Vísir - 12.01.1972, Blaðsíða 1
62. árg. - - Miðvikudagur 12. janúar 1972. — 9. tbl.
L
Á batavegi eftir holstungur
□ Líðan mannanna tveggja sem
stungnir voru í kviðinn um
áramótin — annar með hnífi og
hinn oddhvassri hárgreiðu ,— er
nú með betra mðti.
Annar fékk reyndar heimfarar
Ievfi af siúkrahúsi fyrir tveim dög
um. Sár hans undan greiðuskaft-
inu hélzt vel við, og þótt skaft
ið af greiðunni hefði brotnað af
og setið í kviðnum á honum,' tókst
læknisaðgerðin svo vel að bati
hans hefur verið ör.
Hinn liggur enn á sjúkrahúsi og
hefur verið þungt haldinn. Kunn
ing.iakona hans hafði stungiö „nn
með búrhnífi aðfaranótt nýársdags.
Hafa iæknar tvisvar orðið að gera
á honum aðgerð en það er fyrst,
síðustu tvo daga að hann hefur
farið að hressast smám saman. —
Líðan hans hefur verið svo, að
ekki hefur verið talið á það hætt
andj að yfirheyra hann, svo að
frásögn hans sjálfs af atvikum ligg
ur ekkj fyrir enn. —GP
•••••••••••••••••••••••
j Erlendar
líréffir 1971
| í myndum
* S/o myndsjá bls. 4
e------------------—
• ^
Utsölutíminn
Blaðamaður og ljósmyndari
!itu viö á útsölunum í verziun
am borgarinnar í gærdag. Þeir
voru minnugir sagna um „blóð
jga bardaga“, sem háðir hafa
verið um flíkurnar á útst" ;m,
— en hvað var að sjá? Það
var þá ekki svo mikið um að
vera, þegar á hólminn var kom
ið.
Siá bls. 9
:Sezf klædda
| fólkið
•
J Líklega hefur frú Aga Khan
«ékki farið og gert fatakaupin
,sín á útsölum á síðasta ári.
JHún var nefnilega efst á iista
•yfir bezt klæddu konur heims
2ins 2000 tízkufrömuðir í heim
Jinum voru sammála um þéria
,og kusu franskan barón í efsta
Jsætið kariamenin.
I Sjá bls. 2
: Diorgler-
i augun, —
I nýtt
• stöðutákn
O
s Sífellt er verið'að finna upp
Jsitthvað tq að selja mannfólk
Jinu sem getur verið stöðutákn
•— statussymból kalla þeir það
Jytra. Nýjasta nýtt eru Dior-
•gleraugun á 5000 krónur
Sjá bls. 13
i Tómatsósan
: rennur í
i stríðum
i straumum
•
• Inni { blaðinif skrifar Gunnar
^Gunnarsson um kvikmyndir í
Jbíóum borgarinnar. Þar rennur
•tómatsósan i stríðum straum
2um f tveim þeirra a. m. k.
Sjá 'bls. 7
Menn eða
meindýr?
— Sjá bls 6
FÆDINGAR AUKASTÁ NÝ
— Pillan vjrðist minna notuð en áður
Fæðingum fjölgaði í
Reykjavík á árinu er
leið. Voru fleiri fæðingar
en nokkru sinni áður
skráðar á Fæðingarheim
ilinu. Ef til vill á pillan
sinn þátt í fjölgun fæð-
inga eins og hún átti í
fækkun fæðinga undan-
farin ár. F.n fleiri orsakir
kunna að vera fyrir fiölg
un fæðinsa t. d. bættur
efnahagur fólks.
Á fæðingardeiid Landspítalans,
Fæðingarheimili Reykjavíkur-
borgar og Fæðingarheimilinu
Rauðarárstítr voru skráðar 2347
fæðingar á árinu er leið.
Kristín Tómasdóttir yfirijós
móðir fæðineardei'dar Land
spítalans .sagði 1316 fæð
ingar hafa verið skráðar á fæð
ingardeildinn; árið 1971 og eru
það mun fleiri fæðingar en ár
ið 1970 eða 125 fleiri. Hins veg
ar voru tv’íburafæðingar með
færra móti Kristín taldi ekki
ólíklegt að pilian hefði átt sinn
þátt f fjöigun fæðinga, konur
hefðu viljað hvfla sig eitthvað
á henni.
Huida Jensdóttir forstöðukona
Fæðingarheimilis Reykjavíkur
borgar sagði að árið 1971 hefðu
fæðingar á Fæðingarheimilinu
verið 1024 og fæðst 1031 barn.
„Fæðingar hafa a'drej verið eins
margar hjá okkur. 50—60 fæð
ingum fleiri en T hittifyrra, en
þess ber að geta, að fæðingar
á árinu 1970 voru færr; en
árið 1969.“ Þá sagði Hulda, að
fæðingar hefðu verið fleiri en
sem svarar nýtingu rúma á Fæð
ingarheimilinu, þar eru 25 rúm.
Um það hvort pillan kæmi
eitthvað við sögu í sambandj
■ ' .. . ,. )■
við fjölgun fæðinga sagði Hulda,
að allir hlutir kæmust á há
toppinn og döluðu síðan aftur.
Guðrún Halldórsdóttir Ijós-
móðir á Fæðingarheimilinu
Rauðarárstíg 40 sagðist hafa að
stoðað við 7 fæðingar og hefðu
sumar þeirra verið út; í bæ.
,,Það er einstaka kona, sem
fæöir enn heima hjá sér, annars
hefur það mikið minnkað Kon
ur viilja losna við þvotta og
önnur aukastörf, sem fylgja
fæðingum í heimahúsum og
svo eru þær kannskj svolítið
órólegar sem eru að fæða I
fyrsta sinn og kjósa þá fremur
fæðingarstofnanir.‘‘ —SB
Margir munu telja það ‘=
góð tíðindi að fæðing-
um fer aftur fjölgandi
á íslandi, — og nú ætti f
storkurinn að hafa nóg
að starfa á næstunni.
h
Óttast að þeir vilji
tefla eftir I. júní
Skáksamband I’sland bíður nú á-
tekta, meðan tilboðin eru í athug-
un hjá Fischer og Spasski. Guð-
mundur G. Þórarinsson forseti sam
bandsins sagði í morgun, að Islend
ingar væru aö gera kannanir og
hefðu sent skeyti í ýmsar áttir. —
Sjónvarpsstöðvar hefðu sýnt á-
huga en málið væri enn ekki á því
stigi, að um á'kveðin tilboð gæti
verið að ræða.
Guðtnundur sagöist óttast, að tím
inn kynni að skipta miklu, en íslend
ingar hafa miðað tilboð sitt við það,
að keppnin færi fram fyrir 1. júní.
Ef hún yrði seinna, yrðu ýmiss
vandkvæði á að hún gæti farið
fram hér.
Guðmundur sagði, að hætt væri
viö, að Spasski og Fischer væru hálf
ragir hvor við annan og vildu fá
sem lengstan undirbúningstíma. —
Eftir 1. júní mætti búast við, að hó-
tel yröu upppöntuð og jafnvel flug
vélar. Hann kvaðst hafa beðið Ferða
málaráð að athuga þetta atriði sér
staklega fyrir skáksambandið
Hann kvaðst ekki hafa ákveðið
ferð til aðalstöðva alþjóðaskáksam
bandsins í Amsterdam að svo
stöddu. fslendingr mundu hafa sam
band við alþjóðasambandið innan
skamms. en hann teldj ekki
rétt að þeir sneru sér beinlínis til
skákmeistaranna sjálf.ra, Júgóslöv-
um og öðrum, sem tilboð sendu,
kynni að geðjast illa að slíku. og
heiðurinn skipti mestu fyrir okkur.
Nú yrði að bíða átekta. — Skeyti
fsiendinga hefði verið sent áfram til
skákmeistaranna, og væri þaö alla
vega jákvætt — HH
Mannfjöldi 1. des.
Hinn 1. desember síðastliðinn
voru íbúar landsins taldir 206.729
á móti 204.250 1. desember árið
1970, Vísir fékk þessar tölur gefn
ar upp hjá Hagstofunni í morgun,
en tölurnar frá Reykjavík eru bráða
birgðatölur.
Ibúaf jöldi Reykjavíkur var á
sama tíma S2.693 en hinn 1. des.
1970 81.551.
Hinn 1. desember 1971 voru
skráðir 59.696 íbúar í kaupstöðum
landsins, en 58.577 árið 1970. — í
sýslunum 64.340 árið 1971 en 64.112
árið 1970.
Stærstu kaupstaðimir eru: Kópa
vogur með 11.238 íbúa 1. desem-
ber 1971 Akureyri með 10.898 íbua
og Hafnarfjörður með 10.071 íbúa.
Keflavík kemur í fjórða sæti með
5.771 íbúa. — Mannfæsti
hreppur landsins er enn Loðmundar
fjarðarhreppur en þar er skráður
einm fbúi. — SB