Vísir - 25.09.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 25.09.1971, Blaðsíða 1
61. árg. — Lausardagur 25. september 1971. — 218. tbl. Tízkudans vetrarins endar á „harakiri '! „Vinsælasti táningadansinn í dag er tvímælalaust yamasuki Hann er dansaöur við sérstaka japanska músík og hefur fariö sem eldur í sinu um Evrópu í sumar. Þetta er táknrænn dans táknar gleði, ótta o.s.frv. og end ar í nokkurs konar „harakiri“. Svo fórust Heiðari Ástvaldssyni danskennara orð er Vísir spurði hann um tízkudansinn í dag. Af evrópskum táningadönsum er Snoopy vinsælastur. Heiðar sagði litlar breytingar á dönsum eldra fólksins. Þó væri reynt að koma með ný spor inn í klass fsku dansana og hefði það mælzt vel fýrir. Hermann Ragnars danskennari kva8 diskótekdansana eftir beat- músik vinsælasta meðal unglinga þar sem hatin þekkti til. Hjá eldra fólki væru samkvæmisdansar stöð ugt áð vinna á. Sagðist Hermann hafa byrjað lítið eitt á þessum dönsum i fyrra og hefði strax kom ið í ljós mikill áhugi hjá þátttak endum og myndi hann leggja meiri áherzlu á þessa dansa í vetur. Væri hægt að dansa þá við öll vinsæl lög og þátttakendur hinir ánægð- ustu. Hjá dansskóla Sigvaida fengum við þær upplýsingar að enginn sér stakur táningadans nyti meirj vin sælda en annar nú sem stæði. Ár lega kæmu upp nokkrir dansar, sem gripu um sig meðal ungling- anna stuttan t’ima og síðan tæki annar viðt Hjá fullorðna fólkinu eru það cha cha cha og va'Isar, sem alltaf eru efst á baugi. —SG „Haraklri“ framkvæmt í dansskóla Heiðars. CN6A KVÖLDSÖLU, TAKKl VISER Gibbons seldi islenzk frí- merki fyrir 625 búsund krónur — verðlaunasafn fri- merkja fór þó langt undir áætlubu verbi biðja kaupmenn i Kópavogi og snúa sér til bæjarstjórnar Afgreiðslutími verzlana í Kópavogi verður óbreyttur frá því sem verið hefur, a.m.k fram yfir áramót. Bæjarráði Kópavogs barst beiðni frá matvörukaupmönnum í Kópa vogi þar sem þeir fóru fram á að sett yrði samskonar reglu gerð í Kópavogi og verður í Reykjavík. Bæjarráð sam- þykkti að fresta því að taka þessa beiðni til afgreiðslu. — Tillagan verður ekki tekin fyrir aftur fyrr en eftir ára- mót að sögn BoIIa Kjartans sonar bæjarritara í gær. Guðni Þorgeirsson kaupmáður í Kársneskjöri sagðj í viðtali við Visi. að allir kaupmenn í Kópavogi, sem verzluðu með matvörur t. d. allar kjörbúðirn ar stæðu að baki þessari beiðni — Á hvaða forsendum var þessi beiðni lögð fyrir bæjar- ráð? „Við teljum eðlilegt, að það sé sami opnunartímj og lokun- artími í þessu bæjarfélági eins og í Reykjavík." — Teljið þið ykkur ekki hafa ábata af þv'i að hafa opið meðan verzlanir í Reykjavík væru lokaða.r? ,,Nei, það sýnir sig í því, að allir matvörukaupmennirnir stóðu að beiðninni. Þessi þjón usta kostar ákveðna hluti, og það hefur ekki t’iðkazt. áð það hafj verið greitt fyrir hana. Við teljum að raunverulega þurfi heimilin ekki meira af matvör um en hægt er að kaúpa á þeim t'ima, sem reglugerðin segir tij um“. — Eru aðstæður Kópavogs- búa jafnvel ekkj erfiðari til verzlunar en Reykvíkinga þar sem margir þeirra sækja vinnu til Reykjavíkur og eiga lengra heim að vinnu lokinni? „Það hefur komið fram hjá neytendum, að nauðsynlegt væri að hafa þessa þjónustu vegna útivinnu húsmæðra. Ég hef tals vert kannað þetta mái hjá tveim fyrirtækjum hér, og það er síð ur en svo, áð þær húsmæður, sem hafa unnið þar. hafj orðið að verzla á kvöldin.“ — En þeir, sem vinna f Reykjavík? „Ég hef ekki haft aðstæður til að kanna það. Við höfum talsvert velt þessu fyrir okkur og með reglugerðinni koma tveir dagar, þar sem opið verður á kvöldin og fleira selt en matvar an. Það hafa ýmis þjönustufyr irtæki ri'kisins mátt sýna betri þjónustu en þau hafa gert, en það hefur ekki verið talið eðli legt.“ — Myndu kaupmenn eins not færa sér þriðjudagsheimildina til aö hafa opið og föstudagsheim ildina? „Ég tej eðlilegt. að almennt yrði opið á föstudögum en get ekki svarað þessu með þriðju dagana.“ —SB Verðlaunasafn af íslenzkum frímerkjum var slegið á alls um 625 þús. ísl. krónur á einu fyrsta frimerkjauppboði Stanley Gibb ons í Lundúnum í gærdag. „Það er greinilegt að sjaldgæfustu merkin eru virt of hátt í upp hafi“, sagði fréttaritari Vísis í London, en sum númerin fóru alllangt undir því verði, sem sett hafði verið á þau fyrirfram. Hins vegar fékkst ágætisverð fyrir mörg ódýrarj númerin. jafn vel iangt yfir því verði, sem reikn að var með i frímerkjalista Stan- ley Gibbons, sem gefinn var út fyrir uppboðiö. Hæsta númerið af þeim 13 ís- lenzku númerum í skránni, var sérkennilegt safn flugfrímerkja, sem reyndar vantaði í Hópflug ítala Þetta safn -var slegið á 500 pund, eða 110 þús. krónur tæpar. Safn þetta var virt á 550 pund. Sextán aura frímerki, brúnt að lit frá 1902 og 1903 var þó dýr- asta frímerkið á uppboðinu, — það var slegið á 300 pund, eða um 65 þús. krónur, og þótti nokk uð lágt verð því reiknað var með að það færj á 500 pund. í heild fór verðlaunasafnið á 2850 pund, en matsverðið var 3655 pund — JBP „Sumir koupa 30 slátur" — slátursala hafin i Hafnarfirbi og hefst um miðja næstu viku i Reykjavik „Jú, það er óhemju sala í inn-1 Viðskiptavinir hans koma frá mat og kjöti. Flestir kaupa 10— ; 'Stór-Reykjavikursvæðinu og Suður 15 slátur, sumir upp í 30 slátur. j nesjum og e^ því sláturtíð hafin hjá Salan á kjöti hefur farið upp í 10 skrokka, og einn keypti 15 í morgun, en mikið af fólki kaupir svona 5—8 skrokka nú er kjötið svo ódýrt“, segir Guðmundur Magnússon í Hafnarfirði, en hann hóf að selja slátur frá slát urhvsi sínu fyrir hálfum mánuði. morgum. Hér í Reykjavik hefst slátursal- an um miðja næstu viku. Vigfús Tómasson hjá Sláturfélagi Suður- lands sagði, að það þyrfti að svíða 4—5000 hausa áður en hægt væri að opna sláturmarkaðinn. Nú væri ekki leyfilegt að svíða hausa nema við gas og tefði það fyrir slátursöl í litum í dag - fylgiritið VISIR 1 VIKULOKIN fylgir blaðinu i dag til áskrifenda unni þa,- sem fænri væru við það verk nú en áður, þegar sviðið var við olíu. Margir munu nota sér sláturkaup núna ekki síður en í fyrra en fjör- kippur hefur aftur komið í slátur- söluna, Slátursalan verður opin i 3—4 vikur og kostar slátrið nú 179 kr. Vigfús sagði, að sala á heilum ] skrokkum væri hafin og væri hún mikil. Afurðadeild SÍS mun hefja slát ursölu um miðja næstu viku einnig, og má þá segja, að sláturtíðin kom ist f algleyming, þegar þessar tvær stóru slátursölur opna. Slátrið ko'tar nú 179 kr. meö sviðnum oo s^o-'^um haus og hreins uðurn • ’''iin. Hækkunin er S,4% frá verði á slátri í fyrra. Kjöt hefur hins vegar lækkað í verði miðað við sama tíma f fyrra og kosta,- skrokkurinn núna 101.50 kílóið sagaður, en f Hafnarfirði sel ur sláturhús Guðmundar Magnús- sonar beint úr sláturhúsinu kílóið á 97.50 kr. — SB POP! ■Fyrir unga lesendur Vísis bend- ]um við f dag á Pop-punktana! sem eru inni í blaðinu. Þar kem] ur margt fram eins og fynri dag; inn. Glaumbær er að hef ja „her! ferð gegn öllu lifandi“ eins og; sagt var um Reykjavíkurborg í undamálinu. Hljómsveitirnar! verða þar eftirleiðis einungis af !hljómplötum í diskóteki. Ingi bergur umboðsmaöur er ekki] af baki dottinn eftir skellinn og argt fleira má lesa á síðunni SJÁ BLS. 5. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.