Vísir - 11.08.1971, Síða 4

Vísir - 11.08.1971, Síða 4
ALLT ÚRSLiTALEIKIk? Þótt 39 leikjum sé lokið ’i 1. deildarkeppninni og því aðeins 17 eftir af ijinum 56 hafa enn fimm lið möguleika til sigurs í keppninni, Vestmannaeyjar, Keflavík, Fram, Valur og Akra- nes. Eyjamenn standa bezt að vígi, hafa tapað sex stigum, Keflvíkingar hafa einnig tapað 6 stigum, en hafa leikið einum leik minna_ og betri er fengin bráð en séð. Fram hefur tapað sjö stigum, Valur átta og Akra- nes tíu En við skulum nú líta á hvaða leiki þessi lið eiga eftir í mótinu. Vestmannaeyjar: Eyjamenn eiga eftir fjóra leiki — tvo 'i Eyjum, gegn Fram og Akureyri og tvo erfiða leiki á útivöllum gegn Breiðabliki á Melavellinum og £ Keflavík. Leikurinn við Keflvíkinga er 21. ágúst og staðan gæti þá verið orðin slík, að um hreinan úrslita- leik yrði að ræða. Keflavík: Keflvíkingar eiga eftir fimm leiki. Tvo heima, gegn Vest- mannaeyjum og KR, tvo á Laugardalsvelli, gegn KR og Val, og gegn Akureyringum fyr- ir norðan. Síðasti leikur liðsins er í Keflavík 5. september. Fram: 5 Bikarmeistarar Fram eiga eft- ir fjóra leiki — fyrst erfiðan leik í Eyjum um næstu helgi, og þrjá Ieiki, sem verða á Laug- ardalsvelli, við Val og KR, og síðasti leikur liðsins þar verður við Akranes 12. september. Valur: Valsmenn eiga einnig þrjá leiki eftir á Laugardalsvelli — gegn Akranesi, Keflavík og Fram — og svo leik norður á Akureyri. Það verður síðasti leikur liðsins 5. september. • ••••••••• •••••(>«!••••• Akranes: íslandsmeistararnir frá Akra- nesi eiga eftir tvo leiki á heima- veil, sem ættu að geta gefið fjögur stig — gegn KR og Breiðablikj og tvo leiki á Laug- ardalsvelli gegn Val, og Fram hinn 12. september. Þetta eru leikirnir, sem eftir eru og möguleikarnir margir. Og nú er bezt fyrir hvern og einn að spá um úrslit fyrir sig eða aðra — en þess má geta, að fræðilegur mögu’.eiki er á því, að öll þessi fimm lið geti orðiö jöfn og efst með sautján stig. — hsím. Staðan í 1. deild Staðan í mótinu er nú þannig eftir leikinn í gærkvöldi: ÍBV 10 6 2 2 24-12 14 Fram 10 6 1 3 24-14 13 Keflavfk 9 5 2 2 21—10 12 Valur 10 5 2 3 19—18 12 Akranes 10 5 0 5 20—20 10 Akureyri 10 3 1 6 17-22 7 Breiðablik 10 3 0 7 8—26 6 KR 9 2 0 7 6—16 4 Markahæstir eru nú þessir leik- menn: Kristinn Jörundsson, Fram, 8 Matthías Hallgrímsson, ÍA. 8 Steinar Jóhannsson Keflav’ík, 8 Ingi Björn Albertsson, Val, 7 Haraldur Júlíusson. Vestm., 6 Óskar Valtýsson, Vestm. 6 Bréf til blabsins: Ur leik EM í frjálsíþróttum hófst í Hels- inki í gær. Tveir íslendingar kepptu þá. Bjarni Stefánsson hljóp 100 m á 11.0 sek. og komst ekki áfram en tímar í hlaupinu voru yfirleitt slakir. Þá keppti Ingunn Einarsdóttir í 400 m h'aupi og hljóp á 61.3 sek og komst heldur ekki fram. Hugleiðingar að ioknum síðasta landsleik frá Hreggvibi Jónssyni KRR Eru einkenni íslenzkrar knatt- spymu ráðin? Mun varnarleikur einkenna leik landsliðs íslands í náinni framtíð? Þetta eru spurning ar, sem ýmsir knattspyrnuáhuga- menn velta fyrir sér þessa dag- ana. í þeim tveim landsleikjum, sem hér hafa verið leiknir í sum- ar af landsliðinu. hefur varnarleik Svolítið „stressaður“, blessaður? Hann Ómar Ragnarsson er á- reiðanlega svolítið stressaður, blessaður. Hann hefur mikið að gera, og landið er æði stórt. — Hann F.ýgur á eigin vél á milli, — og stundum verða máltiíðirn- urinn verið ráðándi þáttur í leik liðsins. Hver er skýringin? Hefur verið ’.ögð svo rík áherzla á vörn ina vegna þeirrar ástæðu að við stöndum svo langt að baki þess- um þjóðum, erum ekki jaínokar þeirra? Eða verður að leita skýringa á þessu í vali liðsins og röngum leikaðferðum? Ég þykist vita, að allir fyrstudeildarþjálfararnir myndu fúslega vilja koma saman, ásamt framámönnum KSÍ og þeim mönnum öðrum, sem þættu lið- tækir, til að ræða þessi mál sér- staklega og finna leiðir til bóta. í leiknum Island —Frakkland gátu Frakkarnir vegna varnarleiks I- lands t. d. leikið 2—4—4 stóran hluta úr leiknum, af þeirri ein- földu ástjæðu að íslenzka Iiðið ar eins og þessi hér, ísinn í hægri hendi, pylsa í þeirri vinstri, — og á litla puta hang ir skjalataskan hans Ómars. — Myndin var tekin á þjóðhátíð- innj í Eyjum, þar sem Ómar renndi við og skemmti, Þetta atriði var þó utan dagskrárinn- ar. — Ljósm. Ástþór. Bæklingur eftir Benedikt kominn út í Osló 1 blaðinu Nato-Review sem ný- lega er komið út, segir frá nýj- um bæklingi eftir Benedikt Grön dal, Iceland from Neutrality to Nato Membership, heitir hann. Rætt er um varnarmál íslands gegnum aldirnar, sagt frá því þegar íslendingar lýstu yfir „æ- varandi hlutleysi“ 1918, er stóð þö aðeins í 22 ár. Rætt er um stöðu íslands £ NATO. Þá er rætt um viðskipti íslendinga og bandaríska varnarliðsins, einn- ig um Þorskastríðið við Breta, deilur vegna sjónvarps vamar- liðsins o.s.frv. Það er Universiets forlaget í Osló, sem geíur út og kostar bæklingurinn 24 norskar krónur. Oslóborg gegn Hallgrímsturninum Ekki mun Hallgrímskirkjuturn sjást berum augum í Osló. Engu að síður virðast Norðmenn mjög á móti kirkjusmíðinni okkar og lýsti menningarfull- trúi Oslóborgar sig andvvgan því að Oslóborg styddi söfnun- ina, sem stendur yfir í Noregi um þessar mundir Hafa sveitar félögin verið hvött til að kaupa 5000 kr. (ísl). gjafabréf í þessu skyni, en menningarfulltrúinn vill ráða borginni frá slíku bruðli með peningana sína. — Hins vegar megi taka betta til athugunar, verði fulltrúa Osló- borgar boðið til hátíðahaldanna vegna kirkjuvígslunnar. Endan- leg ákvörðun verður tekin í þessu mikla máli á morgun. Endurskoða allt tryggingakerfið Sérstök nefnd manna hefur ver ið skipuð af heilbri'gðis og trygg ingamálaráðuneytinu. Verkefni neíndarinnar er að endurskoða allt tryggingakerfiö, m.a, með það fyrir augum að greiðslur almannatrygginga verði hækk- aðar að því marki að þar nægi til framfæris bótaþegum, sem ekki styðjast við aðrar tekjur. I nefndinni eru þessir menn: Geir Gunnarsson, alþm., formað- ur, Adda Bára Sigfúsdóttir, veð urfræðjngur, Halldór S, Magnús son, viðskiptafræðingur, Tómas Karlsson, ritstjóri og Páll Sig- urðsson ráðuneytisstjóri. Fengu aflp' átinn til að sk’óta sér í land Þegar Flugfélagj íslands tókst ekkj að skjóta amerískum blaða mönnum til Reykjavíkur á laug ardaginn var (ófært var til Eyja) voru góð ráö dýr. En umboðs- manni Loftleiða í Eyjum tókst það sem engum öðrum hefði líklega tekizt. Hann fékk mann aðan aflabátinn Halkion og með honum fóru b’aðamenn til meng inlandsins, og þaðan í bí! til Reykjavíkur eftir vel lukkaða þjóöhátíð. Yfirleitt munu sjó- menn í Evjum ekki hreyfa sig neitt þennan tiltekna laugardag. spilaði svo aftarlega, að bakverð- inir frönsku þurftu ekki lang- tímum saman að spila sem bak- verðir, heldur gátu tekið þátt i sóknaraðgerðum liðsins. I leiknum ísland—England virtist ekkert leik skipulag til hjá íslenzka liðinu, nema ef það skyldi telja að venju iega voru fimm íslenzkir vamar- menn á vítateigslínunni. Liðið lék eiginlega 5—2—2(3) (einn var alltaf týndur). Með slíkri leikað- ferð er ekki hægt að ná undirtökum í leik. Það þýði ekki að teF.a ,,Caro-Kann“ vörn í öllum skák- um án tillits til, hvort heldur teflt er með hvítu eða svörtu eða án tillits til, hver andstæðingurinn er. Hér ætti að nægja að benda á, hvemig Englendingar einangruðu sig. með einhæfu spili og leikað- ferðum og töpuðu á endanum fyrir Ungverjum á Wembley 6—3, 1953 og í Budapest 7—2, 1954. Fyrir síðasta leik var ég á ðnd verðum meiði við val einvaldsins og valdi mér til gamans lið þannig skipað: Markmaður: Magnús Guð mundsson. KR, bakverði: Steinþór Steinþórsson, Breiðablik og Ólaf Sigurvinsson, IBV. Miðverði: Guðna Kjartansson, ÍBK og Þórð Jóns- son KR. Miðjuspilara: Óskar Val týsson, ÍBV og Jóhannes Eðvalds son. Val. Framlínumenn: Atla Héð insson, KR, Harald Júlíusson, iBV, Steinar Jóhannsson, IBK og Tóm as Pálsson, ÍBV. Þetta val er auð vitað gert án þeirra hjálpartækja, sem einvaldurinn og þjálfari lands liðsins hafa yfir að ráða, svo sem þrekmælingar leikmanna og nánari viðtala við þjálfara viðkomandi liða. sem búa yfir upplýsingum um einstaka leikmenn, sem aðrir hafa ekki aðgang að. Eða er valið ekki framkvæmt með þessum hjálpar- tækjum? Ég held að það væri æskilegt, að skipt væri um einvald og þjálf ara landsliðsins með vissu milli- bili til að koma í veg fyrir stöðn un og til að gefa þeim mönnum, sem hafa til að bera þekkingu og lærdóm, reynslu og hæfileika og jafnvel eru viðurkenndir af fær- ustu mönnum í knattspymuheimin um, kost á að spreyta sig. Við eigum mann eins og t. d. Karl Guðmundsson, sem er án efa einn af okkar færustu mönnum á þessu sviði og er starfa einvalds og þjálf ara vaxinn, enda hefur hann marg oft sýnt það. Eða mann eins og Áma Ágústsson. sem nýlega leiddi unglingalið til frækilegs sigurs, i enn eitt skiptið, £ viðskiptum við

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.