Vísir - 22.07.1971, Blaðsíða 9

Vísir - 22.07.1971, Blaðsíða 9
-«£Œ3i VlSIR. Júlí 1971. Viljum ekki græða — Á Árskógssfr'ónd er komin upp rar.n- sókna stöðin Katla — Þar mun visinda- mónnum gefast kostur á að hafa bækistóð við athuganir sinar % Upp er risin við Eyjafjörð náttúrufræðirann- sóknastöð, hin eina sinnar tegundar hérlendis. — Stöð þessi er á Árskógsströnd, bænum Víkurbakka en að stöðinni standa nokkrir ungir vísindamenn, sem töldu íslendinga vera svo mikla eftirbáta ann arra þjóða á sviði rannsókna á umhverfi sínu, að þeir komu stöðinni á fót fyrir eiginn rammleik. ® Þar eru fremstir í flokki grasafræðingurinn Helgi Hallgrímsson, Guðmundur Ólafsson grasa- fræðingur og Sveinn Jónsson, bóndi á Kálfsskinni. Vísismaður kom nýlega við hjá Helga Hallgríms- syni á Árskógsströndinni, þar sem hann býr, og bað hann segja nokkuð frá náttúrurannsóknastöð- inni. 3 jarðir keyptar „Ég kom hér út á Árskógs- strönd 1965“, sagði Helgj Vísi, „og var þá á höttunum eftir lftilli jörð. Þá var jörðin Víkur- bakki fyrir nokkru komin ;í eyöi og hana keypti ég og sett- ist þar að Þá þegar var ég með náttúrurannsóknastöð í huga. Svo varð það, að ég kom aö máli við Svein Jónsson, bónda á Kálfsskinni. og varð úr að hann keypti með mér í félagi næstu jörð við Víkurbakka, Ytri-Vík, Loks fékk ég Guðmund Ólafs- son kennara á Akureyri £ félag með mér að kaupa þriðju jörð- ina Sólfoakka. Þessar jarðir liggja allar saman, og þess vegna notum við heildarheiti yf- ir þær allar, þ. e. Víkurfoakki.“ Galdrakerlíng i fjalli — Hér úti á veginum ér stærðar skilti sem á s’tendur „Katla“ — hvað merkir það? ,,Það er fja'll hér upp af ströndinni og heiur Kö^if"j?,U. Sagan segir að þar hafi hafzt við galdrakerling af versta tagi, sem mjög kuklaði meö náttúr- leg meðul. Við skíröum því stööina Kötlu." — Hvaða markmiði þjónar svo sKk stöð? „Við stundum hér frumrann- sóknir á ýmsum sviðum. Við höfum til dæmis þegar stundað hér nokkuð rannsóknir á smá- lífverum í jarðveginum — raun ar er markmiðið að kanna Hf það sem í jarðveginum býr, en ég legg áherzlu á það, að við stundum hér engar hagnýtar rannsóknir, sem svo má kalla. Það teljum við verkefni ríkis- stofnana, svo sem Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins. Hús- in sem hér standa, verða opin þeim vísindamönnum og stúdent um sem hér vilja dvelja við rannsóknir. Við veitum þeim þá aðstoð sem við getum — og enn sem komið er felst hún ein- vörðungu í húsnæðinu og að- stööu til matseldar. Katla á enn sem komið er næsta lítið sem ekkert af tækjum, hvernig sem verður." — Vísindatæki, svo sem smá- sjár og annað slíkt eru mjög dýr Hvernig aflið þið fjár? „jStöð sem þessi grundvaHast einvörðungu á styrkveitingum. Við höfum mætt furðumiklum skilningi. Styrki höfum við feng ið frá mörgum nærliggjandi sveitarféiögum og einnig hafa fyrirtæki styrkt okkur, svo sem Menningarsjóður KEA, Má'ning arverksmiðjan Sjöfn og fleiri aðilar. Margir einstaklingar hafa einnig látið fé af hendi rakna.“ Hæli fyrir vísindamenn — M,unu stúdentar úr Há- skóla íslandis gista hér við rann- sóknir? „Það þykir mér iiklegt — reyndar eru engin bein tengsl komin á milli stöðvarinnar og iráskólans en Það rekur sjálf sagt að .Þ\ð.“ — Nú var „Katla“ vígð sunnu daginhi * 18. júlf s. 1. — hefur sröðin eitthvað verið starfrækt áður? „Já, eiginlega hefur stöðin starfað undanfarin 2 ár — en viö biðum með að opna hana formlega þar til stöðinn; hafði verið breýtt í sjálfseignarstofn- un og hún fengið nafn. Hér hafa verið til dvalar erler.dir vís- indamenn og stúdentar, og nú er hér t. d. fransk-íslenzkur leið angur undir stjóm dr. Sigurðar Jónssonar, sem starfar í París. Þetta fólk er foér að safna þör- ungum og smádýrum." Ekki vegna gróðavonar Nú hefúr þú lagt út umtals vert fé, Heigi, við jarðarkaupin végna stöðvarinnar. Er þetta Rannsóknastöðin „Kctla“ var vígð 18. júlí sl. Þessi mynd er af húsi því sem vísindamenn og r.rúdentar fá aðstöou í með athuganir sfnar og einnig er þarna svefnpláss og eldunaraðstaða. Sóknarpresturinn í Hrísey, séra Kári Valsson sté í stól á vígsludag Kötluhússins að Víkurbakka og óskaði vís- indamönnum velfarnaðar og sendi þeim kveðju guðs og sína. ekki óvenjuleg fórnfýsí hjá ein úm tekjjl'águm vísindamanni — getur slík' stöð sem Katla haft einhverjar tekjur? , lil. vgvntm&æt' fýsina? Það sem um er aö ræða er fyrst og fremst það. að hér á landi vantaði náttúrurann- sóknastöð. Slíkar stöðvar er-u til út um ailan heim þær fyrstu voru stofnsettar fyrir um 100 árum. Norðmenn eiga 5 slíkar. Á þessum stað verður eflaust margt þarflegt unnið ’i framtíð- inni. þótt við stefnum ekki að öðru en eiga okkar þátt i að auka þekkingu manna á umheim inum. Það er ætiun okkar að birta opinberlega niðurstöður okkar athugana foér, en fela þær ekki inni á söfnum f þurru skýrsluformi." / Hvað stendur fyrir dyrum hjá ykkur núna — hvaða rannsóknir hafið þiö mesta hug á að gera? „Við erum í gang; með rann- sóknir á ferskvatni hér við Eyjafjörð. Við höfum tekið sýni úr öllum bergvatnsánum frá Akureyri og út að Dalvík. Of snemmt er aö segja til um hvað úr úr því getur komið. Nú — tækjaleysið háir okkur óskap- lega. Ef við ættum eitthvert fé þá myndum við byrja á því að útbúa hér sjóveitu. Þótt hús- in hér standi nálægt sjó. þá verðum við að fá góða dæ'u og dæia sjónum upp í húsið, jafnframt vantar okkur þá búr til þess að hafa sjávardýrin í. Slík sjóveita er nokkuð kostn aðarsöm, sérstablega þar sem við getum ekki afgreitt þetta á eins einfaldan hátt og gert er t. d. í Sædýrasafninu í Hafn arfirði og við sjódýrasafnið ’i Vestmannaeyjum í Vestmanna- eyjum var hægt að bora eftir sjó, og í Hafnarfirði eru aðstæð- ur til muna betri en hér.“ Og nú vonizt þið eftir að- sókn vísindamanna? „Já. Við vonum að vísinda- menn innlendir og erlendir. svo og stúdentar komi hingað — eftir þvi fer raunar viðgangur stöðvarinnar." —GG TÍUE TO Hafið þér hugsað yður að ftara út úr bænum um verzlunarmannahelg- fnafr Sveinbjörg Hermannsdóttir, starfskona Hótei Borg: Því mið ur þá kemst ég ekkert. Ég er akkúrat búin með sumarfríið þá. Ég fer vanalega út úr bænum þegar gott er veöur. Ingibjörg Guðmundsdóttir: Ég verð héma í bænum að vinna. Og sakna þess ekkert að kom ast ekki á þessi fylliríismót. Sveinbjöm Ragnarsson, sjó- maður: Já, ég ætla í HúsafeLl ef það verður eitthvað þar. Ég hef áður farið á mótin þar. Birgir S. Jónsson, aðstoöarmað- ur í bakaríi: Já, ég ætla á mótið í Húsafelii. Ég hef ekki komið á það áður. Stefanía Ragnarsdóttir, ung- lingavinnunni: Ég hugsa að ég far; f Húsafellsskóg, ég hef aldrei komið þar áður. Kristín Valdimarsdóttir, ung- lingavinnunni: Ég býst við að fara eitthvað, en ég er ekKi búin að ákveða hvert ég fer.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.