Vísir - 29.01.1971, Blaðsíða 6

Vísir - 29.01.1971, Blaðsíða 6
6 VlSIR. Föstudagur 29. janúar i»/i. Litli Kláus verður að Stóra Kláusi Sennilega á Þjóöleiktiúsið ekki til öllu þakklátari áhorfendahóp «1 bömin. Á morgun frumsýnir leikhúsið eitt af hinum vinsælu bamaleikritum sínum, Stóra Kláus og Litla Kláus. Raunar hefur leikhúsið reynslu fyrir vinsældum þessa leiks um Kláus ana, þann litla og stóra, þann vonda og þann góða. Leikritið var sýnt fyrir 19 árum í leikhús- inu og stigu þau Bessi Bjarnason og Margrét Guðmundsdóttir þá sín fyrstu skref á fjölunúm. Þau léku Litla Kláus og konu hans, — nú skipta þau um hlutverk og Bessi er nú Stóri Kláus en Margrét er konan hans. Þannig breytast timarnir og mennimir með. Á myndinni er Bessi sem Stóri Kláus í leikritinu. Snjórínn og maxi—midi Það er hreinlegt að Mta yfir Reykjavik þessa dagana, og greinilegt er að snjórinn fer ekki f taugamar á öllum. Þessi stúika, sem klædd var hinni skynsam- legu siöu tízku vetrarins, hafði greinilega ekkert út á nokkur snjókom að setja, sfður en svo. Það má greinilega merkja af svip hennar þar sem hún siglir fram hjá styttu Jóns Sigurðsson ar á Austurvelli, Iðgjöld góðra ökumanna 1970 svipuð og þau áttu að verða á alla línuna 1965 Það sem skiiur á milli góðra og slæmra ökumanna er það hvort þeir aka áfallalítið eða áfallalaust um götur og vegi eða ekki. Hagtrygging hf., sem varð fyrst til þess að skilja hafrana frá sauðunum í þessu efni, hefur nú stækkað við sig/ húsakynni og flutt í eigið hús- næði að Suðurlandsbraut 10. Önnur tryggingafélög hafa und- anfarin 5 ár farið inn á sömu brautir og Hagtrygging, segir í frétt frá fyrirtækinu, þ. e. þeir góðu greiöa nú lægra verð fyrir tryggingu en þeir sem verr gengur að hemja ökutæki sitt. Hagtrygging hefur undanfarin ár í æ ríkari mæli farið út í ýmsar tryggingar fleiri en bflatrygging- ar og býður nú upp á allar al- mennar tryggingar. Framkv.- stjóri Hagtryggingar er Valdi- mar J. Magnússon en stjómar- formaður er dr. Ragnar Ingi- marsson. Fimm á útilegu við Vestfirði Otilegubátar, sem ísbjörninn I Reykjavík gerir út á Vest- fjarðamið, komu inn eftir helg- ina. tveir Ásbjörn og Ásborg með samtals um 100 tonn eftir langa og stranga útivist vestra, en veður hafa hamlað þar veiö- um. Fjórir Reykjavfkurbátar eru nú komnir á útilegu með línu. Auk þess leggur Hafrún frá Bolungarvfk oft upp afla sinn hér syöra. Nokkrir lfnubátar héðan leggia upp á Suðurnesj- um. svo sem f Grindavík og hefur afli yfirleitt verið tregur, en þó stundum hýrari annan dag inn, Einstaka bátur er,la,ðil>b<ia*í:, til loðnuveiöa, einkum þá Aust-' firðingar, en þar hefur afli ver- ið tregur engu síöur en hér sunnanlands. Helzt er veiöivon suður í bugtum, en þangað em Seyðisfjarðarbátar til dæmis tvo sólarhringa f róðri Þeir hafa fengið þar 6—8 tonn 1 róöri, á mjög langa línu. Heitt vatn byrgði alla útsýn um stærsta þjóð- veg landsins Þaö var heitt vatn frá dælu- stöð Hitaveitu Reykjavfkur, sem oili hinum mikla 9-bíla árekstriB í fyrradag, Heita vatnið kemur| frá dælustöð H R. í Fossvogs-I hverfi, þar sem frárennslisvatn | hefur verið veitt f þessa regn-| vatnslögn, eins og gert er viðg allt vatn ómengað óhreinindum, | sem Fossvogshverfið þarf að | losna við. Hitaveitumenn tjáðul blaðamanni að ráðstafanir yrðu | gerðar til þess að koma í vegfj fyrir endurtekningu á atviki sem f þessu. Helmingur aflans vari ýsa Enn er mjög dauft yfir ver-f tfðinni, hvort heldur er sunnan-1 lands eða vestan. Helzt hefur þá eitthvað aflazt úti fyrir Vest- fjörðum og eins virðist vera von f góðum afla á diúpmiöum. Held ur hefur lfnuafli Breiðafjarðar-. báta þó glæðzt. Ólafsvfkurbát- í ar voru f fyrradag með 4—8 f lestir eftir lögnina og var helm- ? ingurinn af þvf ýsa á sumum bátunum, en það þykir góðs f viti. | Reykjavfkurbátar hafa lítið' aflað. Aflinn hefur farið oní eitt tonn eftir róðurinn. ij □ Lítill söknuður að saltinu Bfleigandi skrifar: „í hvert sinn, sem hálka hef- ur myndazt á götunum, hef ég kviðið fyrir því, að gatnayfir- völd færu nú að ausa salti yfir götur og gangstéttir. Hér fyrr á árum leit helzt út fyrir að menn héldu að salt væri allra meina bót f hálku — eins og þeir jusu því yfir allt. En þessi kvfði minn hefur ver ið ástæðulaus, og menn hafa víst séö aö sér. Það hefur verið farið mjög sparlega með saltið, og mér liggur við að segja: „Guði sé lof fyrir það!“ Þaö voru ekki bara gangandi vegfarendur, sem urðu fyrir ó- þægindum af saltinu, þegar þeir eyðilögðu hvert skóparið á fæt- ur öðru með því að vaða salt elginn á götunum. Bfleigendur urðu lfka illa fyrir barðinu á því. Bílamir hrundu niður af ryði, því að ekkert örvar ryð- myndun eins og saltið. í saman burði við það verður hitt smá- munir. Óþægindi eins og þegar salthúðin lagðist á bflrúðumar, þannig að illa sást út um þær og öryggi manna var hætt — og alveg sama, hvað menn höm uðust víð að þvo af rúðunum, því aö saltið gekk ekki af, nema . rneð'éinhveriurri sérlega róttæk um ráöstöfunum. Ég vil koma þvf á framfæri viö gatnayfirvöld borgarinnar, að ég er ánægður með þennan sparnað á saltinu, og ég veit um marga fleiri, sem þannig er inn anbrjósts." □ Minkaandstæðingar hlakka Jón Sigurðsson skrifar: „Þao var miKið oian að þessi eini minkur skyldi sleppa og raunar óskiljanlegt. Þar hljóp mikið vatn á myllu beirra mörgu sem fyrirfram fordæma minka- eldi sem atvinnugrein. í Vfsi f gær bera að líta gott dæmi um þá skefjulausu fordóma. sem fram hafa komið á móti þeim tilraunum, sem gerðar hafa ver iö hér á þessu sviði nú. — Sögð um við. við höfðum rétt fyrir okkur, segir Þorlákur einhver í bréfi sfnu ti! blaðsins. Og sfðar í bréfinu kemur svo Þoriákur enn betur upp um iilgimi sfna í garð minkaræktarmanna. þar sem hann segir „þessi verður áreiðanlega ekki sá sfðasti" (sem sleppur). Auövitað þarf að hafa gott eftirlit og góðan að- búnað á minkabúunum. Þar um verða reglugerðir að vera nógu strangar. En því i ósköpunum skyldu Islendingar ekki geta framfvlgt slfkum reglum eins og annarra þjóða fóik? Það væri nær að fagna þessari nýju at vinnugrein og óska henni góðs í stað þess að biðja stöðugt böl bæna. Eða er minkarækt kannski líka „hemaður gegn landinu?" — Engin ástæöa er til að svo verði, þótt illa hafi tekizt til f upphafi, þegar fyrst var farið aö halda þessi dýr hér á landi. HRINGID í SlMA 1-16-60 KL13-15 Iðnaðarhúsnæði Iðnaðarhúsnæði óskast 3—500 ferm. Tilboö sendist Vísi merkt „1265“. Tízkufajónusfan Dömur og herrar. Tfzkuþjónustan heldur námskeið fyrir verðandi tízkusýningarfólk. Uppl. i síma 36434. F.h. Tízkuþiónustunnar María Ragnarsdóttir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.