Vísir - 09.03.1971, Side 8
8
VÍSIR . Þriðjudagur 9. marz 1971
Ctgefandl: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri • Sveinn R Eyjólfsson
Ritstjóri • Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi • Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Bröttugötu 3b. Slmar 15610 11660
Afgreiösla- Bröttugötu 3b Slmi 11660
Ritstjórn: Laugavegi 178. Sfmi 11660 (5 linur)
Áskriftargjald kr. 195.00 á mánuði innaniands
t lausasölu kr. 12.00 eintakið
Prentsmiðja Vfsis — Edda hf.
Raunsæ bjartsýni
Aðaltilgangur verðstöðvunar í haust var að varð-
veita kaupmátt þeirra launa, sem um var samið í
fyrravor. Eftir kjarasamningana var kaupmáttur
launa almennt orðinn svipaður og hann hafði hæst-
ur verið. Þessum tilgangi hefur verið náð. Kaupmátt-
urinn er nú mjög nærri því að vera hinn sami og hann
var eftir samningana.
Ef verðstöðvun hefði ekki komið til, hefði mátt
búast við framhaldi þeirrar óheillaþróunar, að kaup-
gjald og verðlag hækkaði sífellt á víxl. Allur almenn-
ingur hefur fundið til þess, að útgjöld til daglegra
lífsnauðsynja eru lægri vegna niðurgreiðslna. Við
þetta bætist, að án verðstöðvunar væru þessi útgjöld
nú orðin til mikilla muna hærri en þau voru í byrjun
nóvember. Kaup hefði að vísu fylgt á eftir sam-
kvæmt samningum, en eins og allir vita, hefði kaup-
hækkunin jafnan komið talsverðum tíma á eftir.
Reiknað var, að tap iaunþega vegna þessa tímamun-
ar, hefði orðið tvö prósent fram til 1. marz. ..
Þetta er það hlutfall, sem launþiegáf hefðu tápað
í kaupmætti launa sinna, ef ekkert hefði' venð’ áð
gert heldur ákvæðum samninganna frá í fyrra fylgt
til hins ýtrasta. Þess vegna var ákveðið í verðstöðv-
unarlögunum, að kaup skyldi ekki hækka, nema kaup-
greiðsluvísitala hækkaði um meira en 2% frá 1. sept-
ember síðastliðnum. Hækkun vísitölunnar kemur hins
vegar fram á kaupi, er verðstöðvun lýkur 1. septem-
ber næstkomandi.
Verðbólgan kemur einkar hart niður á almennum
launatekjum. Hún bitnar ekki síður á atvinnurekstr-
inum í landinu. Allt bendir til þess, að án aðgerða
væri nú mikill vandi, einkum í útflutningsframleiðsl-
unni, sem er háð verðlagi erlendis. Þeir, sem hafa ótt-
azt gengisiækk.'n. æ*+u að ^era s*r ljóst, að hækkað
kaupgjald og verGir.g iunan’ands er einmitt það, sem
helzt kollvarpar gengi gjaldmiðilsins.
Með skynsamlegri stefnu er Iftil ástæða til að
bera kvíðboga fyrir efnahag þjóðarinnar, þegar verð-
stöðvun lýkur í haust. Efnahagsvandamálin verða að
vísu aldrei leyst í eitt skipti fyrir öll. En minni ástæða
hlýtur að vera nú en á flestum öðrum tímum til kviða.
Verðstöðvunin er ekki greidd með hallabúskap. Fær-
ustu sérfræðingar hafa nýlega spáð því, að lífskjör
muni batna verulega á þessu ári. Gjaldeyrissjóðir
hafa vaxið og ekki verið hærri en nú í erlendum gjald-
eyri síðan í góðærinu 1966. Styrkir gjaldeyrissjóðir
eru undirstaða gengis krónunnar.
Það er fyrst, þegar gjaldeyrissjóðir þverra, að engin
ríkisstjóm megnar til lengdar að varðveita gengi (
gjaldmiðilsins.
Af öllu þessu er nú meiri ástæða til raunsærrar /
bjartsýni en yfirleitt á liðnum árum. }
Bretar finna til ky
þátta vandamáls ins
— Stjórnin ætlar að auka h'ómlur á innflutningi fólks
Kynþáttavandamál setja
svip á brezkt þjóðlíf.
Mikill fjöldi fólks hefur
flutt til landsins undan-
fama áratugi, einkum
svertingjar frá Vestur-
Indíum, Indverjar og
Pakistanir- Þótt þetta
x fólk sé enn aðeins tvö
prósent af íbúum Bret-
landseyja, þá er fjöldi
þess 1,8 milljón, og víða
í stórborgunum hefur
það „lagt undir sig“
heilu götumar og hverf-
in. Brezka stjórnin hefur
nú ákveðið að grípa í
taumana og lagt fram
frumvarp um auknar
takmarkanir á innflutn-
ingi fólks.
Bannað að vera
í síðbuxum
Sú var tíðin, að fólk hvar sem
var i brezka heimsveldinu átti
atihvarf á Bretlandseyjum. Ein-
hver sagðj þá, að böndin, sem
tengdu allar þjóðir heimsveldis
ins. væru „létt eins loftið en
þó um leið sterk eins og járn-
fai&kfaf'þÞessi hurídruð miiljóna
manna um heim allan voru
brezkir þegnar. Þetta var ekki
vandamál þvert á mótj var fólk
ið mikilvæg auðlind fyrir Stóra-
Bretland, og það gat leitað hjálp
ar brezku stjórnarinnar, ef það
varð aö þola misrétti af annarra
þjóða mönnum. Bretland vemd
aöi þegna sína.
Það var fyrst eftir aðra hejms
styrjöld, að fólksflutningar til
Bretlands urðu vandamál. Þá
fór að bera á kynþáttafórdóm-
um Bretanna. „Bretland er „fish
and ahips“ en ekki krydd og
hrisgrjón“, er haft eftir brezkri
almúgakonu. Hinir nýju borgar
ar hafa víða myndað fátækra
hverfi, þar sem búðir eru fullar
af kryddvörum og ýmsum aust
Nærri tvær milljónir hörunds-
dökkra, að meðtöldum Ind-
verjum, búa nú í Bretlandi.
urlenzkum vamingi. Gömlu Bret
arnir eru ekkj ánægðir með ilm
inn.
Vandamálin faafa orðið mörg.
I bænum Wolverhampton hafa
yfirvöld bannað strætivagna-
stjórum aö bera túrbana sína,
þau höfuöföt sem Síkarnir frá
Indlandi vilja ekkj við sig skilja.
I s'kólum hefur múhameðskum
stúlkum verið bannað að ganga
í hefðbundnu arabísku síðbuxun
um sínum.
„Það verður
sprenging"
Hinn öfgafulli íhaldsmaður
Enoch Powell hóf fyrir nokkru
merki „yfirburöa hvíta kyn-
stofnsins" á Bretlandseyjum.
„Bretland er ekki krydd og
hrísgrjón.“ Mörgum Bretan-
um geðjast ekki iyktin í
hverfum innflytjenda.
Hann sá í anda, að England
værj orðið „afrískur eða asiísk-
ur basar‘‘. „Það verður spreng-
ing,“ kallaði hann á torgum, „og
við munum tætast í sundur. Nú
strax logar á kveikiþræðinum."
Enoch Powell fókk mikinn
hljómgrunn meðal almennings,
en hann var ofurliði borinn í
flokki sínum, fhaldsflokknum, af
mönnum, sem vildu fara vægar
í sakimar, eins og til dæmis
Edw. Heath, Þetta var á stjóm-
arárum Wilsons og Verkamanna
fiokksins, en jafnvel Wilson
varð að koma til móts við
mótmælamenn. Árið 1965 var
fjöldi innflytjenda takmarkaður,
en hann hélt þó áfram að vera
um 50 þúsund árlega.
Fram til 1962 höfðu allir
borgarar í brezka samveldinu
haft réttindi til að flytja til
Bretlands án takmarkana. Þá
voru þangað komnir 274 þúsund
Vestur-Indíamenn, 127 þúsund
Indverjar og 78 þúsund Pakist-
anir. Þessi fjöldi hafðj tífaldazt
á rúmum tíu árum. Frá 1962
hefur hver ríkisstjómin af ann-
arri sett sífeilt harðarj reglur
um þennan fólksflutning.
Indverjar reknir
frá Afríku
Málið var einkar erfitt við-
fangs, þegar leiðtogar nýju rikj-
anna i Afriku tóku aö amast
Þessi indverska stúlka var
send aftur heim. Brezk stjórn-
völd gáfu henni ekki dvalar-
leyfi.
við þeim Indverjum, er þai
bjuggu, Svertingjarnir, sem
höföu komizt til valda, töldu
Indverjana, sem margir voru
vjð kaupskap, vera yfirstétt '
löndum sínum. Var reynt ac!
koma þeim burt. Þetta varð ti)
þess, að Bretar töldu sig til
neydda árið 1967 aö taka við
31 þúsundi Asíumanna frá Af-
ríku. Árið eftir stöðvaði stjórn-
in skyndilega þennan fólks-
straum. Margir Asíumenn, er
búiö höfðu í Afríku, voru milli
steins og sleggju, gátu hvorki
komizt til Bretlands né snúið
aftur til heimkynna sinna í Af-
ríku. Fyrir nokkrum vikum
flugu hjón frá Keníu i hálfan
mánuð fram og aftur milli
Nairóbl og London, en fengu á
hvorugum staðnum að vera, þar
til loks að Keníustjom ‘tók við
þeim aftur.
Mörg einstök tilvik um hörm-
ungar fólks af Asíustofnj í Af-
ríku eru jafnan í fréttum í
brezkum blöðum.
Skráðir hjá lögreglu
Samkvæmt frumvarpi brezku
stjórnarinnar eiga aðeins þeir
fbúar I samveldislöndunum, sem
eiga brezk-fæddan föður eða
afa, að njóta hinna gömlu rétt-
inda, aðrir ekki. Um aðra sam-
veldismenn gildir sú regla, aö
þeir hafa kosningarétt í Bret-
landj og mega bjóða sig fram.
ef þeim tekst aö fá leyfi til að
flytjast þangað. En þeir fá að-
eins leyfi til að flytjast til iands-
ins, ef þeir hafa ákveðið starf
og þá venjulega aðeins um tak-
markaöan tíma, til dæmis eitt
ár. Þeir verða aö skrásetja sig
hjá lögreglunni, og þá má reka
úr landj fyrir hvers konar snr>-
vægilegar misgjörðir. Takist
þeim svo að vera í Bretlandi i
fjögur ár, losna þeir undan
þessum höftum og verða brezk-
ir.
Þótt bæðj Heath og Wilson
hafi ’lýst andúð á aðferðum og
kenningum Enoch Powells, hafa
þeir báðir oröið að taka mikið
tillit til sjónarmiða þeirra, sem
hann er fulltrúi fyrir.
Og enn einu sinni hefur verið
höggviö á bönd brezka sam-
veldisins.
Böndin, sem eru „létt eins og
loftiö“ eru ekkert að verða nema
loftið tómt.
IIIIIIIIIIIE
afiimii'm
■fllllllllEIK
Umsjón. Haukm Hetoason