Vísir - 09.02.1971, Page 2

Vísir - 09.02.1971, Page 2
Heimsmet í bjór- þambi kvenna Hjúskaparmiðlun Nýlega var haldin i Englandi drykkjukeppni kvenna. Sú sem vann, er 18 ára og heitir Angela Rand frá Kent. Angela drakk gallon af eplamiði á hálftíma. Hún varð þrisvar sinnum veik í keppninni, önnur, sem tók þátt í keppninni sofnaði alveg út aif og vaknaði ekki þaö sem eftir var keppninnar. Angela sagði, að sér hðföi nú liðið hálf iMa eftir keppnina, en hún sagöist samt hafa skemmt sér vel. Maðurinn, sem stóð fyrir mjaðarþambinu sagði, að stúlkum ar hefðu sjálfar beðið hann um að efna til keppninnar. Sagði Artlhur ag stúlikurnar hefðu verið mjög drukknar eftir keppnina, en fljótt rann af þeim og ég helc að þetta hafi ekkert komið að sök. Hjúskaparmiðlunarstöð í Júgóslavíu hefur veriö opnuð og er hún rekin af ríkinu. Miðlunin hefur staðfest það að innan 6 mánaða hafa viðskiptavinirnir hitt sinn rétta lífsförunaut og gift sig. Hundruð bréfa streyma að víðs vegar úr Evrópu. í miðl- uninni starfa þrír menn, þeim til hjálpar eru sáifræðingar og geð- læknir. Þegar viðskiptavinirnir láta skrá sig, borga þeir 11 pund, en þeir þurfa að útfylla eyðublað, sem er með yfir 100 spumingum. Þegar miðlunin opnaði voru við- skiptavinirnir aðallega karlar, en þegar konurnar fréttu það, byrj- uðu bréfin að streyma inn. — Fyrsta giftingin sem á sér stað með hjálp miðlunarinnar, fer fram nú um næstu mánaðamót. Ef einhverjir íslendingar hafa á- huga á að komast í samband við miðlunina þá er hún í borginni Ljubljana í Slovenia-héraði. Á myndinni sjást keppendur í drykkjukeppninni, lengst til vinstri er Angela Rand. aaaa Y insældalistinn 1. (1) MY SWEET LORD George Harrison 2. (2) CURRIED SOUL Mr. Bloe 3. (4) IN MY CHER Status Qo 4. (7) PICKIN TOMATOES Shocking Blue 5. (3) IRONMAN Black Sabbath 6. (6) WHEN I’M DEAD AND GONE McGunness Flint 7. ( ) VIECHLE Ides of March 8. (5) NO, NO, NO Voices of E. H. 9. (8) WHAT IS LIFE? George Harrison 10. (9) PARANOID Black Sabbath L.P.-plöturnar: i. (i) ALL THINGS MUST PASS G. Harrison 2. (2) JOHN LENNONS PLASTIC ONO BAND John o. fl. 3. (3) PA RANOID B. Sabbath 4. ( ) VIECHLE Ides of M. 5. ( ) LED ZEPPELIN 111 L. Zeppelin Barnaherbergi í kúlu 81 árs hjúskaparafmæli Nixon Bandaríkjaforseti slóst í félagsskap með því dáindis- fólki, Frank Sinatra, Pierre Elli- ott Trudeau forsætisráðherra Kanada, Júlíönu Hollandsdrottn- ingu, Bing Crosby, Gústaf kóngi í Svfþjóö og Gary Grant með að ^snda þeim Ward og Anne Mc- Daniel frá Macon, Montana, USA hamingjuóskir í tilefni af áttatíu og eins árs brúðkaupsafmæli þeirra. Eftir því Sem Cyril, hinn 70 ára sonur þeirra (Ward er 102 og Anne 101) segir, þá vildu gömlu hjónin engin læti út af afmælinu, ,,þau eyddu deginum heima í rólegheitum" sagði stráksi, „og það var allt i lagi, þau hafa djammað nóg á öðrum afmælum og munu skemmta sér á hjúskaparafmælum iengi enn“. Möguleikar á fleiri hjúskaparaf- mæilum eru sagði vera 1 á móti 190 milljónum. Þessi lcúla, sem stendur þama út úr húsinu, er úr plasti. Kúian er bamaherbergi, hana gerði Maroel Lachat í Genf í Sviss. Nýlega fæddist Marcel og konu hans dóttir. Þau fóru um alla borgina að leita að stærri ibúð, en fengu enga. Þá sá Marcel ekk- ert annað ráð en að setja þessa 300 kílóa kúlu utan á húsið og I kúlunni sefur litla dóttirin. Kúlan er úr polyesterplasti og er 4 mönnum óhætt að vera inni í herberginu í einu. Slökkvistöðin í nágrenninu hefur tilkynnt að hún ætli að rífa kúluna niður, því að þeim hjá slökkviliðinu finnst þau hjónin stofna lífi sínu og barnsins í hættu. Ari „sekkur44 og Jackie „amma“ Klæðnaður Ara og Jackie vakti mikla athygli og blaöamenn sendu þeim tóninn, þegar þau voru á göngu i Gaprí. Blaðið London Daily Sketch lýsti Jackie á þessa leið: „Hún var í kjól sem óneitanlega minnti á tjald og með slá, sem gerði hana í útliti eins og hippaömmu“. Ari vár í svört- um buxum, sem voru álíka víðar og strigapoki og £ hvítum skóm. a Frú Lachat gefur Söru litlu pelann sinn.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.