Vísir - 25.09.1971, Blaðsíða 16

Vísir - 25.09.1971, Blaðsíða 16
ism -augardagur 25. september 1971 Baunsgaard falin stjórnar- myndun Friðrik Danakonungur hefur falið Silmar Baunsgaard að gera til- •aun til stjórnarmyndunar á breiö um grundvelli með þátttöku jafnað armanna, íhaldsmanna, Vinstri flokksins og Róttæka vinstri flokks ins. Þetta mundj þýða, að jafnaðar- menn bættust við samstarf núver- andi stjómarflokka. — HH Sérstakar hækkanir á laun upp uð 18 þásun — Kr'ófur verkalýðsfélaganna jafngilda 30-50°/o, segja vinnuveitendur Verkalýðsfélögin vilja fá sérstakar hækkanir á allt grunnkaup, sem er innan við 18 þús. á mán- uði og síðan 20% hækk un alls kaups til viðbót- ar. Þau gerðu í gær ná- kvæma grein fyrir sam- eiginlegum kröfum sín- um. Samkvæmt þeim fengju til dæmis þeir sem hafa 14.500 krónur á mánuði fyrst sérstaka 7,7% hækkun og síðan 20% hækkun þar ofan á. Sérstaka hækkunin verður því mifmi hundraðstala þeim mun hærra kaup, sem menn hafa. Hafi menn 16 þús. kr. 'i mánaðar- kaup, fengju þeir til dæmis 4,4% aukahækkun og síðan 20% ofan á. Þegar kemur upp í 18 þús. kr. laun á mánuði, verður engin aukahækkun aðeins 20% almenn hækkun samkvæmt kröf um verkalýðsfélaganna. Mið- að er við grunnkaup i þessum útreikningum Auk þess krefjast félögin, aö vinnuvika verð; stytt um 4 klukkustundir, og lágmarksor- lof skul; vera 4 vikur á ári fyrir verkafólk Atvinnurekendur skuli tryggja verkafólki, er unn- iö hefur hjá þeim í 4 vikur, föst vikulaun. Þá verði uppsagn arfrestur ein vika. Yrhsir lægstu kauptaxtar verði felldir niður. Einnig verði endurskoðuð á- kvæði samninga um slysatrygg- ingar og greiðslur kaups í veik inda- og siysatilfellum og trygg ingarnar auknar. Gert er ráð fyrir, að almenna kauphækkunin verði látin koma til framkvæmda smám saman í áföngum en ekki er greint nán ar frá þv’i, hvernig þeir áfangar verði. Vinnuveitendur telja, að kröf ur þessar jafngildi 30—50% hækkun á kostnaði tímakaups. —HH IÐNAÐURINN ÞARF EKKI AÐ SETJA BLETT Á UMHVERFIÐ Helztu samtök iðnrekenda á Norð urlöndum, þar á meðal Islandi hafa ákveðið að stofna samvinnu- nefnd um umhverfisvemd. Með þessu samstarfi hyggjast -lamtökin auka skilning á umhvetí isvernd innan iðnaðarins og gefa stjórnvöldum upplýsingar um mögu leika iðnaðarins í þeim efnum. — Verksmiðjur eiga sem sé ekki endi lega að vera blettur á umhverfinu. 1 yfirlýsingu fulltrúanna eftir fund í Osló í gær, er sagt, að sam tök iðnaðarins á Norðurlöndum geri sér grein fyrir því, að rekstur iðnfyrirtækja geti haft óæskileg á- hrif á umhverfi sitt. Ástæða sé að leggja áherzlu á þaö, sem vel hafi verið gert í þessum efnum, þótt margt sé enn ógert. Árangur, sem hafj náðst á seinastá ári, gefi góð ar vonir. — HH < Hörð keppni fram- undan í listaverka- uppboðum Grelnilegt er að mikil samkeppni verður í vetur milli tveggja að- :la sem báðir ætla að hasla sér völl á íistmunauppboðsmari’aðnum í höfuðborginni. Slkýrt ’ efur verið frá stofnun fyririækisins Sig- urður Benediktsson hf„ — en í gær bættist annar aðili á markað 'nn, er það Knútur Bruun, sem heldur sitt fyrsta listmunauppboð 11. október og selur þar fágætar bækur, en fyrirtækinu hefur verið falið að selja.stórt og viðamikið bókasafn með fágætum og fall- egum bókum. Á myndinnl eru nokkrar biblíur, sem verða seidar á uppboðinu. Glerárbrú snúið til betri vegar Um þessar mundir er 20 manna vinnuflokkur önnum kafinn við að snúa Glerárbrúnni á Akur- eyri til betri vegar. Brúin hefur verið umferðinni á Akureyri þrándur í götu um Iangt skeið og skapað mikla slysahættu. — Snýr hún skáhallt á aðalumferð argötuna út úr bænum. Akureyr ingar sáu að við svo búið mátti ekki standa lengur. Eftir útreikninga og mælingar var komizt áð þeirri niöurstöðu, að ódýrara væri að snúa þessari brú og byggja síðan aðra við hliö hennar, heldur en að ritfa þá gömlu. Norðurendí brúarinnar verð ur færður um 6—7 metra í vestur og suðurendinn verður færður 2— 3 metra f austur. S’iðan verður byggð ný brú austán við þessa og eyja höfð á mHli Verða tvær akreinar á hvorri brú og gang- braut. Þessi snúningur er nú að hefj- ast og af þvi verður nokfeur trufl un á umferð yfir Glerá meðan á verkinu stendur Byggð hefur ver ið trébrú nokkru neðar og tekur hún umferð sem fer norður, en þeir sem aka í suður verða að fara upp á gömlu biúng við Gler árgil. Framkvæmdum verður ekki lokið fyrr en í nóvember og mun kostnaður skipta miiljónum. En umferðin ætti líka að geta gengið greiðlega eftir það. —SG „KlSILGÚR RÆNT AF LANDEIGENDUM“ — og nú stefna Mývatnsbændur islenzka ”ikinu fyrir sjálft'óku verðmæfa Veiðifélag Mývatns hefur höfðað eignardómsmál á hendur íslenzka ríkinu. — Gerir veiðifélagið þá kröfu að botn Mývatns og botn- verðmæti öil verði taiin hiuti af landareignum þeirra aðiia, er lönd eiga að Mývatni óskiptri sameign þeirra, og að engir aðrir en þeir eigi þar eigharaðild. í stefnunni er því haldið fram, að íslenzka ríkið hafi „ranglega með sjálftöku skafið kísilgúr af botnj Mývatns og talið sig eig- anda þessara verðmæta eftir að Kísilgúrverksmiðjan var reist við Mývatn". Segja landeigendur við Mý- vatn, að íslenzka rikið ,,sé ekki og géti ekki verið, að gildandi lögum og stjórnarskrá, eigandi að ám eða stöðuvötnum (botni og fljótandi vatni), nema það sé eigandi aðliggjandi landsvæða" — eins og segir í stefnunni. Og e’'-’fremur segir, að sama hljóti að eilda um allan almenning i landinu, einstaklinga og stofnan ir, hvar f sveit sem þeir telji sig. Þar sem kyrrstæð eða stijeym andi vötn ráði landamerkjum samkvæmt landamerkjabréfum, sé það viðtekin regla á íslandi að fornu og nýju, að bakkaeig- endur eigi hvor á móti öðrum að miðju vatnsfalli. Stefna landeigendur hverjum þeim sem kann aö telja sig rétt- hafa ofangreindra eignaverö- mæta, að mæta í aukadómþingi Þingeyjarsýslu að Skjólbrekku í Mývatnssveit mánudaginn 29. nóvember n.k. Stefnuna kunngerir og stað- festir Jóhann Skaptason. sýslu- maður Þingeyjarsýslu, og birtist hún ölj í Lögbirtingablaðinu, er út kom 22. sept. sl. — GG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.