Vísir - 22.07.1971, Blaðsíða 2

Vísir - 22.07.1971, Blaðsíða 2
I Var gift milljarðamæringi framdi sjálfsmorð nPalit'ha Getty varð 31 árs göm- ul. Nú fyrir fáum dögum lézt hún á sjúkrahúsi 1 Róma- borg. eftir að ’.æknar þar höfðu gert allt, sem í þeirra valdi stóö til að bjarga lífi hennar. — Hún hafði tekið inn mikinn skammt af ávefn- og deyfilyfjum. Talitha Getty virtist eiga flest það, sem fólk dreymir um. Hún Svona leit Talitha út árið 1966 skömmu áður en hún gekk í hjónaband með Paul Getty yngri, syni ríkasta manns I heimi. var fögur, rik og gift manni, sem hún elskaði og hún átti son, sem hún dáði. Hún átti hallir og lysti- hús og íbúðir á f'.estum eftirsótt- ustu stööum f heiminum. Þrátt fyrir þetta framdi hún sjálfsmorð. Hún gat ekki leng- ur fylgzt með því lífi, sem vina- fólk eiginmanns hennar lifir. Hinn auðugi eiginmaður Talithu heitir Paul Getty yngri, en hann er sonur þess manns, sem talinn er vera auðugasti maður í veröld- inni. ffivi Talithu er eins og heill- ■*andi ævintýr. ef endirinn er undanskilinn. Hún var dóttir hol- lenzks málara, fædd á Balí i Aust ur-Indíum. Hún öðlaðist írægð, þegar myndir áf henni töku að birtast á forsíðum tízkublaöa á borð við Vogue. Hún varð eftirsótt fyrirsæta og leikkona. Og það var árið 1965, sem hún hitti Paul Getty yngri, Þessi mynd var tekin árið 1968, þegar allt lék í lyndi fyrir Talithu og hún hafði nýlega fætt soninn, Tara Gabriel Galaxy Gramopiiione Getty. Peter Falk David Janssen Shirley Mac- Laine KVIKMYNDASTJÖRN URNAR SNÚA SÉR AÐ SJÓNVARPINU Anthony Quinn Fjöldinn allur af helztu kvik- myndastjörnunum hefur nú snúið sér að því að leika í sjónvarps- þáttum, enda þótt til þessa hafi það veriö talið heldur ófínt í leik ara hópi að starfa mikið fyrir sjón varp, og raunar flestir hafi litið á sjónvarpsleik aðeins sem spor í áttina til frægðarinnar. Tony Curtis hefur til dæmis ekki gert annað að undanfömu. Hann hefur nú nýlokið við að leika í mikilli seríu ásamt Rog- er dýrlingi More. Sú syrpa nefn ist „Seinheppnar hetjur“, og hafa sýningar nú verið hafnar í Dan- mörku og líka þættimir „takk bærilega". Tony Curtis segir, að sér hafi fallið vel að leika í þáttunum og þessi sería verði ekki sú síöasta sem hann komi til með að leika í fyrir sjónvarp. Það eru fleiri en Tony Curtis sem hafa snúið sér að sjónvarp- inu. Anthony Quinn, Henry Fonda, Glenn Ford, Shirley Mac Laine, James Stewart, George Kennedy. Peter Falk og fleiri fást nú sem næst eingöngu við sjón- varpsleik. Einn hinna nýju sjónvarpsþátta heitir „Borgin“ og þar leikur Anthony Quinn aðalhlutverkiö, borgarstjórann í Alcala, sem hef- ur stjórnað borginni í 16 ár. Erf- iðir tímar renna upp, og borgar stjórinn á í höggi við alls konar vandamál og spillingu, auk þess sem kosningar standa fyrir dyr- um Jafnframt þessu hefur hann ekki frið fyrir óðum morðingja, sem er staðráðinn í að koma hon um fyrir kattamef. Það virðist mikið ganga á í þessum þáttum, enda eru þeir vinsælir, og hvei veit nema sjónvarpsmennirnir hérna frétti af þessum þáttum ein hvem tímann og fái þá hingaö. Annar spennandi þáttur er ,,Sarge“, þar sem George Kenne- dy leikur allóvenjulegan prest, sem ekki er sérlega vandur að meöulum, þegar um það er að ræða að láta réttlætið sigra. Og fleiri athyglisverðir sjón- varpsþættir hafa nýlega verið framleiddir, þótt hér verði hætt upptalningunni. en það var í móttöku, sem haldin var til heiðurs ballettdansaranum Rudolph Nurejev. Paul var sonur ríkasta manns í heimi, og þegar hann gekk að eiga Talithu árið 196'6, komst hún þar með inn i hinn þrönga hring ríka fólksins, sem kallað er „the jet-set“. Henni fannst þó hiö ljúfa líf ekki jafnskemmtilegt og venjulegt fjölskyldulíf, og sonurinn Tara, sem fæddist 1968 var henni allt. T oks rann hjónaband hennar út í sandinn. Það gerðist í októ ber í fyrra. Upp frá því var Tal- itha ekki hamingjusöm, en reyndi án árangurs að gleyma öllum sín- um vandræðum, en allt kom fyr- ir ekki. Þá ga? hún allt upp á bátinn. — Hún tók svefnlyf og róandi lyf og dó, án þess að læknar fengju nokk uð að gert. „Talitha var ekki nógu svöf“, segja vinir hennar..

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.