Vísir - 29.01.1971, Blaðsíða 3
VÍS'I'R . Föstudagur 29. janúar 1971.
SVIORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLOND I MORGUN UTLOND
Umsjón: Haukur Helgason:
Hefíast bardagar 5. febrúar?
— óv'tst um framfengingu vopnahlésins i
Mið-Austurlöndum
Margir óttast, að bardagar
hefjist aftur í Mið-Austur-
töndum, þegar vopnahlés-
túnabilið rennur út hinn 5.
febrúar.
Þá hefur vopnahlé staðiö sam-
tals í hálft ár. Það var fyrst gert
til þriggja mánaöa, en síðan var
það framlengt til þriggja mánaöa til
viðbótar.
Friösemjendur leggja mikla á-
heralu á, að vopnahlé veröi enn
framilengt. Fátt markvert hefur
gerzt í sáttaumleitunum í Mið-
Austurlöndum meöan vopnahléð
hefur staöið. í þess staö hafa aðil-
ar eytt mestum tíma í ásakanir
hver á hendur öðrum fyrir brot á
vopnahléssáttmálunum.
Abba Eban utanríkisráðherra ís-
raels segir, að samningaviöræöum-
ar um friö muni væntanlega rofna,
ef Egyptar byrji bardaga, þegar
vopnahléð rennur út 5. febrúar.
Eban segir, aö frumkvæöi Banda-1
ríkjanna um friðarumleitanir bygg
ist á því, að vopnablé sé í gildi.
Eban var spuröur, hvort ísraels-
menn mundu fallast á, að friðar-
sveitir fjórveidanna taki að sér
1 gæzlu á landamærum ísraels og
I Arabaríkjanna. Eban sagði, að ísra
elsmenn vildu ekki erlenda her-
1 menn á þessu svæöi og sízt Rússa,
Hins vegar kynni slík friðarsveit að
geta orðið aö gagni við endanlega
samninga en ekki fyrr.
| Ásigling í
Mexíkóflóa
f
1 Þessi hrikalegi árekstur
'i skipa varð i Mexikóflóa í
i, þoku aðfaranótt þriðjudags.
^ Roraima, rúmlega 100 metra
i langt farmskip frá Suður-Am-
I” eríkuríkinu Venezúela gróf
stefnið í farmskipið Anzoat-
qui, litlu minna. Skip voru
nærstödd til að bjarga áhöfn-
i um.
Barizt i
Reggio í allan
gærdag
Lögregla og kröfugöngu-
menn háðu harða bardaga
rétt einu sinni seint í gær-
kvöldi í ítalska bænum
Reggio Calabria. Beitti lög
reglan táragasi.
Eögreghacþjónar með hjálma
gengu um götumar í morgim, en
ekki ffcom tfl átiaka þá. Utan bæjar-
ins var unnið að ramnsókn á tveim-
«r nrifclum sprengirtgum, sem í
gærkvöldi urðu við jámbrautina til
Róinar. Tjón varð ekki á jámbraut
imri' í þetta sinn.
Nær atlan gærdaginn geisuðu
slagsmál miHi lögregtu og kröfu-
göngumanna. Höröuist urðu þau,
þegar kvöldaði. Flokkar ungmenna
þustu um götumar, kveiktu í bíl-
um og götuvígjum,
Stöðug átök hafa verið í bæn-
um slðan í fyrra. Ðæjarbúar vilja,
að þeirra borg verði höfuðborg I
Kalabríuhéraði, í stað bæjarins
Catanzaro, sem stjómvöld hafa
ákveðið. Uppþotin í gær urðu
vegna þess aö ítal'ska þingið til-
kynnti, að það gæti ekki fjallað
um kröfu íbúanna um, að Reggio
skyldi verða stjómarsetur í héraö
inu.
p; ‘=\
H rt '
Byltingarsöngvar
í brezka þinginu
250 félagar i Verkamannaflokkn-
um brezka mótmæltu I morgun
fmmvarpi ríkisstjórnarinnar um
breytingar á vinnulöggjöfinni með
því að syngja gamla og nýja bar-
áttusöngva, þar á meðal „We shall
overcome“.
Sllikur atiburður hefur ekki gerzt
fyrr í brezka þinginu. Þingmenn
stóðu og sungu og stöppuðu í takt,
klöppuðu saman lófum. Ihaldsmenn
og áhorfendur á þingpöllum voru
hlessa. Verst mun þetta hafa leikið
þingritara. Þeir vissu lengi vel ekki
hvort j>eir ættu að skrifa söngvana
og hrópin niður eða ekki.
Þessi óvenjulegi atburöur gerð-
ist eftir margra klukkustunda at-
kvæðagreiðslur um frumvarp ríkis-
stjórnar íhaldsflokksins um umbæt-
ur á vinnulöggjöfinni. I stað þess,
að kosið yrði á skömmum tíma
með nafnakalli kröfðust þingmenn
Verkamannaflokksins, að sá gamli
háttur yrði viöhafður, að þingmenn
gengju út og inn á ganginn, þegar
þeir greiddu atkvæöi. Þetta gerð-
ist í 22 skipti. Atkvæðagreiðslan
stóð í alla nótt, þvi að hver slíkur
gangur tók tólf mínútur.
Var þetta hefnd Verkamanna-
flokksins, vegna þess að íhalds-
menn höfðu látið skera niöur ræðu-
tíma — og svo lauk öllu þessu
með söng.
Frumvarp íhaldsmanna miðar að
því að draga úr fjölda smáverk-
falla, sem mikil brögö eru að í
Bretlandi.
t
*
0
(
<
*
&
t)
ít
tt
«
(*
fe
<t
tf
6>
Fimm'iHirar fæddir
*
i
Frakklandi
29 ára kennslukona í smábæn
um Voiron í Suður-Frakklandi
fæddi fimmbura í gær, þrjá
drengi og tvær stúlkur.
Skömmu eftir fæöinguna var
ekið með móður og börn til
sjúkrahúss í Grenoble. Læknar
þar vildu f morgun engar upp-
lýsingar gefa vrm líðan fimm-
buranna.
Við fæöingu var þyngd þeirra
milii 0,90 og 1,35 kíló. Þeir fædd
ust tveimur og hálfum mánuði
fyrir tímann.
Afi firnmburanna, Andre
Brosse að nafni. sagði i gær-
kvöldi, að þrjú barnanna væru
við góða liðan, en tvö væru las-
buröa. Þó taldí hann bau ekki
vera í lífshættu.
„Það er ekki unnt að segja,
að þetta sé bara ánægjulegur at-
burður. Fimm í einu. —
skapar vandámái“.
Faðirinn starfar sem teiknari
í fyrirtæki í Voiron. Hjónin hafa
verið gift í sex ár og eiga þau
þriggja ára gamlan son fyrir.