Vísir - 29.01.1971, Page 13
y«S SIR . Föstudagur 29. janúar 1971.
13
iErlendar kennsl ubækur
hafa ekki hentað
— ritun kennslubóka i stærðfræði hefst
i vetur, segir Hörður Lárusson,
sem vinnur að endurskoðun stærðfræði-
kennslunnar i gagnfræðaskólum
jpyrir skömmu bárust á rit-
stjórnina tvær bækur, sem
fjalla um undirstöðuatriði rúm-
fræði og algebru. Þessar bækur
byggjast á grundvailaratriðum
mengjafræði og eru notaðar í
sambandi við tilraunakennslu í
stæröfræði, sem þegar er hafin
í 1. bekk gagnfræðastigsins í
nokkrum skólum.
Það hefur stundum verið
hent gaman að því, að foreidrar
skilji ekki bofs í mengjafræð-
inni, sem kennd er í bamaskól-
unum nú þegar. Nú vex bilið
enn meir, þegar á að færa
kennsluna í þessari grein í efri
aldursifiokka. Mengjafræði virð-
ist ætla að verða framtíðar-
kennslugrein.
En það eru fleiri en foreldr-
amir sem stóðu utangátta, þeg-
ar þessi nýjung barst til lands-
ins — það er að isegja kennar-
amir. Úr því hefur verið bætt
og var bætt í sumar með nám-
skeiði fyrir kennara gagnfræða-
stigsins og annað námskeið
verður haldið næsta sumar. Og
í rauninni eru þessar bækur
tengdar þessu námskeiðum. í
kynningu á námsbókunum segir,
að þótt þessi útgáfa sé fyrst og
fremst ætluð til kenmslu á á-
kveðnu skólastigi, veiti hún
jafnframt kennurum tækifæri
til þess að kynna sér að nokkru
þau breyttu viðhorf, sem skap-
azt hafi I stærðfræðikennslu
víða um heim á síðari árum.
JJörður Lárusson hjá Skóla-
rannsóknum hefur séð um
útgáfuna og hann segir í spjalli
við Fjölskyldusíðuna um þetta
mál: „Stefnan hefur verið sú í
grannlöndum okkar, að kennslu-
aðferðir hafa breytzt mjög mik-
ið, og nemendur hafa farið inn
á svipaða braut hér. Þessar
bækur fylgja á eftir kennara-
námskeiði, sem haldið var hér í
sumar og verður haldið áfram
næsta sumar. Ritun kennslu-
bóka, sem beinlínis eru sniðn-
ar eftir okkar aðstæðum, er
ekki hafin hér enn, en hefst
nú í vetur og verða þær reyndar
í örfáum deildum næsta vetur.
Reynslan hefur verið sú, að
erlendar kenns-lubækur á þessu
sviði hafa ekki hentað og t.d.
er okkar skólatími, það eríað
segja kennsluárið, styttra en
gerist í öðrum löndum, og þar af
leiðandi hefur veriö ákaflega
örðugt að nota sömu bækur og
hafa verið notaðar annars staö-
ar, auk þess sem úr mörgu er
að velja og misjöfn reynsla
fengizt af þessu nýja námsefni,
/ sem , hefur verið reynt annars
staðar.
— Það hefur heyrzt á skóla-
mönnum, að við höfum stund-
um verið að taka upp nýjungar,
eins og mengjafræðikennslu,
þegar aðrar þjóðir hafa verið
að taka þá kennslu til gagn-
gerrar endurskoðunar?
„Það, sem gerist hérna er,
að þar sem breyting á sér stað
verður mikil breyting. Pendúll-
inn fer af stað og sveiflast mik-
ið, síðan fer hann f jafnvægi
aftur, sem merkir endurskoðun
f Ijósi þeirrar reynsiu, sem hef-
ur fengizt áður. Þegar þessar
námsibækur verða ritaðar hér
verður stuðzt við reynslu annars
staðar. Námsefni barnaskólanna
í mengjastærðfræði verður end-
urskoðað áður en langt um líður
eða þegar mannafli fæst til þess
að vinna verkið. Það hefur
reynzt erfitt aö fá hann.
Jjað er nýjung, sem um ræðir
og ekki svo margir, sem
hafa sett sig inn í hana, og
einnig eru kennarar önnum
kafnir við kennslu. Af þessari
mengjastærðfræði barnaskól-
anna verður te^ið mið, þegar
NOTAÐIR BILAR
u
„Pendúllinn fer af stað og
sveiflast mikið, síðan fer
hann í jafnvægi aftur, sem
merkir endurskoðun...“
endurskoðun stærðfræðináms-
efnis gagnfræðaskólanna verð-
ur. Hún mun miðast við það, að
þegar þessi börn, sem koma úr
barnaskólunum og hafa lært þar
mengjastærðfræði verði náms-
efnið miðað við þeirra undir-
búning.“
— Þessar kennslubækur sem
voru að koma út, eru til bráða-
birgða eins og stendur á þeim.
„Breytingar á námsefni og
kennsiuháttum hafa verið ákaf-
lega örar á síðustu árum. Þó að
bækur séu gefnar út er ekki
æskilegt að þær séu lengi ó-
breyttar og verða þær vafalaust
endurskoðaðar. Það er margt ó-
ljóst f þessu og tfminn verður
að ieiða í ijós hver framvinda
málanna veröur.‘‘ — SB
Skoda 1100 MB árg. 1969
Cortina 1600 S árg. 1968
Skoda 1000 MB árg. 1967
Skoda 1202 árg. 1967
Skoda 1202 árg.. 1966
Skoda 1202 árg. 1965
Skoda Combi árg. 1965
Skoda 1000 MB árg. 1965
Skoda Octavia árg. 1965
Skoda Octavia árg. 1964
Land Rover árg. 1964
SKODA
Auðbrekku 44—46, Kópavpgi
Simi 42600 \ A';
SLANK
PROTRIM
losar yöur við mörg kg
á fáum dögum með því að
það sé drufckið hrært út
i einu glasi af mjólk
eöa undanrennu, fyrir eða
í stað máltíöar.
Og um leið og þér grennið
yður nærið þér líkamann á
nauösynlegum efnum.
PRO TRIM-slank er sériega
mettandi og nærandi og er
bæði til með jarðaberja- og
súkkulaðibragði.
Fæst hjá:
Heilsuræktarstofu Eddu. —
Skipholti 21. (Nóatúnsmegin).
ÚTSALA
ÚTSALA
TRÉSMIÐJAN VÍÐIR HF. AUGLÝSIR:
Seljum næstu daga lítið gölluð húsgögn, svo sem borðstofuhúsgögn, svefnherbergishúsgögn, skatthol,
speglakommóður, og staka stóla með tækifærisverði. — Notið yður þetta einstæða tækifæri og gerið
góð kaup.
m
Trésmiðjan Viðir hf.
Laugavegi 166. Sími 22229 og 22222.