Vísir - 25.09.1971, Blaðsíða 2

Vísir - 25.09.1971, Blaðsíða 2
CONNERY LEIKUR AFTUR 007 orðinn af öðrum ruMum Hka, þá er staðreyndin sú, að mikiH meiri hluti kvikmyndahúsagesta þekkir Sean Connery er aftur farinn að ieika James Bond. Hans fjölmörgu að dáendur fagna eflaust aft urkomu Connerys í þetta fræga hlutverlc, og Harry Saltzman, framleiðandi myndarinnar, hugsar ef- laust einnig gott til glóð arinnar, að halda nú á- fram að græða á Bond- myndunum. Mjög fáir leikarar hafa orðið frægir í einu hlutverki, eins og raun varð á með Connery. Frægð hans og peningar var gersam- lega bundið Bond-karlinum, og var sama hvaö Connery gerði til að hrista Bond af sér, það tókst aldrei — og þótt hann láti nú í veðri vaka, að hann sé frægur hann ekki sem annan en „mann- inn sem leikur Bond“. Fyrstu Bond-myndirnar, „Dr. Nei“, „Með ástarkveðju fró Rúss- landi“ „Goldfinger“ „Þrumufleyg- ur“ og „Þú lifir aðeins tvisvar" skófluðu milljónum í vasa fram- leiðendanna þeirra Chubby Brocc oli og Harry $altzman. Hlutverk 007, þ. e. Bonds, gerði Sean Connery bæði frægan og auðugan, en jafnframt þekkti al- menningur hann ekki sem aðra persónu en hörkutólið, kvennaguM ið og meistaranjósnarann James Bond. Sean Connery í fyrstu Bond-myndinni, „Dr. Nei“. Svo fór Bond að fara í taug- arnar á Connerj'. Er hann haföi leikið í fimmtu Bond-mypdinni. sagðj hann: ,,Ég hélt aðégmyndi standast þann þrældóm, sem enn ein Bond-mynd mun hafa I,,för með sér. Að ég muni þola að vinna mér inn ennþá einu sinni milljón dollara. Peningar eru hins vegar ekki allt". Og Connery fékk lausn frá Bond og framleiðendumir ruku af stað að ieita að nýjum Bond-leik- ara. Hlutverkið fékk svo strákur, sem fram til þess að hann hóf Bond-leik. hafði verið í auglýsinga kvikmvndum í sjónvarpi, George nokkur Lazenby. Hann lék í „í levniþjóni’stu hennar hátignar". Connery var hamingjusamur að vera laus við þann kaldlvnda 007. Hann fór að leika á móti Brigitte Bardot í brezkri kúrekamynd „Shalako". en sú mynd var gerð á Spáni. Sú mvnd fékk ærið blendnar umsagnir. Hann var heppnari með „The Mo'ly MagUir es“, sem fjallar um námumenn f Pennsylvaníu. Á móti Connery þar léku stórleikarar eins oc Richard Harris og kroppurinn Samantha Eggar. Einnig lék Connery í mvnd er kailast „Rauða tjaldið", en hún hefur enn ekki verið sýnd. Við gerð þeirrar myndar fór Connerv meðal annars til Rússlands. on sagði eftir þá ferð, að gaman hefði verið að ganga um stræti Moskvu. bar sem eneinn þekkti hann og hann gat hevðað sér eins og hver annar borgari. Svo afrekaði hann. það að leik- stýra eicinkonu sinni, leikkonunni Diane C’lento í leikriti er heitir ..Séð hef ée þig skera sítrónur". Og þá þykist hann vera orðinn alvöruleikari, ekkj bara „maður inn sem leikur alltaf James Bond“. Og hann telur í lagi að leika í einni Bond-mynd í viðbót — vinna sér inn enn eina milljón- ina. Bond er orðinn það frægur út um heimsbyggðina, að Bond- mynd með öðrum leikara en Connery í aðalhlutverki er eins og gerviframleiðsla. Pillan er ekki barnamatur — árlega koma 3000 börn á sjúkrahús / Danmörku vegna eitrunar Þrjú þúsund börn eru flutt á liverju ári á sjúkrahús í Danmörku vegna eitrunar. Oft stafar þessi eitrun af því, að barnið hefur borð að þá frægu Pillu. Álitiö er skaðlaust að bam gleypi eina til tvær pillur, en hafi bam gleypt mánaðarskammt, er rétt aö kalla tafarlaust á lækni. Læknar við sjúkrahúsið í Óðins- . véum kveða það sína reynslu, að bezt sé aö gefa barni inn lítinn skammt af koparsúlfati eða kopar- vitríóli. Það orsakar uppkösthjá baminu og þannig losnar það við piMumar. Nýlega ritaði læknir að nafni Jens Löchte í vikurit læknafélags- ins danska um eiturát bama. Seg- ir hann í grein sinni, að greinilegt sé að foreldrar séu kæmlausir um hvar þeir skilja eftir meðul, eða aðra þá hluti, sem geta orsakað eitrun ef börn komast í þá. Böm em einu sinni þannig gerð, að þau verða ævinlega að vera að naga eitthvað eða japla. Og eitrun stafar ekki bara af Pillunni eða öðmm lyfjum, oft verða læknar að dæla upp úr börnum, sem borðað hafa sígarettur úr ösku- bökkum. Ny stjarna á pop-himni Sonja Kristina heitir þessi kvenmaður. Hún syngur með pop hljómsveit er kallast „Curved Air“ og hefur nýlega verið lcjör in bezt ungra söngpía * vinsældalistum unglingablaða, rétt eins og margar frægar 'kur á undan henni, t.d. Cilla Black Shirley Bassey og Dusty Springfield. — Sonja Kristina er 22 ára.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.