Vísir - 09.03.1971, Side 13

Vísir - 09.03.1971, Side 13
Vl SIR . Þriðjudagur 9. marz 1971. n „AÐ GANGA SKÓ TIL — er oð ftemja óhæfuverk gegn fótunum" segir danskur læknir i grein um fætur og skó Verið góð við fæturna. „Tj’nginn á eins erfitt með að brosa og sá, sem verkjar i fæturna" segir í grein í danska blaðinu Helse þar sem fjallað er um fótahirðingu. Það er læknir- inn Annelise Holm, sem gefur ráðleggingar um hvemig eigi að meðhöndla fæturna. Hún seg- ir ennfremur. „ATlur líkaminn byggir á því hvemig fótunum líður. Ef manni er illt í fótunum sést það á and'litinu, hmkkumar dýpka og svipur andlitsins breytist. Líðan in er undir ástandi fótanna komin. Þannig getur bakverkur oft stafað af verkjum í fótum og þar af leiðandi slæmri göngu- tegund og erfiði fyrir bakið. Aðaltiigangurinn með skóm er að halda fætinum heitum og þurmm og vernda hann gegn ójöfnum. Einnig koma önnur atriði þar inn eins og tízka og fjárráð. Það bezta væri sú tegund '~~"'ttamleiðslu þar sem tekið er tillit til lögunar hverra fóta um sig. Það er þó ekki framkvæm- 'antegt frá efnahagslegu sjónar- miði og einnig vegna þess að það mundi verða erfitt 1 fram- kvæmd en það er aldrei hægt að verða of umhyggjusamur í vali sinu á skóm. Það gildir bæði fyrir yngra og eldra fólk. Nýir skór eiga að passa frá fyrsta degi. Það á ekki að þurfa að ganga þá til. Það er aö fremja óhæfuverk á fótunum.“ Læknirinn kvartar síðan und- an því, að skór séu ekki fram- leiddir í nægilega mörgum breiddum, þrjár mismunandi breiddir séu það minnsta, sem hægt sé að óska eftir. j ^æknirinn lýsir því hvaða á- hrif háir hælar hafa á fæt- urna. Þeir gefa fótunum hallandi stuðningsflöt, þannig að þeir renna fram í skóinn, en við það kreppast tæmar og það þrýstir á þær. Við þetta safnast hörð húð á fætuma og líkþom á tær. Þá segir læknirinn að það þyki flestum ljótt, þegar táin á skónum rísi upp. Frá heilsu- sjónarmiði sé það þó ágætt, því það létti göngu þar sem fótur- inn þarf ekki að beygja sólann fyrir hvert skref. Við skókaup eigi maöur að taka eftir því hvort hælkappinn sé sterkur og ljúki vel um hælinn. Brúnin má þó ekki þrýsta fast inn í hælinn og hæl- kappinn á að vera alveg slétt- ur að innan (ójafnir saumar eða illa álimt skinnfóður getur valdið fleiðrum á hælunum). Of þröngir eða of litflrr skór þrýsta á tæmar og geta orsak- að bólguhnúta á tám. Læknirinn mælir með tré- skóm en er á móti morgun- skóm eða að ganga á sokka- leistunum. „Hvert aukakíló veikir fæt- urna“ segir læknirinn ennfrem- ur. Hvernig á að fara með fæt- urna: „Daglegur þvottur er nauðsynlegur, þurrka skal vel fötinn einnig milli tánna, nota talkúm eða krem. — Fjarlægja harða húð og líkþom helzt áöur en þau em komin. — Leitið strax læknis, ef þið verðið vör við að fætumir séu að fá veikl- unareinkenni. Margir hafa böigna fætur. Þeim vil ég ráðleggja að gæta þyngdarinnar fyrst og fremst og þá að hækka fótagaflinn á rúminu eða setja þar púða. Notið skemil hvenær sem mögu Iegt er. Skiptið um sokka einu sinni á dag og skó einnig, ef það er mögulegt. Sokkarnir mega ekki vera of litlir eða harðir. En það mikilvægasta til að halda fótunum við er að hreinsa þá vel. Á hverjum morgni eða kvöldi ætti maður að eyða nokkrum minútum á fæturna. Það er hægt að baða þá upp úr heitu eða köldu vatni í hálfa mínútu til skiptis og enda á köldu vatni. Gott ráð er saltvatnsböð. Ýtið naglabönd- unum aftur með frottehandklæði og smyrjið neglurnar með kremi. Kllippið neglumar beint yfir og sverfið þær sléttar. Ef neglurnar em mjög þykkar eða bognar á að sverfa þær ofur- lítið þynnri í miðjunni. Það kem ur í veg fyrir að þær vaxi nið- ur og verði sárar. Látið fætuma aldrei verða kalda. Það er ekki aðeins slærnt fyrir fæturna heldur einn ig fyrir allan likamann. :i. il ?) >, U »:: !J1 KEPPT verður um hæstu lagða spilatölu á öllum kúluspilunum. saman- Hver vill ekki dvelja ókeypis í 17 daga, í sumri og sól á glæsilegu hóteli á Mallorka. Vinningshafi verður sjálf-’ krafa meðlimur í Klúbb 32. ferðaklúbbi unga fólksins. um VINNINGUR Ferð til Mallorka fyrir þann keppanda, er verður efstur samanlagt á kúluspilin: CAMPUS-QUEEN MAY FAIR SHANGRI-LA A-GO-GO DANCING LADY SHIP MATES TÓMSTUNDAHÖLLIN á horni Laugavegar og Nóatúns Nánari upplýsingar keppnisreglur veittar á staðnum. Hin kunna dansk-norska vísnasöngkona (á leiðinni frá tón- leikum í Elisabeth Haíl í Lundúnum til tónleika 1 New York) BIRGITTE GRIMSTAD heldur tvær söngskemmtanir i Norræna Húsinu: í dag, þriðjudaginn 9. og á morgun, miðvikudaginn 10. marz kl. 20.30. Ólíkar efnisskrár. Eiginn gítarundirleikur. Or blaðadómum: „an artist of rare quality" „a very long time since I enjoyed a reoital so muoh“ „a genuine artist“ „she is defiant and hard, she is romantic and warrn" „Masterful ballad singing" „a whole world of musicality, wit and humor“ „a truly superior talent" Aðgöngumiðar á kr. 150.00 í Norræna Húsinu daglega kl. 9—16. Simi 17030. Hjartanlega velkomin. NORRÆNA HUSIÐ Eikarparket tvilakkað 23x137x3000 mm Ótrúlega ódýrt HANNES ÞORSTEINSSON & Co. h/f Sími 85055 r i' t1! 1 ....t - • < ’ v ’ •• r 7 r/n r n v.v ??jT7 'í • ' 7,7 ’'

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.