, þessi auglýsing mín
hefur engan árangur borið“,
sagði Hallgrímur Sveinsson,
bóndi á Hrafnseyri viö Am-
arfjörð. „Þaö hefur enginn
sett sig í samband viö okkur
ennþá, en þaö getur nú orðið
reyndar á næstunni, menn
em oft seinir að taka viö
sér.“
Eins og Vísir skýrði frá ný-
lega, hefur Hallgrímur á Hrafns-
eyri auglýst, að 'hann taiki við
skáldum og fræðimönnum til
dvalar að Hrafnseyri, og mun
hann sjá þeim fyrir fæði og
þjónustu fyrir aðeins 300,00 kr.
á dag.
„Þetta hefur verið einmuna
tíð hér vestra, og snór lítiU, það
hefur a.m.k ekki snjóað hér
neitt í lfkingu við það sem geröi
í Reykjavík í gær, það sá mað-
ur f sjónvarpinu — það er jú
ófært hér allan veturinn til Þing-
eyrar, en samgöngur eru greið-
ar sjóleiðina til Bíildudals —
nei, þeir haifa alveg látiö mig f
friði, fræðimennimir eða skáld-
in — kannski þið takið ykkur
fri blaðamenn og heimsækið
mig, þið eruð nú skrifandi
menn, og gætuö haft gott af
næðinu hér“. — GG
„Samtaka nú“, lögreglan, strætisvagnabílstjórinn og farþegarnir
að ýta strætisvagninum UPP Bankastrætið frá staurnum. Vagn-
arnir eru sem fyrr illa staddir ef eitthvað er um hálku. Þeir eru
keðjulausir.
til umræðu í Hæstarétti í fyrra-
dag og er það í þriðja sinn, sem
Hæstiréttur hefur þann heiður
að fjalla um málefni Skjónu, en
þrisvai hefur mál hennar verið
tekið fyrir í héraði. Mál það sem
úr því skorið, hvor eigi hryss-
una, Björn Pálsson, bóndi og
aiþingismaður, Löngumýri, ell-
egar Jón Jónsson, bóndi, Öxl.
Jón hefur alla tíð haft hryssuna
í sínum húsum og haft af henni
son, en fyrir Jón er Ragnar Að-
alsteinsson og fleiri. Dómur
verður væntanlega kveöinn upp
um næstu helgi, en þess dóms
hefur Skjóna beðið í 14 vetur.
Miðvikudagur 27. janúar 1971.
Wmí