Vísir - 23.06.1971, Blaðsíða 16

Vísir - 23.06.1971, Blaðsíða 16
Árásarmaður- inn ófundinn Lögreglan leitar enn árásar- mannsins sem réöist á blaðburðar- stúlkuna á Njálsgötu á sunnudags- morgun og sló hana í höfuðið með flösku, en hann er ennþá ófund- inn. — Stúlkan, sem hlaut skurð á hnakka undan högginu, er á góð- um batavegi. Hún hefur lýst árásarmanninum sem lágvöxnum manni, ljósum yfir- litum og á þrítugsaldri — með stuttklippt hár (sennilega sprottið upp úr burstaklippingu), sem hann greiddi fram. — GP fídra fólkiS saknar sjónvarpsins Sjónvarpið lokað allan júlimánuð — Nota timann til oð yfirfara vélar „Sjónvarpið verður lokað frá 1. til 31. júlí að báðum dögunum með- töldum,“ sagði Pétur Guðfinnsson framkvstj. sjónvarpsins í viðtali við Vísi í gær. „Flestallir starfsmenn sjón- varpsins fara þá £ sumarfrí, en þó ekki allir, því að þennan tíma verður margt unnið á veg- um sjónvarpsins. Til dæmis er nauðsynlegt að yfirfara ýmsar vélar og tæki, sem annars eru í stöðugri notkun.“ Pétur kvaðst óneitanlega hafa orðið var við, að ekki séu allir hrifnir af því, að sjónvarp leggist niður heilan mánuð á hverju sumri. „Án þess að það hafi verið sérstaklega kannað," sagði Pét- ur, „virðist mér, að það sé einkum eldra fólk, sem er á mót-i þessari lokun. Yngra fólk- inu viröist frekar standa á sama. Annars hafa okkur borizt ýmsar hugmyndir um aðrar leið- ir, sem kannski værí hægt að fara £ stað þess að loka alger- lega. Sumir stinga upp á þvf, að við sjónvörpum þrisvar i viku, annan hvern dag. En ég er hræddur um, að það yrðu skrýtnar fréttir, sem kæmu út úr þvi, ef fréttamennirnir þyrftu ekki að fylgjast með fréttum nema annan hvern dag. Ef einhver breyting verður 1 framtíðinni á þessu sumarleyf- ismáli, dettur mér helzt í hug, að hún yrði á þann veg, að lok- unartímabilið styttist eitthvað, en þó er alft gersamlega 6- á'kveðið í því sambandi.“ Pétur ságði, aö sjónvarpsfólk- ið ætti yfirleitt 24 til 27 virka daga í sumarfrt', og þeir, sem vinna vaktavinnu, fá 7 daga í viðibót. ,,Það er mikil hagræöing fyrír okkur, að þetta fólk skuli geta tekið siumarfriið í einum hóp,“ sagði Pétur. Þrátt fyrir sumarfríið verður eitthvaö unnið að dagskrárgerö. Til dæmis mun hópur manna fara Kjöl og í óbyggðir til að gera þátt undir umsjón Magn- úsar Bjamfreðssonar. Og að loknum sumarfrium, 1. ágúst, verður tekið til ó- spilltra málanna við gerð sjón- varpsþátta fyrir veturinn. - ÞB „Að koma Reykjavík inn í Íslandssöguna" Bók um bæjarstjórn Reykjavikur komin út Bæjarstjóm í mótun 1836—1872, | heitir bók, sem komin er út á veg- um Sögufélagsins, þar sem blrtar eru fundargerðir bæjarsjómar Reykjavikur frá þessu tímabili og svo ýmis skjöl. „Með þessu erum við að reyna að koma Reykjavik inn í íslands- söguna,“ sagði Bjöm Þorsteinsson forseti Sögufélagsins á fundi, sem efnt var til meö bl'aðamönnum i tilefni útkomu bókarinnar. Bæjanstjócn £ mótun ej- annað bindið af Saifni til sðgu Reykjavík- ur. Bökin er prýdd fjölda mynda, og hún er 487 blaðsiður. Það er Lýður Björnsson, sem hefur séð um útgáfuna, en hann sá einnig um útgáfu á þeirri bók, sem áður er komin i sama flokki. — ÞB • ^ | Risaálklumpar ! J Tvö tonn vegur hvert þessara • álstykkja á myndinni, en þau • vom söguð niður úr 3 metra 2 lönðum „barra“, sem vó 22 • tonn. Það, sem að lesandanum 2 snýr, er aðeins þverskurður af • klumpnum. • Risaklumparnir tveir, senni- 2 lega með stærstu álklumpum, • sem steyptir hafa verið í heim- • inum, vom gerðir í tilrauna- • skynj eftir pöntun. Ætlunin er síðar meir, að steypa klumpa af sömu þykkt og sverleika, en 7 metra langa. En til þess að lyfta svo þungum klumpum (ca. 50 tonn) upp úr steypumótun- um, þarf sérstök lyftitæki, sem álverið í StraumsVik bíður eftir að fá send. — Síöar verða svo klumparnir valsaðir niður í þynnur á þykkt við pappír. — GP „Ég hef ekki heyrt af því, að nokkurs staðar hafi verið steyptir svo stórir „barrar“,“ sagði Erlingur Gíslason, tæknifræðingur, sem sýndi ljósmyndaranum klumpana. Radar fyrir norðan og annarí' Reykjavik • Lögreglan á Akureyri byrjaði radarmælingar við umferðar- gæzlu í gær. Var radarinn stað- settur í Þórunnarstræti í gærdag og þann tfma, sem mælingar stóðu yfir, voru 11 ökumenn stöðvaöir fyrir of hraðan akstur. Undanfarna daga hafa orðið nokkrir árekstrar og umferðar- óhöpp á Akureyri, þar sem orsak- irnar hefur mátt finna í of hröðum akstri. Meðan íslenzka lögreglan hafði aðeins einn radar til umráða, þótt- ust ökumenn í Reykjavík alls ó- hultir fyrir radarmælingum, j>egar fréttist af því að radarinn væri fyrir noröan. En nú hefur lögreglan á Akureyri fengið sinn radar til umráða, og radarmælingar eiga sér jafnframt stað á götum Reykjavíkur. — GP Minni aðsókn að morgun- deildum leikskólanna Rýmkazt hefur aðeins á sumum leikskólum borgarinnar og minni aö sókn að morgundeildum en venju lega. Þetta mun vera venjulegt fyrir brigði á sumrin, þegar fólk fer i sumarfrí, en hins vegar er þrýsting urinn margfalt meiri en venjulega á að koma börnunum inn, þegar dregur að hausti í september. Framkvæmdastjóri Sumargjafar sagði í viðtali við Vísi, að alltaf væri aðeins rýmra á vissum leik- skólum á sumrin og nefndi sem dæmi Brákarborg við Brákarsund. Ekki vissi hann af hverju rýmk- aðist á leikskólunum, taldi þó að það hefði áhrif, að fólk færi í sum- arfri og einnig kynni að vera, að leikaðstaða barna úti hefði áhrif. Nú fára sumarleyfi að hefjast á leikskólunum og verða þeir lokaðir ti'l skiptis í júií og ágiúst í 12—21 dag eftir því hve starfsfólk er margt. —SB Framkvæmdir við byggingu nýja kerjaskálans í álverkinu i Straumsvík ganga samkvæmt á- ætlun, en gert er ráð fyrir að hann verði tilbúinn fyrir haust- ið 1972. 1. júli í fyrra. Fullgerður verður skálinn 650 m langur með 120' ker. Að honum viðbættum eykst framleiðslugeta álversins úr 44 þúsundum tonna á ári í 77 þús. tonn. „Við munum senn hefjast handa viö að klæða yfirbyggingu skálans," sagði Vilhjá'mur Þor- láksson, byggingameistari, 1 samtali við bim. Vísis. Um 140 manns starfa að þess- ari stækkun álversins sem hófst Til viðmiðunar um stærð þessa mannvirkis sagði Vilhjálm" ur byggingameistari, að um 11.000 rúmmetrar af steinsteypu færu i gerð grunns og unóir- stöður kerjanna og um 2600 tonn af steypustyrktarjárni. — GP —»m-Ti KERJASKALINN HÁLFNAÐUR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.