Vísir - 22.07.1971, Page 10
w
Afhenti trúnaðarbréf
Nýskipaður sendiherra Hollands
barón Willem J.G. Gevers afhenti í
gær forseta íslands trúnaðarbréf
sitt í skrifstofu forseta í Alþingis-
húsinu að viðstöddum Einari
Ágústssyni utanríkisráðherra.
Síðdegis þá sendiherrann heim-
boð forsetahjónanna að Bessastöð
um ásamt nokkrum fleiri gestum.
i
-. ■
Skólavörðustígshornið
ennþá í deiglunni
Endanleg ákvörðun hefur
ekki verið tekin enn um,
hvað verði uppi á teningnum
við byggingu hússins á gatna
mótum Skólavörðustígs og
Bankastrætis, sem svo mjög
hefur borið á góma að undan
förnu. |
Munnlegt samþykki lá fyrir
leyfi til byggingar hússins. en
éftir var aðeins að ganga endan-
lega frá samkomulagi um bíla-
stæði við húsið, og var því eig-
anda leyf-t að hefja verklegar
framkvæmdir.
Þær' voru hins vegar stöðvað-
'ar fyrir nokkruni vikum, þegar
fram komu ábendingar um. að
útsýni upp að Skólavörðuholti
og Hallgrímskirkju sem fékkst
þegar eldra húsið var rifið, yrði
stórlega spillt, þegar upp risi
þarna ný 3ja hæða bygging.
Umræöur um húsið hófust að
nýju í bygginganefnd borgar-
innar og með skipuiagsyfirvöld-
um og fyrri afstaða til bygg-
ingaleyfsins tekin ti! endurskoð-
unar.
Lokaákvörðunarvaid liggur þó
í höndum borgarráðs, og er bú-
izt við því. aö það muni útkljá
málið á einhverjum næstu fund-
um sínum. — GP
Lítill nýsmíðaður
sumarskáli eða veiðihús til sölu. Tilbúinn
til flutnings. — Sími 83449.
V í S I R . Fimmtudagur 22 júlí 1971.
—...
ÁRNAB HEILLA •
Séra Eiríkur Eiríksson, þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum, er 60
ára í dag, 22. júlí. Séra Eiríkur
er Vestmannaeyingur og lauk
hann guðfræöiprófi 1935, gerðist
kennari að Núpi í Dýrafirði eftir
framha'.dsnám í Basel og á Norð-
urlöndum. — Sóknarprestur var
hann lengi að Núpi, en frá 1959
hefur hann gegnt embætti þjóð-
garðsvarðar og jafnframt verið
sóknarprestur þar frá því 1960.
Séra Eiríkur hefur unniö mikið
og gott starf fyrir ungmennafé-
lagshreyfinguna í landinu, var m.
a. sambandsstjóri UMFÍ frá 1938.
VISIR
50œ
fyríot
Tapast hefir úr Laugarnesgirð-
ingunni brúnn úrvals reiðhestur,
vekringur og töltari. Mark: gat á
báðum eyrum, k'.ippt I. S. ofar-
lega á síðuna. Með honum strauk
grá hryssa. Bæði hrossin ættuð
frá Kirkjubæ á Rangárvöllum.
Allar uppl. sendist gegn þóknun
Ingvari Sigurðssyni Laugaveg
20A. Sími 571 og 406. (Auglýsing).
Vísir 22. júlí 1921.
FUNDIR •
Hjálpræðisherinn, Fimmtudag
kl. 8.30 almenn samkoma. Séra
Jón Bjarman talar. Söngur, vitn-
isburður. AMir velkomnir.
Fíladelfía. Almenn samkoma kl.
8.30. Ræðumenn Gerða Martin-
son og Ásgrímur Stefánsson.
Bræðraborgarstígur 34. Kristi-
leg samkoma í kvöld kl. 8.30. —
Heimsókn frá Færeyjum. Allir
velkomnir.
HEILSUGÆZLA •
Kvöldvarzla helgidaga- og
sunnudagavarzia á Reykjavíkur
svæðinu 17.—23. júli: Lyfjabúð-
ið Iðunn — Garðsapótek. —
Opið virka daga til kl. 23, helgi-
daga kl. 10—23.
Tannlæknavakt er f Heilsuvemd
arstöðinni. Opið laugardaga og
sunnudaga kl, 5—6. Sími 22411.
Sjúkrabifreið: Reykjavfk. sfmi
11100. Hafnarfjörður. simí 51336,
Kópavogur. sími 11100.
Slysavarðstofan. simi 81200, eft
ir lokun skiptiborðs 81213.
Kópavogs. og Keflavíkurapótek
eru opin virka daga kl. 9—19.
laugardaga 9 — 14. helga daga
13-15.
Næturvarzla lyfjabúða á Reykja
víkursvæöinu er í Stórholti 1. —
sími 23245.
SÝNINGAR •
Sýning Handritastofnunar Is-
lands 1971 Konungsbók eddu-
kvæða og Flateyjarbók. er opin
daglega kl 1.30—4 e.h. f Áma-
garði við Suðurgötu. Aðgangur
og sýningarskrá ókeypis.
Ingibjörg Einarsdóttir frá Reyk
holti heldur sýningu 1 Mokka.
Sýningin verður út júlímánuð.
Ljósmyndasýning á ballc-nmynd
um Morgens von Haven er l Nor-
ræna húsinu. Sýningin verður op-
in til 25. júlí.
Ásgrinissafn Bergstaðastræti 74,
opið daglega frá kl. 1.30—4 til 1.
september.
tilkynnim:\r •
„Ökuþór“ blað Féiags isl. bif-
reiðaeigenda er nýkomið úr. Efni
blaðsins er m.a. „Hvað er efst á
baugi hjá FÍB?“, „Málmtæring í
bifreiðum", „Hvers konar ökumað
ur eruð þér?“ „Hugleiðingar um
gildi tímans í umferöinni“, „Hvað
er verðið á bílunum?", Viðtal við
Guðlaug Björgvinsson, framkvsti.
FÍB. „Kappakstur" og margt
fleira.
Neyðarvakt:
Mánudaga — föstudaga 08.00—
17.00 eingöngu í neyðartilfellum,
sími 11510.
Kvöld- nætur- og helgarvakt:
Mánudaga — fimmtudaga 17.00—
08.00 frá kl. 17.00 föstudaga til
kl. 08.00 mánudaga. Sími 21230.
Laugardagsmorgnar:
Lækningastofur eru lokaðar á
laugardögum, nema í Garða
stræti 13. Þar er opið frá kl 9 —
11 og tekið á móti beiðnum um
lyfsezla og þ.h. Sími 16195.
Alm. upplýsingar gefnar i sim-
svara 18888.
SKEMMTISTADIR •
Þórscafé. Gömlu dansarnir í
kvöld. Polka kvartettinn leikur.
Röðull. Hljómsveitin Haukar
ieikur fyrir dansinum.
TemplarahöIIin. Bingó i kvöld
kl. 9.
Tónabær, Opið hús frá kl. 8—
11. Unglingar fæddir '57 og eldri.
Aðgangseyrir 10 kr. Diskótek og
leiktækjasalur. Leiktækjasalurinn
er opinn frá kl, 4.
Glaumbær. Diskótek.
HóteJ Loftleiðir. Opið í kvöld.
Hijómsveit Karls Lilliendahls leik
ur, söngkona Linda C. Walker.
Ferðafélagsferðir. — Á föstudags
kvöld:
1. Kerlingarfjöll — HveraveHir.
2. Laugar — Eldgjá — Veiði-
vötn.
Á '.augardag:
1. Þórsmörk.
2. Hlöðuvellir — Hlöðufell.
3. Kjölur — Sprengisandur.
6 dagar.
Ferðafélag jslands, Öldugöfu,
Símar: lr' I179S.
BELLA
Þú mátt ekki skella tólinu á
bara af því að þú hefur valið
skakkt númer.... þannig byrja
jú mörg okkar beztu kynna ...
BIFREIÐASKOÐUN •
Bifreióaskoðun: R-13651 til R-
13800.
t
ANDLAT
Elin Sigurðardóttir, Hagamel 28,
andaðist 16. júlí 60 ára að aldri.
Hún verður jarðsungin frá Nes-
kirkju kl. 1.30 á morgun.
Sigurður Jónsson, múrari,
Þykkvabæ 11 andaðist 18. júlí 58
ára að aldri. Kveðjuathöfn fer fram
frá Fossvogskirkju kl. 10.30 á morg
UTt.
Kári Guðmundsson, fiugumferð-
arstjóri, Nökkvavogi 36, andaðist
18. júlí 26 ára aö aldri. Hann verð-
ur jarðsunginn frá Dómkirkjunni
kl. 10.30 á morgun.
Hjalti Finnbogason húsgagna-
bólstrari, Hát'úni 4. andaðist 17.
júií 64 ára að aldri. Hann verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju kl.
1.30 á morgun.
Guðríður Hansdóttir, Laugateigi
42, andaöist 15. júli 67 ára að aldri.
Hún verður jarðsungin frá Laugar-
neskirkju kl. 3 á morgun.
-----------------------t---------------------------
Eiginmaður minn
KÁRI GUÐMUNDSSON, flugumferðarstjóri
er lézt af slysförum, sunnudaginn 18. júlí, verður
jarðsungínn frá Dómkirkjunni, föstudaginn 23. júlí
ki. 10.30.
Unnur Jónsdóttir.
••••«»«••••••••••••••«,