Vísir - 29.01.1971, Blaðsíða 2

Vísir - 29.01.1971, Blaðsíða 2
r Undarlega lfkur Clark Gable Þeir segja, sem til þekkja, að pilturinn, sem situr hjá þeirri síð- hærðu á meðfylgjandi mynd, sé mesti sjarmörinn sem enn hafi komið úr milljónarastétt — það er kannski vegna þess að hann er Rockefeller, en mörgum finnst hann bara fjári likur Clark gamla Gable. Drengurinn heitir Wint- hrop Paul Rockefeller og er son- ur fyrrum n'kisstjóra Arkansas og fyrrverandi konu hans, og kailast sú Bobo — við vitum ekki meS vissu, hvort þau hafa skilið, Bobo og ríkisstjórinn, vegna þess hve Winthrop er líkur Clark frá Gabbli, en þau skildu 1954 og fékk Bobo $6 milljónir í veganesti. Núna er hinn ungi Winthrop 22 ára og trúlofaður stelpu, sem Deborah Cluett Sage heitir og er sú 20 ára. Þau kynnt ust í Oxford, Englandi, þar sem bæði voru við nám. Það þykir fréttnæmt við samband þeirra að ef Deborah giftist Rockefeller unga, verður hún 500. meðlimur Rockef eller-f j ölskyldunnar. aooD Yfir Kyrrahafið í róðrarbát John Fairfax, sá er einn reri yfir Atlantshafiö, eigi alls fyrir löngu, lagöi upp fyrir síöustu helgi á farþegaskipinu Chusan, og var ákvörðunarstaöurinn núna San Francisco. Meö Fairfax var vinkona hans, Sylvia Cook, en hún aetlar að veröa Fairfax sam- ferða í hans næstu ævintyraferð, sem verður á árabáti yfir Kyrra- hafið. Áöur en þau fóru frá Eng- landi til San Francisco, sagði Sylvía hlaðamönnum, aö þau hjú- in hygöust vera í a. m. k, 10 mánuöi að róa yfir Kyrrahafið. „Við munum róa til skiptis. John mun sjá um siglingafræðilega hlið málsins, ég annast elda- mennskuna. Við verðum meö gas- tæki meðferðis, en munum lifa mikiö á niðursoöinni fæöu. „ÁSTARSAGA“ STRIK- UÐ ÚT AF LISTANUM — bókmennta- gagnrýnendur í USA jborðu ekki oð verð- launa berorða ástarsögu Ennþá eru góðir menn viökvæm ir fyrir klámi — og virðist sem herferð áhugamanna um aukið frjáislyndi á kynlega sviðinu muni ekki ganga yfir gjörsamlega án viðspyrnu — en það þekkjum við nú hér á landi. í Bandaríkjunum kom út, ekki alls fyrir löngu skáldsaga eftir rithöfundinn Eric Segal. Heitir bók hans „Love Story“ (Ástar- saga) og vakti mikla athygli, jafnt lesenda sem kvikmynda- manna, sem undu sér strax í að filma bókina. Tókst það frábær- lega vel og flaug myndin um allt, hvarvetna sýnd við metaö- sókn. Nú hefur „Þjóðlega bók- menntanefndin" í Bandaríkjunum (National Book Committee) hins vegar veitt þessari bók rækilega auglýsingu. Þegar þeir heiðurs- menn fimm talsins, sem I nefnd- inni eru, áttu að taka Ástarsögu til athugunar, varðandi bók- menntaverðlaun ársins, hótaði nefndin öll að segja af sér, nema ástarsögu þessari væri vísað frá og hún einvörðungu ákvörðuð engar bókmenntir vera. Á toppi vinsældalista „Þetta er fráleit bók og kemur einfaldlega ekki til álita sem bókmenntir", sagði Pulitzer-verð- launahafinn William Styron um Ástarsögu, „ef bókin heföi kom- izt á listann hjá okkur, þá hefði það aöeins verið niðurlægjandi, móðgandi fyrir höfunda annarra bóka á honum. Hefði okkur ekki verið veitt leyfi til að fjarlægja bókina af listanum, heföum við örugglega sagt okkur úr nefnd- inni“. „Ástarsaga" hefur trónað í efsta sæti vinsældalista út um allar trissur nú um langa hríð og 500 ritdómarar, bóksalar og bókasafnsforstjórar töldu hana tvlmælalaust eiga að koma einna helzt til álita i sambandi viö verðlaunaveitingu „National Book“-nefndarinnar. Eric Segal — ævareiður bókmenntanefndinni, sem gekk fram hjá „Ástarsögu“ hans við verð- iaunaúthlutun. Berorðar ástarlífslýsingar Enginn þeirra fimmmenning- anna í nefndinnj hefur opinber lega viljað skýra frá hvers vegna þeir hafi ekki viljað bókina, en vlst er þó aö berorðar ástarlífs- lýsingar fara eitthvaö i fínu menningartaugamar á þeim. Auk fyrrnefnds Williams Styrons sitja í nefndinni þeir John Cheev- er, skáldsagnahöfundur, Maurice <* Dolbier, menningarritstjóri blaðs-» ins The Providence Journal, John ® Leonard, ritstjóri The New York ’ Times Book Review og Marya Mannes, gagnrýnandi og höfund- ‘ ur. • Álit höfundarins Eric Segal, metsöluhöfundur- inn, er líka píanisti. Blaöamenn höfðu uppi á honum í Tókió, þar sem hann var að halda hljóm- leika og fyrirlestra, sem blaðiö Maniohini News kom í kring. „Bókadómaramir", sagöi Segal, „hefðu vitanlega getað haldið „Ástarsögu“ minni einhvers stað- ar fyrir neðan þær fimm, sem síðast koma til álita um verðlaun, en þess i staö, ákváðu þeir að útskúfa henni gjörsamlega af listanum — brjóta reglur „Bók- menntanefndarinnar" og ganga í berhögg við yfirlýstan, vilja 500 gagnrýnenda og bókamanna út um allt — kannski mennimir séu að reyna aö sanna að þar sem allar þessar milljónir lesenda sanna vinsældir bókarinnar, þá hljöti bókmenntalegt gildi bókar ævinlega aö standa í öfugu hlut- falli við það. Kannski mennimir hafi aðeins haft gott eitt í huga, en þeir hefðu ekki þurft aö gera þetta svona ruddalega. Manni dettur ósjálfrátt í hug að þessi nefnd sé ekki beinlínis „þjóðleg" heldur sé meiningin að verðlauna einhverja fyrirfram valda menn — einhvern bókmennta„aðal“.“ SKOKK Þessi maöur verður ekki nafn- greindur — enda engin þörf á því. Hann er hins vegar sagöur vera einhver einbeittasti „skokk- ari“ sem nú er uppi í Banda- ríkjunum. Auövitað er hann verzl unarmaður að atvinnu og var orð inn óguðlega sver um sig miöjan, eins og títt er um menn úr hans stétt. Þá fann einhver pólitíkus upp það snjallræði, að hægt væri að bjarga lífinu með því að skokka og skokka og skokka á hverjum degi. Þessi á myndinni, er einn af þeim sem tóku þetta alvarlega. Og eins og sjá má, þá lætur hann engan bilbug á sér finna, þótt frost herði og fjúk sé í skemmtigöröum. Hann fékk sér bara sérstaka „skokkgrímu“, þannig að honum kólnar ekki á nefinu. Þetta er kannskl athug- andi fyrir þá í Garðahreppi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.