Vísir - 11.08.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 11.08.1971, Blaðsíða 1
„Andrúmsloftið í landhelgis- málum hefur mikið batnað" — Miðvikudagur 11. ágúst 1971. — 179. tbL s'iÖan 1958 — segja fulltrúar Islands i Genf Fulltrúar íslands í Genf hafa fundið, að andrúmsloftið í land- helgismálum hefur mikið batn- að síðan 1958, þegar íslending- ar stóðu síðast í harðri baráttu um útfærslu fiskveiðilögsögu. Annars hefur fiskveiðilögsagan lítið verið á dagskrá fundanna Fargjaldas triðið hefur ekki skaðað LOFTLEÍDIR Enn mikil farþegaaukning — alls um 18.8°Jo á árinu og sætanýtingin batnandi Loftleiðir fluttu fyrstu sex mánuði yfirstand- andi árs 125.081 farþega, sem greiddu fargjöld, og er það 18,8% aukning frá sama tíma í fyrra. Sæta- nýting í flugvélum fé- lagsins jókst úr 69,1% í 71,1% á þessu tímabili. „Þessar tölur eru ekki ein- hlítar til viðmiðunar um af- komu félagsins á þessu tíma- biii,“ sagði Sigurður Magnús- son í viðta'.i við blaðið í morg un. „þar sem rekstrarkostnaður hefur hækkað verulega frá þvi í fyrra.“ Eins og kunnugt er, hefur nú um skeiö staðið „fargjaldastyrj- öld“ milli flugfélaganna á Norð- ur-Atlantshafsleiðinni Sigurður Magnússon segir, að það hafi að minnsta kosti ekki leitt til þess, að Loftleiðir „’.étu merkið falla“. í grein í bandaríska tírharit- inu Business Week. sem hef ur upplag yfir. hálfa milljón, er fjallað um Loftleiðir 24. júlí. Þar segir, að staða Loftleiða sé svo sterk meða’. unga fólksins beggja vegna Atlantshafsins, að far- gjaldalækkun margra flugfélaga fyrir ungt fólk i vor hafi ekk ert sakað Loftleiðir. Loftleiöir hafi nú einnig lækkað þessi far gjöld. Rekstrarkostnaöur félags- ins sé tiltölulega lágur. Til dæm is þurfi félagið ekki að eyða miklu í auglýsingar, því að „stúdentar segi hver öðrum frá“ lágum fargjöldum þess. í greininni er saga Loftleiða rakin í stuttu máli. Viðtal er við Alfreö Elíasson forstjóra og haft er eftir honum, að sam- dráttur í efnahagslífi í Banda ríkjunum hafi ekkert skaðað fé’.agið. Ef til vill þvert á móti, þar sem fólk þurfi nú frekar en áður að hafa auga með pyngj unni og fljúgi því fremur meö Loftleiöum. — HH Næturfrost Næturfrost maeldist á þrem stöð- um á landinu í nótt. Frostið mæld- ist eitt stig á Hveravöllum, Staðar- hóli í Aðaldal og á Egilsstöðum. Hiti var við frostmark á Gríms- stöðum á Fjöllum og á Þingvöllum. Á þessum stöðum var himinn nær heiðsk’ir. — SB Bretar auka aðstoð við togaraflofa sinn hér við land Brezk togaraeftirlitsskipið Mir- ándá mun í ágústlok veröa sent til aðstoðar brezkum togurum á sum- arvéiðum þeirra, en mikill hluti brezka togaraflotans er hér við land um þessar mundir. Miranda mun aðstoða togarana næstu sex vikur, en snýr þá aftur til Englands, þar sem það fer í klössun fyrir vetrarúthaldið við Isiand, en hing- að kemur það aftur í desember til aðstoðar og leiðbeiningar brezku togurunum. Samkvæmt upplýsingum brezkra stjórnvalda eru líkur fyrir því að skipinu verði haldið úti árið um kring og mun það þá fylgja brezka togaraflotanum á fjarlæg fiskimið veita sjómönnum læknishjálp, þeg- ar með þarf, gefa upplýsingar um veðurfar og veita aðra tæknilega aðstoð, eins og skipið hefur gert hér við land síðastliðna vetur. Má því vænta þess að Miranda verði viðloðandi hér við land mik- inn hluta ársins. En að sjálfsögðu verður þessi aöstoð ekkj einskorð- uð við lslandsmið einvörðungu. — JH í Genf enn sem komið er, en viðfangsefni fundanna er fyrst og fremst hafsbotninn. Már Elisson fiskimálastjóri er nýkominn heim frá Genf. Hann tjáði blaðinu í morgun, að mest hefði verið rætt um hafsbotninn og auðævi, sem þar kynnu að finnast. Erm fremur væri undirbúin dagskrá landhelgisráðstefnunnar, sem haild- in verður 1973. Dálítið hefði verið komið inn á fiskveiðilögsögu og mengunarmál- in, en ekki að ráði. Hinar nýju tíl- Iögur, sem fram hefðu komið til þessa, fjölluöu nær eingöragu um hafsbotninn, og mætti Mtíð af þeim marka um afstöðu til fiskveiðilög- sögu. Bandariska tfllagan, sem nokkuð hefur verið sagt frá, væri ekinig mjög óljós í þeim efnum. — HH T ölvumar svartsýnar á framfíð mannkynsins Tölvurnar eru famar að I reikna alla skapaða hluti út, — | m. a. hver Mfsskilyrði bíða l mannanna. Tölva ein við hinn heknsfræga tækniskóla MTT i iBoston, reiknaði út að Iffsskil |yrðj héfðu raáð hámarki 1969, i en mundu rýrna úr þvi Ekki er spá tölvunnar í mengunar- | málum heldur falleg. Sjá bls. 8 r i Innrás V-Evrópu undirbúin? Varsjárbanda’agið hefur leyni | lega áætlun um tilhögim inn-, rásar 1 Vestur-Evrópu að sögn' tékkneska herforkigjans Sejna, I sem er landflótta í Bandartkj- j unum. Hann segir í viðtafi við' franskt blað, að herir banda-1 lagsins ætli sér að ná til Rín- j arfljóts á þremur dögum með, mil'.jón manna liði. Þá skrali' gerðar árásir með eldflaugum á | borgir vestar, og síðan geti ( sovézki herinn ráðizt inn t, Frakkland, Beneluxlönd og Bret' land. — sjá irétt á bls. 3 Veizlan hans Omarsi Þessir ungu menn voru í senn taugaóstyrkir og dálítið upp með sér, þar sem þeir stóðu augliti til auglitis við laganna vörð. Það er ekki á hverjum degi, scm þeir komast í leynilögregluhlutverk, en hér eru þeir að gefa lögreglunni upplýsingar um pilta, sem sáust á ferli kringum skúr, sem stendur hjá húsum Öryrkjabandalagsins við Laugarnesveg. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í þessum skúr. Drengirnir gerðu sitt bezta til að upplýsa málið. Ljósm. Ástþór. Ómar Ragnarsson er mikill (flökkufug'. eins og kunnugt er. I Ljósmyndari Vísis kom nýlega að Ómari í veizlu mikilli á I þjóðhátíðinni í Eyjum. Mynder | af Ómari í þessu mikla gildi I í þættinum I skyndi. Sjá bls. 6

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.