Vísir - 22.02.1971, Page 8

Vísir - 22.02.1971, Page 8
8 VISIR Otgef^ndi: Reykjaprenr bf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. EyjóKsson Ritstjori: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson íSststJórnarfuIltrúi • Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Bröttugötu 3b. Slmar 15610 11660 Afgreiösla- Bröttugötu 3b Sími 11660 Ritstión • Laugavegi 178. Slmi 11660 (5 línur) Askriftargjald kr. 195.00 á mánuöi innanlands t lausasölu kr. 12.00 eintakiö Prentsmióia Vtsis — Edda hf. Virðingarvert raunsæi Egypzka stjórnin segist vera albúin að undirrita frið- arsamninga við ísraelsmenn. Samtímis segir sendi- herra Egypta hjá Sameinuðu þjóðunum, að Egyptar bjóðist til að viðurkenna ísrael sem sjálfstætt ríki. Peir setja mörg skilyrði fyrir þessum tilslökunum, en engu að síður marka þær nokkur tímamót í deilunum í Mið-Austurlöndum. ísraelsmenn hafa átt samstöðu með vestrænum ríkjum um margt. Oftast hafa vestrænir menn stutt ísraelsmenn, en Arabar helzt leitað ásjár hjá komm- únistum. í Súezstríðinu árið 1956 voru það vestrænu ríkin Bretland og Frakkland, sem réðust á Egypta- land ásamt ísraelsmönnum. Það stríð stóð skamma hríð. Bretar og Frakkar kipptu að sér hendinni. Bandaríkin höfðu ekki stutt þessa herferð. Ári síðar höfðu ísraelsmenn kallað her sinn aftur til upphaf- legu landamæranna. Þeir áttu þá að njóta frjálsra siglinga til Rauðahafs. Sex daga stríðið brauzt út tíu árum síðar, eftir að Egyptar höfðu beitt ísraelsmenn margs konar þving- unum og að lokum sett hafnbann á ísrael. ísraels- menn gerðu þá innrás í Egyptaland, Sýrland og Jórd- aníu. Þeir reyndust hafa algera yfirburði á láði og í lofti. í þessari innrás hertóku ísraelsmenn þau svæði af Aröbum, sem enn er deilt um, allt land Egypta austan Súezeiðis, vesturbakka árinnar Jórdan og Gól- anhæðir frá Sýrlendingum. ísraelsmenn hafa hagnazt á sex daga stríðinu. Hin herteknu svæði þeirra hafa einmitt æ síðan verið þeirra sterkasta tromp. Arabar krefjast þess, að þeim verði skilað. ísraelsmenn hafa látið í það skína, að þeir muni ganga að þeim skilmálum með nokkrum undantekningum, ef Arabar brjóti odd af oflæti sínu, semji frið til frambúðar og viðurkenni ísraelsrfld. Eftirmaður Nassers í forsetastóli í Egyptalandi, Anwar Sadat, hefur undanfamar vikur sýnt meira hugrekki en sjálfur Nasser hafði nokkru sinni gert. Það þarf til þess kjark að segja egypzku þjóðinni sannleikann. I tuttugu og tvö ár hafa leiðtogar Araba hrópað í kapp um það, að „ísrael skuli afmáð af landa- bréfinu“. Enginn raunsær stjómmálamaður ímyndar sér, að það yrði gert í fyrirsjáanlegri framtíð, nema ef til vill hugsanlega með rússneskum kjamorku- vopnum. Með svo ósveigjanlegri og óraunhæfri afstöðu Ar- aba hefur engin von verið um frið í þessum heims- hluta. Segja má, að látlaus styrjöld hafi geisað allt frá stofnun Ísraelsríkis og raunar miklu lengur. Ar- abar og Gyðingar hafa lagt mikið í sölurnar í blóði og tárum. Vegna hins mikla tilfinningahita í deilun- um hafa forystumenn Araba beinlínis aldrei þorað að vera raunsæir í stefnu sinni. Hitt er svo annað mál, hvort raunsæi Sadat forseta í nokkrum grundvallaratriðum hrekkur tfl. Engu að síður er það virðingarvert (1 (i V í SIR . Mánudagur 22. febrúar 1971. Bjartari vonir í bar- áttunni við krabbamein Fátt vekur slíkan ugg í brjóstum manna og til- hugsunin um krabba- mein. Oft fylgir því lang varandi þjáning og að lokum dauði. Engin lík- amshluti er óhultur fyrir þessum vágesti. Oft em uppblásnar fréttir um ný lyf eða aðferðir, sem muni sigrast á sjúkdóm- inum. Bak við þær frétt- ir reynist oft óskhyggj- an ein. Hins vegar álíta fróðir menn, að um þess ar mundir horfi bjartara um sigur en nokkru sinni áður og færa að því sterk rök. Stefnt ao lækkun dánar- tölu um þriðjung Lifslfloir 9—92% Enn eru ófundin lytf, sem gera slfkt gagn gegn æxlum, svo sem krabbameini I brjósti. En vrsindamenn kanna hvert ár um 15 þúsund efnablöndur í leit að lyfjum. Maigir sjúklingar, sem lifa fimm árum etftir læknis meöferð við krabbameini, eru úrskurðaöir albaita. Eftirfarandi listi sýnir tölu þeirra, er lifa eft< ir að hafa sýkzt af krabbameinl og eru tölumar við það miðað ar, að krabbameinið sé takmark að en hafi ekki breiðzt út um b"k- amann: Brjóstkrabbi 85% lifa, krabbamein í lungum 29%, f legi 81%, skinnkrabbi 92%, í munni 81% og í ristli og enda- þarmi 9%. Hafi krabbameinið náð útbreiðslu minnkar þetta hlutfall um helming eða því sem næst. Þannig halda 53% lífi af þeim, er brjóstkrabba fá, en við slíkar aðstæður og aðeins 9% af þeim, sem veikjast af kralbba- meini í lungum. Veirur valda krabbameini Mikla athygli vakti fyrir skömmu uppgötvun ungs vísinda manns viö Wisconsin-háskóila í Bandaríkjunum, Howard Temins aö nafni. Temin sýndi fram á að enzým frá veirum gat valdið annars konar breytingumáerfða eiginleikum fruma en áður var vitaö. Veiran veldur venjulega sjúkdómi með því að ráðast inn í frumuna og koma henni til að framleiða nýjar veirur. Því er nú haldið fram, að veiran valdi krabbameinj á nokkuð „lævís- ari“ hátt, breytj erfðaeiginleik- um frumunnar, svo að hún verð ur krabbameinsfruma, sem get ur aukið við sig, svo að úr verði stækkandi æxii. Yrði of flókið að rekja þessa þróun alla, en niö- urstöður Temins og annarra benda eindregið til þess, að veir ur getj valdiö krabbameini. — Sumir vísindamenn binda miMar vonir við. að fnnast muni lyf, sem stöðvar starfsemi velru enzýmsins og þar með krabba- meinið. Illlllllllll affiwwm Umsión Haukur Hetaason: ÓVINURINN. — Krabbameinsfruma, stækkuð 3000 sinnum. Uppskurður við krabbameini. Læknar ná oft beztum ár- angri, ef þeir nota lyfin til skipt is eða blönduð til að koma í veg fyrir að krabbameinið geti orð- ið ónæmt fyrir þeim. Ný lyf hafa valdið miklum framförum í baráttunn; við hvítblæði, sem er algengasta krabbameinið, er böm fá. Áður var það svo, að bam, er veiktist af þesstim sjúk dómi, lézt yfirleitt eftir fáar vik ur eða mánuði. Nú hefur sá ár- angur náðst, að níu af hverjum tíu börnum, sem fá lyfjameð- ferð, braggast að minnsta feosti um sinn, og helmingur þeirra er lifandi við sæmilega heilsu eftir fimm ár frá meðferö. Nokkur eru talin aibata. Það hefur verið takmark í krabbameinsbaráttunni að lækka dánartölu krabbameins- sjúklinga um þriðjung fyrir ár- ið 1980 og um tvo þriöju fyrir næstu aldamót. Þettá* er verkefni. Til dæmis er þess aö vænta að 25 af hverjum búlif- and Bandarfkjamönnum muni einhvem tíma á ævinni sýkj- ast af krabbameini. Þetta eru um 50 milljónir manna, og af • þeim munu 34 milljónir deyja af völdum sjúkdómsins, miðað við núverandi dánartölu. 4000 böm deyja ár hvert úr krabba- meini I Bandaríkjunum. í grein í bandaríska tímarit- inu Newsweek segir, að nú hafi miklar framfarir orðið í vísind- um og almenningur og stjórn- völd séu örlátari á fé til krabba meinsrannsókna en nokkru sinni áður. Baráttan gegn krabbameini sé. komin á nýtt stig og vonir hafi aldrei verið betri. Fyrir þremur áratugum átti aðeins einn af hverjum fimm, sem veiktust af krabba meini, von um að halda lífi. Nú eru þaö milli 30 og 40 af hverj um 100, sem munu lifa krabba- meinið af. 1 sumum tilvikum er þessi tala hærri, til dæmis munu milli 60 og 80 af bverjum bandariskum konum, sem fá krabbamein í brjóst, ekki látast af þess völdum að sögn sér- fróðra i USA. Ný tækni í Enginn hluti líkamans er ó- hultur fyrii krabbameini. geislalækningum hefur aukið lífs líkur krabbameinssjúklinga, og nýjar aðferðir koma í veg fyrir líkamslýti í ríkari mæli en áður. Jafnvel börn með hvítblæði lifa lengur en áður, og sum eru úr- skurðuð heilbrigð. Mörg lyf eru reynd með nokkr um árangri, Um þrjátíu slík eru nú notuö, til að draga úr vexti krabbameinsæxla.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.