Vísir - 08.07.1971, Blaðsíða 10

Vísir - 08.07.1971, Blaðsíða 10
w V í SIR. Fimmtudagur 8. júlí 1971, Tónabær gjör- breytir um svip Leiktækjasalur hefur verið opn- aður í kjallara Tónabæjar. Sal- urinn er með ýmsum leiktækj- um svo sem rafmagnsspilum, billiard, fótboltaspilum o.fl. í gær boðuðu forráðamenn Tóna bæjar til blaðamannafundar, vegna þessara breytinga og einn ig vegna breytinga á sumardag- skránni í Tónabæ. Leiktækjasalurinn er nú um 100 fermetrar að stærð og vona þeir sem að Tónabæ standa, að salurinn verði stækkaöur um 80 fermetra. Nokkrar breytingar hafa einnig ver ið gerðar á diskótekinu og sá Bjöm Björnsson um skreytingarnar þar. Unglingar unnu í sjálfboðavinnu við að festa þær upp. Sú nýjung hefur einnig átt sér stað í Tónabæ að hljómsveitarpallurinn hefur ver- ið færður til hliðar og er nú fyrir miðju dansgólfinu. Þá eru og kom- in svoköíluð hljómljós í diskótek- inu, og blikka þau í takt við hljóm sveitirnar eða þá plöturnar, sem er verið að leika. Að sögn Péturs Sveinbjarnarsonar formanns hús- nefndar Tónabæjar, er meiningin að stilla allt Ijósakerfið f húsinu inn á hljómsveitina, sem leikur í það og það skiptiö. Að sögn forráðamanna Tónabæjar er aðsókn þangað að færast mjög í aukana. Á mánu- dagskvöld, þegar leiktækjasalurinn var opnaður komu um 400 ungling- ar í Tónabæ. í fyrra, á sama tíma þegar opið hús var komu að með- altali um 100-200 unglingar á kvöldi. Forráðamenn Tónabæjar sögðu að lítið bæri á því að fólk væri með áfengi inni í húsinu. Þeir, sem að Tónabæ standa eru: Markús Öm Antonsson formaður Æskulýðs- ráðs, fr '-ndastjóri Tónabæj- ar er Kr t Pálsson. — Húsnefnd skipa Pétur Sveinbjarnarson, formaður, Henný Hermannsdóttir og Sigurjón Sig- hvatsson. — ÁS Útför LÁRUSAR GUÐMUNDSSONAR, skipstjóra Skólastíg 4, Stykkishólmi sem lézt 2. júlí, fer fram frá Stykkishólmskirkju, laugardag 10. þ.m. kl. 2 síödegis. Björg Þóröardóttir og böm Járniðnaðarmenn og lagtækir aðstoðarmenn óskast Vélaverkstæði J. Hinrikssonar Skúlatúni 6, sími 23520 Saumaverksmiðia í fullum gangi er til sölu. 1 verksmiöjunni eru alls konar saumavélar, gufu- pressuvélar, skuröarhnífar o.fl. Tilboö leggist inn á afgreiðslu blaösins merkt — „Sérstakt tækifæri“. Tilkynning Greiðsla fyrir bifreiðir frá Bæjaiieiðum hækk ar um 6% frá og með 9. júlí. I Í KVÖLD B Í DAG I IKVÖLD BELLA — Ég man nafnnúmerið mitt, spjaldskrárnúmerið, þyngdina, hæöina, aldurinn og númeriö á ökuskírteininu. en ég man ekki hvað ég heiti. áB'STRl fyrir 50 árvm ÍBiOTýV8*IKi Buffet-jómfrú, getur fengið at- vinnu á Hótel ísland, nú þegar. Vísir 8. júlf 1921. ULKYNNINCAR • Hjálpræðisherinn. Fimmtudag kl. 8.30. Almenn samkoma. Auð- ur Eir Vilhjálmsdóttir talar. Söng ur og vitnisburður. Allir velkomn ir. Bræðraborgarstigur 34. Kristi- leg samkoma í kvöld kl. 8.30. — Allir velkomnir. Öháöi söfnuðurinn. Farmiðar í skemmtiferðina að Skógum undir EyjafjöIIum sunnudaginn 18. júlí verða seldir í Kirkjubæ briöjudag inn og miðvikudaginn 13. og 14. júlí frá kl. 6 — 9 e.h. Sími 10999. Félagsstarf eldri borgara i Tónabæ. Starfið ffellur niður þar til 1. september Farin verður skoðunarferð um Reykjavík mánu daginn 12. iúlí n.k. Upplýsingar í síma 18800, félagsstarf eldri borgara kl. 9 — 11 fyrir hádegi fimmtudag og föstudag. VEÐRIÐ I BAG Suðvestan gola smá skúrir. SKEMMTISTAÐIR • Þórscafé. Gömlu dansarnir í kvöld. Polka-kvartettinn leikur. Röðuh. Opið í kvöld til kl. 11.30. Háukar leika og syngja. Hótel Loftleiðir. Hljómsveit Karls Lilliendahls leikur söngkona Linda C. Walker. Gail Loring skemmtir. Templarahölhn. Bingó í kvöld kl. 9. Glaumbær. Diskótek. Tónabær. Opið hús frá kl. 8-11. Gestir kvöldsins eru hljómsveit- in Jeremías. SÝNINGAR ® Sýning Árna Finnbogasonar frá Vestmannaeyjum er að Ingólfs- stræti 3. — Sýningin stendur til næsta sunnudags. Sýning Handri.tastofnunar Is- lands 1971, Konungsbók eddu- kvæða og Flateyjarbók, er opin daglega kl 1.30 — 4 e.h. í Áma- garði við Suðurgötu. Aðgangur og sýningarskrá ókeypis. Ljósmyndasýning á ballettmynd um Morgens von Haven er í Nor- ræna húsinu. Sýningin verður op- in til 25. júlí. Ásgrim$safn. Bergstaöastræti 74, opið daglega frá kl. 1.30 — 4 til 1. september. Sýning Jóns Gunnars Árnason- ar er í Gallerie Súm. Efnið í verk um Jóns e^- ál, gler og stál. Ingibjörg Einarsdóttir frá Reyk holti heldur sýningu í Mokka. Sýningin verður út iúlimánuð. FELAGSLIF Ferðafélagsferðir um næstu helgi. Á föstudagskvöld. 1. Landmannalaugar — Veiði vötn. 2. Hekla, Á laugardag. Þórsmörk Sumarleyfisferðir. 10. —15. júlí Skagafjörður — Drangey, 10,—15. júlí Norður Kjöi — Strandir, 10, —18. júlí Vesturlandsferð. 12.—15. júlí Hagavatnsferð. Ferðafélag íslands Öldugötu 3, símar: 19533-11798. Rúrik Haraldsson leikur aðalhlut- verkið í fimmtudagsleikriti út- varpsins. ÚTVARP KL. 20.10: ,LÖNG SKRÍTLA UM GYÐINGA' „Höfundur leikritsins, Wolf Man kowitz, er brezkur" — „Frakki í pöntun“ var ^yrsta leikrit hans, það var sviðsett 1953“,, sagði Bald vin Halldórsson, Ieikstjóri fimmtudagsleikrits útvarpsins, — þegar blaðið hringdi í hann. Að sögn Baldvins hefur Mankowitz skrifað mörg leikrit og starfað á ýmsum sviðum innan leikhússins. Hann sagði ennfremur að leikrit ið „Frakki í pöntun", hefði vakið mikla athygli fyrir það hversu sérkennilegt það er, og er það á óraunveruleikasviðinu. Að sögn Ba-ldvins hefur höfundur leikrits- ins sagt að það væri „löng skrítla um,Gyðinga“ Hann sagði að fyrir þetta verk hefði höfundur fengið mikla viðurkenningu. Leikritið „Frakki í pöntun" þýddi ÓskaT Ingimarsson. Leik- endur eru: Rúrik Haraldsson, Val ur Gíslason. Erlingur Gíslason og Guðmundur Magnússon. Leikritið er um 40 mínútur í flutningi. Haopdrætti ® D.egið liefur verið i byggingar happdrætti Blindrafélagsins. — Vinningsnúmerið er 38777. 8IFREfÐASK0rUN ® Bifreiðaskoðun: R-12151 til R- 12300, Kvennadeild Slysavarnafélags- ins í Reykjavík fer í 6 daga ferða- lag austur að Skaftafelli fimmtu- daginn 22. júlí. Flogið verður til Fagurhólsmýrar, en ekið til Reykjavíkur. Félagskonur eru beðnar að tilkvnna bátttöku fyrir föstudagskvöld 9. iúli AIlaT upp- lýsinear í síma 14374. Langholtsprestakall. Verð fjar- verandi til 31. júlí. Beiðni um vott orð úr kirkjubökum svarað kl 19 á þpðíudöf’um síma 38011 Sími séra Árelíusar Níelssonar er 33580. Séra Sigurður Haukur Guð iónsson Skipstjóri utan aí landi óskar að taka á leigu 3—4 herbergja íbúð í Reykjavík eða Kópavogi til næstu áramóta. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. — Upplýsingar í síma 93-8152 eða í síma 38813. Jarðýtur til leigu BJARG HF. SÍMI 17184

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.