Vísir - 24.11.1971, Page 1

Vísir - 24.11.1971, Page 1
ísm <54. árg. — Miðvibudagur 24. nóvember 1971. — 269. tbl. Sir Alec og lan Smith somdíi í morgun Sir Aiec Douglas Home og Ian 'mith í Ródesíu hafa gert með sér samkomulag um ákveðinn Ródesíu, og verður þeim sátt- sáttmála milli Bretlands og mála haldið sem tninaðarmáii ____________________ __________ fyrst í stað, en væntanlega verð Ná hafa allir sjónvarp, þá eru hað „hávaðatækin // Gífurlega hefur dregið úr innflutningi á sjónvarpstaekj- um á árinu miðað viö sama tíma í fyrra. Hins vegar hef- ur innflutningur á hljóövarps viðtækjum tvöfaldazt. Tölur um þetta efni eru í nýjasta hefti af Hagtíðindum. Þar sést að sjónvarpstæki hafa verið flutt inn fyrir rúmar 30 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins í fyrra en ekki nema fyrir rúmar 18 milljónir króna á sama tíma i ár. Hljóðvarpsviðtæki voru flutt inn fyrir rúmar 18 milljónir á þessum tíma i fyrra en nú í ár fyrir rúmar 35 milljónir króna. Óli A. Bieltvedt framkvæmda- stjóri Nesco hf. sagði I viötali við Vísi í morgun, að sala á út- varpstækjum hefði ekki aukizt svo mjög á árinu. Undir þennan lið féllu hljómflutningstæki og hefði innflutningur á þeim tvö- faldazt um leið og 'sjónvarps- innflutningur hefði minnkað um helming, „Það er algjör öldudalur í sjón varpssölu í dag. Öll stækkun og aukning sjónvarpssvseða er um garð gengin, en þaö var árið 1969 og í byrjun ársins 1970, sem Austfirðirnir og Norðaustur landið komu inn í kerfið, og þar með var búið að fullnægja þörf- um landsmanna. Aö vísu er end- urnýjunarsala hafin hér á Reykjavíkursvæðinu hjá þeim, sem hafa verið búnir að kaupa sér sjónvarp áður en islenzka sjónvarpið byrjaði. En við gerum ráö fyrir, að sjónvarpssala auk- ist á næstu árum og reiknum með töluvert mikilli sölu árin 1974—75. að þá muni þeir, sem hafa átt sjónvarpstæki síðan ís- lenzka sjónvarpið tók til starfa fara að endurnýja tæki sín. Af innflutningi á bljóðvarps- viðtækjum býst ég við, að 60— 70% séu hljómflutningstækja- sala. Fólk almennt hefur nú eign ast hin algengu heimilistæki og mjög margir, sem eiga öll heim- ilistæki og snúa sér nú að hljóm flutningstækjunum, enda mun það verða innan fárra ára, að fólk telur slík tæki nauðsynleg á heimilinu." Óli A. Bieltvedt sagði einnig að sú þróun sé að- eins að byrja, að fólk kaupi sér lítil sjónvarpstæki eins konar ferðatæki, sem hægt er að flytja á handhægan hátt. — SB ur þingum beggja landanna til kynnt um innihald hans bráð- lega og leitað samþykktar þeirra, að því er NTB sagði um tíuleytið í morgun — sjá frétt á bls. 3 Rip Kirby kominn aftur Breytir enn farvegi sínum Jökulsá á Fjöllum breytti enn far- vegi sínum í gær og flæöir nú aust ur úr sínum ganila farvegi, en á miðvikudaginn var brauzt hún vest ur úr farvegi sínum og í svokall- aöan stárárfarveg, fram hjá Keldu nesbæjum. Króaði hún þá af þrjú býli sem síðan hafa verið vega- sambandslaus. Nú flæöir hún yfir hjá Skógum í gamlan farveg, sem kallaöur er Jökulsárfarvegur, en þar hefur hún stundum flætt áð- ur. Klakastíflan er en.n í ánni nokkrum kílómetrum neðan við 'brúna, en búizt er við að hún fari að gefa sig þar sem nú er tíu stiga hiti nyrðra. Vegagerðin vann i morgun að viðgerö á veginum nið ur að bæjunum sem einöngruðust í flóðinu. Og áin hefur skilið eftir sig mikið klakahröngl þar sem hún fór um. Þar sem hún felfur núna gerir hún ekki neinn skaða. —JH Sumarblíða á Siglufirði — 70 stiga hiti i morgun Mikil hlýindi voru v’íða um land í morgun og úði í lofti — Norðanlands var víða sumar- blíða. Til dæmis var 10 stiga hiti á Siglufirði T morgun. — Mun það heldur óvenjulegt um þetta leyti árs í nyrzta kaup- stað landsins. Þar er jörð alauð eins og á sumardegj og fólk léttklætt á götum. —JH Vaxandi J efasemdir „Ætli þaö sé tilviljun að sagt er, að ýmsir vildu nú að þeir er, að ýmsir vilu nú að þeir hefðu kosið öðruvísi en þeir gerðu t sumar“. Þetta segir Jó- hann Hafstein, oddviti stjórnar andstöðunnar á þingi í grein i blaðinu í dag. Þar fjallar Jóhann um vaxandi efasemdir, sem farnar eru að koma í ljós. — Skyldi stjórnarforustan hafa orðið svolítið kostnaðarsöm? Sjá bls. 8 Rip Kirby er afíur snúinn á vit ævintýra. Gamlir lesendur Vísis muna eflaust eftir þessum enska yfirstéttarfugli sem dund ar sér við að vera leynilögreglu maöur í frístundum. Frá og með deginum I dag, skreytir myndasagan um Rip Kirby aftur síður Vísjs. Skapendur Kirbys eru tveir Bandaríkjamenn, Fred Dicken- son, gamall blaöamaður frá Chicago og John F. Prentice frá Texas, en sá er teiknari. — Prentice, teiknari segir það mik ið starf að teikna Kirby, „það er langt síðan ég gaf frá mér gamlan draum um átta stunda vinnudag oft verð ég að vinna fram á nætur við Kirby — og / raunar fleiri fígúrur, sem ég) teikna“, — GG l Líðan Magn- úsar betri í gær Líðan Magnúsar Kjartanssonar ráðherra mun hafa veriö betri í gær. VTsir fékk þær upplýsingar hjá Hannesi Jónssynj blaðafulltrúa rík isstjórnarinnar í morgun að búizt sé við, að Magnús Kjartansson verði frá störfum í um það bil 4—6 vikur. Á meðan mun Lúðvík Jósefsson fara með embættisverk Magnúsar. — SB Það er ekki nóg að trimma til að vinna bug á stress- ímu, — trimmið getur atlt eins orð- ið liður í Ifsgæða- kapphlaupinu, rétt eins og streðið við að eignast allt oí stóran bíl á götuna, allt of stóra frysti kistu, allt of mikið af tilbúnum lffs- gæðum. Hvað er þetta stness?. — Sjá bls. 9 Ætluðu að selja börnin Upp komst á dögunum um furðu lega verzlun í Florida I Banda- ríkjunum, — selja átti tvö lítil böm fyrir sem svarar 624 þús- und krónur — og gamlan bíl- skrjóö. Sjá bls. 2 Í Hjákátleg íbrótt? „Sú var tiðin að orð fór af íslend ingum fyrir frækrtleik. — Ei skemmst að minnast heims- meta Gunnars frænda vors á Hlíðarenda, sem enn standa ó- hnekkt. Um tónlistina gegnir nokkuð öðru máli. A’ldarandi á Islandj hefur einlægt lagzt gegn þessar; hjákátlegu íþrótt, það er alveg nýskeð ef íslendingar eru hættir að líta á tónlist eins og afkáralegan dónaskap uppi f sveit“. Þetta segir tónlistar- gagnrýnandinn okkar, Gunnar- Björnsson m.a. í grein sinni T blaðinu í dag. S/o bls. 7

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.