Vísir - 23.08.1971, Blaðsíða 5

Vísir - 23.08.1971, Blaðsíða 5
V í S I it, Silánudagur 23. ágúst 1971. 11 Breiðablik tryggði stöðu sína í 1. deild Sigraði Akureyri / gær 1-0 og hafði yfirburði Hinn hávaxni Einar Þórftallsson í baráttu við Árna Stefánsson, markvöró Akureyrar, sem hafði betur. Skúli Ágústsson kom heldur bet ur við sögu í leik Breiðabliks og Akureyrar á Melavellinum í gær. í upphafi leiks fékk hann þrjú tækifæri til að ná forustu fyrir liö sitt, en allt misheppnað- ist og þetta fór heldur betur í taug ar hans. Eftir það var hann alltaf að röfla við dómara leiksins, Ragn ar Magnússon, og það fór eins og til var stofnað, aS Skúla var vísað af leikvelli rétt fyrir leiks lok. Þetta kann að hafa alvarlegar a-f leiðingar fyrir Skúla og Akureyri, því nú er hætt við að hann verði settur í keppnisbann leikina tvo, sem Akuréyri á eftir í 1. deild og Akureyri má illa við því að missa sinn bezta mann. Akureyringar þurftu þó sannar lega ekki að vera óánægðir með dómarann í leiknum. Tvívegis sleppti hann að dæma vítaspyrn ur á Akureyri — aðra fyrir mjög gróft brot innan vítateigs og hina fyrir, er hörkuskot á mark var varið með höndumí'— og virt ist að öðru leyti hliðholiur Akur- eyringum í leiknum. Vonzkuveður var meðan leikrinn fór fram og Breiðablik Var mun sterkarj aðilinn í leiknum, detk- Ljósm. BB menn liðsins voru fljótari og höfðu Miklar deilur vegna jöfn- unarmarks Akurnesinga Það hitnaði heldur betur í kolunum uppi á Skaga á laugardaginn, þegar gömlu keppinautamir Akranes og KR mættust þar í 1. deild. Leiknum lauk með jafntefli 1—1 og það var jöfnunar- mark Akranes um tíu mín. fyrir leikslok, sem orsakaði deilurnar, og leikn- um var ekki haldið áfram fyrr en um fimm mínútum eftir að markið var dæmt á KR. KR hafði skorað sitt mark úr vitaspyrnu i síðari hálfleik. Bene dikt Valtýsson felldi þá Baldvin gróflega inni í vítateig og dæmdi dómarinn, Rafn Hjaltalín, þegar vitaspymu, sem Ellert Schram skor aði örugglega úr. Leikurinn hélt áfram og KR- ingar vörðust vel. Þegar um 10 mín. voru eftir spyrnti Eyleifur Hafsteinsson knettinum aö KR- markinu af um 30 m og hann skall annaðhvort undir þverslá eða í járnsiána inni í markinu — og þar sýndist sitt hverjum — small niður á markiínu, upp í þverslá og niður og þá kom Eltert og 5pymti út fyrir hliöarlinu. Linu- vörður veifaði á innkast fyrir Akranes, en dómarinn hljóp til hans og dæmdi síðan á eigin spýt ur mark á KR. Hann var þó stað- settur talsvert fyrir utan víta.teig, þegar Eyleifur átti skot á markið. KR-ingar undu þessum dómi mjög illa og gekk Ellert þar feti of langt. Hann héit á knettinum, fór á eftir dómaranum og átti í mikiu orðaskaki við hann, svo og línuvörðinn. Leikurinn stöðvaðist nokkurn tíma og lögreglan varð að reka nokkra æsta áhorfendur af ieikvelli. Það var álit flestra, að dómarinn hefðj átt að vísa Ell- ert af ieikveili, en hann gerði það ekki, og kann að -’era að ástæðan hafi verið ekki aíltof góð sam- vizka vegna marksins. En hvað um það. Leikurinn hélt svo áfram og rétt fyrir leikslok kom svo fyrir annað atvik, sem miklum deilum olli Magnús mark vörður spyrnti þá frá marki, að þrengdur af Akurnesing og fór knötturinn í hann og irm fyrir Magnús, og var siðan rennt i mark ið. Dömarinn dæmdi markið af vegna þess. að hann áleit, að Akurnesingurinn hefði rekið hnéð í Magnús markvörö — en mikill meirihluti áhorfenda áleit, að Magnús hefði fyrir klaufaskap spymt knettinum beint í mótherj- ann. k Mjög slæmt veður var, þegar leikurinn fór fram, rigning og rok og setti það mörk sín á leik inn. Þetta var mikill baráttuleik- ur. KR-ingar áttu meira í f. h. og fengu þá góð tækifæri, sem ekki nýttust í s. h. sóttu Skagamenn meira, en KR-ingar voru þó alltaf hættulegir af og til og baráttu- vilji þeirra var mun meiri en mót herjanna. Jafnteflið var sennilega réttlátustu úrslitin, og gott afrek hjá KR að ná þar sigi. Liðið hef ur ekki tapað leik síðan Ellert byrjaði að leika með því og ef það sýnir áfram sama dugnað er ekki víst, að það falli. Tveir menn meiddust í leiknum, M'atthías Hall grímsson á 20. min. og Baldvin í s, h. og uröu þeir að yfirgefa leik völlinn. Hjá KR var Magnús bezt ur, en Ellert og Þórður Jónsson einnig mjög góðir. í liði Akranes voru framverðirnir Jón Aifreðsson og Haraldur Sturlaugsson beztirog Jón Gunnlaugsson var sterkur í 'vöminni sem aftasti maður. Það var óheppilegt, að Akureyringurinn Rafn Hjaltalín skyldi dæma þenn an leik vegna fallbaráttu Akureyr inga, Ekki skal hér sagt, að hann hafi veriö hlutdrægur. en dómar hans orsökuöu deilur. —hsim. miklu meiri baráttuvilja. 1-—0 var of lítið eftir gangi leiksins Akur eyri lék undan hinum sterka sunn anvindi í fyrri hálfleik og þá fékk Skúli í byrjun sín góðu færi. Á 4 mín varði Ólafur sniildarlega skalla hans. Á 9. mín átti hann skot rétt yfir þverslá og á næstu mín. spyrnti hann framhjá í dauða færi. En þetta voru iíka einustu færi Akureyrar í leiknum, utan eins í s. h. þegar Sigbjörn spyrnti framhjá marki frá markteig. Tækifæri Breiðabliks voru mörg og góð og liðið réð yfirleitt gangi leiksins utan upphafsmínúturnar. Þá varði Árni Stefánsson hvað eftir annað vel fyrir Akureyri — en hann gat þó ekki varið spyrnu Ólafs Friðrikssonar á 33. mín„ sem reyndar kom í hönd eins varnar manns á leið sinni í markið Rétt á eftir bjargaði Aðalsteinn áfgur geirsson glæsiskalla Ólafs á mark línu. Breiðablik sótti mjög í síðari hálf leik. en fór illa með góð færi, auk þess, sem leikmenn yoru stundum óheppnir t. d. stangarskot Þórs. • Sigur Breiðabliks var mjög verö skuldaður og þrátt fyrir hinar slæmu aðstæöur var þetta einn bezti leikur iiðsins í 1. deild. Sérst/aka athygii vakti hinn ungi bakvörður, Steinþór Steinþórsson, og var hann bezti maöur iiðsins, en fiestir léku vel. Akureyringar voru daufir — helzt Gunnar, Skúli og Magnús, sem eitthvaö sýndu, en aðrir eins og Kári, Eyjólfur og Sig björn sáust varla í leiknum. —hsím. Meistarar Arsenal féllu fyrir snill- ingum Man.Utd. ] Það var mikið um óvænt úr- siit í ensku knattspyrnunni á laugardag en vegna þrengsla verður grein hsím að bíða til morguns. Á föstudag léku Manch. Utd. og Arsenal á ioik- velli Liverpool, þar sem leik- bann er á velli United. Vrsenai tapaði nú loks leik 1 — 3, sn skor. aði þó fyrsta markið í leiknum og staðan í hálfleik var 1—0 fyrir Arsenal. En siðan tók Bobby Charlton til sinna ráða og nánar verður sagt frá því á rnorgun. Urslit á laugardag f 1. deild urðu þessi: 2-2 0—1 0-0 0—2 3-2 Chelsea —Manch. City Everton—Sheff. Utd. Leeds-—-Wolves Leicester—Derby Newcastle — Li verpool Nottm For.—West. Ham. 1—0 Southampton— Ipswich 0—0 Stoke—C. Paiace 3—1 Tottenham —Huddersfield 4—1 W.B.A.—Coventry 1—1 Neðstir í laids- keppni í Álaborg Islenzku keppendurnir í lands- keppni unglinga í friálsum íþrótt- um, sem fram fór í Álaborg stóðu sig heldur illa. Kenpnin hófst á laugardag og lauk í gær. Noregur A sigraði með 73 stigum, síðan kom Danmörk A með 61 stig. Noreaur B 50, Danmörk B 39 og ísland 29. Aðeins einn Isiendingur. sigraði, Borgþór Magnússon, sem - hljóp 400 m á 54.7 sek. einu sekúndu- broti frá Islandsmeti Sigurðar Björnssonar. Þá hljóp hann 110 m grindahlaup á 15.2 sek, Elías Sveinsson keppti í fimm greinum. Hann stökk 1.90 m og var fimmti og síðastur, en fjórir stukku þeasa hæð og það vannst á 1.95 m Elías' hefur í sumar stokkiö 2 metra. Þá kastaði Elias spjóti 55.46 m (nr. 5), sleggju 35.94 (4), kringlu 36.98 (5) og stökk 3.20 m i stangarstökki (3). Friðrik Þór Óskarsson stökk 14.43 m í þrístökki (nr. 4) og 6.73 m í langstökki (5); Vilmundur Vilhjálmsson hljóp 200 m á 23.3 sek og 400 m á 51.6 sek en þetta nægði ekki nema í fimmta sæti. Marinó Einarsson hljóp 100 m á 11.7 (5) og Ágúst Ásgeirsson 1500 m á 4:10.3 og 2000 m hindrunarhlaup á 6:23.4 mín og varð nr. 5 í báðum hlaupunum. Þá varpaði Guðni Sigfússon kúlu 12.94 m (5). Sigfús Jónsson hljóp 3000 m á 9:10.0 (5) og Sigvaldi Júlíus- son 800 m á 1:59.7 mín. (nr. 4). Yfirleitt stóðu íslendingarnir sig verr en efni stóðu tii. Mjög heitt var í veðri 32—33 stiga hiti og ’sennilega er þar fundin skýring á hinum slaka árangri flestra. í fyrra stóðu íslenzku keppendurnir sig miklu betur í samskonar keppni og nrunaði þá rnestu, að Bjami Stefánsson varð sigurvegari í þrem- ur greinum. — hsím.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.