Vísir - 30.03.1971, Page 13
L E1G A N s.f.
Vinnuvelar til leigu
Spennustillar
6, 12 og 24 volt
Vér bjöðum:
6 mdnaða
dbyrgð
og auk þess
lægra verð
HÁBERG H.F.
Skeifunni 3G . Simi 82415
Lögtök
Samkvæmt beiðni bæjarstjórans í Keflavík
úrskurðast hér með lögtök fyrir ógreiddum
fyrirframgreiðslum útsvara ársins 1971 á
ábyrgð bæjarsjóðs í Keflavík, en á kostnað
gjaldenda.
Lögtökin verða hafín er 8 dagar eru liðnir
frá birtingu úrskurðar þessa.
Bæjarfógetinn í Keflavík
25. marz 1971.
Alfreð Gíslason.
Ökukennarapróf
og próf í akstri fólksbifreiða fyrir fleiri en 16
farþega verða haldin í Reykjavík og Akur-
eyri í aprílmánuði.
Umsóknir um þátttöku skulu sendar bifreiða-
eftirlitinu í Reykjavík og Akureyri fyrir 6.
apríl n. k.
Bifreiðaeftirlit ríkisins.
Þórunn Sigurðardótfir skrifar frá Stokkhólmi:
Nýtt lyf veldur hyltingu
á sviði fóstureyðingu
Fjörutiu sérfræðingar þinga um dreifingu og
tilraunir með nýtt hormónalyf — lyfja-
tilraunirnar verða væntanlega jbær umfangs-
mestu sem hingað til hafa verið gerðar
Um fjörutíu sérfræðing-
ar víðs vegar að úr heim
inum hafa nýlega setið
á ráðstefnu hér í Sví-
þjóð, þar sem fjallað
hefur verið um nýtt lyf,
sem talið er að valda
muni gerbyltingu á sviði
fóstureyðinga. Eru þetta
raunar hormónar, sem
nefnast prostaglandin-
ur, er Nóbelshafinn Ulf
von Euler uppgötvaði
fyrir um 40 árum. Á síð-
ustu áratugum hefur
sænskur prófessor, Sune
Bergström, unnið að
rannsóknum á þessum
hormónum, en þeir hafa
m. a. verið notaðir til
þess að lækka blóðþrýst
ing og bæta nýrnastarf-
semina.
Ráðstefnan, sem haldin var
hér í Svíþjóð var á vegum
WHO, alþjóðaheiibrigðismála-
stofnunarinnar, og var einkum
fjallað um hvernig bezt vasri að
skipuleggja tilraunir með lyfið.
Fram að þessu hefur lyfið að-
eins verið reynt í Svíþjóð, Eng-
landi, AmerVku og Uganda. Er
það álit flestra að nauðsynlegt
sé að fylgja ströngum reglum
varðandi dreifingu og tilraunir
með lyfið, þar sem þegar hefur
komið 1 ljós að það hefur veriö
notað við ólöglegar fóstureyð-
ingar, og eru menn hræddir um
að erfitt verði að stöðva þá þró-
un, nema með mjög skipulögðu
eftirliti á dreifingu lyfsins. Á
þessu ári verður lyfinu dreift til
lækna í' 20—30 IÖhdumi til ‘til-
rauna, Er gert ráð fyrir að þess-
ar tilraunir verði með umfangs-
mestu lyfjatilraunum sem hing-
að til hafa verið gerðar, en gert
er ráð fyrir aö nokkur ár taki
að koma lyfinu í almenna notk-
un. Ennþá eru ekki fullkannað-
ar allar afleiðingar lyfsins, sum-
ir telja að það geti haft svipuð
áhrif og hin svokallaða ,,pilla“,
þar sem hér er einnig um hor-
mónalyf að ræða. Hafa sumar
konur kvartað yfir ógleði, eftir
að þær hafa fengið lyfið í æð,
og ýmsar aðrar aukaverkanir
hafa komið í Ijós. Verður nú
reynt að kanna hvemig hor-
mónasamsetning sé hentugúst,
en prostaglandinulyfið er sam-
sett af fjöldamörgum hormón-
um. Hefur t.d. komið í ljós með
,,pilluna“, að með þvi að breyta
efnasamsetningunni í henni
verða mun minni aukaverkanir,
og er ætlunin að reyna að finna
endanlega samsetningu á prosta-
glandinu-lyfinu, áður en það
kemst í almenna notkun.
Lyfið hefur fram að þessu
verið reynt á konum, sem vitað
er að eru vanfærar. Er þvf þá
dælt inn i æð og lætur konan
þá fóstrinu innan skamms
tíma. Nefnist lyf þetta „F 2
Alfa“ og hefur verið reynt á
um 200 konum á Karolinska
sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, en
200 er nægilegur fjöldi til þess
að yfirvöld viðurkenni lyfið. Nú
er einnig byrjað að gera til-
raunir með lyfið á konum, sem
ekki er fullvíst að séu vanfærar,
en líklegt, þar sem tíðir hefjast
ekki á réttum tíma. Hefur þetta
ranglega verið kallað „daginn
eftir pillan", en í rauninni
er lyfið ekki til í pilluformi
ennþá. Er þvi dælt í æð nokkr-
um dögum eftir að tíðir hafa
átt að hefjast, og kemur það
tíðunum af stað, svo og hinu
hugsanlega frjóvgaða eggi.
Hefur þetta verið reynt á um
30 konum og gefið góða raun,
en ennþá hefur ekki tekizt að
finna upp aðferð, sem konan
getur sjálf annazt, og hafa lækn-
ar algjörlega séð ,u.rn fram-
kvæmdina til þessa. Eru gerðar
tilraunir með að framleiða lyfið
f ýmsu formi, en einna mestar
vonir eru bundnar við að unnt
verði aö framleiða sprautur,
sem settar eru upp í legið, og
konan getur sjálf komið fyrir.
Þarf konan þá ekki að nota
neinar getnaöarverjur, en hefj-
ist tíðir ekki á réttum tíma,
tekur hún fram sprautuna og
sprautar nokkrum dropum af
lyfinu inn í legið, en sjálf kemst
hún ekki að þvf, hvort hún er
orðin vanfær eða ekki.
Fullvist er talið,. að lyf þetta
verði orðið almennt viðurkennt
innan fárra ára og þá muni það
valda gerbyltingu á sviöj fóstur-
eyöinga, en menn eru raunar
mjög ósammála um hvort hægt
sé að kalla þetta fóstureyðingu,
þar sem lyfið er notað strax 2—
3 vikum eftir frjóvgun. Að
minnsta kosti ætti lyfið að vera
mikil hjálp fyrir þær konur sem
einhverra hluta vegna verða að
láta eyða fóstri. I fyrsta lagi fá
þær aldrei að vita með vissu,
hvort þær hafi verið orðnar
vanfærar, og losna því við sekt-
arkennd, sem oft fylgir fóstur-
eyðingum, og auk þess er mjög
þýðingarmikið fyrir líkamlegt
og andlegt ástand konunnar, að
fóstureyðingin, ef svo má kalla,
sé gerð sem allra fyrst á með-
göngutimanum. Er ekki talið
ósennilegt að með þessu lyfi
verðj með tímanum hægt að
koma í veg fyrir allar ólöglegar
fóstureyðingar, og að lyfið verði
vjðurkennt sem getnaðarvörn,
en ekki sem fóstureyðingarlyf,
þótt það sé notað nokkru á eft-
ir frjóvgun, en ekki á undan.
— ÞS.
HARTJND
V-þýzk gæðavara
VtSIR . Þriðjudagur 30. marz 1971.
Lltlar Steypuhrœrivélar
Múrhamrar m. borum og fleygum
Rafknúnlr Steinborar
Vatnsdcelur ( rafmagn, benzín)
Jarðvegsþjöppur
Vlbratorar
Stauraborar
Sllpirokkar
Hitablásarar
HQFDATUNI U -