Vísir - 09.02.1971, Blaðsíða 16
Voga mér ekki að reykja
nema í brúnni
— segir skipstjórinn á Albert frá Grindavik
— skipshöfnin öll / bindindi nema hann
.. ... ..
VÍSIR
Þriöjudagur 9. febrúar 1971.
TRIMM
- PUÐ
■ Illa hefur gengið að finna ís-
lenzkt orð um trimmið, íþróttir fyr-
ir alla. Komið hefur fram hug-
mýnd um aö kalla það þjálf, en
henni hefur ekki verið vei tekið.
Hér er sett fram ný tiliaga, sem
tekur mið af þeirri staðreynd, að
áreynsla á hiartað er eitt af megin-
atriðunum i trimminu. Tillagan er,
að kalla trimmið einfaldlega puð
og trimmarann puðara.' — JK
Ég voga mér ekki að
stinga pípunni upp í
mig, nema þegar ég er
uppi í brúnni, sagði Þór-
arinn Ólafsson, sá kunni
aflaskipstjóri á vélbátn-
um Albert frá Grinda-
vík, en skipverjar hans
hafa nú lagt niður allt
tóbaksbrúk og banna
reykingar í borðsal
skipsins.
Ég veit ekki, hvort þeir hafa
haldið út núna í iandlegunni,
sagði Þórarinn, þegar Vísir
spurði hann um þessa stúku-
menningu á skipi hans. — Þeir
tóku allir upp á þessu um mán-
aðamótinu.
— HeTdurðu að þeir séu jafn-
góðir sjómenn eftir sem áður?
— Já, það held ég. Ég.var dá-
lítið hræddur um það fyrst í
stað, að þeir yrðu ieiðiniegir í
skapinu, þegar tóbaksiöngunin
færi að segja til sín. En á því
hefur bara ekkert borið. Þeir
heröa hver annan upp í þessu. w
Albert hefur sem kunnugt er |
verið með afiahæstu skipum á H
landinu undanfarnar vertíðir, |
svo að ekki ættu skipverjarnir
að þurfa svo mjög að spara öðr- |
um fremur. Að vísu hefur fiskir-
íið verið heldur tregt hjá þeim ''
f vetur, miðað við í fyrra ti'l
dæmis. Að sögn Þórarins er afl-
inn rétt um 200 tonn, þar af
þó nokkuð ;af ufsa. — Tólf skip-
verjar eru á bátnum. Reikna má
með að þeir hafi reykt að með-
altali fyrir um 50 kr. á mann á
dag, svo aö spamaðurinn af gj
bindindinu verður ekki svo lítil'l, |
16—17 þús. á mánuði. — JH fj
Leikararnir tóku
sér tíu ára hvíld
írá Músagildrunni
Leikfélag Kópavogs hefur nú
ákveðið, að hefja að nýju sýning-
ar á sakamálaleikriti Agötu Ghrist-
ie, ,,Músagildrunni“, en, síðustu sýn
ingar Leikfélagsins á því leikriti
voru fyrir réttum 10 árum. Þó er
allt útlit fyrir aö sama leiklistar-
fólk fáist til að taka þátt í endur-
sýningum þessum. Hefur Klemens
Jónsson t. d samþykkt að annast
leikstjómina sem fyrr og Magnús
Pálsson kiktjaldamálari gengizt inn
á það, að endurnýja leiktjöldin, er
hann málaði á sínum tíma fyrir
Músagildruna. v
Sömuleiðis hafa allir „gömlu“
leikararnir tekið vel í það að
spenna gildruna að nýju og þar á
meðal Jóhann Pálsson, sem fór með
aðalh.lutverk leiksins í fyrri upp-
færslunni.
Ráðgert er að hefja leikæfingar
einhvern næstu daga og því allt
útlit fyrir að sýningar hefjist um
líkt leyti og sýningar LK á Hár-
inu eða um miðjan næsta mánuð.
—ÞJM
Norsk Snorra-sýn-
ing send
Frændur okkar Norðmenn sýna
Snorra Sturlusyni öllu meiri sóma
en við íslendingar gerum. Fyrir
síðustu heigi var opnuð sýning á
myndaútgáfu Heimskringlu Snorra.
Myndirnar eru allar unnar í grafik.
Bók þessi var gefin út um síðustu
aldamót af M. J. Stenersen og marg
ir fremstu listamenn þeirra tíma
til Belgíu
eiga verk í bókinni. — Gerhard
Munthe skipulagðj bókina fyrir
grafískar myndir. Þessi sýning er á
vegum norska þjóðminjasafnsins,
listasafns Noregs og utanríkisráðu-
neytisins. Sýning þessi á að fara
síöar til Belgíu og verður sett upp
í konungsbókhloöunni í Briissel.
— ÁS
Bidsted og Helgi Tómasson
Helgi Tómasson faðmar Erik Bidsted, sinn gamla kennara. — Bidsted var hér á landi, þegar
Hlelgi var á barnsaldri og þekkir því vel til þessarar fyrstu ballettstjörnu íslendinga. — Bidsted
setti hér upp í haust söngleikinn „Ég vil, ég vil“, en fór síðan utan aftur. Núna kom hann hingaö
til lands til þess að sjá Helga Tómasson dansa, og einnig til að hjálpa til við undirbúning sýning-
anna, „og svo ætlar hanh víst að taka smá törn á ballettskólanum hérna,“ sagði Klemens Jóns-
son Vísi í morgun. — GG
, .j. j <-' ■»
Óánægðir með aðeinsj
einn söngtíma í viku j
— segja söngkennarar
„Við getum ekki gert raun-
hæfar tillögur til úrbóta fyrr
en niðurstöður af tilraunakennsl
unni í tónlist liggja fyrir, en
það hefur dregizt á langinn“,
sagði Egill Rúnar Friðleifsson
formaður Söngkennarafélagsins
í viðtali við Vísi um það að
þaö hafi komið fram, að ekki
væru nægir söngkennarar til
að annast kennslu í söng í barna
skólunum. Sagði hann, að söng
kennarar væru óánægðir með
að hafa ekki nenia einn tíma í
viku í söngkennslu á hverjum
bekk. „í nýju fræðslu'öggjöfinni
er gert ráð fvrir lengingu skóla-
tímans og vonumst við til að
fá fleiri kennslutíma í viku, a.
m. k. tvo. Á undanförnum árum
hefur reynzt afskaplega erfitt að
fá útgefið kennsluefni. Við höf-
um orðiö að útbúa okkar verk-
efni sjálf“ Þá sagði Egill, að
söngkennaranámskeið yrði hald
ið hér í ágústmánuði n. k. og
vonuðust söngkennarar til að
fá þangað tvo ungverska leið-
beinendur, en < Ungverjalandi
hefðu farið fram miklar tilraunir
með tónlistarkennslu í bama-
skólum.
—SB
«
a
*
o
e
8
i
<
M.yndin er af sýningunni í Osló,
• © Q +