Vísir - 30.12.1971, Side 2

Vísir - 30.12.1971, Side 2
V í S IR . Fimmtudagur 30. desember 1971. 2 _________________________ Stjörnuljós. biys, flugeldar í úrvali Verzlun Ólufs R. Borgargerði 6 — Sími 34408. hefja starfsemi sína á síðara námstímabili vetrarins í Laugalækjarskóla miðvikudaginn 5. janúar kl. 19.30. Námstímabilið stendur til marzjoka. Innritun fer fram í skólanum 3. og 4. janúar kl. 16—19 báða dagana. Þeir, sem stunduðu nám á fyrra námstímabili og ætla að halda áfram, þurfa einnig að láta innrita sig á þess um tíma. Eldri kennslugreinar: íslenzka, danska, norska, sænska, enska, þýzka, franska, spánska, ítalska, reikn ingur, bókfærsla, ísl. bókmenntir, foreldrafræðsJa, ræðumennska og fundarreglur kjólasaumur, bama- fatasaumur, sniðteikning, vélritun, föndur og smelti. Innritunargjald er hiö sama og áður kr. 300,00 fyrir bóklegar greinar, kr. 500,00 fyrir verklegar greinar nema barnafatasaum og sniðteikningu kr. 1000,00 en þar em kenndir helmingi fleiri tímar en í öðmm grein um. Gjaldið greiðist við innritun. Nýjar kennslugreinar: íslenzka, danska, enska og stærðfræði til samræmis gagnfræðaprófs — ætlað til stuðnings við þá, sem búa sig undir próf utan skóla. Kennt verður fjórar stundir á viku til aprílloka. — Kennslugjald kr. 800,00. Hússtjórn. Fimm vikna námskeið í samvinnu við Hús mæðraskóla Reykjavíkur. Kennsla hefst 10. janúar. Kennslugjald kr. 2.500.00. Uppeldi vangefinna barna og uppeldi lamaðra og fatl aðra bama. Stutt námskeið fyrir foreldra (fyririestrar og samræður) í samvinnu við Styrktarfélag vangef inna og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Þessi tvö námskeið verða nánar auglýst síðar. 1 Árbæjar- og Breiöholtsskólum verða námsflokkar í ensku, kjólasaumi og barnafatasaumi. Innritun í þá verður í skólunum miðvikudag 5. janúar kl. 16—19. Ekki verður innritaö í síma. Nánari upplýsingar á inn ritunarstað. Geymið auglýsinguna. Forstöðumaður. Vísað úr landi félaus um og iBjukusam — ungur Frakki viðriðinn ávisanafals send ur utan i gær Ungur Frakki, sem hér á landi hefur dvalizt undan fama 10—11 mánuði, var gripinn af laganna vörðum nýlega í sambandi við ávís- anafals. Stóð hann og horfði á, er ung stúlka falsaði 4200 kr. ávísun úr hefti, sem stolið var af afgreiðsluborði i Björnsbakaríi. Segir ekki frekar af stúlk- unni nú en Frakkinn var send ur úr landi f gær — þótt ekki hefðj hann beinlfnis gerzt sek ur um faisið sjálfur svo sannað sé „Við erum að hreinsa til núna — notum nóvember, des ember og janúar til þess að losna við úr landinu útlendinga, sem koma hingað sem ferða- menn, en reynast svo eitt hvað annað. Það er ekkert sér stakt með þennan Frakka. Hans mál tilheyrir aðeins daglegum viövikum hér á skrifstofunni," sagði Árni Sigurjónsson hjá útlendingaeftirlitinu við Vísi í gær. — Þið vísið kannski einum úr iandi á dag til jafnaðar? „Við eigum kannsk; af- skipti af brottför eins manns á dag T. d. þessi Frakki, hann hafði brotið allar reglur sem gildaum útlendinga hér Fiæktist um fé- laus og atvinnulaus — byrjaði oftar en einu sinnj að vinna einhvers staðar, án þess að fá atvinnuleyfi. Við höfðum margoft aðvarað hann, en hann lét sér ekkj segjast. Þá var ekki annað að gera en senda hann heim.“ — Sendið þið þess háttar flækinga heim á kostnað ís- lenzka rfkisins? „Stundum er það — en við borgum ekki far undir nokkurn mann fyrr en í fulla hnefana. Annars gilda um þetta alþjóð- legar reglur. Ef um Skandinava er að ræða, borgum við enda borga þeir undir okkar fólk sem líkt er ástatt um. Stundum á fólkið von á að fá 'peninga senda, og þá bíðum við með að senda það úr iandi.‘‘ —GG Samvinna og samkeppni Þa3 er samvinna milli Flugfélagsins og BEA, en jafnframt sam- keppni um að ná sameiginlegu takmarki: tíðum og reglubundnum ferðum milli íslands og Bretlands, aukinni þjónustu og auðveldun farþega til framhaldsflugs, hvert sem ferðinni er heitið. Fiugfélagið og BEA bjóða íslenzkum farþegum 5 vikulegar ferðir að vetrarlagi og 11 ferðir í viku að sumarlagi milli Reykjavíkur, Glasgow og London með fullkomnustu farkostum, sem völ er á: Boeing 727 og Trident 2. Aðalsmerki okkar er: þjónusta, Hraói, þægindi

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.