Vísir - 26.07.1971, Síða 2
☆
Ferðamönnum fækkar
í Danmörku^
Danskir hótelmenn bera sig nú
upp undan því, að ferðamanna-
straumurinn, „holskeflan“ sem
þeir boðuðu í vetur og vor, hafi
aldrei komið. 1 Kaupmannahöfn
eru 160 hótel, og af þeim eru 70
sem geta talizt stór. Sjaldgæft
er nú, að fleiri en 10 séu full-
bókuð.
1 fyrra um þetta leyti, höfðu
hótelin bókað hjá sér 18.731 gest,
en nú hafa aðeins verið bókaðir
14.187. Vilja menn kenna um
minnkaðri eyðslugetu fólks í flest
um löndum, skattpfningu og öðru
því líku. Hópferðir frá Ameríku
hafa svikið danska um að heim-
sækja þá, í tugatali.
☆
I
Tannlæknirinn sektaður
Það var í Las Vegas í USA
að frú Barbara Watson settist f
stól hjá tannlækni einum, dr.
Donald Holt að nafni. Þegar iækn
irinn rak eitt af tólum sfnum
upp í munn frúarinnar og snerti
auma tönn, æpti konan hátt af
sársauka. Dr. Holt reiddist þá
við og barði frúna fremur fast.
Barbara kærði tannlækninn ■ og
þau mættu bæði fyrir rétti.
„Hún hagaði sér eins og 3ja
ára barn,“ sagði tanniæknirinn,
,,og þess vegna meðhöndlaði ég
hana sem slika".
Dómarinn var hins vegar á ann
arri skoðun, og dæmdi hann tann
lækninn til að borga 7000.00 ísl.
krónur í skaðabætur.
KOSS
HANDA LA DIETRICH
Náttúruundur eru næsta það stundum, að fólki
sjaldgæf á breiðstrætum gefst kostur að líta slíkt.
stórborga. Samt gerist Kaupmannahafnarar upp
lifðu enn einu sinni
skemmtun hjá Marlene
Dietrich fyrir fáeinum
Og þá fékk Dietrich tár í augun: þegar tvitugur soldátinn smeliti á hana kossi.
dögum. Þessi næstum því
sjötuga ungfrú og fegurð
ardís syngur enn með
sinni seiðandi röddu, og
ekki ber á öðru en enn
sé andlit hennar næsta
slétt og fellt, kroppurinn
vel lagaður og fætumir „í
hópi hinna fullkomnustu
fótleggja“ sem sézt hafa.
Marlene Dietrich er, eins og
flestir kannast yið, undantekn-
ing frá reglunni: Hún eldist ekk-
ert. Hvað eftir annað skrifar
hún undir samninga við skemmti
hús og kvikmyndastjóra út um
víða veröld, hvað eftir annað
dansar hún, syngur af hjartans
lyst og heillar áheyrendur hundr-
uðum saman. Núna er hún enn
í Tívolí.
Hvort hún sé ævinlega jafn-
ungleg? Hver spyr sosum að því,
þegar persónuleikinn blómstrar
nú sem aldrei fyrr. Hún söng
þannig í Tívolí um síðustu helgi,
að gamlir sjóarar og slúðurkerl-
ingar af strætum kreistu tár af
hvörmum. Aigeng lög eins og
„Honeysuckle Rose“, „La Vi en
Rose“ og „Boomerang aby“fengu
nýjan keim, nýjan takt og fólk
gerði sér grein fyrir þvi, sem la
Dietrich hefur umfram aðra dæg
urglamrara að bera.
Og sú gamla Dietrich lætur
ekki duga að syngja þau lög sem
hún er þekktust fyrir. Pete See-
ger, sá frægi andstríðssöngvari
fékk harða sámkeppni, þegar hún
söng „Where Have All the Sold-
iers Gone?“ — Marlene blívur
þrátt fyrir alla klám-klúbba, skrif
aði einn gagnrýnandinn við Kaup
mannahafnarblað — hennar kyn
þokki er nefnilega óvefengjanleg
ur — menn þurfa ekki að leita
að honum í sérstökum húsum,
hann er til staðar fyrir alla sem
vilja horfa á og dáðst að.
Og Marlene hefur líkast til
lært öðrum betur að heilla áhorf
endur. Hún kyssti hliðvörðinn í
soldátafötunum, sem færði henpi
rósabúntið og fékk að launum
dynjandi lófaklapp.
Trésmiðjan Víðir
auglýsir
Glæsilegt úrval af vönduðum sófasettum
Verð frá kr. 29.800,—
Hagkvæmir greiðsluskilmálar
Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt.
Ný sófasett koma í verzlunina daglega
Verzlið í Víði
Laugavegi 166 — Simar 22229 — 22222