Vísir - 09.03.1971, Page 9

Vísir - 09.03.1971, Page 9
V1SIR . Þriðjudagur 9. marz 1971 — og loðnan er tryggari en gull Þar sem þjóðhátíðargestum þykir gott að hreiðra um sig í grænum bollum á heitum ágústkvöldum, er nú loðnu drepið í hverja smugu. Hraunið neðan við Herjólfsdal er að verða silfurlitt á að sjá, eins og nýfylltur tanngarður. Loðnubreiðan teygir sig lengra og lengra vestur á hraunio. Hlaðnir bátar i Vestmannaeyjum. — J verksmiöjunum snúast öll hjól dag og nótt. Ljós- grár reykurinn hvolfist yfir bæ- inn, nerna þegar blessuö sunn- anáttin bægir þessu megna peningaparfúmi frá bæjardyr- unum. — Og allir græða, sjó- mennirnir græöa einhver ósköp, buddan hjá vörubílstjórunum verður bústnari og bústnari meö hverju hlassi. Karlarnir í verk- smiðjunum græðá og' áuðvitað græþir útgerðin ekki sízt. — Skipin hafa undangengna daga farið úr höfn og komið inn aftur innan sólarhrings meö fullfermi eins og væru þau i áætlunarferðum, Þrjú hundruö tonn í veiðiferð gerir víst allt að 10 þúsundum króna á hvern há- seta í hlut. — Ekki svo amalegt kaup það. Landkrabbamir krossa sig: Það væri munur vera á sjó, segja þeir — eins og þeir segja alitaf þegar eitt- hvað veiðist. þess á millj hirða menn glaðir sín landkrabbalaun. — Stemmningin minnir kann- ski á Siglufjörð, þegar síldin var upp á sitt bezta. Að vísu er loðna einhver órómantískasti fiskur, sem hugsazt getur. Og kringum hana er ekkert ástalíf, utan þá í Japan. þar sem fólk borðar hana til þess að stæla sig til ásta. Að sögn sjómanna virðist loðnugangan mun méiri en nokkru sinni fyrr. Torfurnar eru þéttar í sér eins oc heysát- ur. t>að er nánast sama, bvar nót er difið niður á veiðisvæð- inu alls staðar hittist á loðnu. Sumir hafa farið flatt á þvi að ætla sér of stóran bita í einu því stórar loönutoríur geta lagzt þungt í og auðveldlega sprengt nótina. — Það hefur því veriö ærið nóg að starfa hjá netamönnum upp á síðkastið að Nðtahafarí hefur verið mikið á ioðnuveiðunum og hefur æði oí't orðið að snara nótum úland til..viðgerðar. . . rippa saman og bæta hengii- rifnar nætur Stærri skipin hafa síðustu daga komið inn einu sinni á sólarhring með svo mikið sem þau geta þorið, 350 og allt upp í 4—500 tonn jafnvel, þau sem á annað borð bera svo mikið. Skipstjórar hafa gerzt æ djarf- Séð yfir loðnubreiðumar vestur á hrauninu — og upp í Herjólfsdal. ari að hlaða svo að sumum of- býður. að sjá, þegar skipin koma til hafnar svo drekkhlaðin að sjórinn freyðir yfir stefni og naumast stendur nokkuð upp úr sjó af skipinu, nema skuturinn. ^jpil Vestmannaeyja voru í gær komnar um 47 þúsund lest- ir og nálgast óðum það magn, sem þar kom á land í fyrravet- ur. Af öllum sólarmerkjum að dæma virðist veiðin í ár ætla að verða mun meirj en í fyrra og þar með sú mesta til þessa, en heildarloðnuveiðin var i fyrra um 170 þúsund lestir. Heildar- veiðin í vetur er þegar komin yfir 100 þúsund, samkvæmt á- gizkunum. Útflutningur á loðnumjöli er þegar hafinn, þegar þessar myndir voru teknar fyrir Vísj í Eyjum nú á dögunum var leiguskip að lesta mjöt hjá verksmiðju Einars Sigurðssonar um 600 tonn og mun það vera fyrstj farmurinn, sem þaðan fer í vetur. Að sögn verksmiðju- stjórans í FES, Arnar Aanes, hefur nýting loðnunnar verið svipuð og i fyrra. Þar er búið að bræða um 6500 tonn af loðnu og úr því fást um 1000 tonn af mjöli. Reiknaö er með að nýting sé gegnumsneitt um 15%. Að sögn Amar eru ekki allir á eitt sáttir. hversu mikil af- föll verða á loðnunni, sem keyrð er út í hraunið. — Að mfnu áliti verður nýtingin litlu verri, sagöi Örn. Það er mun auðveld- ara að vinna hana. Það er lekið úr henni vatnið, en mjöl og lýsismagnið helzt tiltölulega vel í henni. — Jfi Trausti Ólafsson, framkvæmda. stjóri: — Nei, ég hef aldrei boröað loðnu, en mig langar vissulega til þess að smakka hana. Gísli Guðmundsson, lögreglu- þjónn: — Ég hef aldrei bragðað loðnu, en ég hef áhuga á því. Ásdis Gísiadóttir, nemi: — Nei. og mig langar ekkj i hana. Donna Jóhannsson, kvenna- skölanemi: — Nei, ég heföi enga lyst á henni. Rúnar Hjaltason, matreiðslu- maður: — Nei, ég hef aldrei borðað loönu. Mig langar ekki í hana. Ég hef aldrei matreitt loðnu.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.