Vísir - 25.09.1971, Blaðsíða 10
10
V í S I R . Laugardagur 25. septemoer 1971
I Í KVÖLD1 j DAG I IKVÖLD [1 I DAcT~i í KVÖLD
Þeir eru ekki beint spekingslegir á svipinn þeir Bessi Bjarnason,
Gísli Alfreðsson og Gunnar Eyjólfsson, þar sem þeir pata þarna
út í loftið með penslum sínum — eða öllu heldur málaranna, sem
þeir eru að leika.
SJÖNVARP SUNNUDAG KL. 22.Ö0:
Ekki nv bóla
— en óborganlegf samt...
J^oftbólur Birgis Engilberts eru
ekki ný bóla, leíkritiö var
frumsýnt í Lindarbæ vorið 19'S7
og í sjónvarpinu 1969. Engu aö
síöur hlýtur þaö enn aö vera
jafnbráðskemmtilegt og þá. —
Málararnir þrír, setn þeir Gunnar
Bessi og Gísli Alfreðsson leika
eru áreiðaílega jafntruflaðir á
geðsmunum og fyrri daginn þar
sem þeir paufast uppi í stigum sln
um við að mála vegg, sem enginn
er.
Samtal þeirra snýst um allt milli
himins og jarðar og er óneitanlega
fyndið áheyrnar, þó að það sé
ekki að sama skapi uppbyggilegt.
Birgir Engilberts, höfundur leik
ritsins, er sjálfur starfandi sem
málari. Þó ekki í sömu stétt og
þremenningarnir í Ieikriti hans,
heldur leiktjaldamálari. Við leik
tjaldamálun vann hann er hann
samdi „Loftbólur" og búa leikrita
skáld sennilega fá við svo heppi
lega stemningu sem hann á meöan
þeir beria saman verk sín.
Ekki be.r. sviðsmyndin í „Loft-
^ bólum“ vott um þaö beinlínis, að
höfundur leiksins sé leiktjaldarnál
ari. Að minnstá kosti viröist Birg
ir ekki hafa varið löngum tíma
í að úthugsa þá hlið málsins. —
Sviðsmunirnir eru lítið annaðen
stigar málaranna og verkfæri
þeirra.
1 leikritinu fer Gisli Alfreðsson
mað hiutverk lærlingsins, Bessi
með l'lutverk sveinsins og Gunn-
ar Eyjólfsson meistarans. — f>ar
kemur sennilega skýringin á því,
hvers vegna hann ber viöhafnar-
meiri klæðnað en mótleikararnir.
— ÞJM
sjónvarpJs*
T,aufTardagur ?.5. sept.
18.00 Endurtekið efni.
Réttur er settur. Laganemar við
Háskólann setja á svið.réttar-
höld í máli, sem rís út af
skiptingu erfðafjár.
Umsjónarmaður Magnús
Bjarnfreðsson.
18.50 Enska knattspyrnan.
2. deild. Swindon Town —
Fulham.
19.40 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Dísa. Þýðandi .Cristrún
Þórðardóttir.
20.50 Ættinyiar Napóleons
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
21.30 Hörkutólið (Diamond Head).
Bandarísk bíómynd frá árinu
1962, byggð á sögu eftir Pete
Gilman,
Leikstjóri Guy Green
Aðalhlutverk Charlton Heston,
- Yvette Mimieux, George Chakir
is og James Darren. Þýöandi
Kristrún Þórðardóttir.
23.15 Dagskrárlok.
Sunnu 'avuf 26. sept.
18.0o Helgistund
Séra Lárus Halldórsson
18.15 Gilitrutt. Barnamynd eftir
Ásgeir Long og Valgarð Run-
ólfsson, byggð á gamalli þjóð-
sögu. Leikstjóri Jónas Jónas-
son. Aðalhlutverk Ágústa Guð-
mundsdóttir Martha Ingimars
dóttir og Valgarð Runólfsson.
19.15 Hlé.
20.00 Fréttir.
2Ö.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Suður. Kvikmvndun Þórar-
inn Guðnason. Umsjón Ólafur
Ragnarsson.
20.55 I sviösljósinu. Þættir um
sænsku söngkonuna Birgit
Nilsson með söng og samtölum.
I’ bættinum koma einnig fram
Alice Babs. Sten Bromann og
Anika Nilsson.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
22.09 Loftbólur. Leikrit eftir
Birgi Engilberts. Leikstjóri
Benedikt Árnason. Fyrst sýnt
7. apríl 1969.
22.35 Dagskrárlok.
MESSUR •
Dómkirkjan. Messa kl. II. Séra
Óskar J, Þorláksson.
Laugarneskirkja. Messa kl. 11.
Séra Garðar Svavarsson.
Haustfermingarbörn í Laugarnes
sókn eru beðin að koma til við
tals í Laugarneskirkju n.k. þriðju-
dag kl. 6 e.h. Séra Garðar Svav-
arsson.
Árbæjarprestakall. Guðsþjón-
usta í Árbæjarkirkju kl. 11. f.h.
Séra Guömundur Þorsteinsson.
Hallgrímskirkj'a. Messa kl. 11.
Ræöuefni: Lasarus, kom þú út. —
Dr. Jakob Jónsson.
Háteigskirkja. Messa kl. 2. —
Séra Jón Þorvarðsson.
Ásprestakall. Messa í Laugarás
bíói kl. 11. Séra Grímur Gríms-
son.
Langholtsprestakail. Barnasam-
koma kl. 11.30. Guösþ:ónusta kl.
2. Séra Árel'ius Níelsson.
Kópavogskirkja Digranespresta
kall. Guðsþjónusta kl. 2 Séra Þor
bergur Kristjánsson umsækjanði
um Digranesprestakall messar. —
Messunni veTður útvarpað á mið
bylgju 1412 HKZ (212 m). Sóknar
nefndin.
Kópavogskirkja, Kársnespresta-
kall. Guðsþjónusta kl. 11. — Séra
Árni Pálsson umsækjandi um
Kársnesprestakall messar. Mess-
unni verður útvarpað á miðbylgju
1412 KHZ (212 m). Sóknarnefndin
SJÓNVARP SUNNUDAG KL. 20.25:
Yfirgefa byggðarlagið
Cjónvarpsmenn heimsóttu Ing-
^ ólfsfjörö á Ströndum ekki alls
fyrir löngu og tóku þá myndina
sem sýnd verður í sjónvarpinu
annað kvöld'undir heitinu ,Suður‘
Dregur myndin nafn sittafþví,
&a íbúar byggðarlagsins hyggjast
Tiytjast þaðan brott í haust og
setjast að í þéttbýlinu fyrir sunn-
an.
Skoöuó eru mannvirki viö Ing-
ólfsfjörð og rætt við íbúana, Sem
allir eru að búa sig undir að flytj-
ast að Faxaflóanum þessa dagana.
Meðfylgjandi mynd er frá Ing-
ólfsfiröi, nánar tiltekið frá Eyri,
en þar er gömul sildarverksmiðja.
Neskirkja. Guósþjónusta ki. 11.
Séra Frank M. Halldórsson.
Bústaöaprestakall. Barnasam-
koma í Réttarholtsskóla kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 2. Séra Ólafur
Skúl ason.
ÍILKYNNINGAR #
Biskupinn, hr. Sigurbjörn Einars-
son, vísiterar Mosfellsprestakall 1
Kjalarnesprófastsdæmi laugardag-
inn 25. og sunnudaginn 26. sept-
ember.
Á laugardaginn veröa fundir
með sóknarnefndunum. Að Mos
felli kl. 1. Lágafelli kl. 4 og Braut
arholti kl. 8.30.
Á sunnudag verða guðsþjónust
ur svo sem hér segir: KI. 11 f.h.
í Lágafellskirkju, kl. 2 e.h. í
Brautarholtskirkju og kl. 8.30 e.h.
í Mosfellskfrkju.
Biskup predikar í öllum kirkjun
um.
KFUM. Almenn samkoma í húsi
félagsins við Amtmannsstíg, ann-
að kvöld kl. 8.30. Kristileg skóla
samtök sjá um samkomuna. Allir
velkomnir.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag kl.
11 helgunarsamkoma, kl. 14
sunnudagaskóli, kl, 20.30 hjálp
ræöissamkoma. Foringjar og her
menn taka þátt í samkomunum
með söng, vitnisburðum og ræð-
um. Allir velkomnir.
Mánudag kl. 16. Heimilasam-
band. Allar konu,- velkomnar.
VISIR
50
fyrir
árurm
Bæjarfréttir. Rúgbrauö þykja
hafa versnað til mikilla muna, síð
an verðiö lækkaði.
HEILSUGÆZLA #
Kvöldvarzla helgidaga- op
sunnudagavarzla á Reykiavík'i’
svæðinu 25. sept. — I. oít-..:
Reykjavíkurapótek Borgaapótek
Odíö virka dasa til kl. 23. nelgi-
daga jél 10—23.
rannlæknavakt er I Heilsuvernd
arstöðinni. Opið laugardaga og
sunnudaga kl 5—6 Sími 22411
Sjúkrabifreið: Reykjavík, sími
11100 Hafnarfjöröur. simi 51336.
Kópavogur. sími 11100.
Slysavarðstofan. simi 81200, eft
ir lokun skiptiborðs 81213.
Kópavogs. og Keflavíkurapótek
eru opin Hqo, kl. 9—19.
k -'rdaga 9—14. helga daga
13-15.
Næturvarzla lyfjabúða á Reykja
víkursvæðinu 'er f Stórholti 1. —
sími 23245
Neyðarvakt:
Mánudaga — föstudaga 08.00—
17.00 eingöngu I neyðartilfellum,
sími 11510
Kvöld- nætur- og helgarvakt:
Mánudaga — fimmtudaga 17.00—
08.00 frá kl. 17.00 föstudaga til
kl. 08.00 mánudaga. Sími 21230
Laugardagsmorgnar:
Lækningastofur eru lokaðar á
laugardögum, nema 1 Garða
stræti 13. Þar er opið frá kl. 9—
11 og tekið á móti beiðnum um
tyfseðla og þ. h. Sími 16195.
Alm. upplýsingar gefnar í slm-
svara 18888.
MINNINGARSPJÖLD •
QluWJingarspjöld Háteigskirkju
eru atareidd hjá Juðrúnu Þor-
steinsdóttur. Stangarholti 32, —
sfmj 22501 Gróu Guðjónsdóttur
Háaleitisbraut 47. sími 31339,
'■ >rið- R"-ion<---dóttur Stigahlíð
49. simi 82959. Bókabúðinni Hlið
ar, Miklubraut 68 og Minninga-
búðinni Laugavegi 56.
Charlton Heston og Yvette Mimeux í hlutverkum systkinanna
í myndinni „Hörkutólið“, sem sjónvarpið sýnir í kvöld.
SJÓNVARP LAUGARUAG KL. 21.30:
Vandamál á Hawaii
Charlton'Heston fer með aðal-
hlutverk bandarísku bíómyndar-
innar, sem sjónvarpiö sýnir í
kvöld. Fer Heston þar méð hlut
verk auðugs, hvíts landeiganda
á Hawaii, sem á von á ungri syst
ur sinni eftir að hún hefur dvalið
i skóla.
Fjölskyida þeirra hefur um lang
an aldur búið þar á eyjunum,
en aldrei blandazt hinum inn-
fæddu. Þegar svo stúlkan (leikin
af Yvette Mimieux) lýsir þvi yfir
að hún hyggist trúlofast einum
hinna þeldökku eyjaskeggja verð
ur bróðir hennar skelfingu lostinn.
Þessi bíómynd e» rétt aðeins tíu
ára og eru vart liðin nema tvö
eða þrjú ár frá því myndin var
sýnd við góða aðsókn í Stjörnu-
bíói.
Nefnist myndin „Diamond
Head“ og er gerð eftir samnefndri
sögu Pete Gilman.
Auk Hestons og Yvette fara
George Chakiris og Jamés Danes
með hlutverk í myndinni.