Vísir - 18.08.1971, Side 8
8
t isik, imovncuaagur 18. ágúst 1971,
Otgefandi: Reykjaprent nf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R EyJóJfssoo
Ritstjóri - Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannessoo
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar : Bröttugötu 3b Simar 15610 11660
Afgrelösla- Bröttugötu 3b Slmi 11660
Ritstjóf!): Laugavegl 178. Siml 11660 f5 Unur)
Askriftargjald kr. 195.00 ð mánuði innanlands
t lausasöíu kT. 12.00 eintakiö
P-entsmiíMa Vfsfs — Fdds hf
I glervörubúðinni
íslendingar hafa ótal hagsmuna að gæta á alþjóð-
legum vettvangi. Margir þessara hagsmuna stang-
ast á við hagsmuni annarra þjóða og geta orðið tilefni
vandamála. Sem betur fer hefur okkur oftast tekizt
að gæta hagsmuna okkar um leið og við höfum haldið
vináttu og samstarfi við allar nágrannaþjóðirnar.
Þegar hagsmunirnir stangast á, verða vandamálin
viðkvæm og vandasöm. Samskiptin minna þá á göngu
um glervörubúð, þar sem menn verða stöðugt að gæta
þess að reka sig ekki á brothætta muni. Nú hafa brot-
hljóð heyrzt úr glervörubúðinni. Og það gefur okkur
tilefni til að meta, hvar við erum staddir í búðinni.
Við viljum færa út fiskveiðilögsögu okkar, svo að
hún nái yfir allt landgrunnið, 50 mílur eða meira.
Stórveldin tvö, Sovétríkin og Bandaríkin, hafa and-
stæða hagsmuni í því máli. Harðari er bó andstaða
Breta og Vestur-Þjóðverja, eins og kunnugt er.
Jafnframt viljum við hindra mengun sjávarins við
landið og á fiskimiðum okkar. Okkur nægir alls ekki
sú 100 mílna mengunarlögsaga, sem oft hefur verið
■ / I J illCJC ,C.iJ
talað um, því að mengunin berst óravegu með straum-
um. Iðnaðarþjóðirnar umhverfis Atlantshafið vilja
gjarna varpa eitri sínu á þeim stöðum, þar sem það
berst ekki til stranda Evrópu og Ameríku, heldur eitt-
hvað annað og þá t.d. til íslands. Fáir átta sig til
fulls á því, hvílík lífsnauðsvn það er fyrir okkur að fá
iðnaðarþjóðirnar ofan af slíku.
Eitt mikilvægasta hagsmunamál okkar er, að við-
skipti milli landa séu sem frjálsust, því að atvinnulíf
okkar byggist í óvenjulegum mæli á útflutningi. Alls
konar verndarstefna erlendis, svo sém hækkun inn-
flutningstolla í Bandaríkjunum, er okkur því mjög í
óhag. Vegna þessara hagsmuna frjálsrar verzlunar
höfum við gengið í Fríverzlunarsamtök Zvrópu og
náð þar hagstæðum samningum. Af sömu ástæðum
viljum við ' ’ingóðum samningum við Efnahags-
bandalag Evrópu r"......m komn’r . cl af stað í vor.
í Fríverzlunarsamtökunum eru Bretar 'Tlugastir, en
Norðurlandaþjóðirnar eru þar líka öflugar og hafa
stuðlað að hagstæðum samningum okkar við sam-
tökin. í Efnahagsbandalaginu eru Þjóðverjar einna
öflugastir og okkur vinsamlegastir. Þessar þjóðir hafa
yfirleitt ekki eins eindregna hagsmuni af frjálsri
verzlun og við höfum, eins og við höfum rekið okkur
á í sambandi við loftferðasamninga.
Við allt þetta bætist, að íslendingar vilja ógjarn-
an hafa hér her á friðartímum. Yfirlýsingin um brott-
för hersins hefur skapað vandamál fyrir fleiri en
okkur sjálfa og Bandaríkjamenn. Varnakerfi Noregs
og Svíþjóðar hafa riðlazt og verða þjóðir þessara
landa nú að gera ráð fyrir, að bakstuðningurinn frá
herstöðinni á íslandi geti brugðizt. Jafnframt hefur
staða Finna gagnvart Rússum veikzt.
Vegna alls þessa verðum við nú að forðast að haga
okkur eins og naut í glervörubúð.
17 milljónir hafa flúið
frá ríkjum kommúnista
Flóttamannavanda-
málið er eitt hið erfið-
asta, sem mannkynið á
við að stríða. Undan-
farna mánuði hafa sjö
milljónir manna flúið til
Indlands frá A-Pak-
istan, og mikill flótta-
mannastraumur hefur
legið frá einu Afríkurík
inu til annars, svo að þar
eru nú milljónir um-
komulausra manna. —
Flóttamenn frá Palest-
ínu hafast við í flótta-
mannabúðum við illan
hag. Sameinuðu þjóð-
arinnar og aðrar alþjóða
stofnanir hafa gert það,
sem í þeirra valdi hefur
staðið til að gera þessu
kommúnistar alvaldir og lokuðu
landamærunum að heita mátti.
Þetta fólk var af ýmsu tagi.
Þama voru aðalsmenn og keis-
arasinnar, sem auðvitað undu
illa undir ráðstjóm. 1 þessum
hóp voru einnig margir iýðræð-
issinnar. frjálslyndir og jafnað-
armenn, „Mensévikkar“ sem
höfðu barizt við hlið bolsé-
vikka. Margir bændur flýðu
ennig í byrjun valdaskeiðs
bolsévikka, þvi að stefnan í
landbúnaðarmálum var ekk; ein-
staklingshyggjumönnunum í
bændastétt að skapi.
15 milljónir flýðu
eftir stríðið
Eftir þessa miklu fólksflutn-
inga tók að mestu fyrir fólks-
flóttann frá Sovétri'kjunum.
Réði þar væntanlega mestu,
hversu ríkisstjómin varð sterk
og traust í sessi Það var hins
vegar eftir valdatökur kommún-
istaflokka 1 mörgum ríkjum
A-Evrópu eftir aðra heimsstyrj-
öld, að skriðan rann aftur.
Það er áætlað, að milli 1945
og 1965 hafi fimmtán milljónir
I j
Wtéí
FIóttamannavan(|amálið er ef til vill örðugasta raun okkar
tíma. — Flóttafólk frá Austur-Pakistan.
fólki lífið bærilegt. Allur
þessi fjöldi er þó aðeins
hluti af þeim tugmilljón
um sem hafa flúið heima
land sitt undanfarna ára
tugi þessarar aldar.
Þannig hafa um 17 milljönir
flúið frá þeim iöndum, sem
kommúnistar ráða. þegar allt er
taliö. Þessi fiótti er einhver sá
allra mesti, sem um getur i
mannkynssögunni. BfHínarmúr-
inn varð tíu ára í síðustu viku,
og þá var rifjað upp, hversu
margir höfðu flúið frá Austur-
Þýzkalandi, áður en hann reis,
en múrinn var gerður ti! aö setja
í þaö gat. Fyrsti flóttamanna-
straumurinn frá kommúm'sra-
ríkjum byrjaði strax eftir valda-
töku bolsévikka Y Rússlandi.
Rúmlega hálf önnur milljón
manna flýð; Sovétríkin á tíma-
bilinu frá 1917 til 1921 Þetta
voru ár grimmilegrar borgara-
styrjaldar, þar sem áttust viö
„rauðliðar“ og ..hvitliðar“, sem
’auk með sigri hinna fyrrnefndu.
Að loknu þessu tímabili voru
flúið riki, sem kommúnistar
ráða. Þessi tala hlýtur að vera
nokkuð óviss, en mlklu veldur
um fjöldann, hversu margir
flýðu frá ríkjunum i Asíu,
Norður-Kóreu, Norður-Wetnam
og Kína, eftir að kommúnistar
tóku þar völd.
Ekki þarf að fjölyrða um, að
valdátaka< kommúnista í rikjum
Austur-Evrópu var öllum þorra
manna þar mjög ógeðfelld, enda
hafði það víðast hvar komið
skýrt fram í lýðræðislegum
kosningum fyrir valdatöku
beirra. að kommúnistaflokkarn-
ir höfðu ekkert það fylgi, sem
veitti þeim forystuhlutverk. Það
var nærvera sovézka hersins og
afleiðing niðurlægingar þessara
bjóða í stríðinu, sem gerði
kommúnistum mögulegt að ná
vö'.dunum.
Flóítamannastraumur
eftir misheppnaðar upp-
reisnir í Ungverjalandi
- - 'vkAslóvakíu
Hefði flóttamannastraumurinn
dreifzt. jafnt á tímabilið, heföi
einn maður flúið á hverri mln-
útu nótt og dag.
Umsjón: Haukur Helgason
Þetta byrjaði með því, að mik
ill fjöldi Austur-Evrópumanna,
sumir segja hálf önnur milljón,
sem dvöldust i öðrum löndum
í stríðslok, fór ekki aftur heim
til heimalanda sinna.
Síðan rann skriða frá Austur-
Erópuríkjum hverju af öðru 60
þúsund flýðu Tékkóslóvakíu eft-
ir byltingu kommúnista árið
1948. Og eftir innrás Rússa og
Varsjárbandalagsins árið 1968,
hafa 90 þúsund Tékkóslóvakar
bætzt í þennan hóp.
Sama varð uppi & teningnum
eftir að Rússar bældu niður
uppreisnina Y Ungverjalandi ár-
ið 1956. Þá munu 200 þúsund
Ungverjar hafa flúið föðurland
sitt,
Efst á blaði eru þó Austur-
Þjóðverjar. Fjöldi flóttafólksins
frá A.-Evrópu meira en tvöfald-
ast þegar tölu A-Þjóðverja er
bætt við Tölum ber ekkj al-
gerlega saman um fjöldann, en
sumar heimildir telja, að um
þrjár og hálf milljón hafi flúið
frá Austur-Þýzkalandi. Flóttinn
frá Austur-Þýzkalandi var
„fjöldahreyfing'* sem ekki átti
rætur I sérstökum hagsmunum
aðalsmanna eða auðmanna á
sama hátt og flóttinn frá Tékkó-
slóvakíu og Ungverjalandl var
eftir misheppnaða uppreisn
þeirra þjóða gegn Sovétmönn-j
um.
Eftir að kommúnistar tók»
Norður-Kóreu í striðslok hafa
um fjórar milljónir flúið tH
Suður-Kóreu.
Kastró viD koma
óánægðum úr landi sínu
Samtals hafa tvær mHljónir
flúið frá KYnverska alþýðulýð-
veldinu yfir til Hongkong og
annarra staða. Alls kyns tiltekt-
ir kínversku stjórnarinnar, sem
komið hafa af stað innanlands-
róstum, hafa ýtt á eftir hundr-
uðum þúsunda Kínverja úr
landinu. 900 þúsund manns
flýðu frá Norður-Víetnam til
Suður-W'etnam eftir skiptingu
landsins árið 1954.
Þá fóru 80 þúsund Tíbetbúar
yfir ti] Indlands eftir innrás og
hernám Kínverja á landinu árið
1950. Loks / hafa margir flutzt
burt frá Kúbu, sumir flúið en
í seinni tíð hefur Kastro leyft
miklum fjölda óánægðra manna
að fara með friði úr landi, og
hafa flestir farið til Bandaríkj-
anna Samtals munu nú um 600
þúsund manns hafa farið brott
frá Kúbu.
Samtals eru þetta feikilegir
fólksflutningar og eru þá aðeins
talin ríki kommúnista. Munur-
inn á þessu flóttafólki og flestu
öðru er sá, að flóttafólkinu frá
löndum kommúnista hefur yfir-
leitt vegnað allvel eftir. Felst
það að sjálfsögðu í því, að fag-
leg menntun í Austur-Evrópu
stendur á gömlum merg, miðað
við menntunar'iausan og fákunn
andi fjöldann sem um þessar
mundir flýr einræði Jaja Kans
í Pakistan eða undan harðýðgi
Araba í Suður-Súdan eða Sel-
aisse í Suður-Eþíópíu og Eri-
treu.