Vísir


Vísir - 17.08.1971, Qupperneq 5

Vísir - 17.08.1971, Qupperneq 5
VÍSIR. Þriðjudagur 17. ágúst 1971. 5 Áhyggjuleysi sumarsins er nú að bak: og tekið til að nýju við knattspymuna. Nokkrir leikmenn Arsenal myndaðir í góðum félagsskap í sumar. Fremst eru Bob Wilson markvörður og Charlie George (tii hægri), sem skoraði úrslitamarkið í bikarkeppninni. Meistarar Arsenal eins og þeir — Sigruðu Chelsea með 3-0 á Highbury — Fyrirliðinn Frank McLintock, knattspyrnu- maður ársins, skorabi fyrsta markið Þá er knötturinn byrjaður að hoppa og skoppa á Englandi á ný. Deildakeppnin hófst á iaugardag- inn og það er ekki aðeins á Bretlandseyjum, sem keppnin vekur athygli, heldur um allan heim. — Menn setjast spenntir við útvarpstækin á kvöld- in, taka niður úrslit leikja, og meta horfur og útlit. Enska knattspyrnan er ekki aðeins knattspyrna í þeirri merkingu, sem venjulega er lögð í orðið — hún er miklu meira — því hin velskipulagða deilda- keppni er í fjölmörgum löndum notuð sem helzti stofn getraunastarfsemi og það eykur gildi henn- ar að miklum mun. Rétt úrslit leikja hafa fært mörg um stóran glaðning í því stóra happdrætti, sem það er að gizka rétt á 12 rétta, átta jafntefli eða fjóra útisigra eftir því hvaða form getrauna notað er. i vor En við skuluni ekki hafa þenn an formála lengri, heldur snúa okkur að leikjunum á laugar- 'daginn, og þá, er eitt vist. Meist- aralið Arsenal var lið dagsins — það byrjaðj keppnina nú'eins og það lauk hepni í vor — vann stórsigur gegn öðru Lundúnaliði Chelsea á leikvelli sinum í Hig'hbury. Það var hvasst í Lundúnum, þegar leikurinn hófst kl. þrjú á laugardaginn og tæplega fimm- tíu þúsund áhorfendur höfðu komið sér fyrir á hinum miklu áhorfendasvæðum. Arsenal lék undan vindinum i fyrri hálfleik og sótti þá miklu meir og sýndi stórgöða knattspyrnu. Enginn lék betur en George Graham, þessi leikni, skozki framvörður, sem dreif spil liðsins áfram með góðum sendingum. Arsenal skor- aði eitt mark í hálfleiknum og var fyrirliðinn Frank McLintock þar að verki á 16. min. Fleiri voru tækifærin, sem ekki nýtt- ust Hinir fjölmörgu aðdáendur Chelsea voru þö bjartsýnir i hléi á góðan árangur, þar sem liðið lék undan vindi síðari hálf- leikinn. Og framan af sótti Chelsea miklu meira — án þess þó, að skapa nokkra verulega hættu fyrir vörn Arsenal. Og svo allt í einu sneru „The Gunn- ers“ vörn í sókn, einmitt, þegar Chelsea hafðj sótt hvað stífast — John Radford lék upp og gaf, til Ray Kennedy upp undir víta- teig og hinn ungi miðherji, sem' skoraði 19 mörk í deildinni síð- asta keppnistímabil, spyrnti við stöðulaust á mark. Peter Bon- etti hafði enga möguleika að verja fast skot hans. Staöan var 2—0 og eftir það var leikurinnn Arsenals. Liðið sýndj glæsilega knattspyrnu og á 35. mín. skor- aði Radford þriö.ia markið Hann tók knöttinn snilldarlega niður — jafnvel sjálfur Puskas heföi mátt öfunda hann — lék á mót- herja og skoraði með fallegu vinstri fótar skoti. Hinn nýi söngur Arsenai hljómaði þá á- kaft af áhorfendapö’lúnum „You’ll never walk alone“. Og það verður áreiðanlega ekki í síðasta sinn, sem hann hljómar þar kröftuglega f vetur. En þar sem þetta var fyrsti leikur þessara frægu liða skul- urn við aðeins Ifta á hvernig þau voru skipuð í leiknum. ARSENAL — Wilson, Rice, McNab, Storey, McLintock, Simpson. Armstrong, Kelly, Kennedy, Graham, Radford. (Kelly, lék í stað Charlie George, sem er meiddur). CHELSEA — Bonetti, Harris, McCreadie, Hollins, Webb, Dempsev, Hud- son, Smethurst, Osgood, Ba’d- win og Houseman. Úrslit í leikjunum í 1. og 2. deild urðu þessi: i 1 Arsenal --Chelsea 3 - 0 Coventry—Stoke 1—1 Crystaj P. — Newcastle 2—0 Derby —Manch. Utd. 2 — 2 Huddersfield —Leicester 2 — 2 Ipswich—Everton 0—0 Liverpool—Nottm. For. 3—1 Manch. City —Leeds 0—1 Sheff Utd. —Southampton 3—1 West Ham,—W.B.Á 0-1 Wolves—Tottenham 2—2 2. deild: Blackpool — Swindon 4-1 Bristoj City—Mi'.lvall 3—3 Cardiff — Burnley 2—2 Carlisle—Preston 0-0 Charlton—Hull City 1—0 Fulham —Watford 3-0 Luton — Norwich 1—1 Oxford—Orient 1—1 Portsmouth — Middlesbro 2-1 Q.P.R. — Sheff. Wed 3-0 Sunderland -Birmingham 1-1 Og einn leikur var háður í gærkvöldi, mánudag: Blackpool vann Cardiff 3—0 ■ Hf s Willie Stevenson, sem fót- broínaði skömmu eftir ára- mót, er byrjaður að leika með Stoke að nýju. Willie lék frábærlejja vel hér. á Laugar- dalsvelli með Liverpool fyrir nokkrum árum. Eins og við munum þá komust Sheff. Utd. og Leicester upp í 1 deild, en Burnley og Black- pool féllu niður í 2. deild. Upp úr 3. deild komust Preston og Fulham. Leeds — aðalkeppinautur Arsenal um meistaratitilinn í vor — vann góðan sigur á Maine Road í Manchester. Þetta var harður leikur, en þó vel leikinn. Eina mark Leeds skoraði Peter Lorimer eftir undirbúning gömlu kempunnar. Jackie Charlton. Hann var bókaður f leiknum á- samt Hunter hjá Leeds, og Lee og Doyle hjá City. Manch. Utd. kom á óvart V fyrri hálfleik gegn Derby, en þann leik fáum við að sjá í ís- lenzka sjónvarpinu á laugardag. United hafði tvö mörk yfir í hálfleik og skoraði Denis Law fyrra markið á, 14. mín., en stúdentinn Alan Gowling hið síðara á 35 mín. — hvort tveggja eftir hornspyrnur Bobby Charlton. En leikmenn Derby gáfust ekki upp og þeim Kevin Hector og John O’Hare tókst að jafna. Það verður því eitthvað að sjá í þessum leik. Annar leikur, sem einnig var mjög spennandi, var V Wolver- hampton, þar sem Ulfarnir léku gegn Tottenham-liðinu, sem hingað kemur 14. september til að leika við Keflvíkinga. Úlfarn- ir skoruðu tvö fyrstu mörkin í leiknum og voru þar að verki Bobby Gould og Derek Dougan. En Tottenham, sem enskir blaða menn spá miklum frama í vetur, tókst að jafna rétt fyrir lokin. Martin Chivers skoraði á 80. mín. og fimm mín. siðar Alan Gilzean jöfnunarmarkið. Keven Keegan, sem Liverpool keyptj'í' sumar fcárScunthorpe' f 4. déild fýrir 3S«þúsund pund að mig minnir. kómst beint V aðalliðið og sýndi fljótt, að hann var þess trausts verður. Hann skoraði fyrsta mark Liverpool þegar á 12. mín og kom liðinu á sigurbraut. Síðan skoraði fyrir- liði Liverpool, Torpmy Smith úr vítaspyrnu, og Emlyn Hughes þriðja markið. Eina mark Forest skoraði Ian Storey-Moore. WBA byrjaði vel undir stjórn síns nýja framkvæmdastjóra Don Howe og sigraði með eina markinu í leiknum sem mark- hæsti leikmaðurinn í 1. deild á síðasta keppnistímabili, Tony Brown skoraði. Don Howe var áöur aðalþjálfari Arsenaj og átti mikinn þátt ’i velgengni liðsins. Áður fyrr var hann kunnur landsliðsþakvörður hjá WBA áður en Arsenal keypti hann fyr- ir 45 þúsund pund, sem þá var metupphæð fyrir bakvörð. Liðin, sem komust upp f 1. delid, stóðu sig bæði vel. Sheff. Utd. vann Southampton örugg- lega, og Leicester náðj jafntefli í Huddersfield. Þar skoraði All- ister Brown, miðherji Leicester, mark eftir aðeins 80 sek. og það var fyrsta markiö sem skorað var i deildakeppninni á þessu keppnistímabili. Síðan skoraði fvrirliði Leicester Nish á 16. mín., en þeim Frank Worthing- ton og Cherrv tókst aö jafna fyrir Huddersfield. Beztu menn Leicester voru þeir Bobby Ke'iard og Jon Sammels. sem Leicester keypti í sumar frá Arsenal fyrir 100 þúsund pund. Eitt alvarlegt slys varð á laug- ardaginn. Park hiá Sunderland tvíbotnaðj á fæti ’i leiknum gegn Birmingham. Þannig skipt- ast á skin og skúrir í ensku knattspyrnunni sem ööru. Á Skotlandi var það merkilegást, aö Celtic sigraöi Rangers 2—0 í deildabikarnum. — hsítn.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.