Vísir - 23.06.1971, Page 4
VISIR. Miðvikudagur 23. júní 1971
Jóhannes Geir í
Casa Nova
Jóhannes Geir Jónsson opnar
í dag málverkasýningu í salar-
kynnum Menntaskólans i
Reykjav’ik (Casa Nova). Eru þar
sýndar 55 pastelmyndir (pastel-
krít), allar máiaðar á seinustu
árum svo og tíu olíumálverk.
Jóhannes Geir hélt siðast
sýningu í Unuhúsi sumarið
1968, en síðan hefur hann næst-
um algerlega helgað sig pastel-
myndum, — og er það árangur
þeirrar vinnu, sem hér kemur
almennipgj; fyrir sjónir.
Það má. heita sjaldgæft hér á
landi, að-'Sj^ svo stóra sýningu
á pastelmyndum eingöngu, og
má geta þess, að fyrsta sýning
Jóhannesar áriö 1953 var einnig
paste'sýning. Síðan hefur hann
haldið nokkrar einkasýningar
og tekið þátt í fjölmörgum sam-
sýningum hér heima og erlendis.
Sýningin veröur opin daglega
millj kl. 14 og 22, frá 23. júni
til 7. júlí n.k.
Þjófurinn slapp
naumlega
Hurð skall nærri hælum þjófs,
sem ýar á leiðinni að brjótast
inn í Brauöhúsið að Laugavegi
þegar hann var að búa sig undir
að skríða inn um gluggann, og
gerðu þeir lögreglunni viðvart.
Þegar lögreglan kom að, tók
maðurinn til fótanna og tókst
að forða sér á burt. Hans var
leitaö í nágrenninu, en án ár-
angurs.
Skólamenn og
prestar þinga
Dagana 18.— 20. júnf var
haldin 1 Skálholti ráðstefna
skólamanna og presta um
kristna uppeidismótun i skólum.
Nefnd kjörin af síðustu presta-
stefnu gekkst fyrir ráðstefn-
unni, Sérstaklega var fjallað um
stöðu kristinna fræða í skyldu-
námsskólum og kennaramennt-
un. Framsöguerindi fluttu Helgi
Þorláksson skólastjóri, dr.
Bjarne Hareide, forstöðumaður
uppeldismálastofnunar norsku
kirkjunnar, sr. Helgi Tryggvar -
son og**' Jóhann Hannesson
og voru þeir sammála um nauð-
syn náins samstarfs kirkju,
skóla og heimila.
Byggt eftir
2. verðlaunum
Vegna fréttar í bla(Sinu 4.
júní 1971 um fvrirhugaða kirkju
byggingu í Ásprestakalli, vil'l
stjóm Arkitektafélags íslands
biðja ufh, að eftirfarandi komi
fram:
Efnt var til samkeppni um
teikningar að kirkju fyrir Ás-
prestaka'M vorið 1966, en í þeiiri
samkeppni fékk 1. verðlaun til-
laga teiknuð af Skarphéðni
heitnum Jóhannssyni arkitekt og
Guömundi Kr. Guðmundssyni
arkitekt.
Teikning sú er nú hefir verið
samþykkt í byggingamefnd er
byggð á tiMögu þeirri, er 2. verð
laun hlaut.
126. Nágrannar sáu til hans, prófes^(i;.,Þátt(gkendur voru 25,
Ferðaskrifstofur þenjast
út eins og bankar
Vöxtur og viðgangur ferða-
skrifstofa í landinu virðist nú
vera viðlíka og bankanna, en
þessar tvær tegundir stofnana
setja nú æ ríkari svip á mið-
borgina sem og minjagripaverzi
anir. Ferðaskrifstofan Úrval hef-
ur nú stóraukið skrifstofuhús-
næði sitt í Eimskipafélagshús-
inu, hefur yfirtekið húsnæðið,
þar sem Hvannbergsbræður
hafa um áratugi haft skó-
verzlun sína. Önnur ferða-
skrifstofa I Hafnarstræti hefur
einnig nýlega aukið mjög á hús-
næði sitt þar, eða Ferða-
skrifstofa Zoega, sem yfirtók
húsnæði sem Rammagerðin
hafði áður og bætti við fyrra
húsnæði sitt.
Aðeins rúmt ár er nú liðið síð-
an Flugfélag íslands og Eim-
skipafélag íslands opnuðu Úr-
val, en starfsemin hefur aukizt
svo mjög á þessum tt'ma, að
stækkun varð nauðsynleg. Að-
eins 2—3 starfsmenn unnu á
skrifstofunni fyrsta sumarið, en
þeir eru nú orðnir 7 með far-
arstjórum.
Starfsári Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar að Ijúka
Starfsári Sinfóníuhljómsveitar
fslands er nú að Ijúka og hefur
hún, auk reglu'legra tónleika í
Háskólabíói, haldið tvenna Fjöl
skyfldutónlei'ka og skólatónleika
og leikið utan Reykjavfkur. Hún
hefur haldið tónlefka að Minni-
Borg, Akranesi, Borgarfirði,
Keflavik, og Selfossi. Fínunfcu
daginn 24. júnf heldur hljóm-
sveitin tónleika f Félagshermð-
inu Ámesi í Gnúpverjaforeppi og
hefjast þeir M. 21. Stjómandi
verður Bohdan Wodíczko og ein
leikari Gfsli Magnússon pfanó-
leikari. Flutt verða verk effiir
Sdhuhert, Mozart, Sowfcana,
Weber og Berifoz.
HANDEÓK HÚSMÆDRANNA
VÍSIR i VIKULOKIN
er orðin 360 síðna litprentuð bók í fallegri möppu,
sem inniheldur allt sem viðkemur konunni og
heimilinu.
VÍSIR í VIKULOKIN
fylgir aðeins til fastra áskrifenda.
Vönduð mappa getur fylgt á
kostnaðarverði.
VÍSIR í VIKULOKIN
er afgreiddur án endurgjalds frá byrjun
til nýrn áskrifenda.
(nokkur tölublöð eru þegar uppgengin)