Vísir - 01.09.1971, Side 16

Vísir - 01.09.1971, Side 16
— Norburverk kaupir sildarverksmiðjuna á Dagverðareyri undir starfsemi sina Miðvikudajjur 1. sept. M UM 20 ÞÚSUND GESTIR Alls hafa um 20 þúsund manns séð alþjóðlegu vörusýninguna í Laugardalshöllinni. Rúmlega 2200 manns heimsóttu sýning- una í gærkvöldi, þrátt fyrir Kild are lækni í sjónvarpinu og held ur kaldranalegt veður fram eftir degi. —JBP „Við erum mjög á- nægðir með þessi kaup, en hingað til höfum við aðeins haft eitt leigu- herbergi á Akureyri fyr- ir starfsemina“, sagði Árni Árnason stjórnar- formaður Norðurverks um kaup fyrirtækisins á síldarverksmiðjunni og öðrum húsakynnum til* heyrandi henni á Dag- verðareyri. Noröurverk keypti eignirnar fyrir 6 milljónir og 250 þúsund krónur. í kaupunum er innifalin öll víkin að sögn Árna, bryggjur, þrær, síldarverksmiðjan, vél- hús. steypt þriggja hæða hús, sem var notað sem mötuneyti og skrifstofuhúsnæði o-g fleiri hús á staðnum. „Við reiknum með að flytja þangað okkar vélastarfsemi, þeg ar Laxá lýkur“, s'agði Árni enn fremur, „og hafa viðgerðarverk- stæði og vélageymslur þarna út frá“. Árni sagði að vélaviðgerð irnar yrðu í aðalverksmiöjunni ásamt lager. Vélhúsið yrði notað í vetur sem bílageymsla fyrir einkahíla frá Akureyri eins og tíðkaðist undanfarin ár, en þar hafa verið geymdir 100—200 bíl ar yfir veturinn. Hann sagði, að húsin væru í góðu ásigkomul'agi en samt yrði gerö veruleg um- sköpun á húsnæðinu í samræmi við breyttar þarfir. — SB „Umferðarmálin vandamál í líkingu við krabhamein ' Samvinnufryggingar hvetja á 25 ára afmælinu til stórsóknar gegn umferðarslysunum „Umferðarmálin eru eitt erfiðasta vandamálið, sem samfélag okkar á í höggi við — í Iíkingu við krabba- mein og aðra skæða sjúkdóma“, sagði Ásgeir Magnússon, forstjóri Samvinnutrygginga þegar hann og Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS og deildarstjórar Samvinnutrygg- inga ræddu við blaðamenn í tilefni af 25 ára afmæli fyrirtækisins sem er í dag. Bifreiðatryggingar eru mikiö hitamál í dag, en Samvinnutrygg- ingar tryggja um 40% af bílaflota landsmanna, og eru þær tryggingar um það bil fjórðungur af viðskipt- um fyrirtækisins. Kváðu forráðamennirnir það stórmál að barizt væri enn harðar gegn umferðarslysunum sem aukast ískyggilega mikið. Með bættum vegum ætti þetta að lagast talsvert. Þá töldu þeir að herða þyrfti kröf- urnar, sem gerðar eru tii manna og kvenna, sem hyggjast leggja það fyrir sig að aka vélknúnum ökutækjum. Það kom fram í viðtalinu að Samvinnutryggingar hafa haft mik- inn áhuga á að hér yrði reist full- komið bifreiðaverkstæði eins og gerist með erlendum þjóðum. Bæri nauðsyn til að bílaverkstæöismál- um væri lyft á annað og æðra plan en þau mál eru á nú hér á landi. Samvinnutryggingar minnast af- mælis síns í dag og gefa starfsfólki sínu m.a. rausnarlega gjöf, 500 þús. krónur til að byggja sumarbústað í HreðaVatnslandi. — JBP Sauðfé sækir til byggða á Norðausturlandi Nokkur bröigð munu vera að því •ð sauöfé sé farið að sækja til byggða á Norður- og Noröaustur- ’mdi. Sveinn Hallgrímsson, sauð- fjárræktarráðunautur hjá Búnaðarfé Dómcarafulífriíar jæftu við að hæfta Dómarafulltrúar hafa fallizt á :aö að fresta uppsögnum sínum til áramóta. Þeir hugðust láta af störf- um um bessi mánaðamót. Ræddi stjóm Félags dómarafulltrúa við dómsmálaráðherra, sem fór þess á leit við stjórnina, .að hún færi fram á frestun gildistöku uppsagnanna við félagsmenn til þess að hægt væri að finna lausn á kjaramálum bcirra. Hafa félagsmenn tekið já- kvætt í þessa beiðni. — SB lagi íslands, sagöi að á nokkrum stöðum einkum á Norðausturlandi væri jafnvel óeðlilega mikið um það að sauðfé væri fariö að sækja til byggða. Væri hretinu sem kom um dag- inn trúlega mest um að kenna, og þaö flýtt fyrir því að sauöfé leit- aði til byggöa jafn snemma og raun ber vitni. Annars hefði sumarið verið gott hvað snerti sauöfé á landinu í heild. Á nokkrum áfréttum einkum norð an Sprengisands hefðu verið þurrk ar og þar af leiöandi minni spretta. Ætti þetta eflaust líka nokkurn þátt í sókninni til byggða. Hafa bændur þurft að fara að afréttargirðingum og sækja þangaö það fé sem leitað hefur til byggða. Hímir féð gjarnan í einum hnapp við girðinguna og lítur ekki við beit. Verður því að halda auka- réttir og beita því fé heima viö, sem leitað hefur til byggða. —JR Óttazt var í gærkvöldi, að stórslys hefði orðið í Gnoðarvogi, þegar mönnum álengdar sýnd- ist í myrkrinu, að tveir strætisvagnar og tveir fólksbílar hefðu lent í árekstri á mótum Skeiö arvogs. — 2 lögreglubílar, 2 sjúkrabílar og nokkur Iögreglubifhjól voru kvödd á staðinn 03 múgur og margmenni safnaðist í skinið af rauðum aðvörunarljósum, sem vörpuðu bjarma á umhverfið. ?Mætti nota kalkipapp- ír við skýrslugerðina44 — segir lögreglan um umferðaróh’óppin Gnoðarvogurinn var upp- ljómaður af rauðum varúðar- ljósum lögreglubíla, sjúkra- bíla og lögreglubifhjóla í gær kvöldi, vegna áreksturs, sem orðið hafði á horni hjá Skeið- arvogi, en í fyrstu var hald- ið, að 2 fólksbílar og 2 stræt- isvagnar hefðu lent þar sam- an. í ljós kom síðan, að strætis- vagnarnir höfðu numið staðar hjá fólksbílunum tveimur. sem rétt um kl. 22 höfðu lent í árekstri á gatnamótunum. — Tvennt slasaðist 1 bílunum og var flutt á slysadeild Borgar- sjúkrahússins. „Ástæðan var sú sama og í flestum árekstrum. — Það liggur við, að nota megi kalkipappír við skýrslutöku af ökumönnum orðið“. sagði einn lögregluþjónn. Ökumennirnir sáu nefnilega hvorugur annan. Öðrum bílnum var ekiö vestur Gnoðarvog. en hinn kom frá hægri á leið suður Skeiðarvog. Sá fyrri hefði átt að víkja, en ökumaðurinn var upptekinn í samræðum við farþegann, og sá ekki hinn bílinn. Ökumaður hins bílsins hefði ef'til vill get- að gert ráöstafanir til að koma í veg fyrir áreksturinn, ef hann hefði bara séö hinn bílinn, en það sagðist hann ekki hafa gert. — Hvorugur gat gert sér nokkra grein fyrir, hvernig áreksturinn varð. — GP

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.