Vísir - 26.07.1971, Blaðsíða 5
V I S I R . Mánudagur 26. jöíí 1971.
MÍTARC6N Á MílSTARA-
MÓTIISLANDSISUNDI
— Alls voru sett fjórtán ný Islandsmet á glæsilegu móti
Sundmeistaramót ís-
lands var háð um helg-
ina og náðist hreint frá:
bær árangur á mótinu.
ABs voru 14 ný íslands-
mtí; sett og keppni í
mörgum greinum var
mfðg skemmtileg. Fjöl-
margir Þjóðverjar voru
meðal keppenda, svo og
hm imga Lisa Ronson
(Péturs Rögnvaldss.),
sem náði mjög góðum
árangri, þótt ekki setti
hún íslandsmet. Guð-
mundur Gíslason, Á. var
enn einu sinni sá, sem
flest metin setti — eða
fjögur og bætti hann
fvrri árangur sinn mjög.
Mótið hófst á föstudag og var
þá feeppt í þremur greinum og
fjögur Islandsmet sett. Fyrsta
greinin var 1500 m skriðsund
og þar sigraði Guðmundur eftir
skemmtilega keppni við hinn
bráðefnilega KR-ing Friðrik Guð
mundsson, sem aðeins er 16 ára
að aldri, og eitt mesta sund-
mannsefni, sem hér hefur komið
fram. Það sýndi hann vel síö-
ar á mótinu. Nú tími Guömund-
ar í 1500 m var 18:38.6 mín. og
bætti hann eldra met sitt um
hálfa mínútu. Friðrik synti á
18:49.0 mín. og var því einnig
langt undir gamla metinu. Þriðji
varð Sigurður Ólafsson, Á, á
19:13.5 mín. en keppendur voru
alls átta. Millitími var tekinn
á Guðmundi eftir 800 m og setti
hann þar líka íslandsmet, synti
þá vega'engd á 9:55.6 min.
I næstu grein, 800 m skrið-
sundi kvenna, setti Vilborg Júli
íusdóttir ágætt íslandsmet,
synti á 10:23.7 mín Guðmunda
Guðmundsdóttir frá Selfossi
veitti hennj lengi vel harða
keppni og synti á 10:33.7 mín.
Keppendur voru 10. í þriðju
greininni 400 m bringusundi
karla sigraöi Leiknir Jónsson, Á,
á nýju íslandsmeti 5:34.1 mín.,
en annar af 14 keppendum varó
Guðjón Guðmundsson, Akra-
nesi, á 5:49.3 mín., sjónarmun
á undan Gesti Jónssyni. Ár-
manni.
Á laugardag var fyrsta keppn
isgrein 100 m flugsund kvenna
og þar synti þýzka stúlkan Heike
Nagel, sem hlaut verðlaun á
síðustu ólympj'uleikum, á mjög
góðum tíma 1:08.1 mín. og varð
langfyrst. En Guðmunda Guð-
mundsdóttir varð íslandsmeist-
ari og setti íslandsmet 1:14.7
mín., en litla Lisa Ronson Pét-
ursdóttir varð í þriðja sæti á
1:16.6 mín. í næstu grein 200
m bringusundi karla synti Leikn
ir Jónsson á 2:37.7 min. og
sigraði örugglega, en annar
varð Guðjón Guðmundsson á
2:40.0 mín.
I 400 m skriðsundi kvenna
sigraði Vilborg Júlíusdóttir með
talsverðum yfirburðum, synti á
5:07.3 min., en Hanne Spross.
Þýzkalandi, varð önnur á 5:23.0
mín. rétt á undan Salome Þór-
isdóttur. í 200 m baksundi karla
kom annar þýzkur sigur be?ar
Klaus Schmidt synti á 2.25.5
mín Þjóðverjinn Hans Werp
er Kopfman var annar á 2:33.6
mín„ en Hafbór B. Guðmunds-
son, KR. ís'.andsmeistari á
2:35.7 mín.
í 200 m fjórsundi kvenna var
þýzkur sigur Heike Nagel synti-
þá vegalengd á 2:39.6 mín.. en
Lisa Ronson setti nýtt telpna-
met syntj á 2:47.0 mln. og
varð I'slandsmeistari í greininni.
Þriðja varö Guðmunda Guð-
mundsdóttir á 2:50.0 min
Finnur Garðarsson. Æ, setti
ágætt met í 100 m skriðsundi á
56.7, en þar syntu þrír fyrstu
menn innan við 60 sek. Guð-
mundur Gíslason varð annar á
58.4 sek og Sigurður Ólafsson
þriðji á 59.2 sek. I 100 m
bringusundi kvenna varð Helga
Gunnarsdóttir, Æ, fyrst á 1:23.5
mín. og Ingibjörg Haraldsdóttir,
Æ, önnur á 1:29,4 mln., en
keppendur í greininni voru 24.
Guðmundur Gíslason. Á, setti
þriðja met sitt í keppninni í 200
m flugsundi. synti á hinum á-
gæta tíma 2:20.2 mín., en annar
varð Gunnar Kristjánsson, Á,
á 2:39.7 mín I 100 m baksundi
kvenna varð Salome Þórisdóttir
íslandsmeistari á 1:16.4 mín.. en
Lisa Ronson varð önnur á
1:19.0 mín. Keppendur voru 20.
1 4x100 m fjórsundi sigraði
þýzk sveit á 4:29.1 mín., en sveit
Ármanns varð fs'andsmeistani
á 4:33.7 ihin og þar syn'ti Gúð,-
mundur ‘ Gísláson fyrsta sprett,
100 m baksund á í:06.4 mín.,
sem er nýtt Islandsmet. Sveit
Ægis sigraði í 4x100 m skrið-
sundj kvenna og setti nýtt ís-
landsmet 4:40.3 m.'n
Mótið hélt svo áfram á sunnu-
dag, og þá sigraði Guðmundur
Gislason í fyrstu greininni, 100
m flugsundi á 1:02.7 mín. Helga
Gunnarsdóttir varð íslandsmeist
ari í-200 m bringusundi á 3:01.7
mín. og í þriöju greininni, 400
m skriðsundi karla, kom einn
óvæntasti árangprinn, þegar
Friðrik Guðmundsáon, KR, setti
nýtt íslandsmet 4:37.3 m'in og
sigraði Finn Garðarskon. sem
syntj á 4:44.5 mín.
1 200 m baksundi kvenna
ekki út af venjunni
Akumesingar brugðu
ekki út af þeirri venju sinni
að sigra á Akureyri í 1.
deildinni. í jöfnum og fjör
ugum leik skoruðu þeir tvö
mörk gegn einu marki
heimamanna og vom hinir
iörgu áhorfendur ekki
beint anægðir með það, því
lið Akureyrar hefði að
minnsta kosti átt skilið
jafntefli.
og sigrubu Akureyringa i 1. deild 2-1
var Salome Þórisdóttir íslands-
meistari á 2:43.6 mín. og í 100
m skriðsundi kvenna sigraði
1:13.5 mín. og var tveimur sek.
á undan Þjóðverjanum Hilde-
brant. í 200 m flugsundi sigraði
Heike Nagel á 2:36.1 mín., en
íslandsmeistari varð Guðmunda
Guðmundsdóttir á 2:45.8 mín.,
sem er nýtt íslandsmet. I 100
m baksundi karla varð Guðm.
Glslason íslandsmeistari og
synti á 1:07.0 mín. eða aðeins
lakara en í boðsundinu daginn
áöur, þegar hann setti íslands-
met. Þar varð Klaus Ccmidt
annar á 1:07.9 mín.
Síðustu greinarnar voru svo
Lisa Ronson vakti mikla athygli á mótinu.
Akurnesingar brugðu
Heike Nagel á 1:04.5 mín., en
'•Islandsmeistari varö Lisa Ron-
Json á ágætum tíma 1:05.5 mín.,
Jen hún á áreiöanlega fljótt eftir
•að setja íslandsmet á þessari
Jvegalengd. I 100 m bringusundi
• karla urðu óvænt úrslit, þegar
ÍGuðjón Guðmundsson sigraði
JLeikni Jónsson. Guðjón synti
• á 1:12.6 mín. en Leiknir á
boðsund og met sett í báðum.
Sveit Ægis sigraði í 4x100 m
fjórsundi kvenna á 5:09.9 min.
og í 4x200 m skriðsundi karia
synti sveit Ægis á 9:05.1 mín.,
sem er íslandsmet og þar synti
Finnur Garðarsson á 2:08.6 mln.
fyrsta sprettinn, sem er nýtt
Islandsmet á vegalengdinni.
— hsím
Björgvin meistari
Það voru Akureyringar, sem skor
uöu fyrsta markið í leiknum —
mjög fallegt mark. Magnús Jóna-
tansson lék upp og gaf til Eyj-
ólfs Ágústssonar, sem spyrnti við-
stöðulaust á markiö og knötturinn
söng í netinu. Þetta var á 17.
mfn en þegar hálftími var af
leik tókst íslandsmeisturunum að
jafna. Þar var Björn Lárusson,
vinstri bakvörðurinn, sem skoraði
markið eftir að hafa leikið upp
frá sínum eigin vallarhelming.
Staðan í hálfleik var 1—1.
Sigurmark Akurnesinga skoraöi
Eyleifur Hafsteinsson á 26. mfn.
siðari hálfleik. Akurnesingar fengu
þá aukaspyrnu. sem Haraldur Stur-
laugsson tók. Hann spyrnti inn í
vítateig og þar fór knötturinn í
varnarmann Akureyrar og beint
fyrir fætur Eyleifs, sem þakkaði
gott boð og skoraði af stuttu færi.
Á síðustu sekúndum leiksins
fékk Eyjólfur tækifæri til að jafna
fyrir Akureyrí. Hann fékk knöttinn
fyrir opnu marki, en skallaði fram
hjá.
Hjá Akurnesingum átti Björn
Lárusson mjög góðan leik, en
beztur heimamanna var Steinþór
Jóhannesson stöðugt vaxandi leik-
maður. Dómari var Einar Hjartar-
son. —SbB
Meistaraniót Akureyrar i golfi
hófst á miðvikudag og lauk á laug-
ardaginn. Björgvin Þorsteinsson
var meistari og náðj góðum ár-
angri — fór hinar 72 holur á 299
höggum sem er einn bezti, sem
náðst hefur á vellinum. Vallarmet-
ið er 294 högg og á Hermann Ingi-
marsson það, en Björgvin hefur
áður farið innan við 300 högg —
oða 297.
Á mótinu var keppt í fjórum
flokkum. I meistaraflokknum sigr-
aðj Björgvin, en Sævar Gunnarsson
varð annar með 309 högg. Hann
veitli Björgvin harða keppni frani
á sfðasta dag, en þá gekk honum
illa, Eftir þrjá fyrstu keppnisdag-
ana munaði aðeins einu höggi á
þeim, I þriöja sæti varð svo Þór-
arinn B. Jónsson með 315 högg. í
1. flokki sigraði Viðar Þorsteinsson,
einn af knattspyrnumönnum Akur-
eyrar, á 328 höggum. Viðar gat
ekki keppt á laugardaginn gegn
Akurnesingum vegna meiðsía, s«a
höfðu þó ekki áhrif á gnlf hwvs.
Annar varð Haukur Jakobsson með
337. högg og 3. Sigtryggur Júlíus-
son með 339 högg. í 2. flokki sigr-
aði Sveinbjörn Sigurðsson með 370
högg og i unglingaflokki varð
Hermann Benediktsson sigurvegari
með 351 högg. Annar varð Þorleifur
Pálsson með 35S högg.