Vísir - 11.08.1971, Qupperneq 8
8
VI SIR . Miðvikudagur 11. águst 1971,
WBT:1
Otgefandl: ReyKlaprenr ní.
Framkvæmdastjóri: Svelnn R Eyjólfsson
Ritstjórl: Jónas Kristjánssoo
Fréttastjörl: Jón Birgir Pétursson
PiHtjórnarfulltrúi: Valdimar H. lóhannessoo
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Bröttugötu 3b Simar 15610 11660
Afgreiösla ■ Bröttugötu 3b Sími 11660
Ritstjóra: Laugavegi 178 Simi 11660 f5 linur)
Askriftargjald kr. 195.00 ð mánuði innanlands
r tausasölu kr. 12.00 eintakið
Prentsmiðja Vtsis — Eddp hf
Endurnýjum Geysi
l^andsmönnum til óblandinnar ánægju er Geysir far-
inn að ræskja sig á nýjan leik eftir sjö ára hlé. Ekki
getur hann þó talizt leiðitamur, frekar en fyrri daginn
og þarf bæði mikla sápu og sérstök skilyrði til að
geta gosið. En fyrstu gosin eftir hléið hafa að sögn
sjónarvotta verið með allra myndarlegasta móti og
hafa vakið á ný vonir um, að hægt sé að koma Geysi
í sitt gamla horf.
Geysir var mjög fjörugur í tvo áratugi um síðustu
aldamót, en lá niðri milli 1916 og 1935. Þá var hann
endurvakinn með því að grafa rauf úr hverskálinni
og lækka yfirborð hans. Það minnkaði vatnsþrýst-
inginn í hvernum og auðveldaði honum að ná gosi.
Þessi aðferð tókst mæta vel, þótt hún yrði ekki til
U'.ngframa.
Sigurður Hallsson efnaverkfræðingur ranncakaði
Geysi ýtarlega árið 1958 og einnig við og við síðan
þá. Hann hefur mælt með því, að Geysir verði færður
í sama ástand og hann var í fyrir einni öld með því
að lækka hverskálina. Kísillinn, sem kemur upp i
gosunum, hefur sífellt verið að hækka skálina og gera
hvemum erfiðara fyrir. Með því aö nema kísilinn
burt að nokkru leyti mætti líklega koma Geysi aftur
í sitt gamla og fræga horf.
Sigurður telur þetta eðlilegri og áhættuminni að-
gerð en að bora í hverinn, eins og sumir vilja láta
gera. Hann telur hættu á, að borun geti breytt gos-
eiginleikum Geysis, sem hann er frægastur fyrir.
Trausti Einarsson prófessor, sem einnig hefur rann-
sakað Geysi ýtarlega, telur hins vegar, að bæði borun
í botn hversins og losun kísilsins úr skálinni komi til
greina. Borun í botninn á að hreinsa ii.nrennslisrásina,
sem gæti hafa stíflazt af kísil og aðskotahlutum, sem
fólk hefur hent í hverinn. Slík borun var mjög árang-
ursrík í goshvernum Strokki á sínum tíma.
Skoðanir sérfræðinga eru mjög skiptar í þessu máli.
Fyrir nokkrum árum virtist Geysisnefnd vera komin
á þá skoðun, að óhætt væri að bora, en þá bannaði
náttúmverndarráð, að það yrði gert. Það virðist ein-
sýnt, að fara beri varlega í allar aðgerðir, svo að Geysi
verði ekki spillt. Hins vegar hljóta allir að vera sam-
mála um, að æskilegra sé að hafa Geysi lifandi en
dauðan.
Vísir leggur til, að þeir menn, sem mest hafa rann-
sakað Geysi verði fengnir ásamt fleimm til að gera
vandaða rannsókn á því, hvaða áhrif bomn mundi
hafa, og að sú rannsókn verði látin skera úr um,
hvort borað verði í Geysi. Jafnframt fullvissi vísinda-
mennirnir sig um, hvort óhætt sé að lækka skálina,
og verði það gert, ef niðurstaðan er jákvæð.
í næstu fjárlög þarf að setja nokkra fjárhæð til að
kosta þessar rannsóknir. Á meðan bíða íslendingar
í ofvæni eftir því að sjá Geysi, sinn gamla vin, hraust-
an og hressan eftir aðgerðina.
| TÖLVUR SPÁ ILLA UM
FRAMTÍÐ
) „Lifsskilyrði" náðu hámarki árið /969 og
/ munu svo rýrna, segir tölvan — Mengun
( árið 2060 sex sinnum meiri en nú
MANNKYNS
Tölvur, sem hafa fengiö
mengunarmál og önnur
vandamál til meðferðar, spá
ekki jðu um framtíð mann-
[ kyns. Edward Pestel prófess-
or í Hannover skýrði blaða-
mönnum fyrir skömmu frá
niðurstöðum. Mengun mun
samkvæmt tölvunum ná há-
marki árið 2060 og þá vera
sex sinnum meiri en nú er.
Reikningsdæmið, eða
„módelið" sem við er miðað
er kennt við Forrester nokk-
um prófessor við tæknihá-
skólann í Massacusetts,
MIT. Þar em fjórir þættir at-
hugaðir: Uppurð hráefna jarð
ar, mengun, offjölgun og
matvælaskortur.
„Ólgan í heiminum, af
því ’.ð við erum á niður-
leið“
Tölvan fjallaöi um lifsgæöin
í almennum skilningi, svo sem
efnahag fólks, matvæli á hvem
mann á jöröunni og þéttbýli
og mengun. Samkvasmt þeim niö
urstöðum náðu „lífsskilyrði“ há
marki árið"Í969. "Pesteí Segir
1 Ef' tiI viiréf '-V&andi''ÖYga^ r1
heiminum til komin af því að
við finnum, að við erum á niður
leið.“
Fræðimenn verða að sjálf-
sögðu að semja þau dæmi, sem
tölvan fær til lausnar. Hvort
niðurstaðan er raunhæf, fer eítir
þvi hvort uppsetning dæmisins
er raunhaef eða ekki. Þeir geta
til dæmis metið á grundvelli
þróunar á undanfömum árum
og áætlunum um framtíðina,
hversu hröð iðnvæðingin verði
í heiminum næstu áratugi eða
öld. Síðan geta þeir byggt á
niðurstöðum tölvunnar um iðn-
væðingu og reynt að reikna,
hve mikil mengunin verð; orð-
in, þegar tiltekinn fjöldi iðju
vera hefur bætzt við á jörð-
inni. Til dæmis má segja, aö
til þess kom; að iðjuverin verði
orðin svo mörg og spúi slíkri
eimyrju yfir mamnkyn að ekki
verður íengur unnt að bæta
lífskjör fólks með því aö fjölga
iðjuverum á jörðinni.
Skref, sem þá yrði tekið til
að bæta „Iffskjör" mundi valda
„mengunarkreppu'* og leiða til
þjóðfélagslegra byltinga og
hruns
Hlýða menn kallinu um
hófsemd í framleiðslu-
aukningu og fólks-
dæmis þyrftu menn að sætta
sig við að draga úr framleiðslu
aukningu á vélum og fjárfest
ingu almennt um fjörut'iu af
hundraði og draga úr aukningu
matvælaframleiðslunnar um tutt
ugu af hundraði, segir Pestel.
Það þýðir ekki, að framleiðslan
minnkj heldur að framleiðslan
með fjölgun iðjuvera.
þurfi að vaxa um 40 eða 20
prósentum hægar en hún nú
gerir. Auk þess þyrfti að draga
mjög úr fjölgun fólks.
Mannfjöldinn óbreyttur,
um 3500 milljónir
„Þá væri unnt,“ segir Pestel,
„að halda mannfjöldanum f
heiminum stöðugum eitthvað
nálægt 3500 milljónum manna.
Þá mundi mengun varla aukast,
auðlindir mundu þverra mjög
hægt, og eftir nokkura hnign-
un á núverandi tug aldarinnar,
mundu lífskjör í víðustu merk-
ingu fara aftur batnandi."
„Því miður bendir ýkja margt
til þess, að þjáningar mannkyns
verði að verða til mikilla muna
meiri, áður en slíkar aðgerðir
verða gerðar til að draga úr
hagvextinum."
„En rannsókn okkar sýnir, að
það er mjög vafasamt, hvort þá
yrði enn tækifæri til að sigrast
á vandanum. Vandamálið yrði
þá orðið ógurlegt, og gæti ver-
ið orðið of seint fyrir okkur
að snúa við blaðinu og gera
það, sem þarf til að við getum
varðveitt núverandi lífsskilyrði
okkar.“
Klaus Boisseres mengunarsér
fræöingur skýrði þingnefnd þar
fyrir skömmu frá niðurstöðum.
Hann sagði, að mengunin væri
að komast á algert hættustig i
sumum borgum landsins oghún
heföi f sumum þeirra farið yfir
markið.
Fjölmargir sérfræðingar hafa
bent á hættu þá, sem heiisufari
fólks stafar af mengun. Hans
Werner Sohlipköter í DUssel-
dorf segir, að mengun í Ruhr-
héraðinu sé þegar farin að
koma fram f heilsuleysi bama.
„Það er sannað,“ segir hann,
„að efni, sem valda krabba-i
meini, eru f ioftinu, sem bömin
anda aö sér."
Grimmer prófessor)' Hamborg
tekur fyrir hina feikilegu aukn
ingu á dauðsföllum af völdum
krabbameins í lungum f Vestur-
Þýzkalandi. Þessi dauðsföll eru
nú þegar tvöfalt hærri en dauðs
föl'i í umferöarslysum og fjöldi
þeirra tlfaldast á aðeins tíu
árum.
Orsakir vaxandi dauðsfalla af
völdum krabbameins teiur hann
einkum vera umhverfisþætti,
svo sem sígarettureykingar og
mengun í stórborgunum. Efni,
sem valda krabbameini, fyrir-
finnast ’i útblæstri bifreiða, reyk
IIBBBHimi
Umsjón: Haukur Helgason
fjölgun?
Tölvan fékk margs konaar
verkefini af þessu tagi til með-
ferðar eða eins og sérfræðingar
kalla, var „prógrammeruð‘‘ á
ýmsan hátt. Hagstæðari niður-
staöa fékkst ekki en sú. að
unnt yrði að viðhalda núverandi
lífskjörum í víðustu merkingu.
með þvi að gerðar yrðu ýmsar
róttækar ráðstafanir. „Það er
hins vegar mikið efarnál," seg
ir Eduard Pestel, „hvort fólk
nútímans verður reiöubúið til að
Wýða kallinu um hófse.rni.“ Ti!
„Efni, sem valda krabba,
í loftinu, sem börnin
anda að sér“
Mengun er vandamál, sem
mönnum er tíðrætt um Hún
lætur i vaxandi mæli á sér
kræla og tekur to’l. Ein afleið
ingin er krabbamein, og hefur
nýlega verið skýrt frá athugun
um í stórborgum Vestur-Þýzka-
lands á sambandinu millj vax-
andi mengunar og vaxandi
dauðsfalla af völdum krabba-
meins.
frá brennandi hlutum, svo sero
í bræösluofnum iðjuvera. olíu
ofnum, þegar oiían brennur ekki
a'.veg upp. Hann leggur áherzlu
á. að bæta þurfi olíuhitun, svo
að brennsluefnið brennj jafnan
alveg upp.
Dr. Zahn, sem starfar við
Hoechst-efnaverksmiðjurnar i
Frankfurt hefur fja'.lað um hætt-
una, sem grænmetj og gróðri
stafar af mengun. Hann teiur
að 35 þúsund hektarar af
skóglendi hafi orðið fyrir spjöl.l
um af völdum mengunarinnar.