Vísir - 23.08.1971, Síða 1
' \ x
sitja á
skólabekk
á sumrin
Ágústmánuður fer hjá mörg-
um kennurum í að sitja á skóla
bekk. Þá eru það þeir, sem taka
við „ítroðslunni“, læra allt um
nýjungar í kennsluháttum og
undirbúa vetrarstarfið, sem nú
er framundan.
SJÁ BLS. 13
Kerfi og
raunveruleiki
Póstmálin hafa verið talsvert
til umræðu I blaðinu að undan
förnu Vísir er um þessar mund
ir að hefja athugn á þv-í hvaö
hæft sé í, að póstkerfið og raun
veruleikinn fari ekki saman en
póstþjónustan vill oft halda
fram ýmsu, sem almenningur tel
ur sig svo ekki kannast við í
sambandi við hraða þjónustunn
ar og öryggi.
SJÁ LEIÐARA BLS. 8
Borgin á
536 íbúðir
Ýmsar býsna fróðlegar tölur
eru birtar i grein í blaðinu í
dag um félagsmálastarf Reykja
vikurborgar, sem kostaði 500
milljónir á s-íðasta ári. Þama
má sjá t. d. að borgin á 536
íbúðir, 1663 voru á framfærslu
styrk. — Reykvíkingum fjölgaði
um 3767 á íimm árum, — en
íbúðunum í borginni um 3162 á
sama tíma.
SJÁ BLS. 9
Spennandi
knattspyrna
Það var mikið um að vera
í knattspyrnunni um helgina, —
leikir voru æsispennandi á öll
um vígstöðvum, KR reyndj að
forðast fallið, en Breiðablik hef
ur iíklega kvatt fallbaráttuna í
1. deild, Keflvíkingar tryggðu
stöðu sína á toppnum.
SJÁ BLS. 5 OG 6
árg. — Mánudagur 23. ágúst 1971. — 189. tbl.
Eins árs og á
von á 25
millj. í arf
Lftil stúlka i Svíþjóð, Lilljimy
Sundquist Hendrix, veit vís-t
minnst af öllu stappinu, sem er
i kringum hana þessa dagana.
Móðir hennar heldur þv*i fram,
að hún sé dóttir Jimi Hendrix og
heimtar arf eftir hann barninu
til handa.
SJÁ BLS. 2
Kennararnir
■ var álit bankamanna i morgun — „gengið
enn fljótandi / morgun", segir Jóhannes
Nordal, sem telur að málin muni skýrast
með morgundeginum
„Við opnum gjaldeyr-
isdeildir hér á fslandi eft
ir hádegið strax“, sagði
dr. Jóhannes Nordal,
seðlabankastjóri, er Vís
ir ræddi við hann í morg
un, „gjaldeyrismarkaðir
eru þegar búnir, eða í
þann veginn að opna í
Evrópu núna um 10 leyt
ið, nema hvað þeir munu
ekki vera búnir að opna
í Sviss.“
— Hvemig verður þá krónan
skráð gagnvart dollar?
„Viö vitum það ekki -fyrir víst
ennþá og munum eflaust ekki
geta sagt til um það fyrr en á
morgun. Samt æt-lum við að
opna og málin skýrast eflaust er
líða tekur á da-g.“
— Nokkuö hægt aö segja til
um hvort krónan lækkar veru
lega — hvort varningur s-tígur
að marki í verði?
„Nei. Það var samt Ijós-t rétt
fyrir helgi, að breytingin yröi
ekki eins mikil og haldið var í
fyrstu — sennilega mjög óveru-
leg breyting."
„Við opnum hér fyrir gjald-
eyrisviðskipti um leið og við
get-um — og viö von-umst tii aö
þaö verði eftir -hádegið í dag —
getur hugsanlega eitthvaö dreg-
izt“, sagði Sigurður Örn Einars-
son, skrifstofustjóri gjaldeyris-
deildar Seölabankans er Vísis
ræddi viö hann um 10.30 í morg-
un, „því miður getum við ekki
enn sagt til um á hvaða verði
dollarinn eða pundiö verður selt
hér. Pundið hefur aðeins hækkað
gagnvart dollar, um 1,7 prósent,
eða svo, pundið var áður skráð
2.40 gagnvart dollar en þeir selja
það núna á tæpa 2.45 — við er-
um hér al-ltaf að taka á móti
gengi frá útlöndum á telex, en
þetta er ennþá fl-jótandi, —
Þetta 1,7% en innan stofngeng
is og hækkar ekki meira hér.“
—GG
Gengis-
málin
— sjá nánar á bls. 3
Tekið á móti upplýsingum
um gengi erlendis. Stúlkan
stjórnar „telexinu“ og hjá
henni standa starfsmenn|
gjaldeyrisdeildar Seðlabank
ans. ►
Lögreglumenn d
eftirlitsferð fundu
brunulyktinu
— sjá bís. 16
VISIR
„Mjög óveruleg hækkun"
Tveir menn stórslasast í bílveltu
Tveir menn slösuðust alvar-
lega, þegar bifreið á 90—100 km
hraða fór í loftköstum út af
Reykjanesbraut sunnan við Set
bergsbrekkuna í Hafnarfirði í
gærkvöldi.
4 menn voru í bifreiðinni, sem
var á leið til Rey-kjavíkur, en lenti
út af veginum, þegar henni var ek-
iö fram úr annarri bifreið, og öku-
maðurinn missti viö það vald á
bílnum.
Ökumaöur hins bílsins sá ú eftir
bifreiðinni, þegar hún ók beint út af
veginum, og skrönglaðist yfir grjót
og misjöfnur meðfram veginum
40 — 50 metra vegalengd, áður en
hún valt og hvolfdi og rann þann-
ig 45 metra spöl til viðbótar.
Þegar bifreiðin nam loks staðar,
hentust báðir farþegarnir í aftur-
sætinu út úr bilnum sitt hvorum
megin, og komu niður hvor um
sig f 15 metra fiarlægð frá honum.
Svo virðist, sem ökumaðurinn
hafi ekki haft vald á bílnum, þeg-
ar hann ætlaði að beygja fní
miðju vegarins út að kantinum
aftur, eftir að hafa farið fram úr
hinni bifreiöinni. sem ekið var fað halda sér fast í mælaborðið og I Hinir tveir hlutu al-varleg meiðsli
á 80 km hraða. sætin meðan bíllinn var í lo-ftkös-t- og voru lagðir inn á slysadeild
Ökumanninum og þeim, sem hjá unum, og sluppu þeir -lítið eöa Borgarsp’ítalans. — GP
honum sat frammi í -bílnum, tókst | ekkert meiddir. |
BRJALÆÐISLEGUR
AKSTUR UM MIÐBÆINN
Lögreglan leifar að rauðum Volvo Ama zon
Þeir sem voru staddir í mið-
bænum um sjö-Ieytið í gærkvöldi,
urðu vitni >að óhugnanlegu aksturs-
lagi. Fólksbifreið var ekið á ofsa-
hraða eftir Austurstræti, og ekki
var dregið úr feröinni, þegar .bíll-
in kom að mótum Aðalstrætis og
Austurstrætis.
ökumaðurinn lagði í beygjuna
á fullri ferð. „Örugglega á 100,“
segja sjónarvottar, og það hvein
og söng í öllu. Bíllinn rann til á
malbikinu og hallaðist iskyggilega,
en þegar hann var að því kominn
aö velta, rakst hann utan í hand-
riðið, sem er fyrir utan húsin i
Aöalstræti, og náöi þá að komast
aftur á réttan kjöl. Annars munu
handrið þessi þó til annars ætluð
en að aðstoða ökumenn við að ná
beygjunni inn á Aðalstrætið
Fólk var á leið yfir gangbraut,
sem liggur yfir Aðalstræti, og töldu
sjónarvottar ekki annað sýnna, en
bíllinn mundi lenda á því. Svo
giftusamlega tókst þó til, að fólkið
slapp, en bifreiðin geystist áfram
á fleygiferð, illa ' útleikin á hliö-
inni eftir að hafa lent utan í hand-
riöinu, og hjólkopparnir skoppuöu
hver í sína áttina.
Sjónarvottar stóðu eftir högg-
dofa, og ætluðu vart að trúa sín-
um eigin augum, því að svona akst-
upr sést ekki á hverjum degi í
miðbænum, þrátt fyrir að ekki séu
allir ökumenn til fyrirmyndar.
Lögreglan var látin vita af þess-
um atburði, og nú leitar hún að
þeim manni, sem ók rauðri bifreið
af gerðinni Volvo Amazon þarna
um miöbæinn í gærkvöldi. Bifreið-
in ætti að liera einhver merki eftir
aksturinn — ÞB