Vísir - 25.09.1971, Síða 5
5
V1 S IR . Laugardagur 25. september 1971.
imv
Svissari heimsmeisfari j
unglinga í skák j
Gríska skáksambandið sá um
heimsmeistaramót unglinga
1971, og var teflt í Aþenu.
Keppendum 44 talsins, var rað
að niður í 6 riðla og s’iðan
kepptu tveir efstu til úrslita um
heimsmeistaratitilinn.
Þó keppendur vœru ungir að
árum höfðu margir þeirra þeg
ar unnið sér orðstír á alþjóða
vettvangi, svo sem Ribli, Ung-
verjalandi Rogofif, Bandaríkjun
'im og Vaganjan Sovétríkjunum.
Hinn síðastnefndi var álitinn sig
urstranglegastur, enda hafði
hann nýlega unnið mjög sterkt
skákmöt í JúgóslaViu og náð
þar stigatölu stórmeistara.
Það var þó enginn þessaija
^ kappa sem hreppti hnossið. 19
i ára Svisslendingur, Werner Hug,
/ vann mjög óvæntan sigur. Fyr
J ir mótið var hann algjörlega ó-
i þekktur. tefldi reyndar á heims
í meistaramótinu í Stokkhólmi
/ 1969, en lenti þar í 29. sæti.
J Hug tapaði fyrstu skák sinni í
\ undanúrslitunum, en síðan ekki
4 söguna meir og í úrslitakeppn-
/ inni hlaut hann &y2 vinning af
J 11 mögulegum. í 2. sæti varð
() Riblj með 8 vinninga, 3. varð
4 Rogoff en Vaganjan 5. Hinn
/ nýi heimsmeistari hlýtur auk
J sigurlaunanna, titilínn alþjóðleg
4 ur skákmeistari.
Hér ef ein skák hans frá mót
inu.
Hvítt: Haik Finnlandi
Svart: Hug Sviss
Sikileyjarleikur
1. e4 cð 2. Rc3 Rc6 3. Rge2
e6 4. d4 cxd 5. Rxd Dc7 6. Be3
Rf6 7. Bd3 RxR 8. BxR Bc5
9. BxR?
(Hvítur leggur út í vafasamt
ævintýrj. Betra var 9, BxB
DxB 10. 0—0 með jafnri stöðu.)
9. . . . gxB 10. Dg4 Bb4 11.
Dg7 BxRf 12 bxB Dxct 13.
Ke2 Hf8 14. Dxh
(Hvítur hefur nú aðeins upp
á eitt að tefia, frípeðið á h-lín-
unni.)
14. ... b6 15. h4 Bb7 16.
Dh6 Ke7 17 h5?
(Of seinvirkt. betra var 17.
Dd2 ög koma drottningunni í
vörnina.)
17. ... Hg8 18. Hagl Hg5
19. f4 Ha5 20. f5 Bxe! 21. BxB
He5 22. Hh4
(Meiri vörn veitti 22. De3,
DxDt 23. KxD exf 24. h6 fxe
25. h7 Hh8. Eða 24. Hh4 fxB
25. Hxe d5 26. HxHt fxH.)
22. . . Hc8 23. Dd2 Dg3!
24. Hf4 Hxc! 25. DxH DxH 26.
Kdl HxB og hvítur gafst upp.
Jóhann Örn Sigurjónsson.
Landsiið íslands á Evrópumót-
inu í Grikklandi veröur skipað eftir
töldum mönnum: Ásmundur Páls-
son, Hjaltj Elía'sson, S'fmon Símon
arson, Stefán Guðjohnsen, Þorgeir
Sigurðsson, Þórir Sigurðsson. Fyr
irliðj án spilamennsku verður Al-
freð G. Alfreðsson.
Eftir harða keppni um landsliös
sætin, sem byrjaði i júlímánuði en
dróst síðan á langinn vegna veik
inda og annarra orsaka. hafa ofan
greindír menn borið sigur af hólmi.
Metþátttaka verður á Evrópumót
inu sem hefst 23. nóvember og
stendur til 4.! desember. Hafa eftir
taldar þjóðir tilkynnt þátttöku í
opna flokkinn:
Noregur, Spánn, Finnland, Pól-
land, Austurríki, Þýzkaland, Ung-
verjaland ísrael, Júgóslavía, ís-
land, Tyrkland, Ítalía, Frákkland,
Sv’iþjóð, Portúgal, Danmörk Grikk
land, Belgía, Sviss, írland Holland
og England.
í kvennaflokki munu spila 16
þjóðir, sem einnig er metþátttáka.
4
Bridgefélag Reykjavikur hóf starf
semi sína með þriggja kvölda tví-
menningskeppni Að fyrstu umferð
lokinn; eru þessi efst:
1. Kristjpna Steingrimsdóttir og
Halla Bergþórsdóftir 214
2. Jón Ásbjörnsson og
Páþ Bergsson 213
3. Sigtryggur Sigurðsson og
Páll Hjaltason 201
4. Örn Guðmundsson og
Lárus Karlsson 199
5. Guðláugur Jóhannsson og
Guðmundur Pétursson 192
Næsta umferð verður spiluð n.
k. miðvikudag í Domus Medica.
Hér er spil frá slðustu umferð.
Staðan var allir utan hættu og
austur gaf. Á öllum borðum varð
lokasamningurinn 3 grönd í n —s,
sem unnust slétt á flestum. Byggð
ist vinningurinn á hjartaíferðinni.
En hér er spilið:
♦ G-9-6
♦ D-5-2
♦ K-D-3
4 Á-10-8-4
♦ K-10-4-3 ♦ 8-7-5-2
V G-10-8-4 ♦ K-9
♦ G-8-7-4-2 ♦ 9
4 ekkert 4 D-G-9-7-6-5
♦ Á-D
♦ Á-7-6-3
♦ K-10-6-5
4 K-3-2
Á einu borði varð norður sagn-
hafi í þremur gröndum. Austur spil
aðj út lanfadrottningu, sem átti
slaginn. Þá kom spaði, drottning
og kóngurinn átti slaginn. Nú kom
þriðji liturinn, hjartagosi, drottn-
ing, kóngur og hann átti slaginn.
Enn kom hjárta og nú var sviðið
sett fyrir nokkuð óvenjulega kast-
þröng.
Sagnhafi drap á ásinn, tók spaða
ás, heim á ]aufás, spaðagosi, tígul-
hjón og inn á laufakóng. í þriggja
spila endingunnj verður vestur að
halda tígulgosa öðrum og hæsta
hjarta. Honum var þá spilað jnn
á hjarta og tígultlan var níundi
slagurinn.
♦
Nýlega bauð Bridgesamband Aust
urlands íslandsmeisturunum í tví-
menning, Hjalta Elíassyni og Ás-
mundi Pálssyni til keppni austur.
Sigruðu meistarárnir með nokkrum
yfirburðum. Rómuðu þeir gestrisni
heimamanna einnig utan spilaborðs
ins Formaður Brigdesambands
Austurlands er Ásgeir Sigurðsson
frá Vopnafirði.
4
Vetrarstarfsemi Bridgefélags
Koþavogs hefst með Þriggja um-
ferða tvímenningskeppni n. k. mið
vikudag. en sveitakeppnj hefst að
henni lokinni þ. 20. okt. Að þessu
sinni verður sveitakeppnin ein um
ferð í stað tveggja áður, en með
því gefst rýmrj tímj til keppni við
önnur félög og undirbúnings undir
væntanlega Færeyjaför félagsins
að sumri.
/ UMSJÁ
ÞÓRARINS J.
MAGNÚSSONAR
Trúbroti várð ekki að þeirri von
sinni að fá Karl Sighvatsson í
lið meö sér að utanför hans af-
staðinni. Kari gekk nefnilega í
Rifsberjahljómsveitina, er hann
hafðj hrist af sér ferðarykiö og
má þá fara aö búast við stórum
hlutum frá þeirrj hljómsveit, því
nógu var hún góð áður en Karl
bættist í bandið. Rifsberja er til-
tölulega nýkomin fram á sjónar
sviðið. Vakti fyrst á sér athygli
á hljómleikum í Tónabæ og hefur
síðan borizt óyenjuhratt upp met-
orðastigann.
Tilvera hefur nú verið fest á
myndsegulband hjá sjónvarpinu.
Lék hljómsveitin m. a. nokkur frum
samin lög, sem vænta má á hljóm
plötu innan skamms. Áhorfendur
og heyrendur voru að upptöku þátt
arins, sem tekinn var upp ,,life“ eða
með öðrum orðum, hljóðritun vai
gerð um leið og myndatakan fór
fram.
Nú fara hljómsveitirriár okkar.
brátí að syngja sitt;s)^i^j á fviðj;
neðri salar Glaumbæjar. Þar á
sem sé að koma upp diskótek mjög
fljótlega og verður þá ekki lengur
þörf fyrir hljómsveitir í húsinu, en
diskótek kom á efrj hæðina fyrir
þó nokkru. Hefur það gefið
svo góða raun, að annað þykir
ekki hlýða en að gera neðri
hæðina að diskóteki líka. Langtum
meirj umgangur hefur nefnilega ver
ið um efri hæðina s'íðan diskótekið
tók þar til starfa og þá vitanlega
á kostnað neör: hæðarinnar. Nú
þegar eru hljómburðártækin, sem
notazt verður við komin tii lands
ins og er bara beðið eftir hentugu
tækifæri til að koma tækjunum fyr
ir. eri sýningar á söngleiknum Hár,
■sem fara fram í Glaumbæ tefja
þáð verk eittihvað. Auk plötuspil-
aranna verður komið upp viðapiiklu
ljósaorgeli í neðri salnum, svo von
bráðar fara Glaumbæjargestir að
sjá hver annan í réttu ljósi.
„Mér virðast allir vorkenna mér
svo mikið eftir hljómleikana í Laug
ardalshöllinni,“ sagði Ingibergur
Þorkelsson í viðtali við Vísj i gær.
Kvað hann þáð hinn mesta óþarfa
að verið væri að vorkenna sér. ,,Ég
hef greitt allan kostnað af hljóm
leikunum til fulls,“ sagði hann og
bættj því við, að hann væ'r,- nú
á förum til London til áð semja
við brezka um þungaflutning á
hljómsveitum þaðan til brúks á
öðrum hljómieikum í Höllinni. Með
hljómsveitunum þrem, sem spiluðu
hér um daginn komu einir fjórii
brezkir umboðsmenn. Þar á meðal
einn frá NEMS og annar frá Crysta!
is, umboðsskrifstofu. sem m. a.
hefur Jethro Tull á sínum snærum.
,,Báðir sýndu þessir umboðsmenn
mikinn áhuga á áframhaldandi
viðskiptum okkar á milli,“ sagði
Ingibergur, „og liggur það ljóst
fyrir, að ekki þurfi að líða á Iöngu
þar til ég get farið af stað með
undirbúning að næstu hljómleik-
um.“
Ingibergur ekki af baki dottinn — sækir fleiri hljóm-
sveitir tit London. 0 Tilvera í sjónvarpið og nýr sjón-
varpsþáttur fyrir ungt fólk $ Kalli Sighvats kominn
í hljómsveit 0 Hljómsveitum útrýmt meö öllu úr
Glaumbæ.
Brátt fer áf stað í sjónvarpinu
nýr skemmtiþáttur fyrir ungt fólk.
Komu fjögur unglömb til greina
sem stjórnendur þess þáttar, þau
Ómar Valdimarsson á Vikunni,
Ásta Jóhannesdóttir plötusnúður,
Jói í Óðmönnum og Jonni í Adam.
Var gerð hjá sjónvarpinu svokölluð
skermprufa með þessu fólki, stutt
ur umræöuþáttur, sem gegndi því
hlutverkj að prófa það, hvert
þeirra vær; bezt til þess fallið að
gegna hlutverkj stjórnandans. Ekki
verður neitt sagt um það að svo
komnu máli, hvert þeirra fjögurra
varð fyrir valinu. En hinu sákar
ekkj að segja frá, að fyrrnefndur
umræðuþáttur reyndist svo góður,
að hann vérður til sýnis í sjón-
varpinu 4, október n. k.
Þórir Baldursson
leikur vinsæl íslenzk lög
á HAMM0ND - 0RGEL
Sérstaklega vönduð stereo hljóöritun.
Átta lagasyrpur, 27 lög: Blítt og létt — Selja Htla —
Viltu meö mér vaka í nótt — Söngur jólasveinanna —
Bláu augun þín — Hún var svo sæt — Þú og ég —
Ship-ohoj — Vertu sæl mey—■ Þóröur sjóari — Ljós
brá — Sveitin milli sanda — Ást í meinum — Gvendur
á eyrinni — Laus og liöugur — Fyrsti kossinn —
Brúnaljósin brúnu — Mikiö var gaman aö því — Játn
ing — Viö bjóðum góöa nótt — Sjómannavalsinn —
Síldarvalsinn — Síldarstúlkan — Landleguvalsinn —
Ágústnótt — Við eigum samleiö — Bjartar vonir vakna.
ÞETTA ER HLJÓMPLATA FYRIR FÓLK
Á ÖLLTJM ALDRI.
ÞETTA ER SÉRSTAKLEGA HEPPILEG
GJÖF FYRIR ÍSLENDINGA OG ÍSLANDS-
VINI ERLENDIS.
SG-hljómplötur