Vísir - 29.01.1971, Page 8

Vísir - 29.01.1971, Page 8
I 8 Ctgefand'*: Reykfaprent hf. Framkvæmdastfóri: Sveinn R Eyjölfsson Bitstföri • Jónas Kristjánsson Vréttastfóri: Jón Birgir Pétursson ^tstlómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Bröttugötu 3b. Simar 15610 11660 Afgreiðsla ■ Bröttugötu 3b Simi 11660 Ritstfórv Laugavegi 178. Slmi 11660 f5 linur) Áskriftargjald kr. 195.00 á mánuði innanlands I lausasölu kr. 12.00 eintakið Prentsmiðfa Vtsis — Edda hf. ■"Z'saammmBaBXBammmmnmmmmmmmammmarnmmmmmmmmmmmmmam Afsakanir einræðis Lýðræði á erfitt uppdráttar í „nýjustu heimsálfunni", Afríku. í enn einu ríkinu hefur herinn steypt af stóli „ríkisstjórn stjórnmálamanna“, sem að vísu er vafa- samt að hafi borið lýðræðisnafnið með rétti. Eins og margir starfsbræður hans skirrðist Obote forseti Úganda ekki við að banna stjórnarandstöðu, ef honum bauð svo við að horfa. Svertingjalýðveldin í Afríku urðu flest til eftir aðra heimsstyrjöld. Bretar gáfu nýlendum sínum frelsi og í valdatíð de Gaulle urðu nýlendur Frakka sjálfstæð ríki. Portúgalar mega nú heita einir eftir af nýlenduveldunum í Afríku. Portúgalar telja land- svæði sín í álfunni hluta af Portúgal sjálfu og vilja ekki kalla þau nýlendur. Portúgalar segja, að svert- ingjarnir séu þess alls ekki umkomnir að ráða mál- um sínum sjálfir. Frá því að svertingjalýðveldin urðu fyrst til í Af- ríku hafa mörg þeirra orðið ríki hernaðareinræðis. Margir leiðtogar svertingja í sjálfstæðisbaráttunni reyndust brátt fullir ofmetnaðar og seildust til ein- ræðis. Má þar nefna Nkruma forseta Ghana, sem steypt var af stóli. Þá höfðu verið reistar ægistórar styttur af Nkruma um allt landið, og hann krafðist algerrar dýrkunar þjóðarinnar á persónu sinni. Þettá hefur gerzt víðar í Afríku. í mörgum stærstu ríkjunum er því einræði, sem byggist á styrk hersins. Þetta á jafnt við, hvort sem æðstu þjóðhöfðingjar kenna sig við „sósíalisma" eða ekki. Stjórnvöld færa margar afsakanir fyrir einræði. Þau benda á, að nýlenduveldin mörkuðu landamæri ekki í samræmi við, hvaða þjóðir byggðu hin ýmsu svæði. Nýlenduveldin skiptu Afríku eftir eigin hags- munum á allt öðrum forsendum. Niðurstaðan varð sú, að í nýju ríkjunum eru sund- urleitar þjóðir og ættflokkar, sem oft berast á bana- spjót. Bezt þekkjum við dæmið frá Nígeríu, þar sem borgarastyrjöld var háð fyrir rúmu ári. En þessi saga endurtekur sig, þó í minna mæli sé, í flestum ríkj- um Afríku. Auk sundurlyndisins benda Afríkumenn á fátækt og fáfræði þjóða sinna. Þeir segja, að lýðræði geti ekki þrifizt, þar sem fólk er svo menntunarsnautt sem þargerist.Með þessu afsaka þeirvaxandi einræði. Það er vissulega mikið hæft í því, að þjóðir Afríku séu á svipuðu stigi menningar og velmegunar og gerðist í Evrópu á miðöldum. Hins vegar eiga Afríku- leiðtogar hægara um vik en leiðtogar Evrópuríkja á miðöldum, ef þeir hefðu vilja til að bæta kjör þegna sinna. Bæði hafa þeir viðmiðun við þróuð ríki og njóta aðstoðar þeirra. Leiðtogar Afríku virðast hins vegar undantekningalítið hafa verið uppteknir við annað en að bæta lífskjörin. Stiórnmálamaðurinn Obote í Úganda var sagður áhugalítill um hag þjóðar sinnar. Þess er hins vegar varla að vænta, að stjóm herforingjanna muni verða nokkm áhugasamari í þeim efnum. V í SIR. Föstudagur 29. janúar 1971. I / v I I I ) % Réttarh'óld \ Subur-Aínku vegna sibgæðis- brota og kommúnisma Johannes Calitz, 51s árs, lokaði sig inni í svefn- herberginu, klemmdi riffilinn milli hnjánna og skaut sig í höfuðið. — Þannig varð byrjun fyrstu fjöldaréttarhald- anna í Suður-Afríku vegna „brota gegn siða- lögunum" frá 1950. Sex karlar og tólf konur brutu af sér Calitz bjó í þorpi 700 hvítra manna í Oranjéfylki. Þar var enginn svartur. Hann átti að koma fyrir rétt ásamt fimm hvít um bændum úr þorpinu og tólf Brezkir klerkar hafa undanfarna daga mótmælt handtöku dómprófastsins i Jóhannesarborg, en hann er sakaður um kommúnisma. Á myndinni er dr. Ambrose Reeves fyrrum biskup í Jóhannesarborg fyrir utan Hús Suður-Afríku í Lond- on, en þar báru 25 klerkar fram mótmæli. Siðareglan mikla kaffibrúnum konum af Bantu- stofni sem bjuggu í þorpi svert- ingja í fimm mílna fjarlægð. — Fólkinu er gefið að sök að hafa brotið gegn hinu algera banni Suöur-Afríku við kynmökum fólks af ólíkum hörundslit. Kynmök hvítra og svartra voru bönnuö í Suður-Afríku þeg ar áriö 1927, Meö „siðalögun- um“ frá 1950 bannaði þingiö i Höfðaborg einnig ástir hvítra og kynblendinga. öll kynmök mrlli hinna fjögurra milljóna hvítra manna og fimmtán millj. þeldökkra íbúa landsins eru því bönnuð að viðlögðum ströngum refsingum. Réttarhöldin eru nú þó þau fyrstu þar sem fjöldi fólks er ákærður í einu um slíkt brot. 7 ára fangelsi og tíu svipuhögg Eftir sjálfsmorð Calitz eru fimm karlar ákærðir. Þetta eru aJlt kvæntir menn hvftum kon um á aldrinum 20 til 48 ára. Þeldökku konumar eru á aldr- inum 18 til 40 ára. Samkvæmt ákærunri hefur þetta fólk síðan 1965 brotið gegn siðalögunum. Refsingin getur oröið allt að sjö ára fangelsi og auk þess geta karlmennirnir átt á hættu að hljóta tfu svipuhögg fyrir. í ákærunni segir, að einn á- kærður. Nicholaas van der Walt bóndi. 38 ára, hafi haft kynmök við sex af þessum konum, eina f einu eða fleiri saman. Hvítu karlmennirnir hafi undanfarin fimm ár laumazt yfir f svert- ingjaþorpið annað veifið og framið ofangreind afbrot. Þótt þetta séu fyrstu fjölda- réttarhöldin f slfku máli, hafa annaö veifið komið upp í Suður Afríku dómsmál vegna brota gegn siðalögunum. Það auðveld ar ekki jafnvel hinum löghlýðn ustu borgurum meðferö hvata sinna, að í landinu er gffurlegur fjöildi kynblendinga. Hvítir menn á seinustu öld voru til dæmis ekki jafnsiðavandir og þeir nú eiga að vera f Suður- Afríku, og afleiðingin var millj- ónir kynblendinga. Margir þeirra eru næsta hvftir á hörund eða lítið frábrugðnir þeim fbú- um þessa sólarlands, sem sam kvæmt vottoröum teljast hvítir. Mál prófessorsins Mikla athygli vakti t fyrra mál háskölaprófessorsins John Blackings og indverska læknis- ins Zureena Desai, Blacking, sem er fertugur og indverska stúlkan, 24ra ára, voru staðin að ólöglegum ástarmökum. Petrus Coetzee lögregluþjónn bar vitni í málinu og lýsti þvf, hvernig hann hafði fært sönnur llllllllllll M) WTFÆXffií Umsjón. Haukur Helgason: á ólöglegt athæfi þeirra. „Viö fylgdumst með húsinu úr garö inum. Ég sá Desai nakta í bað- herberginu Síðan fórum við inn Stúlkan var þá í herbergi sínu. en það var enginn vafi um framferði þeirra. Ég fór með ind- versku stúlkuna til læknisrann- sóknar til frekari sönnunar." Þau sluppu frekar vel og hlutu aöeins fjögurra mánaða skilorðsbundiö fangelsi. Skriðu inn um glugga Leynilögreglumenn stóðu hvíta stúlku og þeldökkan mann árið 1968 að þvf að kyssast. Við frekari rannsókn málsins skreið leynilögregiumaður inn um glugga á heimili fööur stúlkunn- ar, =em er kunnur borgari. Fann hann bar f einni sæng dóttur húsráðanda. Giselu Emile Beck er, 40 ára, og prest biskupakirkj unnar Noel Albert Edward Kow, þrítugan. Prestur er svartur á hörund og dvaldist þarna á heimilinu setn. gestur húsráð- enda. Þegar haft er í huga hve bart suður-afrfska lögreglan gengur fram f slfkum málum er athyglis vert, að dómsmál vegna brota gegn siðalögunum skuli ekki vera fleiri en raun ber vitni. Þess ber að gæta, að allur þorri hvftra manna f landinu styður stefnu rikisstiómarinnar um að skilnað kynþátta, „apartheid" Aðeins örfáir þekktra manna * Iandlnu hafa mælt gegn henni. Hinir strangtrúuðu kalvfnist- ar f þorpinu Excelsior, þar sem hinir hvftu menn búa, sem nú hafa verið dregnir fyrir rétt vegna kynmaka við svertingia konumar tólf, óttast illt umtai og fjárhaaslegt tap vegna máls ins. Klerkar biðia fyrir þorpini' út af þessu. Svo er mál með vexti. að veruleeur báttur f ref‘ ingu vegna siðeæðisbrota em frásaanir f blöðunum, þar sem stóru letri er skýrt frá nafni oi> heimil'sfangi sökudólgsins. Dómprófastur sakaður 'um kommúnisma Réttarhöldin í máli þessu koma á sama tíma og dómpró fasturinn af Jóhannesarborg GonviHe Ffrench-Beytagh var handtpkinn sakaður um neðan- iarðarstarfsemi og brot gegn lö“ íim sem banna ..kommúnisma'' ' Suður-Afrfku Gonville Ffren ch-Pevtagh var < gær látinn lau'- eean 'rveeineu sem nemui rúmr’ háifrl millión fslenzkr? króna Hann á að koma fvr!r rétt 26 fphrúar t ákæru seair að FTrestch Beytagb hafi verið f samband við hinn ólöeiega kommúnistp flokk f landinu op siálfstæðio fvlkinau Afrfkumanna. sem einr ir er bönnuð Dómnrðfasturinr hefur verið einhver einarðast’ andstæðingur aðskilnaðarstefn- unnar

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.