Vísir - 17.08.1971, Side 13
VI S I R . Þriðjudagur 17. ágúst 1971.
Ingin
a flokks
Þetta var útkoman, þegar Vísir slóst í för með
yfirmatsmanni garðávaxta og leit inn í átta
verzlanir í Reykjavík, sem verzla með græn-
meti og ávexti m.a. Visnaðir hvítkálshausar,
myglaðir ávextir, vanþekking og furðuleg
framkoma er það, sem neytandinn getur jafn-
vel búizt við.
TTtkoman varð svo sannarlega
ekki góð, þegar Vísir heim-
sótti átta verzlanir, sem verzla
með grænmeti, einn sólskinsd.
fyrir helgina í fylgd með yfir-
matsmanni garðávaxta. Edva’.d
B. Malmquist. í stuttu máii upp-
fyllti engin' þessara verzlana,
sem valdar voru af algjöru
handahófi, þær kröfur, sem gerð
ar eru til fyrsta flokks verzlana,'
sem verzla með grænmeti í ná-
grannalöndum okkar. Það var
ekki um að villast, að enn erum
við eftirbátar annarra þjóða ’i
viðskiptum og viðskiptaháttum.
Fáfræði kann að eiga mikla sök
á, ónóg menntun verzlunarfólks
og almennt kæruleysi, sem ekki
er auðvelt að finna skýringu á
i fljótu, bragði.
30 stiga hiti
Tvær verzlanir komust nokk-
urn veginn skammlaust í gegn-
um þessa skoðun. Þó ekki svo,
að viðskiptavinur gæti gengið
.þaðan út fullkomlega ánægður
með viðskipti á grænmeti og á-
yöxtum. í annarri var kælingu
í kæliborði áfátt og flokkun á
tómötum en í hinni sást á ávöxt-
um og grænmeti. En þetta voru
smámunir á við þaö, sem blasti
við annars staðar. Geymslu
grænmetisins i verzlunum var
vfða ábótavant Það var látið
standa í sólinni, sem skein hvað
heitast gegnum flannastóra
glugga — á einum stað var því
komiö fyrir á miðstöðvarofni út
við glugga. Á enn einum stað var
18 stiga hiti V kartöflugeymsl-
unni, sem var lítil hola undir
gólfi. Sölnaðir hvítkálshausar,
vatnsoósa melóna, skemmdir á-
vextir og myglaðir, sem græn-
meti nokkurn veginn ferskt, eða
eins og það gat verið, hafði ver-
ið lagt ofan á blasti við í einni
verzluninni. Þar voru gluggar
það stófir að búast má við, að
hiti fari þar upp í 30 stig, á sól-
skinsdögum eins og hafa verið
undanfarö
Bráðinn ís I
„kæliborðum“
Kæ'.ing í kæliboröum var við-
ast hvar l’itil eða engin og jafn-
vel var ekki hægt að finna að
„kæliborðin” væru kæld, en þaö
er óneitanlega grunsamlegt að
finna bráðinn ís í ,,kæliborði“
og hálfþiðnuð „frosin“ svið.
Viðkvæmt grænmeti eins og t.d.
salat lá á afgreiðsluborðum í
stað þess að vera geymt í kæli
í vatni eins og við sáum í einni
verzluninni, of mikið hafði verið
pantað af papriku á einum stað,
en þar mátti sjá bakka með
hrúgu af skorpinni papriku, en
á miða stóð ,ný paprika’. Ný pap
rika fékkst að vísu í verzlun-
inni. miðalaus.
Það var greinilegt á öllu, sem
við sáum, að íslendingar kunna
ekki að umgangast grænmeti
•:■■****$: • . $ i ■ >. \ víwfe . v. . ■
'
í » im
il'* ' •
Bezti kaelirinn
fyrirmyndar.
kæling í lagi og grænmetiö í vatni
til
Grænmeti geymt á mygluðum ávöxtum
.. .visnaðir hvítkálshausar.
og jafnvel ekki aðra vöru, kjöt
vöru t. d. En það verkar afar
einkennilega að verða var við
að verzlunarstjórar eða kaup-
menn skuli ekki sjá sér hag í
þvi að hafa frambærilega vöru
á boðstólum og kunna að panta
inn hæfilegt magn, sem ekki
skemmist eða rýrnar hjá þeim.
Rýrnun grænmetis í verzlunum
er hins vegar ekki einkennileg,
þegar mið er tekið af geymslu.
Að einhverju leyti munu við-
skiptavinirnir bíða tjón af
þessum geymsluháttum.
„Að skíta út búðina“
Annað, sem kom illa við mann
var viðmót afgreiðslufólks í
einni verziuninni. Þegar skýrt
var frá því að ætlunin' væri að
skoða vöruna en ekki kaupa
hana gaþ við í uqgri afgreiðslu-
stúlku: „Hún er aö sk’ita út
búðina hérna“. — Já, viðskipta-
vinurinn hefur ekki leyfi fyrir
afgreiðslufólki að líta á vöruna
— hvað gerðist ef hann kæmi
með aðfinnslu? Þvi er auðvelt
að svara, ef um konur er að ræða
eins og í flestum tilfel-lum, er
hún „frekjudós". Þvf miður
þekkist þessi frumstæði verzl-
unarmáti ennþá.
Neytendur láta bjóða sér
lélega vöru og skemmda
Hvað hefur Edvald B. Malm-
quist að segja um ástandið:
„Það eru ekki 25 ár síðan is-
lenzkt grænmeti og ávextir yfir-
höfuð urðu algeng verzlunar-
vara í matvörubúðum. En nú hin
síðari ár sem betur fer, hefur
oröið á þessu stór breyting, þv*i
séu ekkj kartöflur eða grænmeti
fáanlegt er það flutt inn. Það
mun hafa verið i fyrsta sinn
síðasta vetur, að Grænmetis-
verzlun landbúnaðarins flutti
inn nokkurt magn af tómötum
og blómkáli m a. í svartasta
skemmdeginu, þegar íslenzkt
grænmeti var ófáanlegt Með
öðrum orðum má segja, að við
getum nú veitt okkur þann
munað, sem veriö hefur i áratugi
hjá nágrannaþjóöum okkar, og
er það vel farið ekki sizt með
tilliti til hins langa skammdegis,
sem við eigum við að búa. En
þessari þróun er nauðsynlegt
að fylgi sérstök vöruvöndun og
meiri þekking hjá húsmæðrum
um það hvernig hægt er að
hagnýta og geyma þessa nauð-
synlegu fæðutegund. Og ég vil
aðeins skjóta því hér inn í, að
reginmunur er hér á húsmæðr-
um og 'i nárannalöndum okkar,
sérstaklega í Danmörku hvað
þær virðast setja sig vel inn í
og hafa góða þekkingu á græn-
meti, ávöxtum og matvælum al-
mennt Hér virðist menntun is-
lenzkra húsmæðra ekki hafa
fylgzt með ttmanum, en það
segir sig sjálft. að það er 'hús-
móðirin sem ræður fjármagni
heimilisins allt að 60—70%
hvað þetta snertr. Á þetta minn-
ist ég vegna þess, að það er ó-
kleift fyrir grænmetismatið,
verðlagseftirlitið eða annað eft-
irlit hvort sem um er að ræða
gæði vörunnar eða verðlag að
fylgjast nægilega með og skapa
tilhlýðilegt aðhald nema hús-
mæðurnar sjálfar — hirin al-
menni viðskiptavinur, komi hér
til líka. Þegar framboð er
minna á markaðnum þú er
mjög áberandi hvað neytendur
láta að sér rétta af lélegri vöru
og oft og tíðum má segja
skemmda
Þekking verzhmarfólks
af skornum skammti
Af því að minnzt er á hús-
mæður í þessu sambandi er ekki
síður ástæða til að benda á að
þekking verzlunar- og afgreiðslu
fólks virðist mjög af skomum
skammti og því umhirðu með
þessari viðkvæmu vöru mjög
ábótavant í mörgum tilfellum."
— Hvaða reglur eru um
geymslu grænmetis?
„KartÖflur ásamt grænmeti
eiga tvimælalaust að geymast
á meðan á dreifingu stendur í
loftgóðum. kældum kistum eða
skápum og i mörgum tilfellum
innpakkað i sellófan, ef það
hentar svo sem fyrir gulrófur,
gulrætur, blómkál o fl. og
geymist þannig við rétt rakastig.
Þannig getur viðskiptavinurmn
litið yfir það grænmeti, sem á
boðstólum er og valið sér sjálf-
ur eftir þörfum.“
— Hvert er geymsluþol inn-
pakkaðrar vöru?
„Innpakkað grænmeti þolir
yfirleitt ekki nema 2—3 daga
geymslu Þess vegna eru vand-
ræðj með að pakka vörunni inn
í smærri verzlunum þar sem
umsetning er minni. Þegar talað
er um meðferð grænmetis al-
mennt skulum við undanskilja
t. d. tómata og banana. Þroska-
stig þessara ávaxta er að þróast
allt þar til neytandinn tekur við
vörunni og jafnvel eftir að hún
er komin í hendur hans. Það er
þvf orðin stórskemmd á bæði
tómötum og banönum, þegar
hýði banana fer að dökkna og
ávöxturinn verður gegnummeyr,
sama er með tómata. að gæta
verður þess að þeir séu ekki o?
þroskaðir þegar sala þeirra á
sér stað, ef þeir eiga að vera
hæfilegir til niðurskurðar þegar
á borð neytandans kemur.“
Og f lokin kemur Edvald
Malmquist með Ijósan punkt og
það er, að yngri konur virðast
vera orðnar sér meira meðvit-
andi um hvað þær megi ekki
láta bjóða sér í viðskiptum og
það er vonandi að nógu margar
„frekjudósir“ af báðum kynjum
finnist til að aðstoða grænmetis-
matið við að koma á vöruvönd-
un í verzlunum, til þess að hægt
verði að finna þó nokkrar
fyrsta flokks verzlanir í Reykja-
vík þar sem er hægt að ganga
að óskemmdu grænmeti og öðr-
um nauðsynlegum garðávöxtum.
— SB
Flaggað á skorpinni papriku.