Vísir - 08.07.1971, Síða 4

Vísir - 08.07.1971, Síða 4
4 V í S IR . Fimmtudagur 8. júlí 1971, Sígruðu í öllum leikjunum — i undankeppninni á Skotlandi — unnu Morton i gær Ungu piltamir f Faxaflóaúr- valsliðinu hafa heldur betur gert garomn rrægan f Skotlandi — og í gær unnu þeir þriðja leik sinn i mótinu. Þeir unnu þá Morton með 1—0, en Morton er eitt af kunnari atvinnumanna liðum Skotlandis. I>ar með hafði íslenzka liöið sigrað í ölium leikjum sínum í 2. riðli, hlaut sex stig, en Mor- ton var í öðru sæti með 3 stig. Rangers hlaut 2 og Frankfurt eitt. I dag hefjast undanúrslit í mótinu og leikur Faxaflóaliðiö þá við lið nr. 2 f 1. riðli. Það er unglingalið hins kunna, þýzka liðs Köln FC Það lið, sem sigr- ar f leiknum, leikur á morgun til úrslita við sigurvegara úr leik Mortons og Cowals — en þau liðin, sem tapa i þessum leikjum, Ieika um þriðja sætið i keppninni. Leikurinn gegn Morton í gær var harður, en eina mark leiks ins skoraði Ásgeir Ólafsson úr Fylki þegar á tólftu mínútu og reyndist það sigurmarkið. Þetta var mjög fallegt mark hjá Ás- geiri. innan á stöng og inn. í fyrradag Iék Faxaflóaliðið við unglingalið eins frægasta knattspyrnuliðs heims, Glasgow Rangers, og vann með 1 — 0. — Mark íslands í þeim leik skor- aði Hörður Jóhannesson frá Akranesi. f fyrsta leiknum á mót inu vann liðið Frankfurt, einnig með 1—0, og skoraði Gunnar Örn Kristjánsson, Víkingi, þá fyrir úrvalið. Óskar var miðherji - skoraði fjögur mörk Vestmannaeyingar unnu Breiðablik í gærkvöldi — skoruðu sex mörk gegn engu á grasvellinum í Eyj um. Þeir höfðu mikla yfir burði, en þrátt fyrir öll mörkin var ieikurinn ekki skemmtilegur, langtímum saman þóf á miðju vallar- ins. Óskar Valtýsson lék nú miðherja í liði ÍBV í stað Sævars Tryggvason ar, sem er meiddur, og tókst ágæt lega, því hann skoraði fjögur af mörkum liðsins. ÍBV hóf þegar i byrjun mikla sókn og gaf það uppskeru þegar á 4. mín. þegar Óskar skoraði með skalla eftir hornspyrnu Tómasar Pálssonar: Liðið sótti mjög næstu mfn. og myndaðist oft hætta við mark Breiðabliks. En svo á 9. mín. komst Guðm. Þórðarson, miðherji Breiðabliks í færi, en spyrnti laust á markið — en þetta var raun- verulega eina tækifæri Breiðabliks í fyrri hálfleik. Á 36. mín léku þeir Örn, Tómas og Óskar skemmti- lega í gegnum vörn Breiðabliks og skoraði Óskar annað mark leiks- ins með þrumuskoti. Þannig var staðan í hálfleik — en síðari hluti hans var þófkenndur. ERUM AÐ TAKA UPP NÝJA K2HSTAL SENDINGU Korrfektekálar á þrem fétum Kristalbátar Blómavaaar rnargar stærðir og étal mrrgt fíetra VJE»0 VSÐ ALLKA HÆI'i Skmm&ðas&g P6 WTÞtTtCWI™ A T T ^otmroróust MJmblAJLL SSmi 14275 Nú, I’BV byrjaði eins í siðari hálfleik og þeitn fyrri. Á 4. mín. skoraði Örn Óskarsson með fatlegu skoti frá vítateig — knötturinn fór í stöngina og inn. Aðeins þrjár mín. liðu og ÍBV komst í 4—0. Valur Andersen átti fast skot á markið, sem Ólafur Hákonarson varöi, en hann hélt ekki knettin- um. Óskar fylgdi fast á eftir, náði knettinum og skoraði. Sókn ÍBV var þung — Tómas átti skot í þverslá á næstu mín. og á 19. mfn. var mikil panik 'i vörn Breiða bliks — Örn áttj tvívegis skot. en Ólafur varði. en svo náði Óskar knettinum og skoraði af stuttu færi. Enn liðu 10 mín og þá lék Örn upp — spyrntj knettinum aftur fyr ir sig inn í vítateig beint á höfuð 'ullskallans og Haraldur Júlíusson lét ekki slíkt tækifæri ganga sér úr greipum — skallaði knöttinn f bláhomið, 6—0, og það urðu loka tölumar. Þegar 10 mín. voru eftir kom Siigmar Pálsson inn á í stað Arn- ar og tók þátt í sínum 200. leik með meistaraflokki ÍBV og Týs. Á lokamínútunni fengu Breiðabliks menn svo eitt sitt bezta tækifæri — Páll markvörður ÍVB spyrnti knettinum beint tii Guðm. Þórð- arsonar rétt utan vítateigs. Guð- mundur spyrnti á markið, en knött tmnn hafnaði í stöng og út. Lið Breiðabliks var mjög lélegt I þessum leik og var það ástæðan til þess, að leikurinn varekki Valbjörn fremstur Fyrri hluti tugþrautar Reykja- vífcurmótsins fór fram á Laugardals velli í gær. Eftir fimm fyrstu grein- aroar hefur Va'lbjörn Þorláksson for ustu með 3508 stigum (11,2 — 6.61 — 12.70 — 1.80 og 52,8), en næstur var EJías Sveinsson, ÍR, með 3200 stig. Hann vann bezta afrekið í gær, þegar hann stökk 1,90 m í hástðkid. Þá var einnig fyrri hluti fimmtarþrautar kvenna. Bezt var Lára Sveinsdóttir, Á, með 1994 stág. Ragnheiður Jónsdóttir, IR. var með 1614 stig og Sigrún Sveinsdóvt ir, Á, 1571 stig. Þrjár aðrar stúlkui tóku þátt i keppninni, sem iýkur í Vann Keinó Nær óþekktui nvaupari frá Ástralíu, Tommy Benson sigraði hlaupakópginn Kipchoge Keino í 5000 m hlaupi í Stokkhólmi í gær. Hann hljóp vegalengdina á 13:36,2 mín., en Keíno fékk 13:36,4 mín. Óskar Valtýsson, ÍBV — fjögur mörk í gærkvöldi skemmtilegur. Valur, Örn og Óskar báru af í liði ÍBV ásamt Ólafi Sigurvinssyni. Hjá Breiðabliki er engum hægt að hæla, en hins veg- ar dæmdi Magnús Pétursson mjög vel. —helgd. Staðan í 1. deild Staðan er nú þannig: Fram 6 4 1 1 14—9 9 Keflavík 6 3 2 1 14—7 8 Valur 6 3 2 1 13-9 8 IBV 7 3 2 2 18-10 8 Akranes 6 3 0 3 14—11 6 Akureyri 6 2 1 3 8-13 5 Breiðablik 7 2 0 5 4-19 4 KR 6 1 0 5 4-11 2 Markahæstir eru nú Haraldur Júlíusson og Óskar Valtýsson, báð ir Vestmannaeyjum, sem sex mörk hvor. Staðan í 2. deild Víkingur 6 5 1 0 17—2 11 Ármann 5 3 1 1 13—3 7 PH 5 1 4 0 9—4 6 Haukar 5 2 1 2 6—3 5 Þróttur-R 4 2 0 2 5—3 4 ísafjörður 6 1 2 3 13—15 4 Þróttur-N 4 1 0 3 3—14 2 Selfoss 5 0 1 4 3-25 1 Víkingur tapaði fyrsta stiginu — Vikingur og FH gerðu jafntefli 2-2 Víkingur og FH geröu jafntefli í skemmtilegum baráttuleik á Mela vellinum f gærkvöldi, 2—2, og hafa bæði liðin þvf enn ekki tap- að leik í 2. deild ennbá. En þetta var fyrsta stigið — og jafnframt fyrstu mörkin — sem Vikingur tap ar í dcildinni. Leikurinn var spennandi og harö ur, en Melavöllurinn er nú orö- inn mjög erfiður. Víkingar skoruðu fyrsta markiö i leiknum og var Eiríkur Þorsteinsson þar að verki, þegar hann einlék í gegnum vöm PH. En Helga Ragnarssyni tókst að jafna — og FH komst yfir, þegar Ingólfur skoraði gullfallegt mark. Knötturinn var geifinn fyrir mark ið og þar kom Ingólfur á fullri ferð, spyrnti viðstöðulaust og knötturinn söng i netinu. Þannig var staðan i hálfleik 2—1 fyrir FH. 1 síöari hálfleik jafnaði Hafliði Pétursson — níunda mark hans í 2. deild — þegar 20 mín. voru eftir, með fai'.egu skoti. Víkingar sóttu mjög það, sem eftir var leiks ins, en tókst ekki að skora sigur mark, þrátt fyrir nokkur góð tæki fceri. Ilafliði — markahæstur í 2. deild með 9 mörk’

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.