Vísir - 03.02.1971, Síða 3
V í S I R . wliðvikudagur 3. febrúar 1971.
n. -
KERFIAPOLLO 14
TALIÐ ÖRUCCT
Umsjón: Haukur Helgason:
— Hætt við stefnuleiðréttingu i dag, svo að
mikilvægt eldsneyti sparast
Geimfaramir í Apolio 14
vöknuðu um miðnætti í
nðtt og buðu góðan dag.
Stöðin í Houston tiikynnti
þeim, að ekki þyrfti að
gera fyrirhugaða leiðrétt-
ingu á stefnu geimfarsins.
Þetta kom sér vel fyrir geimfar-
ana, sem hafa þegar notað meira
eldsneyti en til stóð vegna erfið-
leikanna við tengingu fyrstu nótt-
ina.
Mitdhell kvaðst hafa sofið í sex
og hálfa stund, Roosa í sjö og Shep
ard í fimm.
Apollo 14 fer í dag fram hjá þeim
„punkti“ í himingeimnum, þar sem
fyrirrennari hans Apollo 13 hafði
nærri sundrazt í fyrra, þegar súr-
efnisgeymir sprakk. Þá varð að
hætta við lendingu og snúa Apollo
40 særðust í
óeirðum / Róm
40 slösuðust og um 60 stúdent- þjónar og þrjátíu stúdentar fluttir I
113 til jarðar við illan lei'k, eins og
menn muna. Hins vegar var afflt
talið í lagi með Apollo 14 í morg-
I un.
| Shepard og Mitoheil eiga í dag
að skrlða gegnum 80 sentimetra
breiðan ganginn inn í tunglferj-
una „Antares" ti'l að athuga, hvort
kerfið er í lagi. Yfirmenn í stöð-
inni í Houston voru í morgun í
engum vafa um, að kerfið mundi
starfa fuilkomlega, þegar þessir
tveir hlutar geimfarsins verða
tengdir saman að nýju, eftir að
geimfararnir hafa dvalizt á tungli.
Snemma í morgun var geimfariö
um 320 þúsund kflómetra frá jörðu
og fór með þriggja kflömetra hraöa
á sekúndu.
Fjölskylda flugstjórans.
Alan Shepard flugstjóri á Apollo 14 með fjölskyldu sinni. Fremst til vinstri dóttirin Jufie, Í9 ára.
1 aftari röð til vinstri er frú SJiepard og til hægri dóttirin Laura, 22ja ára. Þriðja stúlkan á mynd-
inni er frænka.
ar voru handteknir eftir mikil á- í sjúkrahús, Lögreglan beitti tára-
tök milli vinstri sinnaðra stúdenta gasi gegn hópi stúdenta, sem varp-
og lögreglu við háskólann í Róm
í gær, 100 lögregluþjónar tókust
á við stúdenta, sem höfðu tekið í
gíslingu þrjá lögregluþjóna í borg-
aralegúm klæðum og lokað þá inni
í húsi stúdenta.
Bftir bartlagann voru tíu lögreglu
| -
íranskeisari og frú. „Aðgerðir
gegn ákveðnum ríkjum“.
aði bensínsprengjum, grjóti, borð-
um og stólum i lögregluþjóna.
Þetta voru alvarlegustu stúdenta-
óeirðir í Róm um langt skeið.
Undanfarna daga hafði 'hvað eftir
annað komið til slagsmála miilli
vinstri sinna og stúdenta, sem
styðja flokk ný-fasista. Lögreglan
hefur reynt aö hindra þessi átök.
Óeirðirnar í gær hófust með því,
að stúdentar úr róttækasta félaginu
gengu berserksgang um skólasvæð-
ið, segja fréttamenn. Stúdentar
brutu hurð í lagadeild og eftir það
hófust enn slagsmál milili þeirra
og ný-fasista. Þegar lögreglan
reyndi að stöðva þetta, var varpað
f hana grjóti og „Molotofif-sprengj-
um“.
Þrír vinstri sinnar réðust á þrjá
borgaraklædda lögregluþjóna fj'rir
utan heimili stúdenta og drógu þá
! inn í húsið. Nokkrum mínútum
seinna kom liðsauki lögregluþjóna
í á vettvang, en stúdentarnir lokuðu
sig inni og gerðu vígi úr húsgögn-
um og bllum.
Um síðir komust löregluþjónarn-
ir inn f húsið og frelsuðu gíslana.
Síðan voru um 80 stúdentar, sem
í húsinu voru, fluttir I,fangelsi.
Sókn kommúnista í Laos
— Ekkert lát á orðrómi um fyrirhugaða rnnrás Bandarikjamanna
Orðrómurinn um f'"’t-bugaða inn-
rás bandarískra og suður-víet-
namskra hersveita í Laos færðist
frekar í aukana í gær, og óstaðfest-
ar fréttir greindu frá því, að fall-
hlífarhermenn hefðu þegar lent í
1 Laos. F.ins og skýrt var frá í blað-
inu í gær, telja margir fréttamenn,
að innrás muni gerð í Laos með
svipuðu sniði og innrásin í Kamb-
ódíu var í fyrra. Stjórnin f Wash-
I ington hefur hvorki viljað játa
I þessu né neita.
Kommúnistar sóttu fram á víg-
stöðvunum f Laos í morgun og
tóku bteinn Muöng“Súof,'' 160 kíló-
metrum norður af höfuðborginni
Vientiane.
Kommúnistar hófu sóknina með
árás stórskotaliös á bæinn. Bærinn
var aðalstöðvar hersveita „htot-
lausa flokksins" í Laos.
Skæruliðar Pathet Lao og Norð-
ur-Vfetnamar tóku þennan bæ fyr-
ir 15 mánuöum en misstu hann í
október síðastliðnum. Þegar komm-
únistar réðu Muong Supi réðu þeir
að mestu yfir hinnii mikilvægu
Kru'kkusiléttu, sem er bæði hemað-
arlega mikilvæg og aðalræktunar-
svæði landsins.
Fyrir tveimur dögum höfðu
kommúnistar hertekið bæinn Bu-
ong Ohalana, 335 kflómetrum suð-
austur af Vientiane.
Nú er regntímanum lokið í Laos
og er búizt við áframhaldandi á-
hlaupum kommúnista.
Souvanna 'Phouma
þjóðarleiðtogi Laos.
LOKAÐ FYRIR OLIU-
SÖLU TIL EYRÓPU?
Slitnaði upp úr samningatilraunum milli
oliurikja og oliufélaga
Mikil hætta er talin á skær
um milli aðalolíulandanna
og stærstu vestrænu olíu-
félaganna. Slíkt gæti skap-
að vanda í Vestur-Evrópu,
þar sem innfluteiingur á
oííu yrði í hættu.
I í gærkvöldi slitnaði upp úr samn
■ ingatilraunum, sem staðið hafa
! langan aldur miMi stiórna sex ríkja
við Persaflóa, sem framleiða olíu
i og 22ja vestrænna olíufélaga. Frest
; ur sá sem ríkisstjórnimar hafa
gefið olíufélögunum til að ganga
i að skiimá'lum sínum, rennur út í
dag.
| Samtök ríkja, sem framleiða olíu
halda fund í Teheran í dag til að
ræða um aðgerðir. Þama er um að
ræða olíuríki við Miðjarðarhaf og
Persaflóa, í Suður-Ameríku og í
Asíu. transkeisari sagði á blaða-
mannafundi fyrir tveimur vikum,
að til greina kæmi að stöðva oliu-
sölu til ákveðinna landa, ef olíu-
félögin koma ekki lengra til móts
við kröfur oh'urJkjanna.
Fjármálaráðherra írans, Amshid
Amouzegar, sagði í gær, að búast
megi við hörðum ályktunum á fund
inum í dagP
1 x 2 — 1 x 2
(3. leikvika — leikir 23. janúar 1971)
Úrslitaröðin: 221-110-lxx-xxx
1. vinningur: 10 réttir — kr. 291.500.00
Nr. 19779 (Borgarfjörður)
2. vinningur: 9 réttir — kr. 5.600.00
Nr. 5074
Nr. 11213
Nr. 13573
Nr. 16270
Nr. 18536
Nr. 19790
Nr. 23049
Nr. 23296
Nr. 25785'
Nr. 29045
Nr. 31497
(Garðahreppur)
(Kópavogur)
(Ytri-Njarðvík)
(nafnlaus)
(Vestm.eyjum)
(Borgarfjörður)
(nafnlaus)
(Reykjavík)
(Reykjavík)
(Reykjavík)
(Reykjavík)
Nr. 34314
Nr. 36950
Nr.\ 46756
Nr. 47541
Nr. 50476
63346
64369
65300
65514
Nr. 66189
Nr. 66190
Nr.
Nr.
Nr.
Nr.
(Reykjavík)
(Reykjavfk)
(Reykjavík)
(Reykjavík)
(Reykjavík)
(Reykjavík)
(Reykjavík)
(nafnlaus)
(Reykjavík)
(Reykjavík)
(Reykjavfk)
Kærufrestur er til 15. febr. Vinningsupphæðir' geta
lækkað ef kærur reynast á rökum reistar. Vinningar
fyrir 3. leikviku verða sendir út (póstlagðir) eftir 16.
febr.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvísa stofni
eöa senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og
heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðinni — Reykjavík