Vísir - 30.03.1971, Síða 2

Vísir - 30.03.1971, Síða 2
raunveruleikann44 & Reykvíkingum er enn í fersku minni viðtök- ur þær, er sú umdeilda kvikmynd, „Táknmál ást- arinnar“ hlaut hér um ára mótin, er Hafnarbíó sýndi hana. 0 Kynlífsmynd þessi er sænsk að þjóðerni, og Wiekman fæddist 1911 og er af róttækri, en efnaðri fjölskyldu i Stofckhólmi. Hann nam bók- menntir og listasögu við Stokk- hólmsháskóla. Hann vann siðan sem handritahöfundur og aðstoö arkvikmyndari um margra ára skeið, þar til hann fór sjálfur að stjórna kvikmyndum. Eftir því sem hann segir sjálfur, hefur eng inn núlifandi kvikmyndamaður I Svíþjóð komizt með hælana þar sem hann hefur tærnar hvað snertir fjölda kvikmynda. Hann hefur gert 1.586 kvikmyndir — og telur þá allt með: Leiknar, langar myndir, stuttar frétta- og heimildamyndir og auglýsinga- myndir. Torgny Wickman — leikstjóri og framleiðandi myndarinnar „Táknmál ástarinnar“. Einn umdeildasti leikstjóri Svía er sextugur aö aldri og hefur grætt milljónir á kynlífsmyndum sínum. framleiðandi hennar og leikstjóri er hinn umdeild asti allra umdeildra kvik- myndaleikstjóra þar í landi, — hinn sextugi Torgny Wickman. 1.586 kvikmyndir Nýlega birti tímaritiö „Kvik- myndir í Svíþjóð“ viðtal við Wick man, og við snörum hér á eftir úrdrætti úr því viðtaii. 1969—1970 græddi enginn sænsikur leikstjóri annað eins og Wickman, en þrjár myndir hans, sem á markað komu það ár, hlutu fádæma mikla aðsókn. Þær eru „Eva — den ustötta", Kar- lekans sprák 1 (Táknmál ástar- innar) og „Kyrkóherden". Allar fjalla þessar myndir að meira eða minna leyti um kynlíf. Nú er þegar komin á markað „Mera om karlekans sprá'k“ (Meira um táknmál ástarinnar) og hann er byrjaöur að kvikmynda „Tákn- mál ástarinnar III“, sem fjallar að sögn um kynlíf og þjóðfélags mál. Listamenn fábjánar í fjármálum Upp á síðkastið hefur Wick- man vakið meiri athygli í Sví- þjóö en hann átti að venjast. Hann sætir harðri gagnrýni fyrir kynlífsmyndir sínar, sem marg- ir gagnrýnendur segja vera efck ert annað en hreinar vangaveltur um kyn'líf. Samt hefur Wickman fengið styrk úr kvikmyndasjóði sænska ríkisins til aö gera þessar kynlífsmyndir. Hvað snertir póli tískar skoðanir hans, segist hann sjálfur vera „framfarasinnaður". — Af ©g til myrfta saenskir kvikmyndagagnrýnendur Wick- man — ef svo má aft orfti kom- ast. „Mér er nokkuð sama. Ég veit hvað ég get (og vil). Munurinn á mér og hinum er ekfci svo mikill. Ég er kominn lengra fram á viö tæknilega. Ég er menntaður, en það hjálpar ekkert í þessu stríði við gagnrýnendur. Og það hjálpar mér heldur ebk ert aö ég er heiðarlegri en aðr- ir. Ég viðurkenni fúslega að myndir mínar eru líka gerðar með það fyrir augum að við fáum af þeím’ einhverja ánægju peningalega séð. Það er mark- Ieyea ein "að gera mynd" sem aðeins 20 manns horfa á í klúbb, og gera menn yfirleitt nokfcuð án þess að reyna að græða á því?“ — Þaft eru reyndar til lista- menn sem mála myndir án þess að hugsa um að selja þær . . . menning fyrir minnihluta ... . Má ég þá spyrja á hverju þessir listamenn lifa? Sín um listrænu hæfileikum? Það er helvíti að allt sem gefur arð í listinni er fyrirlitlegt. Pyrirlitlegt, huh! Þegar pen- ingar eru ekkert annað en merki miikillar vinnu. Þrældóms. Sú staðreynd að margir lista- menn eru fábjánar I fjármálum merfcir ekki að þessi fávitaháttur sé merki um listræna kunnáttu. Hvað snertir menningu fyrir minnihluta — flestar mínar stutbu myndir voru gerðar fyr- ir fáa áhorfendur. Þeir tala fág að mál. Þeir hafa samskipti við fátt fólk sem skilur þá — því miður þá sjá ekki margir þessar stuttu myndir mínar. Þá beztu, „A Can2»netta a'bout Before", sáu aðeins örfáir, þar til hún var sýnd sem aukamynd á undan „Eva — den ustötta", og þá mynd sáu hundruð þús- unda. Áhorfendur fengu þannig tækifæri til að sjá tvær hliðará Wiokman. Ég komst að þvi að fáir skildu þann fyrri, en marg ir þann síðari. Sjálfur kýs ég heldur þann fyrri, en ég þekki mínar kröfur. Ég vinn að mynd um 23. kafla í Liúfcasarguðspjalli — ég hinn úthrópaði Torgny Wickman sem talar „Táknmáli ástarinnar!" Jesús Kristur krossfestur og dá- inn . . Enginn þreytist á kynlífi — Þú hefur notaft þér vanda mál kynlífsins fil aft upplýsa og skemmta áhorfendum. Heldurðu, aft áhorfendur verfti þreyttir á slíkum myndum? „Nei, það held ég ekki. Hver verður þreyttur á kynlífi? Enn höfum við ekki fullnægt gægju- gatisforvitni okikar og enn mun langt þangað til svo verður . . .“ — ... hvers vegna hefur svo margt fólk í mörgum iöndum séð „Táknmál ástarinnar?“ Heldurðu aft fólkið hafi farift aft sjá hana af forvitni eða af löngun til að læra? „Skýringin liggur í augum uppi. Fólk hefur þráð svona myndir. Bæði vegna ertiitgarinn ar sem þær vekja og vegna upp- lýsinganna sem í þeim em. Fólfc lifir kynlífið en mjög fáir vita hvað það er, hvemig það lítur út. Það hefur ekki skoöaft þaö. Bölvuð hreinlífisstefna! Forvitni hefur verið mikil til staðar en fólk hefur ekki viljað svala henni meö því að fara á klámbíó, en þegar myndin er sýnd f venju- legú, opinberu kvikmyndahúsi, gegnir öðru máli. Margir hafa látið í ljós þafck- læti sitt fyrir þessa mynd. Einn skrifaði rhér og gagnrýndi mig fyrir hana. Einn. Aðeins einn.“ — Veitist þér ekki erfitt að fá fólk til að koma fram í ástar lífsmyndum þínum? ,,Ég hlaut framfarasinnað upp- ) j cj Éf fTf*. rfT 9A RLá eldi Faðir minn lét mig hlusta á alla hina miklu sósfalista. Ég tala við leikara mína í hinum sama innblásna anda, þegar ég segi þeim um hvað myndin snýst. Söguþráðurinn er fullfcom lega f lagi og markmiðið er gott og virðingarvert fólfc vinnur að myndinni. Það er að leggja sitt af mörkum þjóðfélaginu til góöa. Leikendumir fá líka kaup. Maður á ekki að vanmeta pen- ingana. Þá er sko ekki erfitt aö fá stúlku til að fróa sér þegar yfir henni stendur kvenlæknir sem hún treystir. Við verðum að brjóta niður kynlífsfordómana. Við verðum að öðlast frelsi.“ — Hvernig heldurðu að gangi fyrir ástarlífsmyndum þinum er- Iendis? „Ég get ekki fmyndað mér að þær verði sýndar á írlandi næstu 100 árin. Á mörgum stöðum mun þróunin taka langan tíma. Fólk er að byrja að læra að meta hina víðsýnu, opnu afstööu. Raunveruleiki skiptir nú miklu máli. Ég ætla mér að nálgast raunveruleikann enn frefcar með þróaðri kvikmyndalist. Ég er rétt lagður af stað til raunveru leikans. en ég mun ná þangað.“ „Kannski ég fari þangað núna...“ gæti hann hugsað með sér knap- inn á hrossi því er svo klaufa- lega fórst við hindrunina. Myndin er tekin eigi alls fyrir löngu á Barcombe Novices Steeplechase f Plumton Englandi. Knapinn heitir Don Sunderland. og eins og sjá má, er ekki gott að segja, hvernig hann slepprr úr þessari byltu, því að fæti hans eru enn fastir i ístöðui um: Hann mciddist ekki, og he' ur ekki hesturinn, sem heitir þ sérkennilega nafni, „Secr Myth“. Hesturinn sem í bafcsj sést vera að stökkva yfir hindrui ina, féll líka í svaöið, en engin meiddist, sem betur fer.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.