Vísir - 12.08.1971, Blaðsíða 6
6
VISIR . Fimmtudagur 12. ágúst 1971.
viiiE m-
Eruö þér samþykkur
eða andvígur aðgerðum,
sem miðast að því að fá
Geysi til að gjósa?
Hilmar Þormóðsson, prófarka-
lesari: — Ég hef ekki myndaö
mér neina skoöun á því. En vit-
anlega væri það ósköp gaman,
að hægt væri að fá hann til aö
gjósa eitthvaö aö gagni. Þaö
hlyti líka að geta laöað að er-
lenda feröamenn í ríkara mæli.
Jónas Jónasson, verkamaður: —
Slíkum aögerðum er ég og hef
alltaf verið sammála. Geysir er
jú eitt mesta þjóðarstolt okkar
og honum veröur að halda við
efnið.
Guðmundur Guðmundsson á
Hæli: — Ég tel það ekki vera
æskilegt að hrófla við honum.
Slikt gæti veriö allt eins til ó-
lukku.
Jón Þóroddur Jónsson, verk-
fræöingur: — Aögerðum er ég
andv'igur. Náttúran á að hafa
sinn gang á þessu og mannlegur
máttur ekki að koma þar nærri
— hvorki með sápu né annað.
Loftur Jónsson, bankastarfs-
maður: — Það á að láta Geysi
vera eins og hann er og hefur
verið. Hvorki bora í hann eða
höggva. Hins vegar held ég aö
sápa þurfi ekki að vera honum
svo skaðvænleg.
Örn Friðriksson, skrife ofumað-
ur: — Mér er bvo nákvæmlega
sama hvað þeir gera með Geysi
og það skiptir mig hrei-t engu
máli. þó að þeir séu að dæla í
hann sápu.
VEUUM (SLENZKT
fSLENZKAN IDNAÐ
.❖Xv.vlv.v.v.w.v.v.v.v.v.v.v.v
v.v.v.v.v..«. .v.
W.vXv.svwK!
%iiiiiiiiiiiiiiii:%iiiiiii&iiiiiiii
íwKvKiwffl'
Þakventlar
Kjöljám
::W:
iW:
$•!
»:•:•:•:
Kantjám
ÞAKRENNUR
K«ww;v;v;v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v
wXvXVXVX-XwXwXvXvXvX'XvXvXvXVX
----/roSmurbrauðstofcm I
* iT *
BJORNINIM
Njálsgata 49 Sími 15105 |
Jamboree í Krísuvík
Nú um helgina (13 — 15. ágúst)
munu skátarnir á Keflavíkurflug
velli gangast fyrir Jamboreemóti
í Krísuvík. Verður þetta fyrsta
mótið. sem amerískir skátar
gangast fyrir.
Þar sem mjög takmarkaöur
tími var til stefnu, var þvT mið-
ur ekki hægt að koma út aug-
^ýsingu til íslenzku skátanna,
en við viljum nota þetta tæki-
færi til að bjóða þá velkomna
á þetta fyrsta mót okkar.
Mótið verður sett kl 20.00 á
föstudag. Mótsgjald er mjög
vægt, aðeins kr. 100.
Þeir skátar, er kynnu að hafa
áhuga á þessu móti, eru beönir
um að tilkynna þátttöku í
kvöld, milli 6 og 11 1 síma
11271 í Reykjavík.
Lágmarksverð hækkar
Verð'.agsráð sjávarútvegsins
hefur lokið endurskoðun lág-
marksverðs á bolfiski, flatfiski
og skelfiski samkvæmt ákvæð-
um bráöabirgöalaga frá 2. júlí
1971 um breytingu á lögum nr.
79 31. desember 1968, um ráð-
stafanir 1 sjávarútvegi vegna
breytingar gengis íslenzkrar
krónu og um hækkun á aflahlut
og breytt fiskverð.
Samkomulag náðist ekkj i
Verölagsráðinu en i yfirnefnd
ráðsins varð samkomulag um
eftirfarandi breytingar á lág-
marksverði er gildir frá 1. ágúst
1971:
Þorskur hækkar
grálúða hækkar um
..................... í
kol; um 11%. Aðrar fisktegund-
ir hækka um 18.3%, þar á meö-
al humar rækja og hörpudiskur.
Við framangreindar verðhækk
anir er tekið tillit til niðurfell-
ingar á greiðslu hlutdeildar í
útgerðarkostnaði samkvæmt 3.
gr. laga nr. 79/1968, sem var
11% til viðbótar auglýstu lág-
marksfiskverði
Birkibeinar halda skáta-
mót í Mosfellssveit
Á föstudaginn hefst að Bring-
um í Mosfellssveit 7. haustmót
Birkibeina og stendur það til
sunnudags. Aö Bringum, sem er
skammt frá Gljúfrasteini er
fallegt umhverfi og vonast skát-
amir til að geta haldið þarna
gott skátamót og hafa vandað
mjög ti'l mótsundirbúningsins.
Tjaldbúðirnar verða settar upp
í stíl við ramma mótsins, sem
er grísk og rómversk fornmenn-
ing. Þó getur Sínalkó-flaskan í
mótshliðinu ekki flokkazt undir
þá menningu, en mótsgestir fá
að spreyta sig á að ná henni
niður, en henni halda Gordíons-
hnútar miklir sem ekki má
höggva á.
Ódýrari
en aárir!
ÍKODfl
LEIOM
44-4 6.
SÍMI 42600;
J. B. PETURSSON SF.
ÆGISGÖTU 4-7 ^ 13125,13126
LÆKNAR OF RÍF-
LEGIR Á DEYFIL YF
Ég er enginn eiturlyfjaneyt-
andi. Það er hins vegar kannski
ekki svo undarlegt þótt fólk,
sem þarf mikið á sterkum, ró-
andi lyfjum að halda, venjist á
þau til langframa. svo örlátir,
sem læknarnir virðast á þessi
lyf.
Ijg sá að skrifað var um þessi
mál í dálknum um daginn og
vil gjarnan taka undir það, sem
þar kom fram. Læknar þurfa að
gæta mikiu meiri varúðar, en
manni viröist þeir gera varðandi
róandi lyf og taugalyf, sem notuð
eru. Ég hef sjálf þurft mikið á
þess konar lyfjum að halda. En
ég treysti læknunum ekki alls
kostar og ráðfæri mig gjarna við
fleiri en einn lækni og helzt
lyfjafræðing um meðferð þeirra.
Stundum dettur manni í hug,
að gróðasjónarmið ráði nokkru
um lyfseðlaútgáfu læknanna
Frú í austurbænum.
BRJÓTAST HVAÐ
EFTIR ANNAÐ
INN í DÚFNAKOFA
Góði þáttur!
Ég er fimm bama móðir í
Breiðholti. I sambandi við grein,
sem „dýravinur" birti á föstu-
daginn var, get ég bætt við svo-
lítilli sögu. Sonur minn, tíu ára,
hefur undanfarin þrjú ár átt
nokkrar dúfur. sem hann hirðir
um í litlum snyrtilegum kofa,
með tilheyrandi stíu 'i garðinum
okkar. Ég er búin að týna töl-
unni á öllum þeim innbrotum
sem gerð hafa verið í kofann
hans, þar sem dúfunum hefur
verið stolið. í hvert skiptj hefur
sorgin verið mikil og vonbrigð-
in
Nú síðast fyrir tíu dögum voru
teknar frá honum al’ar falleg-
ustu dúfurnar. sex talsins allar
hvítar. Tveim svörtum var skil-
að aftur. Að auki voru tekin
þriggja vikna gamail ungi og
tvö egg. Unganum hefur strák-
urinn minn að hálfu leyti ungað
út sjálfur og varð miki1] missir
að honum. Og hann var nvbúinn
að kaupa sumar af dúfunum
fyrir kaun. sem hinn hefur unn-
ið fyrir með því að bera út Vísi.
Hann hefur safnað í marga
mánuði til þess að geta keypt
þessar dúfur.
Þessir drengir, sem brutu
upp kofann, virðast hafa sanna
ánægju af að kvelja fuglana.
Þeir geyma fuglana nokkra daga
og fara svo með þá langt í burtu
frá staðnum, þar sem þeir stálu
þeim og sleppa þeim þar. Vesa-
lings dúfurnar rata svo ekki
heim aftur og slást i hópinn með
villtum dúfum. Síðan eru þær
miskunnarlaust drepnar
Ef nú á í þokkabót að taka
frá börnunum hundinn þeirra,
sem þau hafa miklar mætur á,
þá veit ég satt að segja ekki
hvað á að gera til að kenna börn-
um ábyrgð í lífinu. þegar svo
oft hefur verið raskað trú þeirra
á það góða á jöröunni.
„Annar dýravinur".
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KL13-15