Vísir - 12.06.1971, Blaðsíða 3
V I $ í K .
BS&2B3&3SZBB
L,a**garaa£ur i2. juru iBri.
&^tx£B&BsuBa0&aaBðOEEmmmBm*
mtmns í þegnskyhluvmnu á
fm
Flestir bregðast vel við
H Viö hverjar kosningar er
fjöldi manns — í Reykja
vík einni um 300 — sem starf
ar við framkvæmd kosning-
anna í kjörstjómum. Þeir
eru aö inna af hendi þegn-
skylduvinnu.
■ „Það ef borgaraleg skylda
manna að leggja lið við
þessi störf, en við höfum haft
þann sið að greiða mönnum
laun fyrir. Hverjum manni í
kjörstjórn kr. 1400 fyrir dag-
inn og svo höfum við lagt
þeim til fæði,“ sagði borgar-
iögmaður Páll Líndal.
í hverri kjördeild í Reykja-
vík, en þær eru 63 talsins, sit-
ur 3 manna kjörstjórn og auk
hennar er einn dvravörður við
hverja kjördei'ld. í hvetfiskjör
stjó-munum 9 sitja 27 mann-s og
vgrða þetta samtals 279, en
auk þessara starfa allmargir
aðrir við kosningarnar.
„Oft er leitað til sömu
manna, sem vitað e-r, að hafa
gegnt þessum störfum áður.
Flestir bregðast vel við og marg
ir hafa jafnvel gaman af þessu
starfi á kjördegi. Einstaka mað-
ur ber sig hins vegar undan
þessu.
Mig rekur minni til þess, að
einn maður á Siglufirði höföaði
má'l á hendur bæjaryfirvöldum,
og krafðist greiðslu fyrir þessi
störf. En í hæstarétti var ekki
talið, að hann ætti neina kröfu
til þess,“ sagði Pá'1'1 borgarlöig-
maður.
Ti-1 viðbótar þeim 300 sem
starfa að talningunni og at-
kvæðagreiðs'lunni f Reykjavík,
.kemur svo talsverður fjöldi í
öðrum kjördæmum.
n J;
S m j ö r I í k i
5°o g 15 . 1957
S m j ö r 1 íki
500 g 14 - 1957
. • •• 5 m j o r 1 íki
500 g 13 - 1957
S m j ö r 1 íki
500 g 12 - 1957
S m j ö r I í k i’
500 g ] |
1957
Sú var tíðin
Jafnvel sm/ör og smjörliki voru skömmtunar-
vara fyrir aðeins fjórtán árum, á valdatima
vinstri stjórnarinnar
Nýtt fyrsta flokks
hótel úti á landi
— 10 Edduhótel rekin i sumar
# Sumarhótelin, sem Ferðaskrif-
stofa ríkisins rekur i sumar
verða 10 talsins, þar af verða tvö
ný hótel, annað á Húnavöllum við
Reykjabraut, sem er rekið í gagn-
fræðaskóla á staömwn og hótel á
Kirkjubæjarklaujt'-i, sem verður
til húsa í nýi’i barnaskólahúsnæði,
auk þes«a-a hótela verður rekið
hátel -að Laugarvatní i húsnæði
.'Ssmæðraskólans þar og verður
bað fyrsta flokks hótel, með tak-
mafKað vinveitingaleyfi, fyrir hótel-
nesti eingöngu. Verður bað hótel
opnað selnnihluta mánaðarins.
Sumarhótel með gistingu og
morgunverði var rekið í þessu
húsnæði á Laugarvatni í fyrra en
Á Akureyri verða 20 manns
við talningu, auk fulltrúa flokk
anna. í Borgarnesi, Vesturlands
kjördæmi telja 10 manns, og
starfa í kjördeildum, og 10
manns inna þessa þegnskyldu-
vinnu af hendi á Sauðárkröki,
þ. e. þar sem t-alið er, en svo
vinna fleiri við talningu á kjör
stöðum.
Á Suðurlandi verða 11 manns
við talningu, þ. e. kjörstjórnin
og svo fuWtrúar fl-okka, en
einnig bætist þar við fjöldi
manna sem st-anfa í kjördeiídum.
í Suðurlandskjördæmi verður tal
ið á Hvolsvelli.
Þannig getum við reiknað með
um 400 manns um allt land, sem
á sunnudag og mánudagsnótt
munu vinna þegnskylduvinnuvið
kosningamar. —GP/GG
Hvað skal segja .. hvað skal kjósa? Þeir sátu á grænum Amarhóli þessir og skeggræddu kosninga
viðhorfið, þessir karlar, þegar ljósmyndara Vísis bar að í sólskininu í gærdag.
Grasspretta góð
— liklegt að sláttur hefjist venju fyrr
„Tíðarfarið hefur verið ein-
staklega gott í vor, svo að horf-
ur eru góðar með grassprettii.
Líklega mun sláttur byrja fyrr
en venjulega og sennilega upp
úr Jónsmessu”, sagði Halldór
Pálsson, búnaðarmálastjóri.
Langbezt hefur tíðin verið á
Suðurlandi, þótt hitar hafi verið
miklir á Norðurlandi síðustu vik-
una. Sums staðar norðanlands er
klakj þó enn í jörðu, og í Húna-
þingi eru bændur rétt aö byrja að
bera á tún.
„Hér sunnanlands eru margir
farnir að hugsa sér til hreyfings
við jarðarbætur, og horfur á, að
þær verði í meiri mæli í sumar en
undanfarin ár. 1970 var óvenju lé-
legt með tilliti til nýræktar, sem
var aðeins 3250 hektarar, miðað
við 4125 hektara 1969 og 5170
hektara 1968,“ sagði Halldór Páls-
son.
Hann kvað tún afar víða ennþá
mikið skemmd af kalinu frá því f
fyrravetur, „Það þarf lengri tfma
en eitt ár, til þess að skemmdu
blettirnir nái sér eftir'kalið, Það
þarf jafnvel endurvinnslu þeirra
aö auki.“
Úrkomulaust hefur verið að
undanförnu, og ekki örgrannt um,
að menn sé farið að lengja eftir
skúrum gróðursins vegna, því að
langvarandi rakaleysi gæti háð
grassprettunni.
„Það er þó aldrei mjög hætt við
þvi að þurrkur komiö gróðri að
sök, meöan klaki er vart farinn úr
jörðu. Jör * - fær raka úr honum,
eftir þvi sem hann þiðnar," sagði
búnaðarmálastjóri. — GP
nú verður aðstaðan þar færð út.
Ferðaskrifstofan rekur einnig
sumarhótel að Laugarvatnj í hús-
næði menntaskólans og hefur því
samtals um 200 gistirúm á staðn-
um.
Charlotta Hjaltadóttir hjá ferða-
skrifstofunnj skýrði frá þessu ’i við-
tali við Vísi og sagðj ennfremur
að með hótelunum á Kirkjubæjar-
klaustri og á Húnavöllum. sem sé
skammt frá Blöndósi opnaðist
möguleiki á nýrrj ferð á vegum
jferðaskrifstofunnar en það er
Iferð um Fjallabaks'eið. norður
Kjöl. Er þessi ferð ætluð bæði út-
lendingum og lslendingum, ef þeir
hafa hug á. — SB
Fossvogsskóli reistur
á 3 mánuðum
7. áfangi fyrir 24,5 milljónir
Byggingarfyrirtækið Böðvar
Th. Bjarnason sf., bauð lægst
í byggingu 1. áfanga Foss-
vogsskóla, og hefur Reykja-
víkurborg ákveðið að hefja
samninga við þann aðila. —
Tilboðið hljóðaði upp á 24
milljónlr og 533 þúsund
kr„ og samkvæmt verklýs-
ingu á verktakinn að hafa
skilaö 1. áfanga kennsluhæf
um fyrir 25. september í
haust.
Samkvæmt uppl forstjóra inn
kaupastofnunar ríkisins, Tor-
bens Friðrikssonar munu fram-
kvæmdir við skólann síðan
liggja niðri frá septemberlokum,
hefjast aftur þegar kennslu
verður lokiö vorið 1972, og á
verktakinn að fullu að hafa'Iok-
ið byggingu 1. áfanga fyrir 19.
ágúst næsta ár.
1 þessum 1. áfanga veröur
rúm fyrir 7 kennslustofur, og
er þá fundarsalur meðtalinn.
Fossvogsskólinn mu„ standa
við Haðaland, sem er neðst f
Fossvogsdalnum, skammt frá
bar •s?m einbý'ishúsahverfið sr
Þessi 1. áfangj verður 780 fer-
metrar á stærö og 4000 rúm-
metrar. í þessum skóla munu
vngstu börnin á barnaskóla-
aldri f Fossvog; fá skólavist.
— GG
(