Vísir - 18.08.1971, Blaðsíða 16

Vísir - 18.08.1971, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 18. ágúst 19/%, Leiöangurs- stjórinn týndi kvikmyndavél Leiðangursstjóri brezkra skóla- pilta frá Stowe-skóla í Englandi, Ayre að nafni. var óheppinn nú um helgina. Fór hann í Land Rover jeppa austur að Gullfossi og Geysi, en á öðrum hvorum staönum hefur kvikmyndatökuvélin hans skoppað út úr bilnum. á bls. 10 Menn skipta sér ekki af tjóni náungans ,Já, þetta er orðinn bæði hvim leiður og hættulegur faraldur“, -agði Kristmundur J. Sigurðsson aðalvarðstjóri hjá Umferðardeild rannsóknarlögreglunnar, þegar blm. Vísis innti hann eftir þvi hvort mikið væri um það, að ek ið vajj^ utan í kyrrstæðar bif- reiðar. „Og það kemur alltof oft fyr ir“, sagði Kristmundur, „að þeir sem aka utan í bifreiðar á bíla stæðum gera sér iítið fyrir og iæðast burtu og láta saklausa aö ilann sitja uppi með allt tjónið. Oft er erfitt að ná í sökudólg- ana og þess vegna ætti hver ein asti borgari aö sjá sóma sinn í bvf að láta lögregluna vita, ef hann véröur vitni að svona at- viki.“ ,,Gerir fólk það ekki yfir- leitt?“ „Nei. Það kemur oft fyrir, aö fólk lætur eins og það sjái þetta ékki. Við höfum stundum náð í vitni að svona atburðum, sem ekki hafa komið til okkar að fyrra bragði og þegar maður ,pyr, hvers vegna ekki, segir •'ólkið að það hafi ek’ : viljað koma neinum í bölvun. Þetta er skrýtinn hugsunarháttur, að vilja sjá sökudólginn sleppa og saklausa aðilann sitja eftir með sárt ennið.“ „Er það vegna þess að menn vilja ékki missa bónusinn hjá tryggingafélaginu sínu, sem þeir stinga af, eftir aö hafa keyrt ut an í kyrrstæða bifreið?" „Nei. Það held ég sé ekki höfuðástæðan. Þetta kom lika fyrir hér fyrr á árum, áður en bónus nn kom til sögunnar, aö menn læddust burt. Það gera menn annaðhvort af óheiðar- ieika eða þá vegna þess að þeir eru ekki í ástandi til aö aka, og vilja því ekki hitta lögregl- una. Stundum eru þeir ölvaöir og stundum próflausir og stund im hvort tveggia." „Hvernig er helzt hægt að stemma stigu við þessu?“ „Það veit enginn hvort hann á eftir að koma að bílnum sín- um illa leiknum eftir að utan í hann hefur verið ekiö, svo aö hver sá sem verður vitni, að svona atviki ætti að láta lögregi una vita þegar í stað. Þessar sí- felldu utaníkeyrslur valda gífur legu tjóni, og þeir sem eiga bíl ana, sem ekið er á, verða oft fyrir tilfinnanlegu tjóni, þegar þeir hafa hvað sizt efni á því. — Fólk á ekki að láta sér standa á sama um náunsann — á morc un getur það veriö f hans spor- um.“ —ÞB Háskólim áfram á hrakhólum // — Stúdentar i MJ. J — Tannlækningar ekki „Stúdentar verða 25 ;—30% fleiri í vetur en vom í fyrra í Háskólan- um — og okkur veitir því sannarlega ekkert af þeim tveimur nýju hús- um sem vonir standa til að komist í gagnið í haust, þ.e. nýja Laga- fleiri i ár en i fyrra kermdsyr Im eftir 3 ár? deildarhúsinu 9g húsinu yfir Raunvísinda- og V erkf ræðideildina“, sagði Magnús Már Lár- usson, háskólarektor, er Vísir spjallaði við hann í morgun. „Mér sýnist af þeim tölum sem hei?flr eru liósar að ar muni veröa eitthvaö fleiri en 2000 næsta vetur“, sagði Magnús, „og það er af þeim sökum varla hægt að gera sér vonir um að rýmkist eitthvaö að marki um menn hér f gamla húsinu". — Hvað meö læknadeild — nýtur hún góðs a': nýju Raunvís indabyggingunni? „Ekki nema ’ítils háttar. Þaö eru bara stúdentar á fyrsta ári í læknisfræði. sem koma til með að vera þar f efnafræði, þaö er mjög óverulegt". — Tannlæknadeild á hrakhól- um? „Já. Þeir tannlæknanemar sem skráðir voru í deildina í ár, fengu tilkynningu þess eðlis. að Háskóli Islands gæti ekkí á- byrgzt að sjá þeim fyrir kennslu nema næstu þrjú árin“. — Hvað þá — verður risið hús yfir deildina þá? „Það verður að vera risið hús yfir deildina þá, ef hér á að kenna tannlækningar áfram“. — Kennsla að hefjast? „Við byrjum hér 4. septem- ber, þ.e. verkfræðideildin og kennsla í læknadeild hefst 15. september og svo fara hinar deildirnar allar af stað kringum mánaðamótin". — GG Innflytjendur bíða átekta „Hér er allt vitlaust aö gera alla daga, en nú má heita að starfsemin liggi alveg niðri. Það hefur enginn hreyfing verið á vörunni síðan eftir helgi“, sagði Helgi Hjálmarsson hjá Tollvöru geymslunni í viðtali við Vísi í morgun. Varnarmáladeíldin borgar fyrir sauð- fjárgirðingu Varnarmáladeild utanríkis- ráðuneytisins á í vök að verjast fyrir sauðfé, hefur því verið grinið til þess bragðs, að varnar máladeildin taki þátt í að greiða kostnað af sauðfjárgirð- ingu fyrir Rosi hvalanesskag- ann, sem er á Reykjanesinu. Girðing þessi nær frá Ösabotnum og fram á yztu brún á Stapanum. Lengd hennar mun vera tæpir sex km að viðbættum tveimur km, þar sem notazt er við girðinguna um- hverfis Keflavíkurflugvöll. Kostn- aðinn af þessu mannvirk; greiða Njarðvíkur-, Miðnes- og Gerða- hreppur, Keflavíkurbær og Varnar- máladeild utanríkisráöuneytisins. Þessir aðilar munu einnig greiða kostnað við fyrirhugaða gæzlu, sem höfð verður allan sól- Einn viðskiptavinanna að sækja póstinn sinn. FRIÐRIK JAFNTEFLl arhringinn við Reykjanesbrautina. Varnarmáladeild mun þó greiöa fast gjald, en mun ekki lengur þurfa að standa straum af smölun á Keflavíkunflugvelli, eins og verið hefur. Ástæöan til þess að ráðizt var í að afgirða Rosmhvalanesskagann var sú, að fjáreigendur þar eiga svo heimakært fé, að það hefur jafnað skilað sér aftur innan fárra daga, þótt farið hafi verið með þaö á afrétt. Sauökindin hefur ekki verið vel- kominn gestur á Keflav.flugvelli, en Varnarmáiadeildin hefur þó séð um að stugga henni þaðan. og sömu leiðis þykir þeim, sem búa á Rosmhvalanesskaga iítið varið í að sjá bláókunnugt sauðfé liggja jórtr- and; í matjurtagarðinum fyrir utan húsið. — ÞB Friörik Óiafsson og Helge Gund ersen gerðu jafntefli í 3 umferð Norðurlandamótsins í gærkvöldi. — Björn Þorsteinsson tapaði fyrir Johnny Ivarson. Jón Kristinsson vann Sejer Holm. Freysteini Þorbergssyni tókst aö Ijúka tilskildum leikjafjölda gegn Kenneth Josephson, áður en k'.ukk an féll, en sá misskilningur kom upp, aö Freysteinn hefði fallið. — Skákin fór því í bið, og var verið að tefla hana laust fyrir hádegið, og Freysteinn talinn mundu vinna. Ef biðskákirnar fara, eins og senniiegast er, yrði Friörik efstur með 2 y2 vinning eftir 3 umferðir. Úrslitin i 2. umferö urðu sem hér segir: Friörik Ólafsson vann Finn- ann Michael Nykopp, Freysteinn Þorbergsson vann Norðmanninn Yngvar Barda. Hákon Ákvist Svi þjóð, vann Jonny Ivarsson, landa sinn, Sejer Holm, Danmörku, vann Hel'ge Gundersen, Noregi og Kenn eth Josefson, Svíþjóð, vann Ailan Jensson, Danmörk. — HiH Hann sagði einnig að ekki hefði verið meiri hreyfing en venjulega fyrir helgina. Meöan óvissa ríkir í gjaldeyris- málunum og engin gengisskráning er og tollafgreitt er gagnvart trygg- ingu halda flestir að sér hendinni og bíða og sjá til. Sigvaldi Friögeirsson hjá Toll- stjóraskrifstofunni sagðj í viðtali við Vísi í morgun að afgreiðsla tollskjala væri ekki nema brot af þeirr; dagiegu afgreiðsiu, sem þar fari fram. „Það hefur ekki verið lagt mikið inn af tollskjölum, en það er alltaf eitthvað smávegis og einhverjar tegundir, sem þarf að afgreiða." Sigvaldi tiitók varahluti í biluð tæki, veiðarfæri, hráefni til verksmiöjureksturs m.a. Hann sagði að meðan óvissan væri biði fólk átekta. — SB var rólegur morgunn í morgun, þegar Ijósmyndarinn tók þessa mynd af „bakhliðinni“ i1 pósthólfunum. ’ •-« * \ I PÓSTÞJÓNUSTAN ÆVIN LEGA í ENDURSKOÐUN „Dreifingarkerfið í Reykja vík er undir stöðugu eftirliti og endurskoðun. Við fylgj- umst mjög vel með kerfinu og ’eynum að bæta úr, par sem við höldum að póstur tð berast hraðar“, sagðí Matthías Guðmundsson, póst meista^i ct Vísir ræddi við hann í morgun, „við berum núna út póst einu sinni á dag í flest hverfi í Reykjavík og sum förum við tvisvar í dag lega.“ — En ,,express“-póstur er borinn út jafnharöan og hann berst? „Já, við erum með 3 menn í því einvörðungu að bera út „ex- press“-póst. Tveir eru akandi á bílum og einn á vélhjóli, og þessi póstur er borinn út jafn- óðum og hann berst frá því um níu á morgnana og fram á kvöld. Einnig um helgar." Árni Þór, deildarstjóri hjá Póstþjónustunni tjáði Vísi að pósthólfin í Pósthússtræti væru nú opin frá' klukkan átta að morgni til átta að kvöldi, „þau voru opin frá því fyrir átta og til tíu á kvöldin fyrir löngu", sagði Árni, „en þá hópuðust hér inn vesalingar og unglingar sem eru of seint á ferli og komu þá hingað í hlýjuna að vinna skemmdarverk." ’ — GG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.