Vísir - 23.08.1971, Blaðsíða 2

Vísir - 23.08.1971, Blaðsíða 2
Nautabaninn hæfður beint Kommúnu- unglingur drap barn 1 hiartastað — 76 ára stúlka að verki Sextán ára unglingur í komm- únu í Frankfurt játaði í sl. viku að hafa skotiö á og drepið átta mánaöa gamalt barn, sem lá í kjöltu ömmu sinnar. Lögreglan i Frankfurt hefur skýrt svo frá, aö hann hafi skotið barnið yfir þvera götu. Unglingurinn stóð við glugga i íbúð kommúnunnar og skaut. tveimur skotum inn um glugga á húsi setn var andspænis við götuna Hann sagðist aðeins hafa ætlað að skjóta ömmuna í handlegginn. Barnið, sem hann drap, hét Daniela Hoffmann. Alþjóða fréttastofan UPI hef- ur staðfest orðróminn, um að nautabaninn E1 Cordobes, sem raunar heitir Manuel Benitez hafi faílið fyrir ljóðhærðri unglings- stúlku að nafni Patricia Lieben. E1 Cordobes hafði sagzt vera veik ur í þrjá daga, en tók um síðustu helgi þátt í nautaati. Eftir vel heppnað at, skýrði hann frétta- manni UPI frá því, að hann væri ástfanginn af Patriciu. Hann lýsti þessu á dramatískan hátt: „Þetta er öðru vísi í þetta sinn. Ég er brjálaður í henni. Hún er gim- ><>••■•••••• «> •••••••••«•< steinn, yndisleg, 16 ára. Hún er Ijóshærð, græneygð og há. Hún stakk mig beint í hjartað meö sverði óg ... jæja, orð fá ekki lýst þessu.“ Upplýst er, að E1 Cordo bes varði veikindum sínum I stöð ugar símhringingar til ungfrú Lieb en, sem alvörulaus blöð hafa kaM að: „Götustelpu frá Hollandi, sem hann hitti í Frakklandi í júlí.“ E1 Cordobes ætti að geta unnið fyrir henni, því að hann vinnur sér um 180 milljónir íslenzkra króna á ári. er tromp Undir slagorðinu „hjartað er tromp“ og „sýnið hjarta ykkar liíka á götunni". fprðast stúlkan, sem myndin sýnir, nú um vestur- fylki V-Þýzkalands. Þessi unga stúlka frá borginni Diisseldorf hef ur markmið í lífinu. Hún heitir Gigi Nagel, er 27 ára og hefur ekið bíl í átta ár án þess að fá nokkra sekt. Nú hefur umferðarráðherrann í fylkinu Westfalen gert hana út af örkinni til þess fyrst og fremst til að fá karlkyniö til að sýna meiri gát, tillitsemi og „hjarta sitt“ í umferðinni. — Tölur þar sýna, að níu af hverjum tiu umferðarslysum í fylkinu eru verk karlkynsins. Stjórnin tók til sinna ráða og nú er Gigi litla á flakki og tekur þátt í mikilli bar- áttu fyrir bættri umferðarmenn- ingu. Þessi tveggja barna móðir hei’l ar karlkynið og vekur ást þess vonandi. <• • • • o Eins árs, — og veríur líklega erf- ingi milljóna eftir JIMI flENDRIX Lilljimy Sundquist Hendrix er að eins eins árs en svo virðist sem hún erfi ca. 25 milljónir króna (ísl. króna) eftir hinn fræga föð- ur sinn, Jimi Hendrix, sem lézt fyrir ári. „Það ætti ekki að þurfa að deila um faðerniö", segir móðir Lil’jimy litlu, Stokkhólmsstúlka ein, Eva Sundquist. Eftir mánuð eöa svo fer lög- fræðingur þeirra mæðgna til Bandaríkjanna til aö semja við hinn erfingjann, föður Jimi Hendrix. Segir lögfræðingurinn að það muni gera h’.utina einfaldari í sniðum að hér séu aðeins tveir áðilar, sem telja sig eiga rétt á arfi. Talið er að dánarbúið hafi átt að verðmæti að upphæð um 25 milljónir ísl, króna, en þar að auki berst stöðugt þóknun fyrir sölu á hljómplötum, svo ta’.ið er líklegt að til skiptanna komi milli 50 og 60 milljónir króna. Þegar fréttin um dauða Hendrix birtist, kom Eva Sundquist fram í dagsljósið og kvaðst eiga barn með þessum fræga tónlistarmanni. Hefði hann hvað eftir annað skot izt yfir til Svíþjóðar til að eiga ástarfundi með sér. Heföi þeim tek izt að halda sambandi sínu leyni legu. í vikublöðunum var mikið rit- að um stúlkna-„boð“ Hendrix og þar var því haldið fram að hann ætti fleiri börn víðar um heim- inn. Hingað til hefur þó aðeins þessi sænska stúlka gert tilkall til arfshluta.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.